Morgunn


Morgunn - 01.12.1974, Page 53

Morgunn - 01.12.1974, Page 53
UNDARLEGT ÆVINTYRX 131 komum við að mjóum steintröppum, sem lágu niður með hálfhrundum hlöðnum steinvegg. Um síðir komum við að því, er virtist hálfhrundar dyr á veggnum, þar sem við geng- um inn um vegginn til vinstri og komum inn í steinhvelf- ingu. Þegar inn í hvelfinguna er komið, vei'ð ég þess vör, að til vinstri eru þrennar eða fernar dyr, sem ég ekki fékk að fara inn um og mér varð ljóst, að voru inngangur að dýflissum. En beint fram undan er breiður hlaðinn stein- stigi, sem lá i hálfhring upp á við með palli í miðjum stiga. Til hægri var einhverskonar gluggi. Fyrir neðan stigann og um gólfið á víð og dreif sá ég mikið af einskonar leirkei'um, öll meira og minna brotin, lík egj'pskri leirkeragerð og ýmis- lega krotuð. Ég tók einnig vel eftir veggjunum, sérstaklega þeim, sem stiginn lá með, þeir voru hlaðnir úr stórum til- höggnum steinum, nokkuð ilöngum, límdir saman með ein- hverskonar steinlími. Þótt veggur þessi væi'i hlaðinn, var hann tiltakanlega sléttur. Á vegginn upp með stiganum voru krotaðar einhverjar kynlegar myndir, sem virtust eiga að vera til skrauts. Þarna inni ríkti einhver kynleg, köld og þung- lyndisleg grafarkyrrð og dauðaþögn. Fyrir atbeina stúlkunnar skynja ég, að finnendur þessa staðar muni sjá og finna til á sama hátt og ég geri og verða fyrir sömu áhrifum. Síðan segir hún mér, að nú ætli hún að sýna mér nokkuð af því fólki, sem þarna hafi siðast búið og lifað og segja hrot af ævisögu þess. Hún segir, að við séum staddar í kjallara undir stórum steinkastala, sem þarna hafi staðið. Kastali þessi hafi veríð bústaður mikils höfðingja. Höfðingi þessi hafi verið uppi nxörgum öldum fyrir sína daga, en ekki gat hún þess, hvenær hún hefði lifað, þó skildist mér, að síðan væri enginn óratími. Hún segir aðeins, að þetta hafi átt sér stað óralöngu áður en Tsland varð til í núverandi mynd. Næst sé ég ungar konur ganga upp og niður stigann. Þetta eru mjög glæsilegar konui’, háar og grannar flestar. Mjög sambærilegar glæsilegum nútímakonum, vöxturinn máski nokkuð ávalari og mýkri. Hörundslitur nokkuð dökkur, líkt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.