Morgunblaðið - 27.04.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
3
Tónleikar í Kópavogi
ELlSABET Erlingsdóttir söng-
kona og Kristinn Gestsson
pianóleikari halda tónleika á
vegum Tónlistarfélags Kópa-
vogs þriðjudaginn 29. apríl kl.
9 e.h. I sal Tónlistarskólans að
Álfhólsvegi 11.
A efnisskránni eru þessi
verk:
Þrjú sönglög eftir Fjölni
Stefánsson við ljóð úr „Timan-
um og vatninu“ eftir Stein
Steinarr, „Lög handa litlu
fólki“ eftir Þorkel Sigurbjörns-
son við ljóð úr „Fiðrildadansi"
eftir Þorstein Valdimarsson,
þrjú lög eftir Alban Berg og
loks fjórtán islensk þjóðlög,
sem Fjöinir Stefánsson og Þor-
kell Sigurbjörnsson hafa útsett.
Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.
Elísabet og Kristinn eru
kennarar við Tónlistarskóla
Kópavogs.
Yfirlýsing frá Þórunni Ashkenazy:
011 aðstoð vel þegin
Revkiavík. 21. anríl 1975. a u;
Reykjavík, 21. apríl 1975.
Vegna frétta í fjölmiðl-
um undanfarið um óskir
okkar hjóna að fá tengda-
föður minn, Davíd
Ashkenazy, í heimsókn
til Islands, vil ég taka það
fram, að eiginmaður
minn, Vladimir
Ashkenazy, hefur ákveð-
ið að fjalla ekki um þetta
mál á opinberum vett-
vangi að svo stöddu til að
vekja ekki frekari andúð
af hálfu sovézkra emb-
ættismanna.
Ég vil aftur á móti, af
gefnu tilefni, undirstrika
að þessi ákvörðun nær
aðeins til mannsins mín,
en öll aðstoð í þessu máli,
hvort sem hún er frá
opinberum aðilum eða al-
menrtingi er vel þegin, ef
það mætti verða til þess,
að tengdafaðir minn gæti
heimsótt okkur hjónin og
barnabörn sín á Islandi
sem allra fyrst.
Þórunn Jóhannsdóttir
Ashkenazy
26 tillögur fyrir Náttúru-
verndarþingi til afgreiðslu
Náttúruverndarþing var sett að
Hótel Loftleiðum í gærmorgun og
mun það standa i tvo daga. Þetta
er annað þingið í röðinni en lög-
um samkvæmt skal haldið slikt
þing á 3ja ára fresti. Þingfull-
trúar eru um 120 víðs vegar að af
landinu. Þegar liggja 26 tillögur
fyrir þinginu til afgreiðslu.
Eysteinn Jónsson, formaður
Náttúruverndarráðs, setti þingið.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, flutti
ávarp og tilkynnti m.a. að hann
hefði skipað Eystein Jónsson for-
mann ráðsins áfram og Eyþór
Einarsson, varaformann.
Fundarstjðri ( gær var Hákon
Guðmundsson en ritarar þeir Ari
Arnalds og Leifur Símonarson.
Formaður Eysteinn Jónsson og
Árni Reynisson, framkvæmda-
stióri. fluttu skérslur ráðsins.
Eysteinn sagði m.a. i ræðu
sinni:
Náttúruvernd má skilgreina
með ýmsu móti. I þetta skipti hefi
ég áhuga á því að minna á, að i lífi
menningarþjóða verður það að
vera ríkur þáttur i þjóðlífinu að
viðurkenna í verki, að ósnortin
náttúra, hreint, ómengað loft og
vatn og óspillt, fagurt umhverfi
eru náttúrugæði eigi siður en þau
sem i daglegu tali eru nefndar
auðlindir.
Það er þáttur i lífskjörum
manna og þjóða að eiga heima i
ómenguðu, óspilltu og viðkunnan-
legu umhverfi. Þetta hlýtur að
vega þungt i lifsgæðamati þess
fólks, sem hefur til hnifs og skeið-
ar og veit um eða þekkir vaxandi
vandkvæði víða vegna þrúgandi
mengunar lofts og lagar, og sér
dýrmætum náttúrugersemum og
fögru umhverfi fórnað i kapp-
hlaupinu mikla, sem sumir kjósa
að kalla lífskjarabaráttu enn aðr-
ir kalla hagvöxt.
