Morgunblaðið - 03.08.1975, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 03.08.1975, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975 47 Þórður Möller yfirlæknir látinn ÞÓRÐUR Möller, yfirlæknir á Kleppsspítalanum lézt í Reykja- vík sl. föstudagskvöld, 58 ára að aldri. Hann var fæddur 3. janúar 1917. Foreldrar hans voru Þóra Þórðardóttir Guðjohnsen og Jakob Möller, fyrrum ráðherra. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1935 og lauk læknisprófi við Háskóla Is- lands 1945. Siðan stundaði hann framhaldsnám og starfaði við sjúkrahús i Kaupmannahöfn, London og Osló, auk læknisstarfa hér heima. Hann var m.a. yfir- læknir fávitahælisins i Kópavogi 1952—1956. 1958 varð Þórður kennari i geð- sjúkdómafræðum við Háskóla Is- lands og jafnframt yfirlæknir Kleppsspítala. Þórður tók mikinn þátt i félags- málum, þó sérstaklega innan KFUM. Kona hans var Kristín Magnúsdóttir. r Attræður Attræður verður á morgun, 4. ág. Þórhallur Geirfinnsson, fyrrum bóndi á Botni í Þorgeirsfirði, nú til heimilis að Ásgarði á Sval- barðsströnd. Þórhallúr verður að heiman á afmælisdaginn. — Portúgal Framhald af bls. 1 félagsskipan og fornri menn- ingu. I bænum Evera í héraðinu Alemtejo, sem er eitt helzta vígi vinstrisinna og kallað „Rauða Alemtejo", hafa hópar vopnaðra manna ráðizt á land- búnaðarverkamenn sem hafa lagt undir sig bændabýli. Sömu sögu er að segja í mörgum öðr- um héruðum Portúgals þótt vopnum sé ekki alltaf beitt. Yfirvöld í afskekktum héruð- um eiga fullt í fangi með að framfylgja nýsettum lögum og stefnumiðum byltingarinnar, hreinsanir embættismanna á landsbyggðinni eru ekki fram- kvæmanlegar vegna litils stuðnings almennings og örygg- isþjónustan COPCON mætir oft óvirkri andstöðu hægrimanna og óhlýðnisaðgerðum annarra landsmanna. Þannig á COPCON oft fullt í fangi með að handtaka and- stæðinga stjórnarinnar og halda uppi lögum og reglu. COPCON getur barið niður einangruð uppþot en þjóðin mun alltaf finna einhver ráð til að streitast gegn byltingunni, segir de Figueirado. Árásir hafa verið gerðar á miðstöðvar flokka sem eru hlynntir kommúnistum i Oporto og öðrum bæjum í Norður-Portúgal, kveikt hefur verið í ritstjórnarskrifstofum blaða sem fylgja byltingarsinn- um að málum og 1 fornum bæj- um eins og Batalha skammt frá Lissabon er kirkjuklukkum hringt um leið og fólk hrópar: „Niður með kommúnismann“. 1 mörgum þorpum fá örfáir kommúnistar sem í þeim búa, ekki að yfirgefa heimili sín nema með leyfi sérstakra nefnda andstæðinga þeirra. Þar sem fylgi kommúnista er Iitið er byltingarstefnan því ófram- kvæmanleg og MFA er að gera sér grein fyrir því. Á öðrum svæðum (fylgi kommúnista er mest I suðurhlutanum) vekja sósíalismaáform andúð enda er venjulegu fólki fyrst og fremst umhugað að verja eignir sínar, hús og jarðir. Socialista, timarit flokks dr. Soares segir: „Það sem er að gerast I Portúgal stefnir ekki i átt til sósialisma. Það er tilraun i rannsóknarstofu. Rússar vilja sýna að i hálfevrópsku landi eins og Portúgal sé hægt að rífa allt niður.... Er ennþá rikis- stjórn I Portúgal? Ef svo er ekki eigum við ekki annað eftir en að skrifa á húsveggi eins og einhver gerði í Prag 1968: „Vaknaðu Lenin. Þeir eru gengnir af vitinu.