Morgunblaðið - 27.04.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRlL 1975
47
ÍBK i 1. deild
S.I. fimmtudag léku tBK og UMFN tíl
úrslita f 2. deild kvenna f Islandsmótinu í
handknattleik. Fór leikurinn fram í
Iþróttahúsinu í Njaróvfk og lauk honum
með sigri Keflavfkurstúlkna 10:5. Var
leíkurinn nokkuð jafn til að byrja
með, en upp úr miðjum fyrri hálfleikn
um tóku Keflavfkurstúlkurnar að síga
fram úr og unnu þær sfðan yfirburðasig-
ur. Léku þær oft skemmtilegan hand-
knattleik, og er ekki að efa að lið þetta,
sem er mjög ungt að árum, á fyllilega
erindi upp f 1. deild.
Keflavfkurstúlkurnar taka sæti Þórs á
Akureyri í deildinni, en sem kunnugt er
urður Þórsstúlkurnar neðstar f 1. deild á
nýloknu keppnistfmabili.
Haukar unnu
HK í 2. flokki
HAUKAR úr Hafnarfirði og Handknatt-
leiksfélag Kópavogs léku til úrslita f
bikarkeppni 2. flokks og lauk Leik lið-
anna f fyrrakvöld með sigri Hauka.
14:13, eftir að staðan hafði verið 8:6 í
háflleík.
Haukar voru fyrri til að skora og þeir
héldu frumkvæðinu lengst af þótt mun-
urinn yrði aldrei mikill. Aðeins einu
sínni voru leikar jafnir. Það var í byrjun
seinni hálfleiks er staðan var 9:9. Hauk-
arnir voru vel að sigrinum komnir, léku
góðan varnarleik og voru með jafnbetra
lið en HK. Aftur á móti var sóknin oft
skemmtileg hjá HK en vörnin heldur
gloppótt.
Fyrir Hauka skoruðu Jón Hauksson 5
mörk, Ingimar Haraldsson 4, Rúnar Guð-
mundsson 3 og ólafur Jóhannesson 2
mörk en fyrir HK skoruðu Gunnar Arna-
son 7 mörk, Ragnar Ólafsson 3 en aðrir
minna.
Körfuknattleiks-
landsliðið valið
ISLENZKA körfuknattleikslands-
liðið sem tekur þátt í Evrópu-
bikarkeppni landsliða í körfu-
knattleik i Vestur-Þýzkalandi hef-
ur nú verið valið. Verður það
skipað eftir töldum leikmönnum:
Bakverðir:
Kristinn Jörundsson, IR
Kolbeinn Kristinsson, IR
Kári Marísson, Val
Jón Björgvinsson, Ármanni
Framherjar:
Agnar Friðriksson, IR
Þórir Magnússon, Val
Jóhannes Mgnússon, Val
Símon Ólafsson, Armanni
Gunnar Þorvarðarson, UMFN
Miðherjar:
Bjarni Gunnar Sveinsson, IS
Kristinn Stefánsson, KR
Jón Jörundsson, IR
Fyrirliði liðsins verður Kristinn
Jörundsson. I liðinu eru tveir
nýliðar þeir Jón Björgvinsson og
Jón Jörundsson.
Tveir leikmenn sem tvímæla-
laust eiga heima í landsliðinu
verða ekki með að þessu sinni,
þeir Kolbeinn Pálsson, sem er frá
vegna meiðsla og Jón Sigurðsson,
Armenningur, sem ekki getur
farið í ferð þessa af persónuleg-
um ástæðum.
I Evrópubikarkeppninni eru Is-
lendingar i riðli með Luxemburg,
Albaniu, Sviþjóð, Póllandi og
Grikklandi. Leikið verður dagana
12., 13., 14., 15., og 16. maí.
