Morgunblaðið - 27.04.1975, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
1 dag heldur Reykjavíkurdeild
Rauða kross tslands upp á aldar-
fjórðungsafmæli silt. Deildin hef-
ur á sl. 25 árum unnið ákaflega
mikilvægt starf hér í borg og
snerum við okkur til séra Jóns
Auðuns fyrrv. dómprófasts, sem
var formaður félagsins fyrstu 16
árin og í stjórninni sl. 9 ár og
röbbuðum við hann i tilefni af-
madisins.
HVENÆR VAR REYKJAVtK-
URDEILDIN STOFNUÐ?
Hún var stofnuð að lilhlutun
RKI 27. apr. 1950. Stefna forráða-
mannanna var sú, að deildir yrðu
stofnaðar sem víðast um landið
og hver deild annaðist Rauða-
kross starf hver á sínu svæði, en
RKl væri einskonar samnefnari
og miðstjórn, sem annaðist öll
máleínin út á við en léti deildirn-
ar innan lands sem allra mest
sjálfstæðar um starf og fjársöfn-
un.
HVERJIR SKIPUDU FYRSTU
STJORN DEILDARINNAR I
RY'lK?
Oli J. Olason stkpm, Jónas B.
Jónsson fræðslustj., Jón Auðuns
dömk.pr., Gísli Jónsson skólaslj.,
Haraldur Wigmo læknir, Guðrún
Bjarnadóttir hjúkr. og Sæmundur
Stefánsson stkpm. Sama ár andað-
ist Har. Wigmo og tók sæti hans í
aðalstjórn dr. Jón Sigurðsson
borgarlæknir. Enn sitjum við
tveir í stjórninni, Jönas B. Jóns-
son og ég. Formaður var ég i
fyrstu 16 árin, þá tók við Oli J.
Olason og þegar hann baðst und-
an endurkosningu frú Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir læknir og
gegnir hún formennsku enn við
mikinn dugnað.
HVERT VAR FYRSTA
VERKEFNI DEILDARINNAR?
Það var að auka félagatöluna og
á fyrsta ári öíluðum við nálega
1250 nýrra félaga. Þá tókum við
við þeim iveim meginhlutverk-
um, sem stjórn RKI hafði áður
annast hér í borginni, rekstri
sumardvalarheimila fyrir börn og
rekstri sjúkrabiíreiðanna.
ÞAÐ ANNAST
RVIKURDEILDIN ENN,
EREKKISVO?
Jú, við höfum rekið sumardval-
arheimili i ýmsum skólum en að-
alstarfið fór fram í hinum stóru
húsakynnum í Laugarási eftir að
sú bygging var fullgerð 1952 að
Stjóm Framsókn-
ar endurkjörin
AÐALFUNDUR Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar var haldinn í
Reykjavík 20. aprfl s.l. 1 félaginu
er nú um 2200 konur. Stjórn fé-
lagsins var endurkjörin, en 1
henni eiga sæti:
Þórunn Valdimarsdóttir, for-
maður, Ingibjörg Bjarnadóttir,
varaformaður, Guðbjörg Þor-
steinsdóttir, ritari, Jóhanna Sig-
urðardóttir, gjaldkeri, og Helga
Guðmundsdóttir, fjármálaritari.
Á fundinum var samþykkt að
hækka árgjald úr 2.500 kr. i 3.300
kr. Þá var samþykkt að gefa 25
þús. krónur í Seifosssöfnun, og
lýsti fundurinn jafnframt stuðn-
ingi sinum við verkfallsmenn’ og
von um að deilan leystist sem
fyrst.
mestu gjöf til RKI, er varnarliðið
hætti að reka sjúkrahús sitt á
Helgafelli. Húsin voru flutt að
Laugarási, þar sem mjög ákjósan-
legar aðstæður eru á flesta lund.
