Morgunblaðið - 27.04.1975, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
92. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sósíaldemókratar sigurveg-
arar kosninganna í Portúgal
Lissabon, 26. aprfl REUTER — AP
• ÞEGAR 90% atkvæða höfðu verið talin f kosningunum í Portúgal
höfðu sósfaldemókratar rúmlega 38% atkvæða og töldust óumdeilan-
legir sigurvegarar kosninganna, enda þótt foryustumcnn flokksins
neituðu að gefa nokkrar yfirlýsingar f þá átt. Mario Soares, leiðtogi
flokksins, sagðist staðráðinn f að halda I heiðri samkomulag það sem
hann hefði undirritað við herforingja landsins og kvaðst ekki lýsayfir
sigri. Samkvæmt samkomulaginu verða völd þess þings, sem nú var til
kosið, takmörkuð mjög verulega.
UNGIR STJÓRNMALA
AHUGAMENN — l>essi
portúgölsku börn tóku þátt
f sfðasta kosningafundi
portúgalska kommúnista-
flokksins á 1. maf leikvang
inum f Lissabon á miðviku-
dagskvöld fyrir kosn-
ingarnar í gær.
AP-mynd.
Næst sósfaldemókrötum að at-
kvæðamagni stóð þjóðlegi lýðræð-
isflokkurinn, PPD, sem hafði
fengið rúm 25% atkvæða. Komm-
únistar og systurflokkur þeirra,
portúgalska lýðræðishreyfingin,
höfðu saman fengið aðeins um
17% atkvæða og vakti athygli, að
þeir sigruðu sósfaldemókrata
naumlega f ýmsum kjördæmum,
þar sem þeim var talinn sigur
fullkomlega vfs f kosningabarátt-
unni.
0 Miðdemókrataflokkurinn,
CDS, sem' f kosningabaráttunni
hefur orðið fyrir sleitulausum of-
sóknum öfgasinnaðra vinstri
manna hafði fengið 7% og sögðu
forystumenn hans, að það at-
kvæðamagn kæmi nokkurn veg-
inn heim og saman við það, sem
þeir hefðu vænzt. Aðeins 7%
kjósenda fór að áskorunum hers-
ins um að skila auðum eða ógild-
um atkvæðaseðlum.
Talsmaður þjóðlega lýðræðis-
fiokksins sagði f morgun, að hann
hefði orðið fyrir vonbrigðum með
úrslitin fyrir sitt leyti og sfns
flokks og kvaðst ekki hafa búizt
við slfkum sigri sósfaldemókrata.
Kosningaþátttaka var 91.70%
Fjórir hryðju-
verkamannanna
komnir til Vest-
ur Þýzkalands
Bonn, 26. apríl. Reuter
FJÓRIR af hryðjuverkamönnun-
um fimm, sem handteknir voru á
fimmtudagskvöld eftir 12 klst.
umsátur um vestur-þýzka sendi-
ráðið f Stokkhólmi, komu til V-
Þýzkalands f morgun með
sænskri leiguflugvéi. Miklar
öryggisráðstafanir voru gerðar
bæði f Hamborg, þar sem vélin
hafði viðkomu, og á þeim hluta
flugvallarins f Köln-Bonn, sem
ætlaður er herflugvélum, þar sem
vélin lenti að lokum og hryðju-
verkamönnunum var skilað f
hendur v-þýzkra yfirvalda.
Fimmti hryðjuverkamaðurinn
er i sjúkrahúsi i Stokkhólmi.
Hann hafði hlotið mikil brunasár
og var ekki talið uniit að flytja
hann að svo stöddu.
Ekki er vitað, hvert var farið
með fangana eftir að flugvél
þeirra lenti, og af hálfu lögregl-
unnar var gefið í skyn að áfanga-
stað þeirra yrði haldið leyndum af
öryggisástæðum.
