Morgunn - 01.12.1974, Side 59
ÆVAR R. KVARAN:
LEIÐRÉTTTINGAR AÐ HANDAN
Það er litlum vafa undirorpið að drýgsta sporið í þá átt að
koma á fót kerfiskundnum og vel skipulögðum vísindalegum
rannsóknum á dulrænum fyrirba'rum var stigið árið 1882,
þegár Brezka sálarrannsóknafélagið var stofnað. Það var gæfa
þessa félagsskapar, að frægir vísindamenn og mikils virtir á
sviðum raunvísindanna voru meðal stofnenda hans. Fyrsti for-
seti félagsins var hinn mikilsvirti heimspekingur prófessor
Henry Sidgwick og meðal félaga ýmsir Nóbelsverðlaunahafar;
fflenn eins og eðlisfræðingurinn Sir William Crookes og Sir
Oliver Lodge, franski heimspekingurinn Henrv Bergson (ég
leyfi mér að kalla hann franskan heimspeking, þótt hann væri
fæddur á írlandi, þvi í Frakklandi og á frönsku skrifaði hann
öll sín rit). Þá má telja Frederick W. H. Myers, sem siðar
skrifaði hið mikla sannanarit um líf að þessu loknu THE HU-
Man personality and its survival of bodily
death, og þýzka líffræðinginn Hans Driesen, franska líf-
fiðlisfræðinginn Charles Riohet og heimspekingana F. C. S.
Schiller og D. C. Broad. Bandaríska sálarrannsóknafélagið var
stofnað þrem árum síðar og meðal hvatamanna að stofnun
þess var fremsti sálfræðingur Bandaríkjanna William James,
sem löngu er heimsfrægur orðinn, sem einn af helztu braut-
ryðjendum í sálfræði 20. aldar.
Brezka sálan-annsóknafélagið setti sér það mark, að rann-
Si|ka án hleypidóma eða fyrirfram mótaðra skoðana og í anda
visindanna þá hæfileika mannsins, sem eru taldir þess eðlis, að
ahnemit viðurkenndar tilgátur nægja ekki til skýringar.
Allt frá upphafi hafa þessi sálarrannsóknafélög safnað úr-