Morgunblaðið - 27.04.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
27
Sænski körinn Choralerna, sem kom hingað til lands I liaust, verður
einnig á EUROFEST.
EUROFEST 75 hald-
ið í Bríissel í sumar
SlÐAST f júlí í sumar verður
kristilegt mót f Briissel f Belgfu
þar sem stefnt er saman mörg
þúsund ungmennum frá flest-
um Evrópulöndum og e.t.v.
fleiri löndum. Mótið er haldið
að tilhlutan Billy Graham
Association og var svipað mót f
London haustið ’73, nefnt
SPRE-E ’73.
Gert Doornenbal kemur til
Reykjavíkur og kynnir EURO-
FEST f Fríkirkjunni f dag kl.
17:00.
Tilgangur mótsins er að efla
kynni milli trúsystkina og gera
kristið fólk hæfara í því að út-
breiða orð Bibliunnar. Það er
gert með ýmsum hætti: Á morg-
ana verða Biblíulestrar. Frá há-
degis til kvölds geta mótsgestir
tekið þátt í ýmsum námskeið-
um er varða líf kristins manns,
m.a. hvernig er sambandið við
Guð? samfélag kristinna,
hvernig á að boða fagnaðarer-
indið o.fl.
Á kvöldin er fólki stefnt til
krossferðar, sem Billy Graham
heldur samtímis f Belgíu. Mikið
verður notuð tónlist og koma til
Brussel margir hópar fólk, t.d.
Choralerna, sænski kórinn, sem
kom til Reykjavíkur í haust og
söng fyrir fullu húsi í Háskóla-
bíói. Einnig má nefna The
Advocates frá Englandi, Trek-
langen frá Finnlandi og The
Lighters frá Hollandi
EUROFEST — kynning
í dag, sunnudaginn 27. apríl
verður kynning á mótinu í Fri-
kirkjunni í Reykjavik kl. 17:00.
Til landsins munu koma tveir
menn, Gert Doornenbal frá
Hollandi og enski píanistinn
Peter Bye.
I Frfkirkjunni prédikar
Doornenbal og segir itarlega
frá mótinu og Peter Bye sér um
tónlistarhliðina. Þeir sem vilja
fá nánari upplýsingar um mótið
geta snúið sér til skrifstofu
æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkj-
unnar.
Borgarfundur Rauða krossins:
Þjónustiimiðstöðvar fyrir aldraða
UM sfðustu helgi hélt Reykjavfk-
urdeild Rauða kross lsands borg-
arafund um félagsleg vandamál
aldraðra. Fundinn sóttu um 150
manns. Framsögumenn voru Þór
Halldórsson, yfirlæknir, sem
ræddi um þjónustumiðsvöðvar
fyrir aldraða, Geirþrúður H.
Bernhöft, ellimálafulltrúi, sem
fjallaði um félagslega þjónustu
fyrir aldraða, Jón Björnsson, sál-
fræðingur, en hann gerði grein
fyrir rannsóknum sfnum á högum
alraðra hér f Reykjavfk og ræddi
um atvinnumál þessa aldurshóps,
og Olafur Olafsson, landlæknir,
sem skýrði frá ástandi f sjúkra-
húsmálum aldraðra hér á landi,
og gerði hann samanburð við önn-
ur lönd á þessu sviði.
A fundinum urðu allmikiar um-
ræður, og verður hér gerð grein
fyrir nokkrum atriðum, sem fram
komu:
Um 8% landsmanna munu nú
vera yfir 67 ára aldri, en þessi
aldurshópur er fjölmennastur i
Reykjavik. Til nánari skýringar
má geta þess, að á áratugnum
1960—70 fjölgaði Reykvikingum
um 12 'á af hundraði, en á sama
tíma fjölgaði ellilífeyrisþegum í
Reykjavík um 48 af hundraði. Bú-
ast má við að fólki yfir 67 ára fari
mjög f jölgandi á næstu áratugum
m.a. vegna þess að fæðingatala
hér á landi var mjög há miðað við
önnur lönd, allt fram til ársins
1970.
Fram kom, að um 30 af hundr-
aði allra þeirra sem f sjúkrahús-
um dveljast, séu langlegusjúkl-
ingar, og er þetta allmiklu hærra
hlutfall en gerist i nágrannalönd-
unum.
Töldu framsögumenn þetta
e.t.v. stafa af skorti á endurhæf-
ingu, enda hafði sú skoðun komið
fram áfundinum, að hjúkrunar
stofnanir væru nokkurs konar
/r
Arbæjar-
prestakall
I messuboði Árbæjarsóknar f
blaðinu f gær, féll niður barna-
samkoma, sem verður f Arbæjar-
skólakl. 10.30 árd. f dag.
geymslustofnanir, I stað þess að
vera endurhæfingastöðvar.
Líklega lausn á þeim vand-
kvæðum, sem eru á þjónustu við
aldraða hér á landi, töldu fi*am-
sögumenn vera þjónustumið-
stöðvar þar sem allir þættir þjón-
ustustarfsins eru settir undir eina
stjórn.
