Læknablaðið - 15.09.2000, Side 93
RAÐSTEFNUR OG ÞING
Ráðstefna um rannsóknir
í læknadeild HÍ
4. og 5. janúar 2001
Tími og umsjónaraðili: Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands verður haldin 4. og 5. janúar
2001. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar HÍ.
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram í Odda.
Þátttakendur: Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast við kennara og starfsmenn deildarinnar, það er í
læknisfræði og sjúkraþjálfun, auk lyfjafræði. Ennfremur er gert ráð fyrir þátttöku starfsmanna stofnana sem
tengjast deildinni og kennslusjúkrahúsum landsins. Aðilum sem vinna að rannsóknum í samvinnu við
starfsmenn læknadeildar er einnig boðin þátttaka. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum heimill.
Þátttökugjald: Verður auglýst síðar.
Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir frjálsum erindaflutningi (10 mínútur hvert erindi, með fyrirspurnum) og
spjaldasýningu (stærð veggspjalda 90x120 cm). Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Skráning: Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar Birna Þórðardóttir (sjá netfang að neðan) tekur við skráningu,
(^átttakendur er hvattir til að skrá sig tímanlega.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna.
Leiðbeiningar fyrir ágrip:
• Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar (characters with spaces), talið án nafna höfunda og
stofnana.
• Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
• Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þeirri röð sem hér er getið: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað,
vinnustaðir með tilvísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Semja þarf
sérstaklega um birtingu mynda og grafa.
• Eftirtaldir efnisflokkar standa til boða: augnlækningar, barnalækningar, erfðafræði, faraldsfræði, hjarta- og
æðasjúkdómar, krabbamein, handlæknisfræði, lífeðlisfræði, lyfjafræði, lyflæknisfræði, sýkla- og
smitsjúkdómafræði, taugasjúkdómar, sjúkraþjálfun og ýmislegt. Efnisflokkarnir eru miðaðir við reynslu
undanfarinna ára, en möguleiki er að bæta við flokkum ef mörg skyld verkefni lenda í flokknum ýmislegt.
• Höfundar taki strax fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
• Höfundar taki strax fram hvaða útbúnað þeir óska eftir að nota við flutning erindis og hvort þeir hafi útbúnað
meðferðis, svo sem fistölvu, og þá með hvaða forriti. í öryggisskyni er ætíð gott að hafa slæður eða glærur til
vara.
Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði og eins að
meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi.
Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 15. október. Ágrip skulu send í tölvupósti sem viðhengi til
framkvæmdastjóra ráðstefnunnar, sjá netfang að neðan.
Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar er Birna Þórðardóttir, símar: 564 4104 (v) / 552 9075 (h) / 862 8031,
netfang: birna@icemed.is
Vísindanefnd læknadeildar HÍ
Ástríður Rálsdóttir Tilraunastöð HÍ Keldum, s. 567 4700
Elías Ólafsson taugalækningadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1660, formaður nefndarinnar
Jens Guðmundsson kvennadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1000
Reynir Arngrímsson Urði, Verðandi, Skuld, s. 525 3600
Þorsteinn Loftsson lyfjafræðideild HÍ, s. 525 4464
Læknablaðið 2000/86 627