Skömmu áður en flugvélin lenti
tilkynnti saksóknari Vestur-
Þýzkalands, að rannsókn yrði
þegar hafin í máli hryðjuverka-
mannanna og unnið að undirbún-
ingi þess að bera fram kærur á
hendur þeim fyrir morð, gisla-
töku og sprengjuárás.
Fréttamenn velta því nú fyrir
sér, hver áhrif það muni hafa á
stjórn landsins, að hinir hógvær-
ari lýðræðissinnuðu vinstri flokk-
ar skuli hafa hlotið slikt yfirgnæf-
andi fylgi þjóðarinnar, eða sam-
tals um 70% atkvæða.
Getum er að því leitt, að raddir
hinna hógværari herforingja
landsins verði ekki eins kæfðar I
nánustu framtíð og þær hafa ver-
ið af hinum róttækari, en menn
minna á, að helztu forystumenn
hreyfingar hersins hafa margít-
rekað, að þeir muni ekki láta úr-
slit kosninganna ráða mótun þjóð-
félagsins á næstunni, þar sem
landslýður hafi ekki nægan
þroska til að vita hvað honum sé
fyrir beztu. Hugsanlegt er þó tal-
ið, að heldur dragi úr áhrifum
kommúnista innan hreyfingar-
innar. Leiðtogi kommúnista,
Alvaro Cunhal, sagði í útvarpsvið-
tali í nótt að flokknum hefði ekki
orðið eins vel ágengt og hann
hefði búizt við, sérstaklega I norð-
urhluta landsins. Fyrir kosning-
arnar kvaðst hann gera sig
ánægðan með 15—20% atkvæða.
Líklegt er, að hinn mikli sigur
sósfaldemókrata styrki þá til auk-
innar baráttu gegn kommúnistum
í verkalýðsfélögum landsins, þar
sem kommúnistar voru tilbúnir
að taka völd þegar byltingin var
gerð í Portúgal fyrir ári.
Þegar úrslit voru kunn I 3.378
kjördæmum af 4.027 hafði sósíal-
istaflokkurinn fengið 1.802.588
atkvæði eða 38.06% og 73 menn
kjörna. Þjóðlegi lýðræðisflokkur-
inn hafði fengið 1.208.363 at-
kvæða eða 25.51% og 45 menn
kjörna. Kommúnistaflokkurinn
hafði fengið 628.863 atkvæði eða
13.28% og 21 mann kjörinn. Mið-
demókratar höfðu fengið 345.452
atkvæði eða 7.29% og 7 menn
Framhald á bls. 26
Sezt Thieu að á Formósu?
Þingið skaut sér
undan að taka
ákvörðun um
framtíð Huongs
Saigon, Taipei 26. aprd
AP — Reuter
NUGYEN van Thieu, fyrrum for-
seti Suður-Vfetnam, kom flugieið-
is til Taipei á Formósu árla f
morgun ásamt eiginkonu sinni og
15 öðrum suður-vfetnömskum fé-
lögum sfnum. Eftir að bandarfska
C-118 flugvélin var lentdró Thieu
sig þegar f stað f hlé og tókst
fréttamönnum ekki að ná tali af
honum Fulltrúar þjóðernissinna-
stjórnarinnar á Formósu undir
forystu utanrfkisráðherrans, tóku
á móti Thieu og föruneyti hans á
flugvellinum, að sögn ónefnds
valdamanns á Formósu. Ekki var
vitað hversu lengi Thieu hygðist
dveljast á Formósu, en hann
sagði af sér forsetaembættinu s.l.
mánudag f þeim tilgangi að reyna
að binda enda á Vfetnamstríðið.
