Morgunblaðið - 27.04.1975, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
SVAR M/TT f*!J
EFTIR BILLY GRAHAM
£g reyni að lesa í Biblíunni, en ég skil hana ekki.
Getið þér hjálpað mér?
Hve lengi hafið þér reynt að lesa í Biblíunni? Lesið
þér hana á hverjum degi? Margir, sem segjast ekki
skilja Biblíuna, nota þetta sem afsökun á leti sinni
eða til þess að gefa sig algjörlega að efnislegum
hlutum.
Hungrar yður eftir andlegri fæðu? Ef svo er, þá
munuð þér lesa af ákafa. Þá væntið þér þess að fá
veizlumat. Þetta er mikils virði. Byrjið á guðspjöll-
unum og Sálmunum. Hvert barn getur melt hluta af
þessum bókum.
Heilög ritning er safn 66 bóka. Lögmál, spádómar,
mannkynssaga, ævisögur, spakmæli og bréf finnast
innan spjalda hennar. Þrátt fyrir þetta hefur hún
eitt meginefni. Það er leit mannsins að Guði og
opinberun Guós á eðli sínu og vilja. Lesið þér
Biblíuna af trúmennsku dag hvern, þá munuð þér
sjá, hvernig Guö hefur talað í aldanna rás, og þér
munuð oft heyra hann tala til yðar. Gott skýringarrit
getur frætt yður um bakgrunn hverrar bókar. Þetta
hjálpar til við athugun Biblíunnar, en látið það ekki
koma í staðinn fyrir að lesa heilagt orð Guðs.
í sálmum Davíðs segir: „Þitt orö er lampi fóta
minna og Ijós á vegi mínum“ (Sálm 119, 105). Þér
sannreynið þessi orð, ef þér nemið staðar við lestur-
inn og hugleiðið efnið og biðjið Guð að ljúka upp
fyrir yður, ekki aðeins, hvaó þaó hafi öðrum að segja,
heldur einnig, hvaða boðskap þaó flytji yður á
þessari stundu.
Milljarður til fær-
eyska fiskiðnaðarins?
Kunnur snjóflóðasér-
fræðingur kemur:
Til Neskaupstað-
ar á miðvikudag
FRÆGASTI snjóflóöasérfræðing-
ur heims, M.d’Quervarn frá snjó-
flóðarannsóknastöðinni í Davos í
Sviss, er væntanlegur hingað til
lands n.k. þriðjudag 29. apríl á
vegum Almannavarna.
D’Quervarn mun strax að
morgni 30. apríl halda til Nes-
kaupstaðar með Guðjóni Petersen
forstöðumanni Almannavarna
ríkisins. Þar munu þeir kanna
snjóflóðasvæðið frá þvf í desem-
ber. Ennfremur munu þeir fara á
Seyðisfjörð og til Siglufjarðar.
D’Quervarn mun að lokinni dvöl
sinni á Islandi semja skýrslu um
þessa Islandsferð sína og benda á
leiðir til að koma í veg fyrir slys
af völdum snjóflóða.
Neyðarástand
á Norður-Spáni
Madrid 26. aprfl — Reuter.
SPÁNSKA ríkisstjórnin lýsti í
dag yfir neyðarástandi í tveimur
héruðum, — Gupuzcoa og Vizcaya
—, í norðurhluta landsins, eftir
skæruliðaárásir sem lögreglan
segir ETA, þjóðernishreyfingu
Baska, hafa staðið fyrir. Tveir
lögreglumenn hafa verið myrtir á
síðustu fjórum vikum og fyrir
tveimur dögum fórst maður sem
talinn var ETA-skæruliði í skot-
bardaga í San Sebastian, þar sem
einnig særðist einn Jögreglumað-
ur. Neyðarástandið heimilar
lögreglunni að halda fólki án
dóms og laga og gera húsleit án
sérstaks leyfis. Upplýsingamála-
ráðherrann sagði að stjórnin
hefði tekið þessa ákvörðun sem
lið í áframhaldandi baráttu gegn
hryðjuverkum.
Súlan fékk 68
kr. fyrir kílóið
SÚLAN frá Akureyri seldi 568
kassa af síld eða 22.4 tonn í Skag-
en sl. föstudag fyrir 55.948 d.
krónur, sem er rösklega 1.5 millj.
ísl. krónur. Meðalverð fyrir afl-
ann var kr. 67.62, sem verður að
teljast mjög gott.
Sfldin er fengin við Hjaltlands-
eyjar og þessi litli afli bendir til
þess að ekki sé mikil sild þar nú.
