Morgunblaðið - 27.04.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
37
Jón H. Þorbergsson:
Guð hefur til vor talað
„Kn leitið fyrst ríkis Haus
og réttlætis og þá mun allt
þetta veitast yður að auki.“
(Fjallræðan).
Þess er oft getið í gamla testa-
mentinu, að Guð birtist mönnum
og talaði við þá. Hann talaði við
Adam og Evu i aldingarðinum,
við Kain, við Nóa, við Abraham og
Söru konu hans, en þó mest við
Móse. I bókum spámannanna er
þess mjög oft getið, hvað Drottinn
talaði við á. Þeir segja frá því
sjálfir.
Margt kemur merkilegt fram i
þessum frásögnum sem miðar að
því að efla fólkið i manndygðum
og trú á skapara himins og jarðar.
Drottni líkaði fórn Abels af því
hann hefir verið trúaður. Forfeð
urnir voru mjög trúaðir og hafa
haft samband við Drottin. Það er
merkileg frásögn um það, þegar
Abraham var kominn frá Egj'pta-
landi og sestur að i Mamre-lundi I
Hebron þá lenti hann í hernaði til
að frelsa bróðurson sinn. Abra-
ham vann sigur og er hann kom
úr þeim leiðangri með sína menn,
kom á móti honum konungurinn í
Salem, með vistir handa leiðangr-
inum. Hann hét Melkisedek og
var talinn prestur hins hæsta
Guðs. Við þetta tækifæri sagði
hann við Abraham: „Blessaður sé
Abraham af hinum hæsta Guði,
skapara himins og jarðar, og lof-
aður sé hæsti Guð, sem gaf óvini
þína þér i hendur.“ (Mós. 14. 19.
20.). Þetta mun hafa verið um
2000 árum fyrir Krist. — Það er
veruleiki að trúin á hinn sanna
Guð hefir alltaf lifað með fólkinu
og er ódauðleg. — Samkvæmt
ritningunum er Móse uppi um
1400 árum fyrir Krist. Móse er
fjárhirðir er hann mætir fyrst
Guði. Það byrjaði með því að
Móse sá runninn loga án þess að
brenna. I’rá samtali Guðs við
Móse hefir kristið fólk boðorðin
tíu og blessunarorðin, sem eru
dýrmæt eign. Jesea spámaður var
uppi um 700 árum fyrir Krist.
Jesea sagði fyrir um komu Krists
til jarðarinnar og starf hans þar.
Tii þess hlaut hann að hafa talað
við Drottin. — Davíð konungur sá
verk Guðs í náttúrunni. „Himn-
arnir segja frá Guðs dýrð og fest-
ingin kunngerir verkin hans
handa.“ (Sálm. 19., 2.) — Þetta
getum við öll séð. — Mest hefur
Guð talað við fólkið i Jesú Kristi.
A hann gátu allir hlustað — og
geta enn í dag — „Guó hefir í lok
þessara daga til vor talað fyrir son
sinn (Hebr. 11, 2.) Og orðið varð
hold og hann bjó með oss, fullur
náðar og sannleika og vér sáum
dýrð hans, dýrð sem eingetins
sonar frá föður,“ (Jóh. 1.14.—).
Koma Krists er mesti vióburður
mannkynssögunnar. — Hvernig
væri sú saga, ef Kristur væri ekki
kominn? — Fjöldi af fólkinu var
að glata sér, i trúleysi og synda
lifi, þegar Kristur kom. Hann
sagði: „Ég er kominn til þess að
þeir (fólkið) hafi líf.“ (Jóh.
10.10.). Þegar Kristur kom til
þeirra systra Maríu og Mörtu, til
þess að lífga upp Lazarus bróður
þeirra, sagði hann: „Ég er uppris-
an og lífið. Sá, sem trúir á mig,
mun lifa, þótt hann deyi og hver
sá, sem lifir og trúir á mig, hann
skal aldrei að eiiifu deyja." (Jóh.
11,25—26.).
„Sannlega, sannlega segi ég yð-
ur, ef nokkur varðveitir mitt orð,
hann skal aldrei að eilífu sjá
dauðann.“ (Jóh. 8. 51.). — Krist-
ur hét hverjum eilifu lífi, sem
trúir á hann sem frelsara sinn —.
Hann sagði: „Trúið á Guð og trúið
á mig.“ (Jóh. 14, 1.), og hann
segir: „Með þessu vegsamast faðir
minn, að þér berið mikinn ávöxt
og verðið minir lærisveinar.“
(Jóh. 15, 8.). Kristur var sendur
af Guði og talar Guðs orð. Hann
studdi guðfræði Gamla testament-
isins. Hann sagði við manninn:
„En ef þú vilt innganga tii lifsins,
þá hald boóorðin.“ (Matt. 19, 17.).
— Hér á hann við boðorð Guðs frá
Móse, þótt hann gæfi okkur ný
boóorð. — Guðspjallamennirnir
segja frá orðum Krists og athöfn-
um hans: kærleiksverkum,
kraftaverkum, fórnardauða, upp-
risu hans og uppstigningu. — Það
veitir öllum mikinn lífskraft og
trú að lesa þessar frásagnir. Hið
efra stendur okkur til boða kær-
leikur, hjálp og eilíft iif i sælu
himnanna. Við þurfum til að öðl-
ast þetta allt, að ástunda Guðs orð
og trúa á Guð og frelsarann. Það
er ekki hægt að lifa sönnu menn-
ingarlífi án þess að trúa á Drottin.
Við eigum líka að tala við hann
„með bæn og beiðni ásamt meó
þakkargjörð".
