Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 46
FRÆÐIGREINAR /LÍFFÆRAFLUTNINGAR
T
lungnaígræðslna framkvæmdar vegna þeirra (1,2). í
öðrum löndum er alfa-l-andtrýpsín skortur algeng
ástæða fyrir lungnaígræðslu en sjúkdómurinn hefur
ekki fundist á íslandi.
Undirbúningur og mat fyrir lungnaígræðslu
Vanda þarf vel til vals sjúklinga fyrir lungnaígræðslu
og er nauðsynlegt að hafa aldur sjúklings í huga. Að
jafnaði eru ekki teknir sjúklingar eldri en 55 ára til
hjarta- og lungnaígræðslu, ekki eldri en 60 ára sé um
bæði lungu að ræða og ekki eldri en 65 ára til ígræðslu
annars lungans. Stærð brjóstkassa, ABO blóðflokkun
og saga um cýtómegalóveiru- (CMV) sýkingu eru
einnig mikilvægir þættir þegar verið er að velja
sjúklinga til ígræðslu (3). Fyrri cýtómegaló-
veirusýking er þó ekki eins mikilvæg og áður því allir
fá þriggja mánaða gancíklóvírmeðferð eftir ígræðslu.
yfirleitt talið óhætt að gera lungnaígræðslu. Sjúk-
lingar verða að vera reyklausir í að minnsta kosti sex
mánuði til að teljast hæfir til ígræðslu. Sama gildir um
aðra fíkn eins og áfengi. Pá eru alvarlegir geð-
sjúkdómar sem stuðla að lélegri meðferðarheldni
frábending. Vegna aukinnar hættu á ýmsum
fylgikvillum er miðað við að sjúklingar séu ekki á
hærri steraskammti en sem nemur 15 mg af
prednisóloni á dag. Saga um fyrri aðgerðir á
brjóstholi eða fleiðrulímingu (pleurodesis) gera
aðgerðina erfiðari og auka hættu á blæðingu (3,4).
ígræðsla lungna í sjúklinga með bandvefssjúkdóma
getur verið vandkvæðum bundin vegna aukinnar
hættu á fylgikvillum (5). Langvinnar sýkingar í
öndunarvegum eru ekki frábending fyrir
lungnaígræðslu nema ef um er að ræða sýkingu með
bakteríunni Burkholderia cepacia (6).
Frábendingar fyrir lungnaígræðslu
Helstu frábendingar fyrir lungnaígræðslu eru sýndar í
töflu II. Þar má nefna þörf fyrir háa steraskammta,
meiriháttar aðgerð á brjóstholi, lungum eða fleiðru,
insúlínháða sykursýki, óafturkræfa líffærabilun eins
og lifrar- eða nýrabilun, sögu um krabbamein og
reykingar og aðra fíkn (2). Ef sjúklingar hafa verið
læknaðir af krabbameini í fimm ár eða meira er
Table 1. Examptes of indications for lung transplantation.
Disease categories Examples
Pulmonary vascular diseases Primary pulmonary hypertension, Eisenmenger syndrome
Fibrosing diseases Idiopathic pulmonary fibrosis, sarcoidosis
Chronic obstructive pulmonary diseases Emphysema, alfa-l-antitrypsin deficiency
Recurrent pulmonary infections Cystic fibrosis, bronchiectasis
Other Collagen vascular diseases, drug- and toxin-induced
Table II. Exampies of contraindications for lung transplantation (some can be relative contraindications).
Contraindications Examples
Immunosuppression Steroid dose higher than 15 mg daily
Thoracic surgery Thoracotomy, pleurodesis
Diabetes mellitus Insulin-dependent diabetes mellitus
Irreversible organ failure Kidney or liver failure
History of cancer Less than 5 years from diagnosis
Systemic diseases Connective tissue disorders
Infections Active extrapulmonary infections, eg hepatitis
Nutritional status Severe malnutrition or marked obesity
Skurðtækni
Lungu til ígræðslu fást fyrst og fremst frá látnum
gjöfum. Þau eru sennilega viðkvæmasta líffærið í
heiladauðum einstaklingi og geta auðveldlega
skemmst, til dæmis vegna vökvasöfnunar, ásvelgings,
lungnabólgu tengdri öndunarvél og síðast en ekki síst
vegna fyrri reykinga. Af þessum orsökum er aðeins
hægt að nýta um fimmtung þeirra lungna sem koma
frá látnum líffæragjöfum. Þá hafa lungun mjög
stuttan blóðþurrðartíma eða innan við sex
klukkustundir, þannig að ekki gefst tími til að gera
fullkomna vefjaflokkun og er því stuðst við stærð
brjóstkassans og ABO blóðflokka til að finna réttan
þega (1-3).
Hægt er að gera mismunandi aðgerðir eftir því
hver ábendingin er. Hjarta- og lungnaígræðslu er
beitt við lungnaæðasjúkdóma, til dæmis heilkenni
Eisenmengers ef ekki er unnt að leiðrétta
hjartagallann. Eins ef um er að ræða alvarlegan
kransæðasjúkdóm eða vanstarfsemi á vinstri slegli.
Bæði lungu eru grædd í þá sem eru með þrálátar
lungnasýkingar svo sem slímseigjusjúkdóm eða
berkjuskúlk (2). Langalgengast er þó að einungis
sé annað lungað grætt í. Með þessu móti má nýta
lungun úr einum gjafa í tvo þega. Hefur þessi
aðferð verið notuð við alla sjúkdómaflokka nema
slímseigjusjúkdóm og berkjuskúlk (7). Þegar þessi
aðferð er notuð við sjúklinga með lungnaþembu
geta komið upp vandamál vegna yfirþenslu á
lunganu sem eftir er, sérstaklega fyrst eftir að-
gerðina (1). Igræðsla beggja lungna í röð er fólgin
í því að græða tvö lungu í samtímis í sömu
aðgerðinni. Er þá hægt að komast hjá því að nota
hjarta- og lungnavél. Þessi aðferð er mest notuð
hjá sjúklingum með slímseigjusjúkdóm og
berkjuskúlk. Síðustu ár hafa einnig komið til
sögunnar ígræðslur á einstökum löppum
lungnanna frá lifandi gjöfum. Eru þá græddir í
588
Læknablaðið
2000/86
J