Rvíkurdeildin hafði þessa miklu
byggingu á leigu frá RKÍ og hýsti
þar lengst 120 börn í sumardvöl,
að langmestu leyti börn frá fátæk-
um heimilum og einstæðum
mæðrum. Auk þess voru rekin
sumarheimili í skólum allt frá
Hrútafirði og austur að Skógum
undir Eyjafjöllum. En árið 1971
var heimilið í Laugarási lagt
niður að ráði eldvarnareftirlitsins
Frá námskeiði Reykjavfkudeildarinnar I skyndihjálp.
máltíð er send fólki, sem óskar
þess, gegn mjög vægu gjaldi. Ibú-
um á Austurbrún 6, Norðurbrún 1
og Hátúni 10 og 10A hefir verið
gefinn kostur á þessari þjónustu,
sem vafalaust á eftir mjög að
vaxa.
Þá má segja að merk timamót
hafi orðið i starfi Rvíkurdeildar
Guðrún Jónsdóttir I Reykjavíkurdeild Rauða krossins afhendir fyrsta
matarbakkann á öskudaginn sl. Heimsending matar til einstærða og
öryrkja er merk nýjung f starfi deildarinnar.
og heimili sett upp á Silungapolli,
Hlaðgerðarkoti og Jaðri.
HVE MÖRG BÖRN HAFA
DVALIST ÞARNA 1 25 AR
Eg get því miður ekki svarað
nákvæmlega en þarna hafa þús-
undir reykvískra barna dvalið og
notið þjónustu við vægu gjaldi.
Frá Reykjavíkurborg höfum við,
einkurn á síðustu árum, notið mik-
íls fjárhagsstuðnings, enda hefir
þessi þjónusta notið mikilla vin-
sælda og verið nauðsynleg.
A EKKI RAUÐAKROSS-STARF
AÐ VERA ÞANNIG UNNIÐ?
Að sjálfsögðu, og í raun allt
líknarstarf að þvi sem mögulegt
er. Víða um lönd hafa líknarfélög
sætt ámælum fyrir það, að alltof
mikið af fé, sem til líknarstarfs er
ætlað, fari i kostnað, hóflaust
starfsmannahald og hégóma. Og
Rauði krossinn hefir sumsstaðar
ekkifarið varhluta af slíkri gagn-
rýni. En viósfjarri stofnandanum
var slíkt, manninum, sem hafði
verið efnamaður að fjármunum
en varð öreigi fyrir hugsjón sina.
Vitanlega er nauðsynlegt að hafa
launað starfslið að hóflegum þörf-
um, en megnið af raunverulegu
Rauða kross-starfi á að vera
ólaunað sjálfboðastarf, og slíka
þjónustu leysa konurnar í
kvennadeildinni í Rvík fallega af
hendi.
HVAÐ EREINKUM
FRAMUNDAN?
Stærsta verkefnið, sem bráðrar
úrlausnar biður, er endurupp-
bygging heimilisins i Laugarási.
Að henni mun að sjálfsögðu
standa með Rvikurdeildinni
Rauði kross íslands, en í spila-
kassa hans runnu í Reykjavik
einni á liðnuárinálega 20 milljón-
ir króna. Vmis önnur verkefni
Sjúkrabifreiðirnar höfum við
nú rekið i 24 ár og notið til þess
hinnar ágætustu samvinnu við
slökkviliðið í Rvík, öðruvísi hefði
þessi rekstur verið okkur ofjarl.
Nokkra hugmynd um þá þjónustu
gefur sú staðreynd, að á siðasta
ári fóru sjúkravagnarnir í 10196
ferðir og þar af vegna slysa 1278
ferðir. Rekstur blóðbílsins og
hjartabílsins svonefnda annast
RKI, enda sú starfsemi ekki
bundin við Rvík.
HVAÐ UM ÖNNUR VERKEFNI?
Deildin hefir nálega frá önd-
verðu staðið fyrir námskeiðum í
skyndihjálp, og látið kenna fjöl-
mörgunt, sem síðar skyldu kenna
öðrum. Þrjú slík námskeið hélt
deildin nú í vetur og auk þess
námskeið í aðhlynningu sjúkra i
heimahúsum. Þegar á fyrsta
starfsári var farió að hugsa um
sérsumardvalir fyrir vangefín
börn. Fjárskortur hamlaði fram-
kvæmdum eins og mörgum öðr-
um, sem stjórnin hefir rætt en
orðið að falla frá.
