Þjóðmál - 01.06.2010, Blaðsíða 88
86 Þjóðmál SUmAR 2010
Atli Harðarson
Um Karl Popper
Undir lok árs 2008 gaf Heimspekistofnun Háskóla Íslands út bók sem heitir Ský
og klukkur og inniheldur þýðingu Gunnars
Ragnarssonar á nokkrum ritgerðum eftir
Karl Popper . Bókin, sem er 235 blaðsíður að
lengd, er vönduð og góð kynning á heimspeki
Poppers og þýðingin er, eftir því sem ég best fæ
séð, nákvæm og til fyrirmyndar .1
Hver var
Karl Popper?
Popper var einn af frumlegustu og merkustu heimspekingum síðustu aldar . Hann
fæddist í Vínarborg árið 1902 . Fjölskylda hans
var af gyðingaættum en kristinnar trúar . Hann
lauk doktorsprófi í heimspeki árið 1928 og
6 árum síðar, 1936, var hans þekktasta verk
Logik der Forschung gefið út . Ensk þýðing kom
1 Við lestur bókarinnar rakst ég þó á 2 ritvillur .
Önnur er í 3 . línu neðanmálsgreinar á síðu 82
og hin í 3 . línu á síðu 190 . Á stöku stað fylgir
Gunnar orðalagi frumtexta af óþarflega mikilli
nákvæmni að mér finnst . Þetta spillir þýðingunni
þó ekki svo heitið geti nema e .t .v . á einum stað,
þ .e . á síðu 128 þar sem „antediluvian“ er þýtt sem
„fyrirflóðsmaður“ . Ósennilegt er að lesandi sem ekki
veit hvernig orðið „antediluvian“ er notað átti sig
á hvað „fyrirflóðsmaður“ þýðir . Þarna hefði e .t .v .
verið betra að nota íslenskt orðalag sem er venjulegt
að hafa um forneskjuleg viðhorf eða e .t .v . eitthvað á
borð við „eins og forngripur síðan fyrir Nóaflóð“ .
út aldarfjórðungi síðar undir nafninu The Logic
of Scientific Discovery .
Árið 1937 flutti Popper til NýjaSjálands enda
taldi hann sér ekki óhætt í Austurríki vegna
upp gangs nasista . Á NýjaSjálandi ritaði Popper
annað af sínum þekktustu verkum The Open
Society and Its Enemies . Hann hafði fylgst með
uppgangi fasisma og kommúnisma og hvernig
frjáls mann legir samfélagshættir í Evrópu áttu
í vök að verjast og í þessu tveggja binda verki
reyndi hann að rekja pólitíska hugmyndafræði
sem var andstæð einstaklingsfrelsi og lýðræði til
kenn inga Platons (427–347 f . Kr .), Georgs Hegel
(1770–1831) og Karls Marx (1818–1883) .
Popper flutti til Englands árið 1946 . Frá
1949 til 1969 var hann prófessor í rökfræði og
vísindalegri aðferðafræði við London School
of Economics og síðan prófessor emeritus við
sömu stofnun til dauðadags árið 1994 .
Meðal merkustu bóka sem Popper samdi
eftir að hann var sestur að á Englandi má
nefna tvö ritgerðasöfn sem fjalla að miklu
leyti um vísindaheimspeki: Conjectures and
Refutations: The Growth of Scientific Knowledge
sem út kom 1963 og Objective Knowledge:
An Evolutionary Approach sem út kom 1972 .
Einnig er vert að nefna sjálfsævisögu hans
Unended Quest; An Intellectual Autobiography
frá árinu 1976 og bókina The Self and Its Brain:
An Argument for Interactionism sem út kom
1977 og Popper ritaði í samvinnu við ástralska