Morgunblaðið - 03.08.1975, Side 32

Morgunblaðið - 03.08.1975, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGÚST 1975 + Þökkum innilega hlýhug og hluttekningu við fráfall og jarðarför GUÐLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Elliheimilinu Grund færum við sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun og hjúkrun síðustu æviár hennar. Fyrir hönd vina og vandamanna, Nfna Þórðardóttir, Trausti Einarsson. f Konan mín, móðir okkar og amma UNNUR ÓLAFSDÓTTIR, Hagamel 22 verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 1 5. Gísli Jakobsson, böm, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför SVEINBJÖRNS JÓNASSONAR vélstjóra, Patreksfirði. Grfma Guðmundsdóttir, Lalla Sveinbjörnsdóttir Haraldur Jónsson, Jónas Sveinbjörnsson, Kópur Sveinbjörnsson, Rannveig Árnadóttir og barnabörn. + Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall SNÆBJARNAR KALDALÓNS lyfjafræðings. Ester Kaldalóns, Hannes Blöndal Erla Kaldalóns Hallgrfmur Njarðvfk Selma Kaldalóns Jón Gunnlaugsson Guðrfður Bang Karl O. Bang. + Við þökkum innilega auðsýndar samúðarkveðjur við andlát og jarðarför móður okkar. GUÐRÚNAR M. BJARNADÓTTUR frá Keflavík, Valdfs Sigurðardóttir Jóhann Sigurðsson Kristinn Sigurðsson. + Eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar og tengdamóðir HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, Barmahlfð 35 er lést i Landspítalanum þann 27. júlí s.l. verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavik þriðjudaginn 5 ágúst kl. 13 30. Blóm og kransar afþeðið, en þeir sem vilja minnast hinnar látnu, láti liknarstofnanir njóta. Stefán Steingrfmsson, Marta Þorleifsdóttir, Stefán Stefánsson, Guðmundur Hilmar Hákonarson, Marfa Valdimarsdóttir. + Kveðjuathöfn um móður okkar SIGÞRÚÐI GUÐMUNDSDÓTTUR JESSEN frá jsafirði fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. ágúst kl. 1 5.00. Jarðsett verður frá ísafjarðarkirkju fimmtudaginn 7. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Hlíf á isafirði Helga C. Jessen Viggó R. Jessen Hulda R. Jessen Sigurjón G. Þórðarson Kristfn Sigurðardóttir Þór Birgir Þórðarson Erna Jóhannsdóttir Jens Þórðarson Hansfna Gfsladóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför ömmu okkar, tengdaömmu og fósturmóður ÞÓRUNNARÞÓRÐARDÓTTUR prestfrúar frá Stað f Grindavík Sérstakar þakkir færum við Halldóri Steinsen lækni og hjúkrunarliði Landakotsspítala fyrir frábæra aðstoð og hjúkrun í veikindum hennar. Bryndís Friðþjófsdóttir, Sigurður Valdimarsson, Kristján B. Kristjánsson, Kristbjörg Jóhannesdóttir, Brynhildur Kristjánsdóttir, Björn H. Björnsson, Sigurður V. Guðmundsson, Eygló Þorgrímsdóttir, og barnabarnabörnin. Halldór Guðmunds son — Minning Fæddur: 16/9 1912. Dáinn: 22/7 1975. Drottinn gaf, drottinn tók. Sú langa þraut er liðin, þá loksins hlauztu friðinn. Þegar ég frétti andlát vinar míns, Halldórs Guðmundssonar, setti mig hljóða, eins og alltaf fer fyrir okkur þegar við fréttum lát vinar eða vandamanna. Halldór var fæddur að Seli i Ásahreppi i Árnessýslu. Foreldr- ar hans voru Sesslja Vigfúsóttir, fædd að Króki i Ásahreppi, og Guðmundur Jóhannesson, fædd- ur að Seli i Ásahreppi, sem er næsti bær við Krók. Foreldrar Halldórs bjuggu allan sinn búskap að Seli. Halldór ólst upp í foreldrahúsum til 20 ára aldurs, er hann fiuttist að heiman og fór í atvinnuieit til Reykjavíkur. Halldór var sá 11. í röðinni af 14 systkinum, 6 bræðrum og 8 systr- um. Fjögur af systkinum hans eru látin og er hann sá fimmti sem flust hefur yfir landamærin og er þar stórt skarð fyrir skildi. Er Halldór kom til Reykjavíkur frá heimabyggð sinni gerðist hann leigubílstjóri hjá Litlu bíla- stöðinni og vann þar um stuttan tíma. Er Halldór hætti að vinna þar, fór