Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 85
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR GERÐARDÓMS
með öðrum hætti fyrir Gerðardóminum. Að svo
búnu var málið tekið til úrskurðar.
Atvik málsins eru rakin í úrskurði Siðanefndar
13. desember 1999 og hinum kærða úrskurði frá
28. apríl sl.
Um fyrri málsástæðu sóknaraðila segir í hinum
kærða úrskurði: „Við meðferð þess máls kann að
vera að Bogi láti í ljós skoðanir á framangreindum
úrskurði Siðanefnar frá 13. desember sl. og enda
þótt vera kunni að hann sé ekki sammála efnis-
tökum nefndarinnar eða niðurstöðu hennar veld-
ur það ekki því að óhlutdrægni nefndarmanna
verði með réttu dregin í efa.“
Tekið er undir þessi orð í úrskurði Siðanefndar
að því viðbættu, að það er skýr dómvenja í
íslenskri réttarframkvæmd, að jafnvel hörð gagn-
rýni frá aðilum máls eða skammaryrði og níð í
garð dómara valda ekki vanhæfi dómarans sem
slík, enda hljóta bæði sjálfsögð eðlisrök og
grundvallarreglan um tjáningarfrelsi að mæla gegn
vanhæfi dómara og annarra úrskurðaraðila af
þeim sökum. Ekki er því fallist á kröfu sóknaraðila
á þessurn grundvelli.
Um síðari málsástæðu sóknaraðila segir svo í
hinum kærða úrskurði: „í úrskurði sínum frá 13.
desember sl. komst nefndin að þeirri niðurstöðu
að álitaefni sem snerti faglegt mat, umfjöllun og
efnistök læknis í tilviki sem því sem þar var til
úrlausnar heyri ekki undir hana og benti á ákvæði
3. mgr. 2. gr. laga um læknaráð. - Urskurði þessum
var unað og er þetta álitaefni ekki til efnislegrar
meðferðar hér heldur hvort Bogi Andersen hafi
með ummælum sínum um starfsbróður sinn,
Högna Óskarsson, gerst brotlegur við siðareglur
lækna.“
I kæru Högna Óskarssonar, dagsettri 18. janúar
sl., á hendur sóknaraðila, Boga Andersen, er
sóknaraðili talinn hafa brotið siðareglur lækna
(codex ethicus) með margvíslegum hætti. I
kærunni segir m.a.: „I viðtalinu [í kvöldfréttatíma
og fréttaspegli Ríkisútvarpsins] fór Bogi Ander-
sen mjög hörðum og ærumeiðandi orðum um
undirritaðan, auk þess sem hann rangfærði ýmis-
legt, sem í álitsgerð undirritaðs stendur. Ætti ekki
að leika nokkur vafi á því að með þessum um-
mælum sínum hafi Bogi Andersen vegið mjög að
starfsheiðri undirritaðs og þverbrotið ýmis ákvæði
Codex Ethicus" (bls. 1). í átta sérgreindum
kæruliðum, er á eftir fylgja í kærubréfinu, er alls
staðar vitnað til 1. eða 2. mgr. 29. gr. siðareglna
Læknafélagsins, er lúta að samskiptum lækna.
Kjarni þessa ákvæðis er bann við því, að læknir
eigi hlut að því að skerða atvinnuöryggi annars
læknis eða kasti rýrð á þekkingu eða störf annarra
lækna. Slíkt athæfi er í eðli sínu ærumeiðandi,
jafnframt því sem það getur haft í för með sér
beinan atvinnu- eða tekjumissi.
Sóknaraðili í máli þessu, sem sakaður er um
brot gegn 29. gr. og fleiri ákvæðum siðareglnanna,
á rétt til þess samkvæmt almennum réttarfars-
reglum, sem vísað er til í 11. og 26. lið viðauka við
lög Læknafélags Islands, að færa fram hvers konar
lögheimilar varnir og andmæli í því skyni að sýna
fram á réttmæti eða sannindi þeirra ummæla, sem
hann hefur viðhaft um Högna Óskarsson lækni,
sbr. reglur um jafnræði aðila í dómsmálum sam-
kvæmt lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála
og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um andmæla-
rétt aðila í stjórnsýslumálum. Það segir sig sjálft,
að geti aðili sýnt fram á réttmæti ummæla, sem
gagnaðili telur meiðandi í sinn garð, verður hann
yfirleitt ekki látinn sæta ábyrgð samkvæmt lands-
lögum eða siðareglum einstakra starfsstétta.
I forsendum Siðanefndar í úrskurði hennar 28.
apríl sl. kemur fram, að nefndin telur faglegt mat,
umfjöllun og efnistök Högna Óskarssonar læknis
ekki eiga að koma til efnislegrar meðferðar í nýju
máli út af meintum brotum sóknaraðila, Boga
Andersens, gegn siðareglum Læknafélagsins. Telja
má ljóst, að Siðanefndin sé með þessum orðum að
binda hendur sóknaraðila og þrengja varnarkosti
hans óeðlilega vegna kæru Högna Óskarssonar á
hendur honum. Samkvæmt hinni almennu van-
hæfisreglu í g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991 verður að
telja forsendur og niðurstöðu Siðanefndar í úr-
skurði hennar frá 28. apríl 2000 falla undir ytri
aðstæður, sem gefa réttmætt tilefni til að efast um
óhlutdrægni Siðanefndar og aðalmanna í Siða-
nefnd í kærumáli því, sem Högni Óskarsson hefur
hafið fyrir nefndinni. Á grundvelli síðari máls-
ástæðu sóknaraðila ber því að taka kröfur hans til
greina.
ÚRSKURÐARORÐ
Úrskurður Siðanefndar Læknafélags íslands frá 28.
apríl 2000 er felldur úr gildi.
Aðalmenn í Siðanefnd Læknafélags íslands
skulu víkja sæti, þegar nefndin fjallar um kæru
Högna Óskarssonar á hendur Boga Andersen.
Þórður Harðarson, formaður
SlGURSTEINN GUÐMUNDSSON
SVERRIR BERGMANN
VlLHjÁLMUR RAFNSSON
Hannes Pétursson
Læknablaðið 2000/86 621