Q Arftaki hans, Tran Van Hu-
ong, sem kommúnistar hafa
margoft hafnað sem viðræðuhæf-
um samningsaðila, bað f dag suð-
ur-vfetnamska þingið um að
ákveða hvort hann ætti að segja
af sjér og afhenda hlutlausri
stjórn, sennilega undir forsæti
Duong Van, „stóra“ Minh, hers
höfðingja, völdin. Hann sagði að
bandamenn landsins, Bandarfkja-
menn, vildu ekki aðstoða það
lengur, og Suður-Vfetnamar ættu
ekki annars úrkosta en reyna
samningaleiðina við árásarheri
kommúnista. Miklar og heitar
umræður urðu á þingi um þessa
ósk forsetans, og settust flokkanir
á rökstóla. Fór svo að þingið bað
Huong um að ákveða sjálfan
hvort hann sæti eða segði af sér.
Liðssafnaður kommúnista um-
hverfis Saigon hélt í dag enn aft-
ur af sér, og virtist biða átekta
eftir að úrslit fengjust úr hinu
pólitfska þófi f Saigon. Engir
meiri háttar bardagar áttu sér
stað.
I Taipei sagði ónefndur emb-
ættismaður, að þjóðernissinna-
stjórnin hefði engin takmörk sett
á dvalarleyfi Thieus á Formósu.
Sögusagnir hafa verið á kreiki um
að forsetinn fyrrverandi setjist að
á eynni, en bróðir hans hefur
Framhald á bls. 26
Mikilvægur þáttur sovézku flotaæfinganna:
Æfðu hindrun liðsflutninga
á sió að vestan til Noregs
— segir fréttaritari Aftenposten í Briissel
Frá fréttamanni Morgunblaðsins f Ósló,
Agústf 1. Jónssyni. 26. aprft.
AFTENPOSTEN hefur f dag
eftir fréttaritara sfnum f
Briissel, Frederik Bolin, að
athafnir sovézkra kafbáta við
flotaæfingarnar miklu á NA-
Atlantshafi að undanförnu hafi
bent til þess, að Rússar hafi
lagt þar samfellda kafbáta-
girðingu milli lslands og
Noregsstranda með það fyrir
augum að geta komið f veg fyr-
ir liðsflutninga sjóleiðis til
Noregs að vestan. Hefur frétta-
ritarinn þessar upplýsingar eft-
ir heimildum nákomnum her-
stjórn Atlantshafsbandalags-
ins, sem mun á næstunni yfir-
fara og fhuga allar upplýsingar
er henni hafa borizt um æfing-
arnar, en einstök aðildarrfki
bandalagsins fylgdust gjörla
með þeim, svo sem fram hefur
komið f fréttum.
Að því er Bolin segir, benda
heimildarmenn hans á, að þetta
sé i fyrsta sinn, sem Sovétrikin
æfi slíkar ráðstafanir og sá
möguleiki, að Sovétmenn reyni
að girða af allt hafsvæðið frá
Islandi til Noregsstranda varð-
ar mikilvægar forsendur, sem
varnaráætlanir NATO og
Noregs í norðri grundvallast á.
Þær ganga meðal annars út frá
þvf að halda takmörkuðum her-
styrk á svæðunum i námunda
við Sovétríkin á friðartíma til
þess að auka ekki spennuna á
norðurvængnum — en byggja
þess í stað á þvi, að unnt sé að
senda í skyndi liðsstyrk til
Noregs flugleiðis og sjóleiðis.
ef til átaka eða styrjaldar komi.
Slikur liðsstyrkur mundi fyrst
og frem^t koma frá Bandaríkj-
unum, Kanada og Bretlandi.
Allar varnaráætlanir fyrir
norðurvænginn byggjast á því,
að aðflutningsleiðum yfir
Norður-Atlantshafið og inn að
strönd Noregs sé haldið opnum.
Hluti sovézku flotaæfinganna
síðustu vikur hefur af þessum
sökum sérstaka öryggis-
pólitiska þýðingu fyrir Noreg.
Samkvæmt heimildum Bolins
bendir fyrsta athugun á upplýs-
Framhald á bls. 26