Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 67

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNINGAMINJASAFN Ræða Sigurbjörns Sveinssonar Mennlamálaráðherra, fjármálaráðherra, þjóðminjavörður og aðrir góðir gestir. Þegar Jón Steffensen, þá prófessor emeritus en áður prófessor í líffærafræði við Læknadeild Háskóla Islands, lést árið 1991, gaf hann Læknafélagi íslands aðrar eigur sínar en húseign og bókasafn. Skyldi læknafélagið ráðstafa erfðafénu til hagsbóta fyrir lækningaminjasafn í Nesstofu. Um langt skeið hafði áhugamenn urn sögu læknisfræðinnar dreymt um veglega endurreisn Nesstofu og nýtt hlutverk hennar og þessarar fallegu jarðar í Nesi við Seltjörn við varðveislu og sýningu minja, sem tengjast sögu lækninga hér á landi. Fór vel á því að draumurinn snerist um Nes, þar sem Bjarni Pálsson, landlæknir, hóf störf við lækningar og lyfsölu fyrir tæpum 240 árum. Er sú saga kunn og óþarfi að rekja hér. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar var stofnað í desember 1964 og var Jón Steffensen formaður þess frá upphafi og til æviloka. Jón var prófessor í líffæra- og lífeðlisfræði, en hafði um langan aldur bæði sem fræði- og áhugamaður lagt sig eftir viðfangsefnum eins og mannfræði, uppruna Islendinga og sögu læknisfræðinnar. Hann tók þátt í fornleifarannsóknum og annaðist rannsóknir á fundnum mannabeinum fyrir Þjóðminjasafnið um áratugi. Hann safnaði lengi fornum lækningatækjum og hafði forgöngu um endurreisn Nesstofu og stofnun lækninga- minjasafns hér. Jón hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín heima og heiman. Hann var meðal annars kjörinn dr. med. honoris causa frá Háskóla íslands 1971, kjörinn heiðursfélagi Læknafélags íslands 1983 og stórriddari hinnar íslensku fálkaorðu 1972. Prófessor Steffensen var um margt sérstæður maður og eftirminnilegur kennari. Muna flestir íslenskir læknar, sem komnir eru á miðjan aldur og umfram það, vel eftir þessum kennara sínum, sem leiddi þá fyrstu árin í læknadeild. Hann var læknissonur frá Akureyri; foreldrar hans voru Valdemar Steffensen, læknir á Akureyri og Jenny Petra Steffensen, fædd Larsen. Hún var af dönsku foreldri. Jón lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1924 og og kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands 1930. Hann sótti sér framhaldsmenntun til Þýskalands og síðar til Bretlands og var skipaður prófessor í líffæra- og lífeðlisfræði við Háskóla íslands 1937. Fékk hann lausn 1970 en kenndi þó við læknadeildina í nokkur ár til viðbótar. Jón birti fjölda ritgerða í innlendum og erlendum vísindaritum og öðrum ritum og fjölluðu flestar ritgerðirnar um þau hugðarefni hans, sem áður er getið. Sigurður Nordal sagði eitthverju sinni að maðurinn lifði ekki af brauði einu saman, brauðið héldi einungis í honum lífinu, maðurinn lifði af ævintýrununum. Með dánargjöf Jóns Steffensens hófst eitt lítið ævintýri af þessu tagi. Sjóðurinn frá Jóni nemur um 44 milljónum króna sem nú er ráðstafað „til hagsbóta fyrir lækningaminjasafn“ eins og Jón orðaði það sjálfur. Læknafélagið heldur eftir nægjanlegri fjárhæð til greiðslu óhjákvæmilegs kostnaðar, sem gerður verður upp á næsta ári, en því, sem umfram verður, mun félagið skila til Nesstofusafns. Eftir ítarlegt samráð við áhugamenn um sögu læknisfræðinnar sérstaklega formann þeirra, Halldór Baldursson lækni, og að höfðu samráði við forráðamenn Þjóðminjasafns og Menntamála- ráðuneytið og með samþykki ríkisstjórnarinnar festi stjórn Læknafélags íslands kaup á húsi hér í grennd Nesstofu við Bygggarða 7 og nam kaupverð hennar 33.000.000,- króna. Ljóst var að húsnæði þetta gæti fullnægt bráðri þörf lækn- ingaminjasafnsins fyrir viðunandi geymsluhúsnæði og starfsaðstöðu minjavarðar og ef til vill sýnaingaraðstöðu, þegar fram í sækti. Til viðbótar verða ríkissjóði afhentar í dag 10.600.000,- krónur af reiðufé úr dánargjöfinni til nauðsynlegra endurbóta á umræddri húseign. Auk þess leggur Læknafélag íslands sjálft til tvær milljónir króna úr félagssjóði sínum til að liðka fyrir þessu verkefni. Aðalfundir Læknafélags Islands hafa sýnt þessu málefni mikinn áhuga um árabil og hefur vilji félagsmanna komið fram í samþykktum aðalfunda um fjárframlög til byggingar lækningaminjasafns. I dag afhendir Læknafélag íslands safnverði Nesstofusafns jafnframt fimm myndverk úr búi Jóns Steffensen. Sérhver vegferð hefst með fyrsta skrefinu. Allir gera sér grein fyrir að ekki er verið að leysa húsnæðismál lækningaminjasafnsins til frambúðar að þessu sinni. Við ríkjandi aðstæður er þetta skref hins vegar óhjákvæmilegt. Það er trú mín og von að draumurinn um veglegt og sæmandi lækninga- minjasafn í Nesi við Seltjörn verði að veruleika í fyllingu tímans og verði ævintýri komandi kyn- slóðum til andlegrar næringar. Með þessum orðum vil ég biðja háttvirta ráðherra um að undirrita með mér gjafagerning til lúkningar þessu máli eins og áður hefur verið lýst. Læknablaðið 2000/86 607
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.