Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2000, Side 77

Læknablaðið - 15.09.2000, Side 77
Árni Björnsson skrifar tæpitungulaust UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆPITUNGULAUST Hugleiðingar um gæðastjórnun Gæði eru afstætt hugtak sem erfitt er að leggja venjulega mælikvarða á og niðurstöðurnar geta verið mismunandi eftir því hver er að mæla og hvað er verið að mæla. Menn reyna að leggja gæðamat á hugtök, jafnvel hugtök sem ekki eru sérlega vel skilgreind. Eitt af þessum hugtökum er stjórnun, sem oft er jafn illskilgreinanleg og hug- takið gæði. Þegar torgreinanlegum hugtökum er blandað saman verður útkoman oftast óljóst bull. Það er vinsælt viðfangsefni þeirra sem ekki ráða við verkefni sín að upphefja þau með því að sveipa þau þoku einshvers konar dulúðar, oftast í formi óljósra hugtaka. Eitt slíkt hugtak er gæðastjórnun sem tröllriðið hefur stjórnendum í heilbrigðis- kerfinu og hugsanlega víðar í stjórnkerfinu síðasta áratug. I upphafi gæðastjórnunarvakningarinnar gekk sá sem þetta ritar, þá formaður læknaráðs Land- spítalans, ásamt þáverandi forstjóra Ríkisspítal- anna á fund forstjóra Eimskipafélags íslands til að fræðast um það hvernig hann stjórnaði fyrirtæki sínu. Eimskipafélagið var og er enn eitt af stærstu fyrirtækjum landsins og hefur haft á sér orð fyrir að vera vel stjórnað, meðal annars hefur það skilað eigendum sínum nokkuð árvissum arði. Hið sama var tæpast hægt að segja um fyrirtækið Ríkisspítalar. Það var og er rekið með stöðugt vaxandi halla, sem leggst þyngra og þyngra á þreyttar herðar fjármála- og heilbrigðisráðherra landsins og hvað stjórnunina varðar getur á stundum verið erfitt að átta sig á því hver stjórnar hverju og hverjum. Á þessum fundi sannfærðist höfundurinn um það að fyrirtæki og fyrirtæki er ekki eitt og hið sama og að stjórnun og stjórnun eiga ekkert sameiginlegt nema nafnið svo og að stjórnun, hverju sem stjórnað er, er annaðhvort góð eða vond og skiptir þá mestu máli að stjórnendurnir viti hverju þeir eru að stjórna og hvert sé markmiðið með stjórnuninni. Það er aðal góðrar stjórnunar og feluský eins og gæði breyta þar engu um. Minningin um þennan fund varð tilefni þessarar greinar vegna þess að þáttaskil eru nú í báðum fyrirtækjunum og það er fróðlegt að skoða hvernig ráðamen fyrirtækjanna hafa brugðist við þessum þáttaskilum ef af því mætti draga einhvern lærdóm. Á liðnu vori voru tvö stærstu fyrirtæki landsins í heilbrigðisþjónustu sameinuð og heita nú löngu og óþjálu nafni Landspítali íslands háskóla- sjúkrahús í Fossvogi og/eða við Hringbraut. Um réttmæti þessar aðgerðar er deilt og verður deilt um ókomin ár. Hún verður, að minnsta kosti ekki réttlætt með hinu margtuggna hugtaki „frjáls sam- keppni“, sem stærsti stjórnmálaflokkur landsins og ráðandi stjórnarflokkur, telur sitt evangelium. En skoðum „fyrirtækin“ aðeins nánar. Annars vegar var fyrirtæki sem hefur það hlutverk að stunda flutningastarfsemi og viðskipti sem henni tengjast. Forstjórinn var sérfræðingur um slíka starfsemi og hafði við hlið sér aðra sérfræðinga tengda starfseminni. Hlutverk forstjórans er að reka fyrirtækið með því markmiði að veita viðskiptavinum viðunandi þjónustu og skila eigendunum viðunandi arði. í skjóli sérþekkingar sinnar og samstarfmanna getur hann valið starfs- menn og hann hefur líka vald og þekkingu til að reka þá eða færa til innan fyrirtækisins eftir þörfum. Auk þessa getur hann lagt niður eða dregið úr starfsemi sem ekki skilar viðunandi arði. Hins vegar var „fyrirtæki", sem hefur að mark- miði að veita sjúkum og særðum mjög sérhæfða þjónustu . Þjónustu sem þjóðfélagið er skyldugt til, lögum samkvæmt að veita þegnum sínum, eftir þörfum, (þetta var áður en kostnaðarvitundin var innleidd sem þáttur í heilbrigðisþjónustunni) og ber ekki að skila öðrum arði en betra lífi fyrir einstaklinginn. Forstjóri þessa „fyrirtækis“ þá var verkfræðingur, sem hafði að vísu aflað sér þekkingar á rekstri sjúkrastofnana en þekkti ekki sjúklinga og vissi ekkert um læknisfræði. Hann var því algerlega háður ráðleggingum starfsmanna „fyrirtækisins“ um stjórnun annarra þátta starf- seminnar en þeirra sem lutu að fjárhagslegum rekstri, og þó ekki því yfirmaður hans um þann þátt var heilbrigðisráðherra, og yfir honum fjármálaráðherra sem hvorugur hafði snefil af þekkingu á rekstri „fyrirtækisins". Sú kenning að læknar geti ekki stjórnað sjúkrastofnunum er nú orðin nokkurra áratuga gömul. Höfundur hefur aldrei fundið frambærileg rök fyrir kenningunni og fundist hún álíka gáfuleg og að verkfræðingar ættu ekki að stjórna vegagerð eða byggingaframkvæmdum eða kennaramennt- aðir menn skólum. Sök okkar læknanna liggur í því að alltof margir hafa trúað kenningunni og fyrir bragðið er stjórn heilbrigðiskerfisins ormétin af valdafíklum með litla eða enga þekkingu á lækningum eða læknisfræði. Frh. á nœstu síðu Læknablaðið 2000/86 615
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.