hann að vinna hjá Bif- reiðastöð Steindórs og stundaði hann akstur þar í 6—7 ár. Þegar Halldór hætti þeirri at- vinnugrein réðst hann í vinnu hjá Ræsi og þaðan fór hann til Egils Vilhjálmssonar. Vann hann þar í 6 ár, eða þar til hann þurfti að hætta vinnu vegna þess sjúkdóms sem að síðustu dró han til dauða. Tíu ár liðu frá því að Halldór fann fyrst fyrir sjúkdómi sínum, þar til yfir lauk. Siðustu 2 árin lagðist hann 8 sinnum á sjúkra- hús og var á Vífisstöðum siðustu vikurnar, þar sem hann iést að morgni 22. júlí. Fyrir um það bil 25 árum kynntist Halldór eftirlifandi konu sinni, Kristínu Ingimarsdóttur, sem reyndist honum einstakur förunautur á lifsleiðinni. Hjóna- band þeirra var með eindæmum gott og farsælt. Kristin stundaði mann sinn með einstakri þolinmæði og góðri umönnun í hans þungu sjúkdóms- raun, enda fann Halldór það og mat mikils. Halldór og Kristín eignuðust tvö börn, Birgi, sem enn er í for- eldrahúsum og Esther, sem gift er Reyni Haraldssyni og eru þau barnlaus. Eina dóttur átti Kristín fyrir kynni þeirra Haildórs og + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför FREDRIKKE KLAUSEN frá Eskifirði. Vandamenn. heitir hún Bára Todd og er gift Gunnari Sigurbjartssyni og er hann eigandi að Verkframa, hann dvelst nú á sjúkrahúsi. Bára og Gunnar eiga 3 börn. Halldór reyndist henni sem góður faðir og börnum hennar sem hinn bezti afi. Halldór var maður hlédrægur, prúður í allri framkomu og traust- ur og góðurjvinur. Hann var dug- legur í hvívetna og lét sig aldrei vanta til vinnu. Hann var sam- vizkusamur og góður verkamað- ur. Vel var Halldór liðinn af vinnufélögum og yfirmönnum sínum og báru þeir virðingu fyrir Halldóri sem sérstökum og góðum vinnukrafti. Halldór var hagur á margt og fórust öll verk vel úr hendi og hafði einnig mikið yndi af lestri góðra bóka. Halldór hafði gaman af öilum ferðalögum og var mikill náttúru- dýrkandi. Hann ferðaðist víða, þó var heimabyggðin honum alltaf kærust og hélt hann oftast á heimaslóðir. Halldór var dýravinur mikill, en bar þó af með hestana, það voru hans uppáhaldsvinir. Oft brá hann sér á bak góðum gæð- ingi og í vinahópi var þá alltaf glatt á hjalla, sungið mikið og hjalað. Haildór var aðdáandi söng- listarinnar, enda hafði hann fallega og mikla söngrödd. Og er vinir og vandamenn brugðu sér á bak góðum gæðingum og hófa- dynurinn barst um holt og hæðir og margraddaður söngurinn barst um loftin blá, þá var gaman að vera ungur, enda hefur hugur hans oft reikað til þeirra tíma og Framhald á bls. 47. — Hvert er álit þitt Framhald af bls. 3 Ragnar Tómasson hdl.: Margt virðist óljóst um ástandið í Portúgal. Þó er ljóst að kommúnistar um allan heim hafa eina sál, eina hugsun, eitt takmark. Það ræðst af atvikum hvort farin er leið lýðræðis eða byltingar, hvort leiðin er stutt eða löng, takmarkið er ævin- lega eitt og hið sama: að drottna með góðu eða illu. Kommúnistar annarra Evrópu- landa eru tvístfgandi. I hjarta sínu fagna þeir merkum áfanga félaga sinna i Portúgal en heima fyrir vaknar upp gamla kommagrýlan og áfram heldur sama þrotlausa baráttan: að sannfæra hrekklausan almenn- ing um að svona muni þeir aldrei haga sér. Steinunn Sigurðardóttir skáld og útvarpsfréttamaður: Byltingar eru eins og ástamál að því leyti að það er gagnslaust að fíiósófera um þær fyrir- fram. Einar Karl Haraldsson frétta- stjóri Þjóðviljans: Það er harla erfitt að átta sig á „byltingunni með blómið f byssuhlaupinu“. Guðbergur Bergsson segir i grein í Þjóð- viljanum s.l. þriðjudag að eigin- lega sé ekki hægt að skrifa um byltingar nema I fortfð. Svo hröð og flókin er atburðarásin sem fylgdi i kjölfar liðsfor- ingjabyltingarinnar, að jafnvel þeir sem standa í henni meiðri skilja vart samhengið, hvað þá