Reynsla okkar Islendinga i
þessu tilliti er ekki ýkja mikil þó
að hún sé nokkur, enn við vitum
nægilega mikið til þess, að við
ættum að vera fær um að gera
okkur grein fyrir þvi, að móta
verður skynsamlega land-
nýtingarstefnu, þar sem tekið er
viðunandi tillit til þessara sjónar-
miða og að þvi máli verður að
gefa miklu meiri gaum en gert
Ekið á bíl
MIÐVIKUDAGINN 23. apríl, á
tímabilinu frá klukkan 20 til 10
daginn eftir, var ekið á bifreiðina
R-13804, sem er Toyota, blá að lit.
Gerðist þetta á stæði við Hvassa-
leiti 16. Vinstri framhurð var
dælduð. Þeir sem einhverjar upp-
lýsingar geta gefið eru beðnir að
hafa strax samband við rann-
sóknarlögregluna.
hefur verið. Verður um það efni
flutt sérstakt erindi hér á eftir.
Ég vil því á það eitt minna og
leggja á þunga áherslu, að liður i
framkvæmd skynsamlegrar land-
nýtingarstefnu hlýtur að verða
viðurkenning á þvi, að verndun
þeirra staða og svæða, sem okkur
þykir vænt um og viljum eiga
ósnortin er nýting þessara svæða í
þágu almennings. Vernd að yfir-
lögðu ráði er nýting. Til þess að
skýra þetta viðhorf mætti nefna
ótal dæmi, sem við þekkjum nú
þegar, þjóðgarðana okkar t.d. og
margt fleira. Aðalatriðið er að
gera sér grein fyrir þvi að vernd-
un af þessu tagi er nýting
náttúrugæða.
Þá voru flutt 4 framsöguerindi:
Páll Líndal um stjórn umhverfis-
mála, Hörleifur Guttormsson um
landnýtingu, Vilhjálmur Lúðvíks-
son um umhverfisrannsóknir og
Arnór Garðarsson um votlendi og
Agnar Ingólfsson um fjörur og
grunnsævi.
Siðan hófust umræður um til-
lögur.
Skólasýningunni
í Asgrímssafni
aö ljúka
12. skólasýning Ásgrfmssafns
sem opnuð var 9. febrúar s.l. lýk-
ur sunnudaginn 4. maf. Verður
safnið lokað um tfma meóan kom-
ið er fyrir næstu sýningu þess,
hinni árlegu sumarsýningu.
Fjöldi nemenda úr ýmsum skól-
um borgarinnar skoðaði sýning-
una. Meðal myndanna eru þjóð-
sagnateikningar, vatnslitamyndir
og nokkur olíumálverk, m.a.
Fýkur yfir hæðir, Skarphéðinn f
brennunni, Fljúgðu, fljúgðu
klæði, og fleiri sögu-verk.
Sýningin er öllum opin sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 1,30—4. Aðgangur ókeypis.
Samkómum feikivel tekið -
Syngur í Grindavík í kvöld
SAMKÓR Vestmannaeyja heldur
tónleika í dag i Festi í Grindavík
og hefjast þeir kl. 20.30. Samkór
Vestmannaeyja hélt tónleika i
Selfossbiói sl. föstudagskvöld og
var húsfyllir þannig að kórinn
varð að halda aukatónleika kl. 11
um kvöldið. Var söngfólkinu frá-
bærlega vel tekið, en söngstjóri er
Sigurður Rúnar Jónsson. I gær
ætlaði Samkórinn að halda tón-
leika í Austurbæjarbiói og siðan
verður lagið tekið i Grindavik í
kvöld áður en haldið verður aftur
heim til Eyja. Lagaval kórsins er
mjög fjölbreytt, en áður en
kórinn hélt til fastalandsins hafði
hann haldið 9 tónleika i Eyjum.
V.
á Spánar- og
Ítalíuferðum
Þrátt fyrir að margar Útsýnarferðir eru nú uppseldar, býður Útsýn vegna nýrra hagstæðra samninga
3.000.-6.000,- kr. lækkun frá áður auglýstu verði, sé pöntun gerð fyrir 1. júní.
Costa Brava — Lloret Costa del Sol Lignano — Gullna ströndin
2 vikur frá kr. 27.500.-. 2 vikur frá kr. 32,500.-. 2 vikur frá kr. 33.800.-.
ALLIR
MÆLA MEÐ
ÚTSÝNARFERÐUM
SJA EINNIG
SÍÐU 11
AUSTURSTRÆTI 17
SÍMAR 26611 —20100,
y