NOKKRAR NVJUNGAR
1 STARFINU?
Heimsending matar til ein-
stærða og öryrkja, sem hafin var i
vetur er merkileg nýjung. Heit
Nokkur börn á sumardvalarheimili deildarinnar að Laugarási i
BiskUpstungum.
RKI, þegar kvennadeildin var
stofnuð að frumkvæói frú Ragn-
hildar Guðmundsdóttur læknis,
12. desember 1966. Var fyrsti for-
maður kvennadeildar frú Sigríð-
ur Thoroddsen og tók síðan við af
henni frú Katrín Ö. Hjaltesteð. I
þeirri deild eru um 400 konur
hafa um 270 þeirra sótt sjúkra-
vinanámskeið og starfa nú um 170
sem sjúkravinir.
IIVAÐA STARF ER ÞAÐ?
Konurnar annast sjúklinga-
bókasöfnin við aðalsjúkrahús R-
víkur, sem er mikilsverð þjónusta
þær reka verzlanir fyrir sjúklinga
í Landakotsspítala og Grensás-
deild Borgarsítalans, þær aðstoða
við heimsendingu matar, sem áð-
ur var getið, þær veita aðstoð fé-
lagsmáladeild Reykjavíkur, og
þær leysa af hendi þjónustu með
heimsóknum til aldraðra og ein-
stæðinga, og er í undirbúningi að
auká þá þjónustu mjög. Allt þetta
starf Ieysa konurnar af hendi
endurgjaldslaust og bera jafnvel
sjálfar kostnað af þjónustu sinni.
hafa verið til umræðu. Orð erú til
alls fyrst.
HVERER STAÐA
DEILDARINNAR NU?
Frá verkefnum hef ég sagt og
þó ekki getið þess að fjölmörg
heimili hafa notið þess, að Rvík-
urdeildin hefir haft til útlána
gögn til hjúkrunar i heimahúsum.
Félagar eru nú nálega þrjár
þúsundir en ættu að vera miklu
fleiri, svo víða nær þjónustan til
Rvíkinga. I sima Rvíkurdeildar-
innar 28222 er tekið við nýjum
félögum.
Stjórnina skipa nú: Ragnheiður
Guðmundsdóttir læknir, form.,
Arinbjörn Kolbeinsson vara-
form., Arni Björnsson læknir,
Jóna Hansen kennari, Jónas B.
Jónsson fræðslustj., Stefán Hirtst
lögfr. og Jón Auðuns. Varastjórn
skipa: Páll S. Pálsson hrl., Vík-
ingur Arnórsson læknir og Guð-
mundur Arason forstj.
GERIÐ ÞIÐ YKKUR EKKI
DAGAMUN N(J EFTIR 25 ARA
STARF?
Nei, við héldum upp á afmælið í
fyrri viku með því að boöa til
almenns umræðufundar — sem
var mjög fjölsóttur — um velferð-
armál aldraðra, og við gáfum
kaffibolla þeim, sem fundinn
sóttu. Við forðumst veizluhöld
meðan unnt er og risnufé greið-
um við engum manni. Fé deildar-
innar rennur til líknarstarfa og
annars ekki.
I haust eru liðin 65 ár síðan
stofnandi Rauða krossins, mann-
vinurinn mikli, Henri Dunant,
andaðist. Vitanlega hefir ekki
reynzt unnt á 112 ára ferli Rk, að
halda starfinu í hæð þeirrar hug-
sjónar, sem hann boðaði og lifði
sjálfur. En mynd hans og minning
er og veróur aflvaki hins sanna
Rauða kross starfs.
(Jr sölubúð kvennadeildarinnar á Grensásdeild Borgarspitalans.
„Fé deildarinnar
fer til líknarstarfa
og annars ekki”
Stutt spjall við séra Jón Auðuns
fyrrum dómprófast
Reykjavíkurdeild Rauða krossins 25 ára