Morgunblaðið - 27.04.1975, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
Clint
fer á
kostum
★ ★ ★ High Plains
Drifter, Laugarásbíó.
Leikstjóri: Clint East-
wood. Gerð 1972.
Leikarinn Clint Eastwood hóf
feril sinn undir stjórn Sergio
Leones í Dollara-myndunum og
vann síðan um tíma undir
stjórn Don Siegels (Dirty
Harry, Joe Kidd). Efnisval og
leikstjórn Eastwoods hefur
mótast mjög af þessum tveim
leikstjórum, þvi fyrsta mynd
hans sem leikstjóra var Play
Misty for Me, sem var bæði
efnislega og stíllega stæling á
Siegel-mynd. High Plains
Drifter, sem er önnur mynd
hans, sver sig hins vegar i ætt
við Dollaramyndir Leones. Með
einni undantekningu. Hún er
betri. I fyrsta lagi er sagan
bráðsmellin, eins konar drauga-
saga um nýdrepinn lögreglu-
stjóra, sem gengur aftur til að
hefna sin á morðingjum sínum.
Þetta er þó aldrei gefið upp
með berum orðum, heldur gefið
sterklega i skyn þegar liður á
myndina, enda er förumaður-
inn Clint (draugurinn) jafn-
raunverulegur og aðrar persón-
ur myndarinnar. En eins og I
Dollara-myndunum er hann
hálfguð, ósnertanlegur, óskeik-
ull og ópersónulegur, i stuttu
máli ómennskt ofurmenni, sem
hefur alla i vasanum án þess að
hreyfa litla putta. Clint gerir
lúmskt grin að þessum ofur-
mennum, með þvi að nota sér
hina óraunverulegau stöðu föru
Að vera
★ ic Alex In Wonder-
land.Gamia Bíó.
Leikstjóri: Paul Mazur-
sky.
Alex í undralandi nútimans
er ungur kvikmyndagerðar-
maður í Kaliforníu, sem nýlega
hefur gert sina fyrstu mynd.
Hún hefur hlotið góðar viðtök-
ur og ýmsir fjárspekúlantar i
iðninni bjóða honum nú gull og
græna skóga, ef hann vilji gera
TOFRAR CHAPIJN
Það er ánægjulegt til þess að
vita að við eigum von á öllum
bestu myndum þessa mann-
vinar, því verk hans slá á hina
betri strengi sálarinnar, —
strengi sem í okkar kalda and-
rúmslofti hljóma allt of sjaldan.
Það er einnig skemmtileg
tilviljun að myndin PAPER
MOON skuli hafa gengið hér
um svipað leyti, því það leynist
engum hvert leikstjóri hennar
sótti efniviðinn. THE KID er
því einnig skemmtilegur
samanburður á handbrögðum
tveggja meistara kvikmynd-
anna, meistara af gamla
skólanum og nútimans.
Sæbjörn Valdimarsson.
SÆ8JÖRN VALDIMARSSON
SIGURDUR SVERRIR PALSSON
höfðar beint til hinna góðu eig-
inleika mannsins, ástarinnar og
kærleikans.
THE KID skortir þó alls ekki
hina frábæru gamansemi
meistarans því myndin er full
af gríni og gáska en Chaplin
notaði einmitt lifsgleðina mikið
til þess að undirstrika hinar
dekkri hliðar mannlífsins.
Samleikur þeirra Chaplin og
Coogans litla er hjartnæmur, og
þó að THE KID sé kannski
eilitið yfirsymbólsk á stundum,
þá skrifast það alls ekki á
reikning höfundar, heldur
tíðarandans.
THE KID (Drengurinn)
★ ★ ★ ★
Gerð árið 1921 í Banda-
ríkjunum. Leikstýrö og skrifuð
af Charlie Chaplin. Aðalhlut-
verk: Charlie Chaplin, Jackie
Coogan og Edna Purviance.
Mikið væri veröldin snauðari
ef hún hefði aldrei eignast
Charlie Chaplin.
Myndir Chaplins eru sér
kapxtuli I kvikmyndasögunni.
Fullar af hlýju og viðkvæmni
og baráttu fyrir rétti hins
minni máttar. THE KID er
tvimælalaust í röð þeirra bestu.
ó Ijoklinu
Clint Eastwood athugar myndskurð ( Panavision-
kvikmyndatökuvélinni fyrir upptöku á High Plains Drifter.