við, sem stöndum fjarri, og treysta verðum meiri og minni æsingafrettum f ihaldsfjölmiðl- um, sem leggja gildismat kapí- talfskra lýðræðisrikja á alla þróun mála f Portúgal. Sú þjóðfélagsumbylting sem stjórnarbylting liðsforingjanna hrinti af stað á sér þó greini- lega sameiginlegt markmið f vilja þorra portúgölsku þjóðar- innar að losna úr viðjum hálfr- ar aldar fasískra stjórnarhátta og einokunarauðvalds. Lengra nær eindrægnin ekki og þau stjórnmálaöfl, sem að verki eru í Portúgal, og flest hafa leystst skyndilega og sókipulögð úr læðingi, eru svo sundurþykk að nærri stappar algjörri ring- ulreið. 1 orði kveðnu er öll stjórn- málaöfl í Portúgal, með herja- hreyfinguna í broddi fylkingar, sammála um að koma á sósíal- isma. Öljósara er hverskonar sósíalismi það er. Markmið liðs- foringjanna, sem keppast við að útnefna sjálfa sig hershöfð- ingja og ráðherra, eru afar óljós f þeim efnum. Þeir fara með byltingarvaldið, en meðal þeirra eru uppi deilur um fram- tiðarstefnuna, og veikir það stöðu þeirra. Fram að þessu hafa herfor- ingjarnir stuðzt við Kommún- istaflokk Cunhals, sem er bezt skipulagða stjórnmálaaflið f Portúgal. Ekki þyrfti það að koma mjög á óvart þótt þeir söðluðu um þegar fram líða stundir og tækju upp samvinnu við Soares og jafnaðarmenn hans. Einna helzt má lfkja ástand- inu í Portúgal við fjöltefli her- foringja og háskölamanna í for- ystu stjórnmálaflokka, þar sem framtíð portúgalskrar þjóðar er lögð að veði. Eins og stendur er erfitt að sjá hver teflir af mestri leikni, hver hefur beztu skilgreininguna á stöðunni, hverjum verða á mistök, og hver vinnur flestar skákirnar á endanum. 1 versta falli getur „blómabyltingin“ snúizt upp f andhverfu sína og einhver ein- ræðisseggur hrifsað til sín ein- ræðisvald með tilheyrandi ógn- arstjórn. Útkoman á byltingartilraun- inni f Portúgal hlýtur þó alltaf að verða metin í ljósi þess hvort hún tryggir pórtúgölsku þjóð- inni raunhæft frelsi og efna- hagslegar framfarir til fram- búðar. Ef niðurstaðan yrði nú þrátt fyrir allt f þeim dúr væri ósk- andi að ritstjórn Morgunblaðs- ins hefði þann þroska þá að fagna þeirri þróun, enda þótt Portúgalir kysu að kasta auð- valdsskipuiaginu fyrir róða. Þorsteinn Thorarensen rithöfundur: Þegar litið er til atburða í frumstæðum og fátækum löndum eins og Portúgal, Grikklandi og Indlandi, er út i bláinn að áfellast valdhafana fyrir að viðhalda ekki vestrænu lýðræði. Hið marglofaða lýðræði er sjaldan eins og spámenn þess lýsa þvi í hátíðarræðum, og þar sem allan efnahagslegan og fél- agslegan grundvöll skortir, verður úr því tóm hræsni. Ég undrast því hvorki fram- ferði frfskra fasistahershöfð- ingja né portúgalskra kommún- istahershöfðingja, þó að þeir sýni rétt andlit ofbeldis. Við- brögð þeirra spretta upp úr öfgum og andstæðum samfél- aga, sem kunna engar leik- reglur lýðræðis. Þegar að kreppir f hungurs- neyð, atvinnuleysi og allt kemst í þrot f stjórnspillingu, verður líka tómt mál að tala um mál- frelsi. Þegar stjórnvöld standa gagnvart óleysanlegum hörm- ungum og upplausn leiðir af sjálfu sér, að þau verða að tak- marka málfrelsið, þar sem það er sfðast aðeins orðið skálka- skjól málskrafanna og niður- rifsmanna, sem sjálfir kunna sér engar hófstilltar leikreglur lýðræðis. Þetta gildir jafnt um Portúgal og Indland, þvf miður. En þó að maður taki lýðræðið ekki allt of hátíðlega f slíkri eymd, verður þó að gera sér grein fyrir öflum þjóðfélagsins og það sem ég ekki skil, er hvernig örlítill minnihluta- hópur eins og portúgalskir kommúnistar, með aðeins 10% þjóðarinnar á bak við sig, ætlar að gera sig að herrum yfir öðrum. Það sýnist mér ólíklegt að takist, jafnvel þótt þeir út- helli blóði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.