GERI AÐRIR BETUR. — Elzti þátttakandinn I viðavangshlaupi ÍR, sem fram fór s.l. fimmtudag, var Jón
Guðlaugsson, HSK, sem tók þú þátt í hlaupinu í 23. sinn, og þarf því ekki að hlaupa nema tvisvar enn til að
jafna metOddgeirsSveinssonarsemhljóp25sinnum. Má mikið vera ef Jén nær ekki því marki, þar sem
hann kveðst ætla að keppa I hlaupunum í 30 ár til viðbótar. Hraustlega mælt af manni, sem orðinn er 49
ára.
um sögu glímuíþróttarinnar
Sveinn Björnsson, og formaður
Ungmennafélags Islands, Haf-
steinn Þorvaldsson, sem fluttu
sambandinu árnaðaróskir þessara
heildarsamtaka og færðu gjafir,
svo og forystumenn einstakra
íþróttahéraða og einstakra félaga,
sem fluttu árnaðaróskir og færðu
gjafir. Þá bárust sambandinu
mörg skeyti i tilefni afmælisins.
I tilefni þessara tímamóta
sæmdi Glímusamband Islands þá
Sigurð Ingason, Reykjavik og Að-
alstein Eiríksson, Reyðarfirði,
gullmerki sambandsins fyrir
heillarik störf í þágu glímunnar.
Við mörg verkefni eru jafnan
að fást hjá Glímusambandi Is-
lands, sem og I öðrum iþrótta-
greinum. Mest aðkallandi og af-
drifarikast er jafnan glimu-
kennslan, en fjárskortur hefur
jafnan verið glimunni fjötur um
fót. Dómaranámskeið heldur
Glímusambandið nú á næstunni.
Glímusambandið hefur á und-
anförnum árum unnið að þvi að
Blaknámskeið
SÆNSKA blaksambandið ásamt
alþjóða blaksambandinu I.V.B.F.
gengst fyrir námskeiði I skipu-
lagningu og útfærslu á minna
blaki. Námskeiðið verður haldið i
Ronneby í Svíþjóð dagana
13.—18. júlf f sumar.
BLt hefur ákveðið að styrkja
tvo menn til að fara á þetta nám-
skeið. — Umsóknir sendist skrif-
stofu BLI, Iþróttamiðstöðinni,
Laugardal, pósthólf 864, Rvfk.
láta skrá Glímusögu Islendinga.
Hefur nefnd manna unnið að því
verki á vegum GLl, og er Karl
Kristjánsson, fyrrv. alþingismað-
ur, formaður nefndarinnar. Höf-
undur bókarinnar eru þeir Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi
ríkisins, og Gunnar M. Magnúss,
rithöfundur. Hér er um mikið
verk að ræða, hvað umfang og
yfirgrip varðar, en handrit eru
þegar vel á veg komin. Gerðu
þessir aðilar grein fyrir verkefn-
inu og var gerður að því góður
rómur og því fagnað að glímunn-
ar væri minnzt á svo verðugan
hátt.
Stærsta verkefni Glímusam-
bands Islands á þessu ári er för
glímumanna til Kanada í sumar.
Þjóðræknisfélag Islendinga i
Kanada hefir óskað eftir að fá
flokk glímumanna til að sýna
glfmu á Islendingadeginum að
Gimli í sumar í tilefni 100 ára
búsetu Islendinga í Kanada.
Glímusambandið sér um þessa för
og er nú unnið að lokaundirbún-
ingi. Vona allir að vel takist til
með þessa ferð, því að i vitund
Vestur-lslendinga er gliman sönn
þjóðaríþrótt Islendinga.
Stjórn Glfmusambands Islands. Talið frá vinstri. Fremri röð: Ólafur
Guðlaugsson, Kjartan Bergmann Guðjðnsson, formaður, Páll Aðal-
steinsson. Efri röð: Sigtryggur Sigurðsson ogGunnar R. Ingvarsson.
Unnið að bók
GLIMUSAMBAND tslands var
stofnað 11. aprfl 1965. Voru þvf
liðin 10 ár frá stofnun þess s.l.
föstudag. Af þvf tilefni hafði sam-
bandið boð inni að Hótel Esju.
Formaður Glfmusambandsins,
Kjartan Bergmann Guðjónsson,
ávarpaði gesti og flutti erindi um
glfmuna. Ræddi uppruna hennar
og sögu og minntist ýmissa
merkra atburða sem gleymzt hafa
varðandi fþróttina og sagði sfðan:
„Gliman er íslenzk iþrótt, sem
hefur þroskazt með þjóðinni um
aldaraðir. Hún er séríþrótt Is-
lendinga, þó að hún sé að stofni til
eldri en byggðin í landinu, eins og
tunga okkar, islenzkan, er einnig.