Réttarhöld í
máli Bretans
MÁL skipstjórans á brezka togar-
anum Arlanda frá Fleetwood var
tekið fyrir hjá sýslumanninum á
ísafirði í gærmorgun. Var dóms
að vænta síðdegis í gær, en skip-
stjórinn hafði gerzt sekur um að
vera með óbúlkuð veiðarfæri í
landhelgi og auk þess vann slyps-
höfn hans að viðgerð á trolli, sem
einnig er bannað í landhelgi. Þá
óhlýðnaðist skipstjórinn fyrstu
skipunum íslenzka varðskipsins.
Auk Þorvarðar K. Þorsteinssonar
sýslumanns eiga Guðmundur
Guðmundsson og Símon Helgason
fyrrverandi skipstjórar sæti í
dómnum.
MS MS M2
Slfl SN
MS MY Aóalst AUGL V^IJPTEIKO IMDAM ræti 6 simi MS V'SINGA- JISTOFA ÓTA »5810
Þórshöfn 26. apríl.
Frá fréttaritara Mbl.
Jogvan Arge:
FJÁRMALANEFND lögþingsins
í Færeyjum hefur I dag umræður
um tillögur frá landstjórninni
um stuðning við fiskveiðiflota
Færeyinga sem á síðustu mánuð-
um hefur átt f miklum erfið-
leikum vegna sölutregðu. Land-
stjórnin vill með tillögum sfnum
einkum koma til móts við fersk-
fiskiðnaðinn og hraðfrysti-
iðnaðinn, en einnig er lagt til að
veiðiflotinn almennt fái olíu-
styrk.
Landstjórnin telur að þessar
tillögur um stuðning muni koma
til með að kosta 36 til 38 milljónir
danskra króna (um 1035 milljónir
ísl. kr) á núverandi fjárhagsári.
M.a. er lagt til að veita 11 milljón-
um d. króna í sjóð sem ætlað er að
tryggja stöðugra kaupverð á
ferskfiski til langframa. Þessi
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Nemendasambandi Verzlunar-
skóla tslands. Þar kemur m.a.
fram, að sambandið minnist þess
nú, að liðin eru 70 ár frá þvf að
Verzlunarskólinn tók til starfa.
Fréttatilkynningin fer hér á
eftir:
Nemendasamband Verzlunar-
skóla Islands heldur árshátíð sína
í Súlnasal Hótel Sögu miðviku-
daginn 30. apríl n.k. Hátíðin hefst
með borðhaldi kl. 19. Að venju
munu afmælisárgangar fjöl-
menna og flytja skólanum heilla-
óskir.
Á þessu ári eru liðin 70 ár frá
því að Verzlunarskóli Islands tók
til starfa. Af því tilefni hefur
Nemendasambandið ákveðið að
gefa öllum nemendum skólans
kost á að taka þátt í hófinu. Sú
breyting hefur orðið á, að skóla-
slit, sem hafa frá öndverðu verið
30. apríl ár hvert, munu nú verða
10. mai. Nemendur, sem braut-
skráðir verða í vor, munu því ekki
taka þátt í hófinu eins og venja
hefur verið. Aðgöngumiðar verða
afhentir á skrifstofu Verzlunar-
sjóður á að ýta undir verðið eftir
sérstökum reglum ef það verður
of lágt. Landstjórnin leggur til að
lögskráðir sjómenn á ferskfisk-
veiðum fái 200 króna styrk á
mánuði ofan á lágmarkslaun, en
fiskimenn á heimamiðum sem
ekki eru lögskráðir (einkum á
smábátunum) skuli fá 125 króna
tryggingu fyrir hvern veiðidag.
Ýmsar fleiri stuðningstillögur
verða ræddar i nefndinni, m.a.
um oliustyrk upp á 12 aura á litra.
Á fjárlögum lögþingsins er gert
ráð fyrir 25 milljóna króna fjár-
hagsstuðningi við fiskiðnaðinn.
Þess er vænzt að tillögur um
aðgerðir nú muni kosta 38
milljónir, og talið er að land-
stjórnin muni innan fárra daga
leggja fram tillögu um hækkun
tolla og skatta til að standa
straum af þessum auknu út-
gjöldum.
mannafélags Reykjavíkur, Haga-
mel 4, eftir hádegi mánudaginn
28. og þriðjudaginn 29. apríl n.k.