Slíkar þjónustumiðstöðvar eru
víða i nágrannalöndunum, og hef-
ur komið í ljós, að þar sem þær
eru starfræktar hefur eftirspurn
eftir langleguplássum i sjúkra-
húsum og hjúkrunarstofnunum
minnkað stórum, enda er
markmið skipulagningar af þessu
tagi það aó auðvelda fólki að
dveljast eins lengi í eðlilegu um-
hverfi sínu, þ.e.a.s. á heimilum
sínum, og kostur er.
Þess er einnig að geta í þessu
sambandi, að kostnaðarhliðin
kemur einnig til greina, en að
sögn framsögumanna, er vistun í
stofnunum langdýrasta aðferðin
til lausnar þeim vandamálum,
sem gamalt fólk á við að etja.
Dagleg stjórn þjónustumið-
stöðvanna er i höndum starfshópa
læknis, hjúkrunarkvenna, félags-
ráðgjafa, sjúkraþjálfara og iðju-
óskar eftir starfsfólki
AUSTURBÆR
Ingólfsstræti, Þingholtsstræti, Laufásvegur
2 — 57, Óðinsgata.
GARÐAHREPPUR
Vantar útburðarfólk í Arnarnesi.
Uppl. í síma 52252.
SEYÐISFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu. Mbl. uppl. hjá umboðsmanni og á
afgr. í síma 1 0100.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl. hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 1 0100.
þjálfara, og er þannig i hópnum
sérfræðingar á flestum þeim svið-
um, sem til greina koma við þjón-
ustu við aldraða.
Á fundinum kom fram, að öldr-
unarfræði er nú viðurkennd
grein innan læknisfræðinnar í
langflestum nágrannalöndum, og
er nú unnið að því að svo verði
einnig hér á Islandi.
Þjónusta við aldraða er marg-
vísleg hér á landi, en skv. því, sem
framsögumenn sögðu á fundi með
fréttamönnum að borgarfundin-
um loknum, virðist skorta mjög á
að samræming hennar sé þannig
að hún komi að fullum notum.
Fulltrúaráðsfundur í
Kópavogi
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 28
kl. 20.30 í sjálfstæðishúsinu við Borgar-
holtsbraut.
Fundarefni:
Kjör fulltrúa á landsfundi sjálfstæðis-
flokksins Oddur Ólafsson, alþingismaður
flytur ræðu.
Fulltrúar eru beðnir að mæta stundvis-
lega.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Reykjaneskjördæmi
Bingó — Bingó
sjálfstæðisfélag Vatnsleysustrandarhrepps heldur glæsilegt
bingó i Glaðheimum Vogum, sunnudaginn 27. apríl kl.
20.30. Spilaðar verða 12 umferðir.
Skemmtinefndin.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
í Gullbringusýslu
Fundur mánudaginn 28. apríl kl. 9 siðdegis i sjálfstæðishús-
inu, Njarðvikum.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfólk í Breið-
holti
Mætið á fund Framfarafélagsins sem haldinn verður i Fella-
helli sunnudaginn 27. april kl. 20.30.
Rætt verður um hagsmunamál hverfisins.
Stjórn félags sjálfstæðismanna í Fella og Hólahverfi.
Vestmannaeyjar
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Vestmannaeyjum heldur
fund i samkomuhúsinu i Vestmannaeyjum sunnudaginn 27.
april kl. 4 síðdegis.
Fundarefni:
Kosning fulltrúa á landsfund.
Bæjarmálefni: frummælandi Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Akranes
Fundur verður haldinn í Sjálfstæðishús-
inu að Heiðarbraut 20 þriðjudaginn 29.
april kl. 20:30. Ellert B. Schram ræðir
um stjórnmálaviðhorfið og svarar fyrir-
spurnum. Kaffiveitingar. Kosning fulltrúa
á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Árnessýsla — Selfoss
Þriðjudaginn 29. apríl n.k. verður haldinn fundur i sjálfstæðis-
félaginu Óðni og hefst hann kl. 21.00 í Sjálfstæðishúsinu,
Tryggvagötu 8, Selfossi.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin.
HAFNARFJÖRÐUR
Sigurður Guðm. Rúnar Guðjón
Landsmálafélagið Fram
heldur fund miðvikudaginn 30. april kl. 9 siðdegis, i Sjálf-
stæðishúsinu, Hafnarfirði.
Framsögumenn verða:
Sigurður Þórðarson, fulltrúi
Guðm. Rúnar Guðmundsson, raffr.
Guðjón Tómasson, framkvæmdastj.
Á dagskrá verða umræður um landsmál.
„Viðhorf i efnahagsmálum"
„Huldubörnin á Miðnesheiði"
„Hugleiðingar um auðlindanýtingu og fjármálastjórn."
Gestir fundarins verða:
Matthias Á. Mathiesen, fjármálaráðherra.
Lárus Jónsson, alþingismaður
Oddur Ólafsson, alþingismaður
og munu þeir svara fyrirspurnum frummælenda og fundar-
manna, auk þess að taka þátt i almennum umræðum.
Kosnir verða 1 1 fulltrúar á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Félagar í Landsmálafélaginu Fram eru beðnir að mæta stund-
vislega.
Fundurinn er opinn öllu sjálfstæðisfólki i Hafnarfirði, meðlim-
um sjálfstæðisfélaganna, mökum þeirra og óflokksbundnum
stuðningsmönnum.
Oddur Matthias Lárus