Morgunblaðið - 27.04.1975, Page 13

Morgunblaðið - 27.04.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975 13 70 ára — Hjörtur Sturlaugsson Það er þetta hjól, sem manns- höndin ræður bara ekkert við; hjól tímans, þetta óstöðvandi náttúrulögmál, sem allt fram streymir endalaust. Og einmitt i dag, 7. apríl 1975, hefir það snú- izt, þar til Hjörtur okkar Sturlaugsson bóndi, Fagra- hvammi, Skutulsfirói, hefir lifað 70 ár, er við minnumst með nokkrum orðum. Það er þá fyrst til að taka, að annað verður ekki sagt, en Skutulsfjörður hafi verið heppinn að fá hann sem innflytj- anda, þar sem hann hefir starfað sleitulaust að framfararmálum i þessu plássi í fjölda ára. Færi eitthvað úr skoróum var jafnan viðkvæðið — Hjörtur, Hjörtur, hvað skal nú til ráða? Hér í friði hefir verið og er starfandi ásamt fleiru Búnaóar- félag, og hefir Hjörtur jafnan ver- ið formaður þess, hvetjandi bændur til framfara og dáða og alla jafnan út á við verið fulltrúi fjaróarins hjá Búnaðarsambandi Vestfjarða og einnig hjá Stéttar- sambandi bænda. Þess háttar starfsemi lendir gjarnan hjá þeim mönnum, er hæfileikana hafa. Hjörtur er ræóumaður góður og flytur hóflega og ákveðið sitt mál, ekki er hávaðinn eóa gaura- gangurinn, enda maóurinn með rólega skapgerð af beztu tegund, og skiptir alla jafna ekki skapi, hvorki á fundum eða i daglegu lífi. Að sjálfsögðu hefir þaó stutt Hjört í öllu hans athafnalífi, að hann hlaut staðgóða menntun á sínum yngri árum. í unglinga- skóla mun hann hafa verið, sem og útskrifaður búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Nú viljum við gjarnan hér i Skutuls- firði halda á að eiga Hjört ungan og athafnasaman hér í plássinu, en sem fyrr greinir er ekki heigl- um hent að stöðva hjólið, en þrátt fyrir það mun Hjörtur allavega standa fyrir sínu öll hin næstu ár, því ekki eru 70 ár hár aldur i nútímaþjóðfélagi. Og Hjörtur ber aldurinn mjög vel og er til í tuskið ennþá, hvað sem öóru liður. Einhverju sinni, er ég átti leið framhjá Fagrahvammi ásamt litió kunnugum félaga mínum hér í plássi, hafði hann orð á því, hvort Hjörtur ætti alla þessa bíla er þar voru heima við. Ég kvað nei við. Kannski á hann engan, allt eru þetta ferðamannabilar, senniiega mest utan af landi. Hjörtur er vel kynntur og þekkir fjölda fólks út um allt ísland og öllu þessu fólki og frammámönnum finnst ósköp gott að stinga við-stafni i Fagra- hvammi, njóta þar gestrisni og góðrar fyrirgreiðslu og skýrir það sig sjálft. Hjörtur Sturlaugsson er ágætur félagi og hefir mikla ánægju af góðum félagsskap, enda kemur ævinlega mjög vel fyrir á öllum mannfögnuðum og eftirsóttur á þá og mætti til gamans segja sem svo, að annað kynið e.t.v. af forvitni vildi fylgj- ast með hvort Hjörtur væri mætt- ur á dansleiknum. Hjörtur Stulaugsson er tví- kvæntur. Fluttist hann með fyrri konu sinni Arndisi Jónasdóttur frá Reykhólum hingað til Skutuls- fjarðar og voru þau setzt að á Fagrahvammi og i þann veginn að mynda sér þar framtiðarheimili, en einmitt þá barði dauðinn að dyrum, alveg óvænt sem hans get- ur verið vandi og missti Hjörtur þar með sína góðu konu. Það mun hafa verið árið 1947. Sem gefur að skilja var sviplegt fráfall hennar mikið áfall fyrir heimilið, frá manni og 4 börnum þeirra. Hér reynir á manndóminn og rósem- ina og meó hvort tveggja að bak- hjarli lánaðist Hirti að halda heimili gangandi, eitthvað meó aðstoð ráðskonu. Arið 1950 kvæntist svo Hjörtur í annað sinn, Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Ingjald^sandi, og tóku þau vió sem frá var horfið, að byggja upp og fegra heimilið á Fagrahvammi, og hefir það lánast svo að hér er um fyrirmyndarheimili að ræða, tekst þá tveir vilja, og lifa þau þar nú rólegu og áhyggjulausu lífi í allri velmegun, og ætla má, að þau séu að verða ung í annað sinn. Fyrri konu börn Hjartar eru: Sverrir, giftur norskri konu og býr i Noregi; Bernharð, sem gift- ur var Guðrúnu Jensdóttur frá Isafirði; Anna, gift Sigurði Guð- mundssyni málarameislara á Isa- firði og Hjördis gift Pétri Sigurðs- syni, forseta Alþýðusambands Vestfjarða. Með seinni konu sinni hefir hann eignazt 3 börn, sem eru: Arndís, gift Finnboga Bern- ódussyni Bolungarvík, Einar ógiftur heima og Guðbjörg trúlof- uð Magnúsi Halldórssyni Hnífs- dal. Öll eru þessi börn vel gefin og gott framtíðarfólk á íslandi og Framhald á bls. 32 Séróu þaó sem Þaö þarf ekki aö vera. Enda þótt allir landsmenn njóti sömu dagskrár, er afar mismunandi hvaö fólk sér. og kemur þar margt til, léleg sjónvarpstæki, slæm mót- tökuskilyröi og umdeild dagskrá. Viö ráöum ekki bót á efnisvali sjónvarpsins né heldur lögum viö móttökuskilyröin, en sért þú aö Komdu í heimsókn og sjáöu hugsa um aö endurnýja sjónvarpstæki eöa kaupa þitt fyrsta.þá viljumviö benda þér á aö þaö sem þú sérö, þaö séröu best í Nordmende sjónvarpstæki. Viö höfum svart/hvít og litsjónvarpstæki í úrvali á veröi frá 60.000 krónum. RDlllE Litsjónvarpstæki Skipholti 19 sími 23800 Klapparstíg 26 sími 19800 búð'in Sólheimum 35 sími 21999

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.