Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 83

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR Árið 1985 samþykkti stjórn LÍ að birta skyldi alla úrskurði Siðanefndar Læknafélags Islands í Læknablaðinu. Hér er birtur úrskurður Siðanefndar frá 28. apríl síðastliðnum. Urskurður Siðanefndar Læknafélags íslands fostudaginn zo. april kom Siðanefnd Læknafélags íslands saman á skrifstofu formanns í Dómhúsinu við Lækjartorg. Fyrir er tekið erindi Boga Andersen til stjórnar Læknafélags íslands og er í málinu kveðinn upp svohljóðandi: ÚRSKURÐUR Siðanefnd Læknafélags íslands hefur fengið til meðferðar erindi Boga Andersen, læknis frá 29. febrúar sl. Tilefni bréfs þessa er að Högni Óskarsson læknir hefur kært Boga fyrir brot á Codex Ethicus með bréfi dagsettu 18. janúar sl. til stjórnar Læknafélags íslands sem vísað var til nefndarinnar með bréfi dagsettu 26. janúar sl. I bréfinu varpar Bogi fram þeirri spurningu hvort ekki sé eðlilegt að Allan V. Magnússon, Ágeir B. Ellertsson og Runólfur Pálsson víki úr Siðanefnd við meðferð kæru Högna Óskarssonar frá 18. janúar sl. þar sem Högni kæri Boga Andersen til Siðanefndar Læknafélags íslands. Síðan segir í bréfinu, eftir að bréfritari hefur vísað til þess að Siðanefnd skuli fylgja almennum réttarfarsreglum í störfum sínum, að Högni kæri hann m.a. fyrir að hafa vegið að Siðanefnd L.í. með ósæmilegum hætti. Séu þeir menn er nefndina skipa fórnarlömb afbrota Boga eins og það er orðað. Þá vísi Högni í niðurstöðu Siðanefndar og sé því Bogi Andersen settur í þá aðstöðu að hluti af málsvörn hans verði hörð gagnrýni á störf nefndarmanna. Stjórn Læknafélags íslands hefur sent erindi þetta til nefndarinnar enda á það undir hana að fjalla um hæfi sitt en ekki stjórn Læknafélags Islands en úrskurðum nefndarinnar verður skotið til Gerðardóms L.í. vilji aðilar ekki una þeim. í 5. gr. laga nr. 91/1991 eru reglur um sérstakt hæfi dómara til að fara með mál hverju sinni en ákvæðið hljóðar svo: „Dómari, þar á meðal meðdómsmaður, er vanhæfur til að fara með mál ef: a. hann er aðili að málinu eða fyrirsvarsmaður aðila, b. hann hefur gætt réttar aðila varðandi sakarefnið eða veitt aðila ólögskyldar leiðbeiningar um það, c. hann hefur borið eða verið kvaddur til að bera vitni um atvik málsins af réttmætu tilefni eða verið mats- eða skoðunarmaður um sakarefnið, d. hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar, e. hann tengist eða hefur tengst fyrirsvarsmanni eða málflytjanda aðila með þeim hætti sem segir í d- lið, f. hann tengist eða hefur tengst vitni í málinu með sama hætti og segir í d-lið, mats- eða skoðunarmanni eða manni sem neitar að láta af hendi sönnunargagn, g. fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.“ í úrskurði þessum er álitaefnið það hvort skilyrði g liðar 5. gr. séu fyrir hendi. í úrskurði sínum frá 13. desember sl. komst nefndin að þeirri niðurstöðu að álitaefni sem snerti faglegt mat, umfjöllun og efnistök læknis í tilviki sem því sem þar var til úrlausnar heyri ekki undir hana og benti á ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga um læknaráð. Úrskurði þessum var unað og er þetta álitaefni ekki til efnislegrar meðferðar hér heldur hvort Bogi Andersen hafi með ummælum sínum um starfsbróður sinn, Högna Óskarsson, gerst brot- legur við siðareglur Iækna. Við meðferð þess máls kann að vera að Bogi láti í Ijós skoðanir á framangreindum úrskurði Siðanefndar frá 13. desember sl. og enda þótt vera kunni að hann sé ekki sammála efnistökum nefndarinnar eða niðurstöðu hennar veldur það ekki því að óhlutdrægni nefndarmanna verði með réttu dregin í efa. Pá er ekki sýnt fram á, og raunar ekki haldið fram, að önnur þau atriði séu til staðar er valda því að tilefni sé til þess að draga óhlutdrægni þeirra er nefndina skipa í efa og því engin efni til að verða við kröfu Boga Andersen um að aðalmenn í Siðanefnd Læknafélags íslands víki sæti við meðferð kæru Högna Óskarssonar á hendur Boga. ÚRSKURÐARORÐ Aðalmenn í Siðanefnd Læknafélags fslands víkja ekki sæti við meðferð á kæru Högna Óskarssonar á hendur Boga Andersen. Allan V. Magnússon ÁsGEIR B. ELLERTSSON Runólfgr Pálsson Læknablaðið 2000/86 619
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.