“ — Forsetahjónin Framhald af bls. 48 Er komið var 1 vogahyggð tóku á móti hópnum konur úr kven- félagi sóknarinnar, ásamt fleira fólki sem eingöngu hafði komið til að heilsa upp á Islending- ana: Þarna var borinn fram ríkulegur hádegisverður, og þegar séð varð að ekki vannst timi til að ljúka samræðum var ákveðið að hópurinn drykki þarna einnig eftirmiðdagskaffi. Margt af fólki af íslenzku bergi brotið býr þarna og fslenzka var töluð eins og við værum komin heim. Frá Vogum var haldið til Duffin og frá þvi hefur áður verið sagt, og eins veizlunni hjá dr. Bjarka Jakobssyni í Neepawa. Frá Neepawa var haldið til Brandon og Glenborough. Riding Mountain þjóðgarðurinn er ákaflega fal- legur staður, og þar sáu ungl- ingarnir margt sem þeir höfðu aldrei áður séð, t.d. vísunda, dádýr, elgi, skógarbirni o.m.fl. Brugðu þau sér svo á hestbak en ekki held ég að þeim hafi öllum fundist að þarna væri um gæðinga að ræða. Á miðviku- daginn var svo haldið áfram ferðinni, en það var heitasti dagur ferðarinnar. Var hitinn milli 35—40 stig á Celsíus. Gist var í Glenborough, og svo hald- ið til Winnepeg með viðkomu í öskju og skoðað þar minja- safnið. I Torpage var boðið til hádegisverðar af bæjarstjórn. I Winnepeg var gist í lúterskri kirkju og þar mikið af islenzku fólki I söfnuðinum. A föstu- daginn var boðið til hádegis- verðar af Hudson Bay Company og haldið þaðan til Fort Derry sem er gömul verzlunarmiðstöð á bökkum Rauðár. Eftir að hafa skoðað þennan fræga stað var boðið til veizlu í lystigarði Sel- kirkjubæjar. Undi æskufólkið sér þar einkar vel. Sumir fengu sér sundsprett í Iaug í garðin- um, en kaldur myndi sá póllur þykja til sundiðkana heima á Islandi. Þar vbru einnig nokkr- ir aðrir Austur- og Vestur- Islendingar og skemmtu sér með unglingunum. I veizlulok var dansað og sungnir íslenzkir söngvar. KI. 10 var svo komið til Árborgar og þar voru gest- gjafar fyrir til að taka á móti gistivinum sínum. I dag fer svo fólkið að streyma til hátiðarhaldanna á Gimli, sem byrja með pönnu- kökuveizlu þar á hafnar- svæðinu. Aðal hátíðahöldin verða svo á mánudag, og þar mun m.a. flytja ræðu forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, en hann kom ásamt forseta- frúnni, frú Halldóru Eldjárn, og föruneyti þeirra til Winne- pegborgar kl. 2 i gær. — Kúrdar Framhald af bls. 1 irvalda, síðan í janúar á þessu ári. I framhaldi af þessum upplýs- ingum hafði Morgunblaðið sam- band við Gisbert Janiche í Hels- ingfors, en hann á sæti í finnsk- kúrdísku nefndinni. Sagði hann að erfitt væri að fá nákvæmar upplýsingar um ástandið hjá Kúrdum í Irak vegna þess að lok- að hefði verið fyrir allt upplýs- ingastreymi frá landinu og að Kúrdar væru algerlega einangr- aðir. Þó væri um það orðrómur að ofsóknum gegn Kúrdum hefði hvergi linnt, þrátt fyrir loforð Iraksstjórnar um uppgjöf saka. Janiche sagði að það sem gerði ástandið verra fyrir Kúrda væri að engin stjórnarandstaða væri í landinu og erlend riki, og stofnan- ir gerðu nánast ekki neitt til að fá Irakstjórn til að hætta ofsóknun- um. Almennt hefði verið búist við þvi að pólitlskir fangar yrðu látn- ir lausir samkvæmt samningi um sakaruppgjöf, en allt benti til þess að hið gagnstæða hefði gerst. Fjöldi flóttamanna, sem snúið hefur aftur, hefur verið tekinn af lífi. ---------------- — Costa Gomes Framhald af bls. 1 sögðu í dag að um 100 hermenn hefðu umkringt aðalstöðvar kommúnista i bænum Famalico i Norður-Portúgal eftir að herskáir flokksmenn skutu á hóp mótmæl- enda og særðu tvo alvarlega. Hafði mannfjöldi gert aðsúg að aðalstöðvunum og hafði verið róstusamt I bænum I nótt. Hvað er aðheyra? Framhald