Morgunblaðið - 27.04.1975, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
n
F
22 0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
Car Rental
SENDUM
41660—42902
1
JHorgimblaMfc
^mnRCFRIDRR
í mRRKRfl VÐRR
Ársþing Ungmenna-
félags Skagafjarðar
Mælifelli — 21. apríl
1 GÆR var haldið í Árgarði árs-
þing UMFS. Þingforseti var
Guðrún Lára Asgeirsdóttir, 41
þingfulltrúi sótti þingið frá 8 af 9
starfandi félögum á sambands-
svæðinu. Ungmennafélagar í
Skagafirði eru á sjötta hundrað
og takmarkast fjárhagur sam-
bandsins af slíku fámenni, en
þess er að geta að í héraðinu eru
aðeins um 4 þúsund Ibúar.
Stefán Petersen, sem verið
hefur formaður undanfarin ár,
óskaði nú eftir að hætta um sinn,
og var Björn Sigurbjörnsson
skólastjóri á Steinsstöðum kosinn
í stjórn í hans stað. Aðrir í stjórn-
inni eru: Kristján Sigurpálsson í
Varmahlíð, Gestur Þorsteinsson,
Sauðárkróki, Þórarinn Magnús-
son, Frostastöðum og Pálmi
Röngnvaldsson, Hofsósi.
■> Formaður og framkvæmda-
stjóri UMFl voru gestir þingsins
og svo varaformaðurinn, Guðjón
Ingimundarson, sem
heiðursfélagi UMFS. Bauð
Guðjón þingfulltrúum til kaffi-
drykkju en Ungmennafélagið
Framför i Lýtingsstaðahreppi
veitti kvöldverð og sá um undír-
búning þingsins. Margar sam-
þykktir voru gerðar um íþrótta og
æskulýðsmál, landgræðslu, skóg-
rækt og fleira.
Sigurlina Gisladóttir á Vöglum
var kjörin iþróttamaður ársins í
Skagafirði öðru sinni. Einnig
fékk hún verðlaun fyrir frjáls-
iþróttir en þann bikar hafa
ættingjar Valgarðs Blöndal gefið.
Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir á
Sauðárkróki hlaut verðlaun fyrir
beztu afrek í sundi. Starfsemi
UMFS hefur verið blómleg
undanfarandi.
— sr. Agúst.
Sr. BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
„1 þina hönd fel ég anda minn,
þú munt frelsa mig, Drottinn,
þú trúfasti Guð“. Svo segir í 31.
sálmi Davíðs. Þau orð voru
Kristi efst í huga við leiðarlok,
er þjáningavegurinn var á enda
genginn. Drottinn, gef oss anda
þinn! Hve oft biðjum við ekki
um þann anda okkur til
fulltingis við lausn misstórra
verkefna og vandamála; anda
sannleika, hugrekkis og dugn-
aðar, anda heilbrigðrar baráttu
fyrir málstað hreinnar, krist-
innar trúar. Páll postuli kallar
það, að búast alvæpni Guðs.
„Standið þvi girtir sannleika
um lendar yðar,“ ritar hann,
„og klæddir brynju réttlætisins
og skóaðir á fótum með fúsleik
til að flytja fagnaðátrboðskap
friðarins, — og takið ofan á allt
þetta skjöld trúarinnar, sem
þér getið slökkt með öll hin
eldlegu skeyti hins vonda; takið
hjálm hjálpræðisins og sverð
andans, sem er Guðs orð.“
(Efesusbr. 6,14—17) — Páll
Postuli sparar ekki likingarnar.
