Morgunn - 01.12.1974, Side 89
í STUTTU MÁLI
167
sjá nema svartamyrkur. Fannst mér fólkið allt vera skelfingu
lostið. Ég reyni að troða mér í gegnum mannþröngina í göng-
unum og ég fer alla leið út á hlað. tJti var almyrkvað eins
og áður sagði, en mér verður litið til suðvesturs, þar sé ég
mynd á himninum, sem mér finnst vera af Jesú Kristi og
hún kemur úr suðvestri til norðausturs.
Maðurinn í myndinni var í fullum herskrúða, öllum loga-
gylltum. Og ég þykist stíga fram á hlaðið, horfa gegn mynd-
inni og segja. „Ég er ekkert hrædd, þetta er Jesús Kristur“.
Draumurinn var ekki lengri.
Ráðning
Þessi draumur kom fyrr fram, en mig óraði fyrir. Sama ár
snemma í júli var ég að sækja hross. Sé ég hvar kemur stúlka
utan götumar, og að það er systir min. Bíð ég eftir henni og
verðum við samferða suður göturnar. Vorum við fyrir neðan
Gil, sem er næsti bær norðan við Hvamm, þegar allt í einu
verður svartamyrkur i kring um okkur og ég heyri voða
hávaða, það er eins og fjöllin séu að hrynja. Svo sjáum við
eldglæringar og svo fer að hellirigna. Hryssumar sem við
riðum á, fældust og við lágum i sin hvorum skorningnum.
Þá segir systir mín: „Vertu ekki hrædd, þetta er bara skrugg-
ur“. Ég hafði aldrei séð eða heyrt skruggur og var ekki nema
von að ég yrði skelfd, því þetta voru mjög kröftugar skruggur.
Þetta var árið 1919.
II
Þennan draum dreymdi mig 1922. Ég bjó þá á Gili í Fljót-
um og átti þá tvö börn, tvær stúlkur, önnur hvítvoðungur en
hin dálitið stálpuð.
Mér fannst ég vera ein heima með bömin og er frammi i
cldhúsi. Þannig háttaði til, að innan við eldavélina var smá
skot, þar sem eldiviðnum var hlaðið upp. Þá finnst mér að
3 til 4 menn komi inn í bæinn og finnst mér að þeir ætli að
gera okkur eitthvað illt. Ég fer inn í eldiviðarskotið og þá
opnast þar veggurinn og ég ýti yngri stúlkunni út um gatið