af bls. 5 tangóinn „Jalousie", og eins léttklass- ísk lög, t.d. sænska lagið „Tornarna" eftir Sjöberg." Baldir til stuðnings á ferðalaginu verða þeir Eyþór Þorláksson gítarleik- ari, Guðmundur Steingrimsson trommuleikari og Ómar Axelsson bassagitarleikari, auk þess sem Hjálm- týr Hjálmtýsson tenórsöngvari syngur nokkurlög. „Ég hafði upphaflega hugsað mér að láta þáttinn heita Tónaferð til tuttugu landa," sagði Baldur, „og hafði undir- búið hann sem slikan. En i miðri upp- töku biluðu upptökutækin, þannig að tónaferðin náði ekki nema til tiu landa. Ég var hins vegar á förum til Spánar og því varð ekki af þvi að seinni helming- urinn yrði tekinn upp. En kannski verð- ur af þvi siðar." BRYNJÓLFUR BISKUP SVEINSSON Þórhallur Guttormsson cand mag. flytur erindi, sem nefnist „þriggja alda minning Brynjólfs biskups Sveinsson- ar" kl. 19.35 á þriðjudagskvöldið, en þann dag, 5. ágúst, eru liðin 300 ár frá dauða biskupsins. — Eyjar Framhald af bls. 48 kl. fjögur aðfaranótt Iaugardags, en vegna veðurs lauk dansinum á þriðja tímanum um nóttina. I gærmorgun hafði stytt upp í Eyjum og birt til og bundu menn vonir við að bjart yrði allan dag- inn og að sem minnst rigndi, en þó var útlit fyrir skúraveður. - Hvað er að sjá? Framhald af bls. 5 upptöku hjá HljóÖritun hf. i Hafnar- firði, þar sem þeir léku undir á Plötu Megasar, og um kvöldið fórum við á dansleik hjá þeim i Festi." Auk Egils voru kvikmyndatöku- maður og hljóðupptökumaður á hæl- unum á Júdasi allan daginn — „og við kvikmynduðum strákana i öllu sem þeir gerðu, þegar þeir voru að borða, fara á klósettið og hvað sem var, eða nærri þvi." Kvikmyndaefnið, sem þannig fékkst, var um þriggja stunda langt, en var svo klippt niður i hálftima þátt. — Minning Framhald af bls. 33 sýsia er nú á félagsvæði Dags- brúilar. Brynjólfur var mála- fylgjumaóur og var trúr þeim málslað sein ltann bárðist f.vrir hvort lteldur var á þessum vett- vangi eða iiðrum í þeiin féliigum, sein liann starfaði um ævina. Hann var tryggl.vndur og vinfast- ur, vinur vina sinna. en al'skifta- lftiim um aðra sein ekki voru honum að ska|)i. á hinum velþegntt og miirgu heimsóknum hans á heimili okkar hjóna snerust umræður oftast ttm verklegar framkvaimdir, sem vortt á döfinni á hverjmn tima, en fyrsta verk hans hér var að smiða brú á heimreiðina er gamla brúin bi'laði í mikluin valnaviixtum einn véturinn. Hann téiknaði biúna með járnum og iillu sem f.vlgir og reisti liana fljótt og vel, þannig að hún hefir dugað vel og borið upp hin stórvirku tæki, sem tilheyra búnaði Hitaveilunnar og Orku- stofnunar við borframkvæmdir hér á siðustu áruin. Þá stýrði hann framkvæmdum við bygg- ingu úlilnisa hér á jiirðinni og ibúðarhúss, svo að hvergi sésl sprunga og hvergi dre.vrir dropa inn uni veggi eða glugga, hvernig svo sem hin sunnlenska ringing og veðrátta lætur. Þeim lærðu og skólagengnu mönnum, sem að byggingum stóðu, þóttu ráð hans oft frumleg en ávallt góð, og sam- starf þessara aðila við smiðinn var ágætt svo af bar. Hann aflaði sér kunnáttu í bókum, en einnig og ekki síður meó langri reynslu við hin margvíslegu störf, sem hann stuhdaði um ævina. Síðustu árin bjó Brynjólfur i Selás vjð Reykjavík og undi þar einn i eigin húsi við ýmiskonar föndur svo sem skeifnasmiðí og fleira. Brynjólfur kvæntist ekki, en eignaðist eina dóttur, Guðmundu, sem er gift og búsett á Djúpavogi og var honum dóttir- in einkar kær. Að leiðariokuin vil