Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 84
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR GERÐARDÓMS
Úrskurður Gerðardóms Læknafélags íslands
í viðauka við lög
Læknafélags
íslands segir um
Gerðardóm, að
forsendur og
dómsorð skuli
birta í
Læknablaðinu
samkvæmt
ákvörðun
dómsins.
Ár 2000, þriðjudaginn 18. júlí, var fundur haldinn í
Gerðardómi Læknafélags íslands á skrifstofu for-
manns dómsins á Landspítalanum og hófst fundurinn
kl. 16. Fundinn sátu fastir dómarar Gerðardómsins,
Þórður Harðarson læknir, formaður, Sigursteinn
Guðmundsson læknir og Sverrir Bergmann læknir
auk tveggja dómara sérstaklega tilkvaddra í
neðangreindu máli, Vilhjálmur Rafnsson læknir, til-
kvaddur af sóknaraðila málsins, og Hannes Péturs-
son læknir, tilkvaddur af hinum föstu dómurum fyrir
hönd Siðanefndar Læknafélags Islands. Einnig sat
fundinn lögfræðilegur ráðgjafi Gerðardómsins,
Jónatan Þórmundsson prófessor.
Fyrir var tekið mál nr. 1/2000:
Bogi Andersen
gegn
Siðanefnd Læknafélags Islands
og í því kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Með kæru, dagsettri 10. maí 2000, skaut sóknaraðili
máls þessa, Bogi Andersen læknir, til Gerðardómsins
úrskurði Siðanefndar Læknafélags íslands frá 28.
apríl 2000. Krafa hans fyrir Gerðardóminum var sú,
að aðalmenn í Siðanefnd, Allan V. Magnússon,
Ásgeir B. Ellertsson og Runólfur Pálsson víki sæti við
meðferð Siðanefndar á kæru Högna Óskarssonar
læknis á hendur honum, sbr. bréf sóknaraðila 29.
febrúar sl. til stjómar Læknafélags Islands. I
greinargerð frá 20. júní sl. em endanlegar dómkröfur
sóknaraðila í máli þessu þær sem hér segir:
Að felldur verði úr gildi úrskurður Siðanefndar
Læknafélags íslands frá 28. apríl 2000 um að
aðalmenn í nefndinni víki ekki sæti við meðferð
kæru Högna Óskarssonar á hendur kæranda.
Að dæmt verði að aðalmenn í Siðanefnd
Læknafélags íslands skuli víkja sæti er nefndin
fjallar um kæru Högna Óskarssonar á hendur
kæranda.
Krafa sóknaraðila á hendur Siðanefnd og
aðalmönnum í Siðanefnd styðst einkum við tvær
málsástæður, eins og þeim er lýst í bréfi hans til
stjómar Læknafélags íslands, dags. 29. febrúar
2000, og í greinargerð hans frá 20. júní sl., er
lögmaður hans lagði fram á fundi Gerðardómsins
sama dag.
Fyrri málsástæða sóknaraðila byggist á því
sjónarmiði, að Siðanefnd sé vanhæf til þess að
fjalla um kæru Högna Óskarssonar, þar sem kæra
Högna lúti m.a. að því, að sóknaraðili hafi vegið
að Siðanefnd Læknafélagsins með ósæmilegum
hætti og að þeir Allan Vagn Magnússon, Ásgeir B.
Ellertsson og Runólfur Pálsson, auk Högna sjálfs,
séu þannig orðnir „fómarlömb afbrota minna“,
þ.e. sóknaraðila. Dómari hljóti að víkja sæti í
málum, þar sem hann er sjálfur fómarlamb
glæpsins. Af sama toga eru þau rök sóknaraðila,
að vegna ýmissa efnisatriða í kæru Högna
Óskarssonar hljóti hluti af málsvörn hans að fela í
sér harða gagnrýni á störf Siðanefndar og þar með
ofannefndra aöalmanna í Siðanefnd.
Síðari málsástæða sóknaraðila er á því byggð,
að væntanleg málsvörn hans við meðferð Siða-
nefndar á kæru Högna Óskarssonar krefjist þess,
að farið sé ofan í kjölinn á grunngögnum málsins,
þ.á m. ýmsum málsgögnum frá Héraðsdómi og
Hæstarétti. Högni byggi sína kæm m.a. á efnislegri
niðurstöðu Siðanefndar frá 13. desember 1999.
Siðanefnd taki hins vegar fram í úrskurði sínum
frá 28. apríl 2000, að þar sem úrskurði hennar frá
13. desember hafi verið unað, verði þau álitaefni,
sem þar er fjallað um, ekki til efnislegrar með-
ferðar við umíjöllun um kæru Högna Óskars-
sonar.
Um málsmeðferð hlítir Gerðardómur þeim
réttarfarsreglum, sem tíðkast hér á landi á
hveijum tíma, svo fremi málsaðilar hafi ekki
komið sér saman um annað, sbr. 26. lið viðauka
við lög Læknafélags íslands frá 1992. Samkvæmt
11. lið viðaukans gilda sömu reglur um
málsmeðferð fyrir Siðanefnd, eftir því sem við á. I
hinum kærða úrskurði vísar Siðanefnd til reglna
um sérstakt hæfi dómara til að fara með mál
hverju sinni, sbr. 5. gr. laga nr. 91/1991, um
meðferð einkamála. í úrskurðinum er sérstaklega
fjallað um g-lið ákvæðisins, sem hefur að geyma
almenna vanhæfisreglu byggða m.a. á því, hvort
einhver ytri atvik eða aðstæður gefi réttmætt
tilefni til að efast um óhlutdrægni dómara.
Sóknaraðili byggir kröfu sína einnig á umræddu
ákvæði g-liðar 5. gr. og auk þess á c-lið greinar-
innar.
Sóknaraðili hefur lagt fram skriflega
greinargerð, dagsetta 20. júní 2000. Engin
greinargerð hefur borist frá varnaraðila málsins,
Siðanefnd Læknafélags Islands. Alls hafa 10
málsskjöl verið lögð fyrir Gerðardóminn.
Lögmaður sóknaraðila, Dögg Pálsdóttir hrl.,
kom á fund Gerðardóms 20. júní sl. til þess að
leggja fram greinargerð umbjóðanda síns og tjá sig
um málsmeðferðina. Á fundi 3. júlí sl. gerði
lögmaðurinn munnlega grein fyrir kröfum um-
bjóðanda síns, málsástæðum og lagarökum. Siða-
nefnd óskaði ekki að leggja fram gögn eða tjá sig
620 Læknablaðið 2000/86