Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 27
ELlNBORG LÁRUSDÖTTIR, RITHÖFUNDUR;
HVERNIG HAFSTEINN KOMST
1 SAMBAND VIÐ AMERÍSKA
SÁLARRANNSÓKNARFÉLAGIÐ
Árið 1971 barst mér bréf frá Bandaríkjunum. Maður að
nafni Erlendur Haraldsson starfaði við Virginíu-háskóla í
Bandaríkjunum og var bréfið frá honum. Sagði hann mér að
á þessari vísindastofnun, sem fæst við rannsókn dulrænna
fyrii’ba'ra, væru til bækur, sem ég hefði skrifað um Hafstein
Björnsson miðil. Hann kvaðst vera að þýða kafla og kafla
úr bókunum fyrir starfsbræður sína, en þeir vildu kynna sér
það nánar hvernig miðillinn starfaði og eins hvernig ég hefði
unnið bækurnar. — Fer bréf Erlendar hér á eftir:
Kæra frú Elinborg.
Fyrir nokkru las ég kaflann Maður Mannsson í bók yðar um
Hafsteinn Björnsson miðil. Ég er til náms og starfa við háskól-
ann í Virginíu hér i Charlottesville og vinn hluta hverrar viku
við parasálfræðideild, sem er við háskólann. Ég hef skýrt starfs-
félögum minum hér frá Runólfi, og nú langar okkur að heyra
meira um ]>að óvenjulega fyrirbæri, er hann virtist geta sagt
fyrir hvar leggur sinn væri í húsi i Sandgerði. Gætuð þér gefið
okkur svör við eftirfarandi spurningum?
1. Hafði Hafsteinn búið í Sandgei-ði eða þekkt fólk ]>aðan, er
Runólfur fór að gera vart við sig á fundum?
2. Hversu auðvelt er að komast yfir annála þá, sem minnzt
er á i grein yðar? Hvar em þeir geymdir? Eru þeir til
prentaðir?
3. Hvenær var Rauðskinna, 7. hindi, gefið út? Séra Jón Thorar-
ensen skýrir frá þvi í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, er kafl-