Grfnmynd. Eastwood hefur hér stillt sér upp við „gröf“ læri-
meistara sfns, Don Siegels. Hvort Eastwood er hér að halda þvf
fram, að nú sé hann laus undan áhrifum Siegels, eða hvort hann er
eingöngu að leika sér er með öllu óvitað.
mannsins til að ganga lengra í
sömu átt, þannig að leikni ofur-
mennisins gangi fram af
áhorfendum. I öðru lagi hefur
Clint greinilega til að bera
mjög gott myndskyn og tilfinn-
ingu fyrir myndhrynjandi, sem
alltof fáir leikstjórar hafa því
miður. Það var þvf oft á tíðum
hrein unun að horfa á myndina
og njóta kvikmyndatöku Bruce
eða vera
mynd fyrir þá. En Alex getur
ekki gert það upp við sig, hvers
konar mynd hann vill gera.
Hann er meðal annars kvaddur
til Rómar til að ræða um verk-
efni, en þar hittir hann
Federico Fellini sjálfan, þar
sem hann er að klippa mynd
sina Clowns. Alex er að sjálf-
sögðu yfir sig hrifinn að rekast
þarna á sjálfan meistarann, en
Fellini er ekkert á því að láta
einhvern bandarískan strák-
gepil, sem segist vera leikstjóri,
trufla sig og visar honum eftir
nokkurt þref út. Fyrir aðdáanda
Fellinis, eins og undirritaðan,
þá er þessi stutti kafli myndar-
innar sá albesti. Að öðru leyti
er myndin fremur misheppnuð,
hún er ein af hinum svonefndu
unglingamyndum, en á árunum
’70—’72 gekk yfir bylgja af slík-
Surtees og verða jafnframt
vitni að hárfinni leikstjórn
Eastwoods, þar sem hvert smá-
atriði í myndfletinum var yfir-
vegað. Boðskapur myndarinnar
er ekki meiri eða merkilegri en
annarra vestra (um laun synd-
anna) en allur frágangur er
með skemmtilega snyrtilegu
sniði.
SSP.
ekki...
um myndum (eftir Easy Rider,
sérstakiega), myndir ætlaðar
unglingum og helst gerðar af
unglingum (s.s. Strawberry
Statement, Move, Brewster
McCloud.Hugmyndir Alex fyrir
næstu mynd eru settar fram
hér og þar f myndinni, en líkt
og hugmyndir ungra manna
eru þær æði yfirgripsmiklar og
spanna öll stig mannlífsins frá
lúxuslífi til barnamorða f Viet
Nam, allt sett upp á sama stað,
á Boulevard i Hollywood. Þetta
atriði veróur sjálfsagt ýmsum
all minnisstætt enda er leik-
stjórinn, Paul Mazursky, eftir-
tektarverður, þó hæfileikar
hans séu nokkuð duldir í þess-
ari mynd. Áður hefur verið
sýnd hér eftir hann myndin
Bob & Carol, Ted & Alice.
SSP
Hefnd förumannsins
Laugarásbíó
★ ★ ★
„Hefnd förumannsins” er all
óvenjulegur vestri, efnis-
þráður, uppbygging tónlist og
umhverfi, allt er þetta frá-
brugðið hinum hefðbundna
vestra. Sagan er þó siður en svo
óvenjuleg; aðkomumaður riður
inn í smábæ og fær kuldalegar
móttökur. Það kemur smá-
saman i ljós að hann er þar
kominn til hefnda.
I myndinni er einn rosa-
legasti húmor sem sést hefur á
tjaldinu. Sem dæmi má nefna,
að rétt fyrir blóðbaðið f lok
myndarinnar, er bærinn
málaður rauður, að ósk föru-
mannsins. Hnitmiðuð, skyn-
samleg og fyndin frásagnargáfa
Ernest Tidyman, (Oscarsverð-
launin árið 1972 fyrir handrit
myndarinnar THE FRENCH
CONNECTION) nýtur sín vel,
og hér kemur glögglega í ljós
nauðsyn og kostir góðs hand-
rits.
Kvikmyndatakan er einkar
þægileg, og hið „íslenska” og
fagra umhverfi myndarinnar
nýtur sin einkar vel og undir-
strikar óþverraskap og sorahátt
mannskepnunnar. Leikur er
ágætur. Leikstjórn Eastwoods
er óaðfinnanleg, nafn hans,
hvort sem hann leikstýrir,
leikur eða gerir hvort tveggja
er orðið trygging fyrir góðri og
vandaðri skemmtun.
Sæbjörn Valdimarsson.