Hann er myndrænn rithöf-
undur, bregður upp kunnri
mynd úr hversdagslifinu, þar
sem hermenn heimsveldisins
gengu um i bolhlifum, með
fjaðurskrýdda hjálma, sverð og
skildi. Sú mynd var kristnum
mönnum ekki framandi i ár-
daga kirkjunnar. Þessir dreis-
sugu, ruddalegu hermenn urðu
hvarvetna á vegi þeirra, eða
öllu heldur hinir kristnu i vegi
fyrir þeim; þeysandi riddara-
liðsmönnum, sem þyrluðu upp
jóreyk á þurrum vegum eða
arkandi fótgönguliðum með
vopnabrak. Allir urðu að víkja
úr vegi. Erfitt var að stilla sig
Andaris trú — hrein
andspænis þessu óréttláta
valdi, sem ekki virti uppruna,
menningu og föðurlandsást
annarra þjóða, er það hafði lagt
undir sig og gjört að skattlönd-
um, og ennþá siður trúarbrögð,
sem brutu í bága við lög um
skilyrðislausa dýrkun keisar-
ans. Það vald lamdi miskunnar-
laust ásveitamönnum smá-
rikja, sem af ofsatrúarsökum
neituðu að leggja reykelsiskorn
á altari hátignarinnar á
Kapitólhæð. Páll velur mynd af
hertygjum þessa forna veldis í
Róm, þegar hann hvetur
kristna menn til dáða. Hún
verður ófullkomið skýr-
ingartákn á andlegum tygjum,
er ekki þjóna grimmd eða
ofbeldi, heldur þolgæði og kær-
leiksviðleitni. I trausti og trú á
bænheyrslu Guðs, að hann gefi
hverjum, er biður, heilagan
anda sinn til baráttu, hvetur
postulinn söfnuðinn til þess að
búast herklæðum þessa heilaga
anda, þvi þá fái hann staðist
hverja raun, jafnvel þótt hann
sé hrakinn út á kaldan klaka. A
hvað gat hann bent hvöt sinni
til stuðnings? Iklæddur þessum
herklæðum hafði Drottinn stað-
ist mestu raunir, sem hægt var
að leggja á mann. Hann var
fyrirlitinn, sérhvert orð hans
var vefengt, hann var hæddur,
barinn, negldur lifandi á kross-
tré. Og þó var það aðeins ytra
borðið. Hann fann ofurþunga
synda alls mannkyns hvíla á
sér. Og hann gengur ennþá
áfram með þá byrði á herðum.
Uáð, spé, svipuhögg, þyrnikór-
óna, kross; allt eru það daufar,
mjög daufar myndir af byrði
hans. Þær myndir eru gjörðar
fyrir okkur, vegna þess að
skilningurinn nær skammt. Við
horfum á krossins þunga tré og
reynum að skilja. Og við
virðum fyrir okkur ístöðuleysi
okkar, hvernig
„sálarskipið fer hallt á hlið
og hrekur til skaðsemdanna,
af því það gengur illa við
andvirðri freistinganna."
Svo frábærlega lýsir skáldið frá
Bólu þeirri sýn, er við okkur
blasir. Við erum ekki ókunnug
þeirri reynslu af siglingunni i
gegnum brimgarð freisting-
anna, er
„Sérhverjum undan sjó ég slæ,
svo hann ekki fylli,
en á hléborða illa ræ,
áttina tæpast grilli.
Ónýtan knörrinn upp á snýst
aldan þá kinnung skellir,
örvæntingar því ólgan vist
inn sér um miðbik hellir.“
Þetta er trúarlegur boð-
skapur, er lýsir viðhorfi manns,
sem gjörkunnugur er sann-
kristinni iifsskoðun og hefur i
fátækt sinni og andstreymi, en
andlegri reisn, tileinkað sér
hana. Hart skap hans þiðnar
fyrst við mild orð frelsarans,
sem snauður af heimsins auði
tekur i hönd hjábarns veraldar,
kotbóndans i Akrahreppi, er
krepptur giktarböndum af vosi
erfiðrar aldar og skilnings-
snauðrar, ber hönd fyrir augu
og skyggnist lengra gegnum
sortann, þykkan sorta föstu-
dagsins langa og yrkir óbugað-
ur fyrir ómengaða friðþæg-
ingartrú:
„Sýnist mér fyrir handan haf
hátignarskær og fagur
brotnuðum sorgar öldum af
upp renna vonardagur."
