Morgunn - 01.12.1974, Page 43
DRAUMAR OG SICYGGNI
121
framkvæmdum til fjáröflunar og það tókst. Guð og lians góðu
sendiboðar hafa alla mína ævi staðið við hlið mér og vísað
mér leið til góðra og hjálpfúsra manna, þegar ég hefi verið
mest hjálparþurfi. En árið 1930 var mikið athafna ár i sam-
bandi við þjóðhátíðina og þurfti því mikinn áhalda útbúnað,
þar á meðal aktýgja og fleira og féll það í minn hlut að útvega
þau og afgreiða fyrir ákveðinn tíma, að ógleymdum öllum
útbúnaði í Grænlandsför Vigfúsar Sigurðssonar gramlands-
fara og þeirra félaga það sama sumar, er þeir fóru með dr.
Wegner hinum þýzka náttúrufræðingi, sem varð fyrir hörmu-
legum örlögum á Grænlandsjökli, eins og kunnugt er.
Sá útbúnaður vai fólginn í því að smíða klyfjasöðla, leður-
reipi, nokkra hnakka og fleira á 28 hesta.
Þessa miklu vinnu og góðu viðskipti hefði ég ekki getað
orðið aðnjótandi og allra sizt afgreitt á svo takmörkuðum
tíma, hefði sá mikli, glæsilegi og prúði Vilhjálmur ekki birst
mér til hvatningar að undirbúningi og að ég gat staðið við
skuldbindingar mínar, bæði við viðskiptavini mína og lána-
drottna.