— Kristiö fólk á að tiðka það
mjög að koma saman til að lesa í
Biblíunni, með athugun og bæn.
Það styrkir vissulega trúna.
„En þetta er ritað til þess að þér
skuluð trúa að Jesús er Kristur,
sonur Guðs, og til þess að þér,
með því að trúa, öðlist lífió í hans
nafni.“ (Jóh. 20, 31). Orð Guðs í
hinni helgu bók geta ekki haggast
frekar en eilifðin. Kristur sagði:
„Svo elskaði Guð heiminn (fólk-
ið), að hann gaf son sinn einget-
inn til þess að hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft
líf-“ (Jóh. 3,16). — Þeir sem ekki
trúa eiga bátt. En dyrnar eru allt-
af opnar, samanb. ræningjann á
krossinum o.m.fl. Ekkert á þjóðin
dýrmætara en Guðs orð og frjáls-
an aðgang að því. Það skilur okk-
ar trúaða fólk. Það er áberandi
almennt hér í landi, að fólk vill
líkna bágstöddum og viðhalda
kirkjuhúsum sínum. Það er frá
Kristni, eins og allt gott. Kristur
sagði: „Uppskeran er mikil en
verkamennirnir fáir. biðjið því
herra uppskerunnar að hann
sendi verkamenn til uppskeru
sinnar." (Matt. 9, 37—38). Við
getum beðið hann að senda okkur.
Síðustu orð Krists við læri-
sveina sina er þeir horfðu á hann
hverfa upp til himins, voru þessi:
„Farið því og kristnið allar þjóðir
og skirið þær til nafns föðurins,
sonarins og hins heilaga anda og
kennið þeim að halda allt það sem
ég hefi boóið yður. Og sjá, ég er
með yður alla daga, allt til enda
veraldarinnar." (Matt. 28
19—20). Síðari setning þessara
orða eru mikil huggunarorð öllum
trúuðum. Kristur talaði við Pál,
er hann var á leið til Damaskus,
Kristur hefir oft birst mönnum og
gerir enn í dag —. Þá hefur Drott-
inn oft sent engla sína með skila-
boð til manna. Um það eru marg-
ar frásagnir fyrr og síðar —. Eng-
illinn Gabriel kom til Mariu
„Guðsmóður“ og tilkynnti henni
hvaða hlutverk Drottinn ætlaði
henni. Þegar Kristur fæddist kom
engill til fjárhirðanna. Hann
sagði við þá: „Verið óhræddir, því
sjá, ég boða yður mikinn fögnuð,
sem veitast mun öllum lýónum,
því að yður er i dag frelsari fædd-
ur, sem er hinn smurði drottinn, í
borg Davíðs.“ (Lúk. 2, 10—11:).
Nærtækt dæmi er það sem
Guðsmaðurinn I Bandaríkjunum,
William Graham, skýrir frá. Hann
er fæddur 1909. Bókin með frá-
sögnum hans kom út 1951 í U.S.A.
Hinn 7. maí 1946 birtist honum
fyrst engill Guðs í skinandi klæð-
um til að flytja William fyrirmæli
Guðs. Um þetta reit ég í Morgun-
bl. 1974. Guð hefir til vor talað —.
Eskifirði 25. april
MIKIÐ af fiski hefur borizt á land
hér á Eskifirði undanfarið.
Togararnir hafa aflað afbragðs-
vel. Til dæmis landaði Hólmatind-
ur tvisvar í síðustu viku 140 lest-
um i hvort skipti og Hólmanes
landaði 150 lestum.
Afbragðs afli hefur einnig verið
hjá minni netabátum en þeir hafa
sótt suður á Berufjörð. Einn
Hann hefir gefið okkur skilning-
arvit, sem við nefnum samvizku.
Það notar trúar fólk til að hafa
samband við Guð i athöfnum sin-
um.
islensku þjóðina vantar ekkert
nema almenna vakningu í Guðs
orði. Ef nógu margir bæðu þess í
trú, þá kæmi vakningin yfir þjóð-
ina og þá gæti hún eignast það líf,
sem Kristur sagðist vera kominn
til að veita fólkinu —
Þetta gætum við með sameigin-
legu átaki. „Allt megna ég ryrir
hjálp hans, sem mig styrkan gjör-
ir.“ (Filipp. 4, 13).
„Þitt orð er lampi fóta minna og
ljós á vegi minum.“ (Sálm. 119,
105). Með þvi að lesa Biblíuna
getum vió vitað hvernig Guð talar
við okkur. Þá opnast okkur lika
leiðin til að tala við hann. Það er
óþrjótandi andlegt verkefni og
veitir okkur lifið, sem við erum
fædd til að lifa.
Heimilisfang
misritaðist
MEÐAL fermingarbarna í Breið-
holtsprestakalli í dag er Kjartan
Eyþórsson, en heimilisfang hans
hefur misritazt í lista yfir ferm-
ingarbörnin í blaðinu i gær.
Kjartan á heima að Þórufelli 12,
— ekki Yrsufelli.
þeirra, Guðmundur Þór, 15 lesta
bátur, kom með 16 lestir að landi
einn daginn. Sæljónið er enn afla-
hæst af netabátunum, var búið að
fá 620 lestir í gær. Mikil vinna
hefur verið við fiskinn og unnið
fram á nætur og um helgar.
Sumarið heilsaði með blið-
skaparveðri á sumardaginn
fyrsta, sól og hita og hefur svo
verið í dag líka. — Ævar.
Hólmatindur landaði
280 tonnum í vikunni