ég votta að- standendum samúð og færi hinum látna þakkir fyrir liðnar samveruslundir og samstarfið. Síðasta heimsókn hans á heimili okkar var i mannfagnaði á siðasl- liðnum vetri og við það tækifæri var hann hrókur alls fagnaðar og flutti frumsamið kvæði, sem hann færði í Ietur í gestabók. Visur þessar segja raunar allt sem segja þarf á skilnaðarstundu og síst grunaði okkur þá að endalokin yrðu með svo skjótum hætti sem raun ber vitni. Jón M. Guðmundsson, Reykju m. — Verzlun Framhald af bls. 19. vörusölunni. Þetta var svo erfitt. Maður fékk t.d. kartöflur I stórum sekkjum og varð að vigta þær sjálfur I tveggja kílóa poka. Eins var með sykurinn og margt ann- að. Að lokum losaði ég mig við matvöruna og tók verzlunarpláss- ið allt undir vefnaðarvöruna. Hún er meðfærilegri og skemmtilegri söluvara." „Mig dreymdi alltaf um að koma á fót virkilega flottri verzl- un. Það er þó einhvern veginn þannig, að mér hefur alltaf fund- ist ganga af manni i þessu starfi frekar en hitt,“ segir Þórey. „Þetta verður líka sifellt erfiðara. Sem dæmi má nefna erfiðleikana hvað fjármálin snertir. Heildsal- arnir gefa æ styttri gjaldfrest. Núna bjóða þeir helzt ekki víxla- viðskipti nema til eins og hálfs mánaðar. Það er alltof stutt ef erfiðlega gengur.“ En hefur það nokkurn tima hvarflað að þessari fullorðnu konu að draga sig í hlé? Ennþá sér hún sjálf um bókhald og inn- kaup verzlunar sinnar. „Nei, ég læt mig ekki dreyma um að hætta kaupmennskunni nærri strax,“ svarar hún snöggt. „Ég hef heldur ekki efni á því. Þó ég sé búin að vera við þetta i marga áratugi ætti ég ekki fyrir margra ára vist á Hrafnistu. Ég veit að fólk segir si svona: Kerl- ingin í Þorsteinsbúð á nóga pen- inga, en það er því miður ekki staðreyndin. Ég er í rauninni fátæk. — En verið þið ekki að hafa þetta eftir mér. Fólk tekur þetta sem barlóm, en þetta er fakta!"______ ______ Minning Halldór Framhald af bls. 32 sjá lífið í sínu rétta ljósi í hópi þeirra sem voru honum kærastir. Halldór var hrókur alis fagnaðar i góðum vinahópi. Halldór hafði gantan af allri úti- vist og naut þess að njóta fegtirð- ar nátlúrunnar i félagsskap fjiil- skyldunnar. Þegai- ég sem þetta skrifa, heyrði lát Halldórs, langaði mig til að setja örfá kveðjuorð á blað, þó ég búist við að aðrir skrifi um hann og geri því betri skil. Halldór kom mér fyrir sjónir sem hugljúfur drengskapar- maður, hýr, í bragði og hlýlegur í viðmöti, broshýr og með léttan húmor. Gott viðmöt sem mér féll svo vel, rólega framkomu og prúð- mannlega. Halldór var heimakær maður og féll bezt að vera alltaf sem næst fjölskyldu sinni og njóta samvistar við hana. Gagnkvæm virðing ríkti innan fjölskyklunnar. Börnuin og barnabörnum var hann mikils virði og eflaust hefur hann oft tekið afabörnin á bné sér og sungið við þau. Ilalldór var blíður í lund og allri framkomu. Siöast þegar ég sá Halidór, þá var hann nokkuð hress og talaði hann mikið um þá umönnun sem hann fékk á þeim sjúkrahúsum sem hann hafði leg- ið á. Hann dásamaði mikið þann kærleika og ástúð sér tii handa, sem hann hafði fundið hjá starfs- liði sjúkrahúsanna og gott viðmót. Það var dásamleg tilfinning að finna hver drottins ljós lýsti upp hug þessa sjúka manns sem bar sínar þjáningar með einstakri karlmennsku og þrautseigju. Ég þakka Halldóri hjartaniega fyrir góð og elskuleg kynni og vináttu sém hann sýndi mér i hvfvetna. Fjölskylda min bióur Kristínu börnum hennar og