Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 49
HAFSTEINN BJÖRNSSON MIÐILL SEXTIU ÁRA 127
viðstaddur framangreindan skyggnislýsingafund og er ljúft
að votta það, að lýsing sænska blaðamannsins er rétt svo
langt sem hún nær. Það má þó bæta því við til skýringar
fyrir þá sem ekki hafa verið á slikum fundum, að þegar
blaðamaðurinn talar um „samskipti" milli hins látna og
fundarmanns, ber ekki að skilja það svo, að miðillinn komi
hér fram sem raddmiðill og fundarmaður heyri því rödd hins
framliðna beint af vörum miðilsins. Slikt getur ekki orðið
nema miðillinn falli í djúptrans, en það gerir Hafsteinn ekki
á skyggnilýsingafundum; aðeins á einkafundum með fáum
fundarmönnum. Á fyrrnefndu fundunum sér Hafsteinn hinn
framliðna með skyggni sinni, en sérstakur hjálparmaður —
einnig framliðinn og ósýnilegur — aðstoðar miðilinn í sam-
bandi við upplýsingar um hinn látna og boð þau sem hann
vill koma til viðkomandi fundarmanns. Stundum liggur það
einungis í því að reyna að sanna að hann lifi þótt látinn sé.
Stundum vill hinn látni láta eftirlifandi maka eða vanda-
mann gera einhverjar sérstakar ráðstafanir í sambandi við
eignir sínar eða hann behdínis bendir á hvar hlutir eru
fólgnir, sem eftirlifandi vandamenn hafa týnt og geta verið
mikilvægir t.d. áríðandi skjöl. Sá fundarmaður sem þykist
kannast við hinn framliðna sem lýst er getur spurt miðilinn
ýmissa spurninga, svo sem hvað hann heiti, hvar hann hafi
búið, hvaða starf hann hafi stundað, livemig hann hafi látizt
o. s. frv., og leysir miðillinn greiðlega úr þeim spurningum.
Þegar talað er um að 162 nöfn hafi komið frá miðlinum,
sem einhver hafi kannazt við, ber hins að minnast, að hverju
nafni fylgja jafnan ýmsar spurningar sem einnig er svarað,
þótt þær séu ekki taldar með.
Nú kann menn eðlilega að gruna, að hér geti verið um
huglestur að ræða, og vist gæti það skýrt ýmislegt af öllum
þessum furðulegu réttu svörum. En nú hefur það komið fyrir,
að fundarmaður telur að miðillinn hafi rangt fyrir sér um
eittlivert atriði, t.d. aldur, búsetu, eða dauðdaga hins látna.
I slíkum tilfellum hefur Hafsteinn Björnsson aldrei breytt
svörum sinum, heldur haldið því fram að hann færi með rétt