Morgunblaðið - 27.04.1975, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, SJUNNUDAGUR 27. APRÍL 1975
30
Frá brúðkaupsdegi þeirra Jackie og Onassis
á Skorpis i október 1968.
Dýrllngtir
Þegar allt var
dýrð og dásemd
i Hvíta húsinu:
Kennedyhjónin
með Caroline
dóttur sina.
af stalli fftlliiln
Erlend blöð hafa undanfar-
ið fjallað um erfðaskrármál
skipakóngsins Onassis og
hefur það vakið hina mestu
athygli, hversu lítill verður
hlutur ekkjunnar Jacqueline
Onassis af öllum hans eign-
um. Svo virðist sem sönnur
hafi verið færðar á það að
Onassis hafi tekið þá ákvörð-
un að skilja við eignkonu sína
og segir New York Times frá
því að Jackie fái aðeins 3
milljónir dollara í sinn hlut
vegna þessarar ákvörðunar
Onassis, sem hann hafi síðan
dregið til baka eftir að hann
veiktist hastarlega. Nokkrum
mánuðum áður en hann dó
eða nánar tiltekið 3. des. sl.
mun Onassis hafa skýrt
bandarískum lögfræðingi,
John Meyer, frá því, að hann
hefði ákveðið að sækja um
skilnað frá konu sinni og fól
hann Meyer að fara með
málið fyrir sína hönd. Síðar
féllst hann svo á að hætta við
skilnaðinn, þegar veikindi
hans steðjuðu að.
Ljóst er af öllu að fullur
fjandskapur virðist lengi hafa
ríkt með Christinu Onassis,
einkadótturinni, og Jackie og
skýra bandarísk blöð frá því
að ekki hafi umhyggjuleysi
Jackie gagnvart manni sín-
um í banalegunni orðið til að
bæta þar um. Christina sat
við beð föður síns svo
klukkustundum skipti og var
hjá honum til hins síðasta, en
Jackie skrapp öðru hverju í
smáheimsóknir til Parísar að
vitja hans en dvaldi að öðru
leyti í New York. Haft hefur
verið eftir nákomnum aðilum
að í síðasta skipti sem Jackie
hafi komið að sjúkrabeði
Onassis hafi þar verið fyrir
Christina og nokkrar frænd-
konur Onassis og hafi þær
ekki virt Jackie viðlits, en
talað saman í hálfum hljóð-
um á grísku, sem forsetafrúin
fyrrverandi hefur aldrei lagt
sig eftir að læra og skildi því
ekki hvað fram fór.
Þótt sumir séu þeirrar
skoðunar, að Christina
Onassis hafi haft nokkur áhrif
á föður sinn, viðvíkjandi því
að svipta Jackie umtalsverð-
um arfi, þykir öðrum að svo
skapfastur maður sem
Aristoteles Onassis hafði tek-
ið þvi fjarri að láta nokkurn
annan, þó svo að þarna væri
um dóttur hans að ræða,
hafa afskipti af málefnum
sínum.
Hinn frægi dálkahöfundur
Jack Anderson hefur fjallad
um málið í skrifum sínum að
undanförnu og upplýsir þar
meðal annars að það hafi
raunar verið Jackie sem hafði
frumkvæði um að stofna til
náinna samvista við Onassis.
Hafi hún notað tækifærið
þegar honum sinnaðist við
Maríu Callas, þá skapheitu
söngkonu, og orðið sér úti
um boðssiglingu um borð í
Christinu.
Jack Anderson segist hafa
átt viðræður við ýmsa þá,
sem næstir Jackie hafa stað-
ið, meðan bæði hjónabönd
hennar vöruðu. Virðist Ijóst,
segir Anderson, að hún
hitaði iðulega fyrri eiqin-
manni sínum, John
Kennedy, í hamsi vegna
gegndarlausrar peninga-
eyðslu þó svo að hann teldist
hafa rúm fjárráð. Mary
Gallagher, segir Anderson,
sem hafði umsjón með einka-
reikningum Jackie, hefur
skýrt frá því að hún hafi eytt
105.446.16 dollurum á
fyrsta búsetuári sínu í Hvíta
húsinu. Af þessar fjárupp-
hæð fóru rösklega 40 þús-
und dollarar til fatakaupa
frúarinnar og einn reikningur
hljóðaði upp á 4 þús. dollara
frá Givenehy í París. Að öðru
leyti keypti hún sér mat, vín-
föng, skartgripi, listaverk og
snyrtivörur. Eftir því sem
Anderson segir í greinum sín-
um lét hún kvartanir for-
setans vegna þessarar miklu
eyðslu sem vind um eyru
þjóta. Næsta ár eyddi hún
121.461.61 dollara í einka-
neyzlu. Þá var árskaup
Bandaríkjaforseta eitt
hundrað þúsund dollarar.
Þegar hún giftist svo
Onassis fékk hún 30 þúsund
dollara á mánuði til einka-
þarfa og auk þess leyfi til að
vera í reikningi hjá aðskiljan-
legum tízkuhúsum. Kom
fljótlega í Ijós að skipakóngn-
um, blöskraði eyðsla hennar
og hafði hann þó ekki kallað
allt ömmu sína. Anderson
segir að Onassis hafi iðulega
hneykslast á eyðslu og
óráðsíu eiginkonu sinnar og
einhverju sinni haft orð á þv!
er óþarflega hár reikningur,
eða 6 þúsund dollarar, var
honum sendur, og var það
kostnaður fyrir matvæli og
umönnun gæludýra Jackie.
Hún ráð einnig frægan
innanhússarkitekt til að
endurskipuleggja snekkjuna
Christinu eftir sínu höfði, svo
og bústað þeirra hjóna á
eynni Skorpios. Arkitekt
þessi, Baldwin, fékk hins
vegar aldrei að breyta neinu
um borð í snekkjunni þar
sem Onassis tók það illa upp
er Jackie vildi gera þar á
breytingar. Aftur á móti gerði
Baldwin breytingar á húsi
þeirra á eynni, en Onassis er
sagður hafa tregðast við að
greiða þann reikning að
fullu. Þá segja heimildir
Andersons að eftir því sem
lengri tími leið og sambúð
þeirra Onassishjóna hafði
farið kólnandi hafi Onassis
Frá útför skipakóngsins.