barnabörnum. ásamt vinum og ættingjum öðr- um, blessunar drottins og vottar þeim innilega samúð. Bið ég guð að styrkja þau i sorg og söknuði og lofa guð fyrir lausn Halldórs frá þrautum hans og þjáningum, en við vitum að látinn lifir. Hann er nær sínum ástvinum og umvefur þá meó ekki minni kærleika og hjartgæzku en hann gerði í lifandi lífi, þvi í húsi föður míns eru mörg híbýli. Far þú i friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðrún Hansdóttir. — Nordjamb Framhald af bls. 35 veður, og þeir sem þekkja ána segja að hún jafni sig á tveimur dögum. Og væntanlega hefur rigningin gert gróðrinum gott, því að uppskeran var að eyðileggingu komin eftir þurrkana," sagði Þuríður og brosti við. Næst hittum við að máli Steinunni Harðardóttur með stokkbólgna hönd í fatla. Hún hefur orðið illilega fyrir barðinu á mýbitinu við ána, en er nú á batavegi, eftir að hafa orðið að leita sér læknishjálpar. Steinunn, er þetta annars ekki ein- göngu drengjaskátamót? „Þátttakendurnir eru eingöngu drengjaskátar, enda hafa kvenskáta- og drengjaskátahreyfingarnar verið aðskildar frá upphafi, en viða hefur verið tekið upp samstarf ! meira eða minna mæli, m.a. á öllum Norður- löndunum. Þar er verkefnum ekki lengur skipt eftir kynjum og þegar um stórbrotið verkefni eins og þetta mót er að ræða. eru allir starfskraft- ar nýttir hvers kyns, sem þeir eru." Steinunn hefur aðallega haft á sinni könnu spor, sem lýsir röskun á jafnvægi náttúrunnar. „Við köllum þetta spor „Við byggjum borg". Við reynum að sýna hvernig borgir verða til, með þv! að láta þátttakendur byggja líkön af tveimur borgum. Önnur er byggð eftir fyrirframgerðu skipulagi, þar sem tiltekið er hverskonar byggingar eiga að vera á hverju svæði, en hin fær að byggjast eftir frjálsu formi, þannig að þátttakendur bæta við hana eftir eigin geðþótta. Við von- umst til þess að þetta vekji krakkana til umhugsunar um lifsskilyrði ibúa t borgum og áhrif borganna á náttúru- legt umhverfi sitt." Guðbjartur Hannesson sér um sporið „í slóð Eskimóa", sem fjallar um samspil manns og náttúru. Þar er leitast við að sýna hvernig Eskimóar gátu lifað af gæðum lands og sjávar einum saman i fullkominni sátt við náttúruna. „Við leggjum áherslu á," sagði Guðbjartur, „að sýna hvernig veiðidýr þeirra, selurinn, var nýttur til hins ýtrasta. Kynningu á lifnaðar- háttum þeirra er skipt í fjóra þætti: vopn og veiðarfæri, farartæki, hýbýli og veiðiaðferðir. Þessu fá þátt- takendur að kynnast af eigin raun með þvi að smiða veiðarfæri og sleða og búa til likan af snjóhúsi úr leirkögglum. Þeir reyna svo veiðar- færin að lokum með þvi að skjóta skutli og af boga að marki, sem útbúið er sem selur." Guðbjartur segir okkur að lokum frá sporinu: „Frá korni til brauðs", þar sem kynnt eru öll skrefin, sán- ing, uppskera, þresking, mölun og bakstur með upprunalegum áhöldum, sem skátarnir spreyta sig við að beita. Annað verkefni, sem er i höndum Íslendinga er stjórn einnar af tjald búðum mótsins. Allar bera tjald- búðirnar einhver landfræðileg heiti frá Norðurlöndum og eru búðirnar, sem Íslendingarnir sjá um nefndar HEKLA. Þarna gista 1600 skátar frá 27 þjóðlöndum, þannig að tungu- málin eru mörg, sem islensku starfs- mennirnir verða að bregða fyrir sig. Öll matseld i tjaldbúðunum fer fram yfir opnum eldi. Tjaldbúðarstjóri i Heklu er Arnlaupur Guðmundsson. Kristin Bjarnadóttir/t.g

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.