— Minning
Guðmundur
Framhald af bls. 38
saman og verða á undan þeim,
sem ætlaði að bleyta fyrir honum
heyið, og sæi furðu vel hvenær
gagn væri í að dreifa og ekki
gagn. Hann átti líka æfinlega gott
hey og óskemmt, og nóg hey
handa sfnum fénaði. Þannig setti
hann á og átti æfinlega eitthvað
afgangs þegar albatnað var. Bónd-
inn á litlu jörðinni með litla túnið
og rýra engið gat oft miðlað öðr-
um heldur en hitt í vondum vor-
um. Hann átti líka mjög væna
dilka á hverju hausti. Góð um-
hirða olli því og nægilegt fóður á
hverju sem gekk og ágætt sumar-
land í fjalli hans.
— Afsögn
Brattelis
Framhald af bls. 2
málanna með ótrúlegum hraða.
Er þetta i fyrsta skipti sem kven-
maður er kosinn í svo valdamikið
embætti innan flokksins. Ætti
jafnréttismálunum að vera gerð
góð skil innan flokksins i framtíð-
inni þar sem Reiulf Steen er for-
maður i jafnréttisnefnd stór-
þingsins og kvenmaður er honum
næstráðandi innan þessa lang-
stærsta flokks Noregs.
— Landsfundur
Framhald af bls. 2
manna i miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins. Þriðjudaginn 6. mai
verða lögð fram drög að stjórn-
málayfirlýsingu landsfundarins.
Því næst verða almennar um-
ræður um stjórnmálayfirlýsing-
una og loks fundarslit. En um
kvöldið verður fagnaður fyrir
landsfundarfulltrúa á Hótel Sögu.
Sigurðúr Hafstein sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að undan-
farnar vikur hefðu sjálfstæðis-
félögin víðsvegar um landið
haldið fundi og valið fulltrúa á
landsfund, en búast mætti við að
þetta yrði fjölmennasti lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins til
þessa, en alls ættu 987 fulltrúar
rétt til setu á fundinum.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
kjörna. Portúgalska lýðræðis-
hreyfingin, systurflokkur komm-
únista, hafði fengið 198.774 at-
kvæði eða 4.2% og 2 sæti. Sjö
aðrir flokkar buðu fram í kosn-
ingunum en fengu allir innan við
5% atkvæða sem til þurfti að
koma manni á þing.
— 741
skólanemandi
Framhald af bls. 48
en eitthvað var liðið á sumarið.
Flestir fóru í vinnu hjá borginni.
„Það verður ekki léttara að út-
vega skólafólkinu vinnu nú en í
fyrra, einkanlega getur togara-
verkfallið haft alvarlegar afleið-
ingar ef það dregst á langinn og
enga vinnu verður að fá i frysti-
húsunum," sagði Gunnar
Helgason.
— BSRB
Framhald af bls. 2
Með þér er hægt að framkvæma
stórvirki. Hittumst á aðalfundi."
Undir þetta ávarp rita: Jóhann
Guðmundsson, Landspítalanum,
Látraströnd 8, Birgir Stefánsson,
A.T.V.R., Melgerði 14, Björg Lilja
Stefánsdóttir, Tollstjóraskrifstof-
unni, Bólstaðarhlíð 13, Eyvindur
Jónasson, Vegagerð rikisins,
Laugateig 17, Rögnvaldur Finn-
bogason, Skattstofunni, Garðaflöt
17, Rósa Lúðviksdóttir, Raf-
magnsveitum ríkisins, Skálagerði
7, Rósa Þorsteinsdóttir, Trygg-
ingastofnun ríkisins, Hrísateig 8,
Jóhannes Sverrisson, Vita- og
hafnarmálaskrifstofunni, Espi-
gerði 14, Jóhanna Jónsdóttir,
Á.T.V.R., Kleppsvegi 124, Krist-
inn Skæringsson, Skógrækt ríkis-
ins, Holtagerði 61.
Athygli er vakin á þvi, að ekki
er um listakosningar að ræða,
heldur óbundnar persónukosn-
ingar.
— Æfðu hindrun
Framhald af bls. 1
ingum um æfingarnar til þess,
að þær virðast f höfuðatriðum
rökrétt afleiðing af útþenslu
sovézka flotans sl. 10 ár þar sem
sívaxandi áherzla hefur verið
lögð á herskip gerð til
hernaðaraðgerða á út-
höfunum. Eitt af því athyglis-
verðasta í æfingunum að þessu
sinni er sú áherzla, sem sovézki
flotinn virðist hafa lagt á að
geta bægt frá herstyrk er sækti
fram að vestan í átt til NA-
Atlantshafs.