En báðar hafa þær, gliman og
tungan, þróazt og orðið séreign
okkar Islendinga."
Margir tóku til máls m.a. var-
forseti Iþróttasambands Islands,
Lyftingamót í dag
Kl. 15.00 I dag hefst I Laugar-
dalshöllinni lyftingamót á vegum
Lyftingasambands fslands. Er mót
þetta, af þess hálfu, skoðað sem
Norðurlandameistaramót, þótt
aðeins Islenzkir keppendur taki
þátt I þvl. Á sama tíma fer fram I
Stokkhólmi mót sem sambönd
hinna Norðurlandanna hafa komið
sér saman um sem Norðurlanda-
mót. Lyftingasamband fslands
mun hins vegar skjóta þvl undir
úrskurð Alþjóða-lyftinga-
sambandsins hvort mótið verð-
ur viðurkennt, og yrði það
töluvert áfall fyrir hin Norður-
löndin, ef mótið hér I dag yrði
daemt sem Norðurlandamót, þar
sem mikið er lagt upp úr móti
þessu á öllum Norðurlöndunum.
Lyftingasamband fslands hafði
lagt I mikinn kostnað vegna móts
þess sem búið var að ákveða að
haldið yrði hér um helgina, og
þess hafði verið freistað að snlða
framkvæmd mótsins þann stakk
að sómi gæti orðið af. Eftir hina
furðulegu frámkomu forsvars-
manna hinna Norðurlandanna,
situr LSf eftir með sárt ennið og
óneitanlega er fjárhagsleg staða
sambandsins mjög veik.
— Við vorum ekki vel staddir
fjárhagslega fyrir, sagði Ómar
Úlfarsson, formaður sambandsins
I viðtali við Morgunblaðið, — en
svo getur farið að þetta riði sam-
bandinu að fullu. eða vegi svo að
þvl að nánast ekkert starf geti
farið fram á þess vegum. Ég vil þó
láta það koma skýrt fram, að strax
og fréttist hvernig að okkur hefði
verið farið, kom það fram hjá
nokkrum þeirra aðila sem við
höfðum verið með skuldbindingar
við, að þeir myndu reyna allt sem
þeir gætu til þess að létta okkur
róðurinn.
Vonandi er að Islenzkt Iþrótta-
áhugafólk veiti LSf og Islenzkum
lyftingamönnum góðan stuðning
með þvl að mæta til mótsins I dag.
Vitanlega er það óbætanlegt fyrir
Iþróttamennina að fá ekki tæki-
færi til þess að spreyta sig i
keppni við Iþróttamenn hinna
Norðurlandanna. Allir höfðu þeir
búið sig af kostgæfni undir mótið,
og áttu þar góða möguleika á að
hljóta verðlaunasæti og sigra. Þvi
er ekki óliklegt að Islandsmet falli
á mótinu i dag, og betri afrek náist
I einstökum greinum, en gerast
mun á mótinu i Stokkhólmi.
Iþróttakennara-
nemar unnu MT
URSLITALEIKUR Skólamóts
HSl fór fram að loknum leik FH
og Fram f bikarúrslitunum á
dögunum. Til úrslita léku
nemendur Iþróttakennaraskólans
á Laugarvatni og nemendur
Menntaskólans við Tjörnina.
Fóru leikar þannig, að íþrótta-
kennaranemarnir unnu örugg-
lega 20:12 eftir að staðan hafði
verið 9:5 f hálfleik.
I báðum liðum voru nokkrir
þekktir íþróttamenn. 1 sigur-
liðinu má nefna landsliðsmann-
inn úr Víkingi, Viggó Sigurðsson,
Hauk Ottesen úr KR, knatt-
spyrnumennina Janus Guðlaugs-
son og Leif Helgason (lék i mark-
inu í fyrrakvöld og stóð sig vel)
úr FH og Arna Stefánsson mark-
vörð Fram í knattspyrnu. 1 liði
MT má nefna handknattleiks-
mennina Stefán Halldórsson,
Víkingi, Guðjón Marteinsson, IR,
og Stefán Hafstein, Armanni.
F
Glímusamband Islands 10 ára