Þessu svipar til þess, er séra
Hallgrimur leit „i gegnum Jesú
helgast hjarta í himininn upp“
eða þegar Davið sá mikil undur
„í gegnum móðu og mistur".
Andagift; gjöf andans ljómar af
list og sannfærir hvern mann,
sem á einhvern snefil af barns-
legri tilfinningu, að dauði Jesú
Krists á krossinum var allt
annað og meira en venjuleg
aftaka á grimmri öld einvalda.
Hann dó fyrir okkur veik,
hjálparvana, fátæk börn. Það
vill falla á hertygi okkar; skín-
andi brynja réttlætisins missir
oft ljóma sinn, þegar við sækj-
umst með græðgi eftir veraldar
gæðum, oftla hégómlegu
hnossi. Við viljum gleyma hjá-
börnum veraldar og beitum þá
olnbogum og hnúum og brynj-
an verður svört og ryðbrennur.
Einn góðan veðurdag sjáum
við, að vjð stöndum berskjölduð
fyrir spjótalögum þeirra her-
sveita, er sækja fram fyrir rétt-
læti Guðs, og við finnum, að
frið eigum við engan. Þá horfir
Jesús raunamæddur til okkar
af krossinum. ,JHér er gjöf
min“ segir hann við okkur.
„Hún ein fær veitt þér frið, ef
þú beygir holdsins og hjartans
kné.“ Guð gefi okkur trú til
þess að taka við þeirri gjöf.
A FÖSTUDAG voru spilaðar
tvær umferðir f undankeppni
Islandsmótsins — sveita-
keppni. Hófst mótið með því að
forseti BSl bauð gesti vel-
komna og setti mótið. Hófst svo
spilamennska um kl. 1,30. Lauk
fyrri umferðinni um kl. 18. og
hófst önnur umferðin kl. 20. I
gær var svo þriðja umferðin
spiluð en vegna þess hve blaðið
fer snemma f prentun getum
við aðeins birt stöðuna eftir
tvær umferðir:
Röð efstu sveita í A-riðli:
Þóris Sigurðssonar 39
Guðmundar Ingólfssonar 26
Braga Jónssonar 20
Röð efstu sveita f B-riðli:
Þórarins Sigþórssonar 35
Alberts Þórsteinssonar 27
Halldórs Sigurbjörnssonar 24
Röð efstu sveita f C-riðli:
Sigurðar Emilssonar 24
Hjalta Eliassonar 23
Þóróar Elíassonar 22
Ólafs Lárussonar 21
Efstu sveitir f D-riðli:
Helga Sigurðssonar 37
Jóns Hjaltasonar 33
Þórðar Björgvinssonar 22
Síðustu tvær umferðirnar
verða spilaðar f dag. I fram-
kvæmdastjórn mótsins eru
Tryggvi Gfslason og Ragnar
Björnsson. Keppnisstjóri er
Agnar Jörgenson. Spilað er f
Domus Medica.
XXX
Frá Bridgefélaginu
Ásarnir í
Kópavogi.
Nýlega lauk hraðsveita-
keppni með þátttöku 7 sveita.
Spilað var f þrjú kvöld og urðu
úrslit þau að sveit llelga
Magnússonar sigraði örugg-
lega, hlaut 1774 stig. I sveit
Helga eru ásamt honum Ragn-
ar Björnsson, Gestur Sigur-
geirsson og Vilhjálmur Þórs-
son.
Röð efstu sveita varð annars
þessi:
Valdimars Þórðarsonar 1708
Páls Þórðarsonar 1614
Ragnars Hansen 1606
19. april sl. fengum við heim-
sókn frá Borgarnesi — Var
spilað á átta borðum og urðu
úrslit þessi. Sveitir Asanna eru
taldar á undan:
1. borð 9—11
2. borð 9—11
3. borð 12—8
4. borð 20—0
5. borð 20—0
6. borð 20—0
7. borð 20—0
8. borð 6—14
Úrslitatölur urðu 44 — Asarnir 116. Borgarnes A.G.R.