Einnig vekur athygli, að
þessar sfðustu flotaæfingar
Sovétríkjanna — sem ekki ein-
asta náðu til Norður-, Norðaust-
ur-Atlantshafs og Norðursjávar
heldur einnig til Miðjarðarhafs,
Indlandshafs og Kyrrahafs, —
hafa sýnt, hvernig hægt er að
stjórna hernaðaraðgerðum flot-
ans á öllum þessum stöðum frá
einum stað.
Upplýsingar sem aðildarrfki
NATO hafa aflað sér, sýna að
flotaæfingunum sovézku nú
fylgdu talsverð umsvif flugvéla
og er á það bent í því sambandi,
að nýjustu könnunarvélar
Sovétríkjanna, sem hafa stöðv-
ar í Murmansk, á Kúbu, í
Guineu í V-Afríku og Somalfu á
austurströnd Afrfku, geta
haldið uppi fullkomnu eftirliti
með öllum mikilvægustu haf-
svæðum heimsins.
— Thieu
Framhald af bls. 1
verið sendihera Suður-Vietnams
þar í nokkur ár, og sagt er að
suður-víetnamskir embættismenn
hafi keypt sér íbúðir á Formósu. 1
dag var sagt í Taipei að sonur
Thieus, sem stundað hefur nám á
eynni, hafi komið til fundar við
föður sinn.
I dag voru ekki eftir nema um
1100 Bandaríkjamenn f Suður-
Víetnam og brottflutningar héldu
enn áfram.
— Laxnes
Framhald af bls. 2
hefði tekið sig til og þýtt þessa
bók sér til skemmtunar, „Ég
vissi ekki af þessu fyrr en hann
rétti mér þetta handrit og bað
mig að fara í gegnum það,“
sagði Halidór. „Við unnum sfð-
an að því saman að búa það til
prentunar og það var sfðan gef-
ið út. En það hefur enginn þor-
að að gefa Vefarann út til
þessa.“
Halldór sagði í því sambandi,
að mikill áróður hefði verið
gegn Vefaranum héðan að
heiman á sínum tima, enda bók-
in valdið hér illdeilum, eins og
raunar fleiri verk Halldórs.
„Henni var fundið margt til for-
áttu og ég man t.d. ekki betur
en að ég hafi farið í mál út af
þvf að hún var kölluð klámrit.
En fyrst og fremst er þetta
æskuverk, skrifað þegar ég var
23ja ára gamall og á tiltölulega
stuttum tima.“
Af öðrum þýðingum á verkum
Halldórs á erlend tungumál
gat hann sérstaklega að Gerpla
hefði verið nýlega þýdd á
frönsku og UNESCO — Menn-
ingar- og framfarastofnun Sam-
einuðu þjóðanna — hefði ný-
verið tilkynnt honum, að á
hennar vegum væri verið að
undirbúa þýðingu á Islands-
klukkunni, einnig á frönsku.
„Þessi stofnun kostar stundum
útgáfu á bókúm á stórmálunum
sem ekki hafa komizt þar inn
með öðrum hætti — það er
ákaflega erfitt að vekja áhuga
Frakka á bók eins og íslands-
klukkunni, einna líkast því og
við ættum að fara að fá áhuga á
bók um Geirfuglasker,” sagði
Halldór.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 34
þegar hann ætlaði að vera
neyðarlegur. Og jafnframt hið
gagnstæða: hversu honum gat
tekist upp í húmornum þegar
honum var f hug hvað einber-
ust alvara. Flest var honum bet-
ur gefið en aga sjálfan sig. Þess
vegna eru bestu ritsmíðar hans
líka ferskari og einlægari en
flest sem ritað var um hans
daga.
Þó hlutfallstala þeirra, sem
lesa Gandreiðina, hækki
hugsanlega ekki mikið með til-
komu þessarar útgáfu er minn-
ing skáldsins verðugur sómi
sýndur, sem og Ingvar Stefáns-
sonar sem féll frá á morgni
frjórrar starfsævi en lét eftir
sig þetta ágæta framlag til ís-
lenskrar bókmenntasögu: rann-
söknirnar, ritgerðina og skýr-
ingar við Gandreiðina. Umsjón
með þessari útgáfu höfðu Olaf-
ur Pálmason og Hannes Péturs-
son og hefur útgefandi að
flestu leyti vandað til verksins.
Verzlunarskóli Islands:
Nemendasambandið minnist
70 ára afmælis skólans