Morgunblaðið - 07.03.1978, Side 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978
Hólmavík:
Ófærd olli
mjólkurleysi
Hólmavík, 6. marz.
HINIR miklu snjóar sem voru
hér í s.l. viku geröu það að
verkum að nokkur skortur
varð á nauðsynjavörum svo
sem mjólk og fleiru. Úr þessu
rættist loksins á föstudags-
kvöld þegar rutt var hingað til
Hólmavíkur og flutningabíll
kom á staðinn, en mjólk og
aðrar nauðsynjavörur fáum
við frá Reykjavík. Nú er fært
að Hólmavík en þar norður af
er algerlega ófært vegna
snjóa. Þá hefur allt fiug legið
niðri vegna veðursins.
Andrés.
Blönduós:
Færð að
færast í eðli-
legt horf
Blönduósi, 6. marz.
GEYSILEGT fannfergi hefur
verið hér að undanförnu,
þannig að sums staðar standa
aðeins þök húsa upp úr sköfl-
unum. I síðastliðinni viku var
algerlega ófært hér um sýsl-
una og jafnframt um sjálft
kauptúnið, en úr þessu er nú
að rætast og vegir að verða
færir á nýjan ieik, þar sem nú
er mikil hláka.
Hafþór.
Miðhúsum:
Marauð jörð
víðast hvar
Miðhúsum, Barðaströnd, 6.
marz.
ÞEIR fáu skaflar sem hér hafa
myndast á vegum munu verða
mokaðir á morgun og verður
þá ágætisfærð hér um allar
sveitir. Hið mikla fannfergi
sem hefur verið víða um land
hefur alveg farið framhjá
okkur og nú er hér víða rauð
jörð.
Sveinn.
Raufarhöfn:
Netaveiðar
ganga vel
Raufarhöfn. f». marz
ÞORSKVEIÐAR netabáta
hafa gengið mjög vel að
undanförnu, hafa bátarnir
jafnan komið með mjög góðan
fisk. Loðnubræðslu er nánast
lokið, vorum að ljúka því
síðasta nú fyrir skömmu og
eru þeir sem hafa verið í
loðnubræðslunni nú að undir-
búa sig á grásleppuveiðar.
Snjór hefur verið hér
óvenjumikill, þannig að sam-
göngur hafa alveg farið úr
sambandi, þannig að til dæmis
hefur vantað hér mjólk um
nokkurn tíma þar til í dag, að
bíll kom í fylgd með ruðnings-
tækjum. Hefur flug legið alveg
niðri í rúma viku.
Segja má að okkar aðal-
vandamál nú sé skortur á
vinnuafli. T.d. landaði Rauði-
núpur 120 tonnum hér í gær
og vantaði hreinlega fólk þar
til að vel ætti að vera. í þessu
sambandi hafa verið hengdir
upp listar þar sem farið er
fram á það við fólk, að það
segi til um hvort það vill binda
sig við vinnsluna ákveðinn
tíma.
Helgi.
Spánskar kvikmyndir
hlutu „Gullbjörninn”
VesturBerlín 5. marz
Reuter.
SPANSKAR kvikmyndir
hrepptu helztu verðlaun 28.
kvikmyndahátíðarinnar í Ber-
lín. sem lauk í dag. Myndirnar,
sem verðlaunin hlutu, fjalla um
innflytjendur í nútíma þjóðfé-
lagi og siðferðislega hnignun.
Dómnefnd ákvað að veita
spánsku kvikmyndunum öllum
„Gullbjörninn", en Spánverjar
sendu á hátíðina sex stuttar
myndir auk myndanna tveggja
sem fyrr er getið. Venjulega er
„Gullbjörninn" aðeins veittur
einni mynd.
Kvikmyndahátíðin stóð í 10
daga, og voru sýndar 26 myndir
frá 23 löndum. Auk spánsku
myndanna fengu myndir frá
BANDARÍKJAMENN af júgó-
slavneskum ættum mótmæltu
harðlega í dag komu Titos
Jógóslavíuforseta til Bandarikj-
anna, en hann er væntanlegur
þangað í kvöld í fjögurra daga
opinbera heimsókn.
Rúmlega 100 vopnaðir lög-
reglumenn mynduðu vegg á milli
mótmælendanna og Hvíta húss-
ins og lögreglumen á hestum voru
til taks skammt frá. Beint fyrir
framan Hvíta húsið héldu nokkr-
YFIRVÖLD í Rússlandi hafa
sent 14 andófsmenn á geðsjúkra-
hús frá því í september, að því
er Amnesty International
skýrðu frá í dag. Stofnunin
byggir þessar tölur á upplýsing-
um tveggja sovézkra samtaka.
Samkvæmt yfirlýsingu
Amnesty International for-
dæmdu alþjóðleg samtök geð-
lækna Sovétstjórn í september
— Prófkjörið í
Reykjavík
Framhald af bls. 48
Sigurjón Fjeldsted með 3295
atkv. — 41,2%. 10. Ragnar
Júlíusson með 3252 atkv. —
40,7%. 11. Bessí Jóhannsdóttir
með 2651 atkv. — 33,1%. 12.
Hilmar Guðlaugsson með 2632
atkv. — 32,9%.
Nýr formaður
sænska Þjóð-
arflokksins
Stokkhólmi, 4. marz. AP.OLA
Ullsten var í dag kjörin formaður
sænska Þjóðarflokksins í stað
Per Ahlmarks. Ullsten er 46 ára
og var eini frambjóðandinn í
formannsembætti flokksins. Ahl-
mark ákvað 31. janúar að hætta
formennskunni af persónulegum
ástæðum.
Leiðrétting
I kynningu frambjóðenda í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins vegna.
bæjarstjórnarkosninganna á*
Akureyri var ranghemrt nafn
eiginkonu Odds C. Thorarensen
apótekara. Eiginkona Odds heitir
Margrét Thorarensen Ingólfs-
dóttir, en ekki Ingvarsdóttir eins
og sagt var.
Póllandi, Búlgaríu, Kúbu,
Brasilíu, Kanada og Bandaríkj-
unum verðlaun. Hátíðin var sú
fyrsta á þessu ári, en hún er sú
næststærsta sem haldinn er í
Evrópu, aðeins kvikmyndahátíðin
í Cannes er stærri í sniðum.
Spánsku myndirnar sem fyrstu
verðlaun hluti heita Las
Truchas" gerðar af Jose Luis
Garcia Sanchez, og Las Palabras
de Max“ gerð af Emilio Martines
Lazaro. Sú fyrri þeirra fjallar um
árlega árshátíð fiskimannafélags
og hvernig árshátíðin breytist í
svallveizlu. Sú síðari fjallar um
mann, sem skilur við konu sína,
og hvernig hann er fyrirlitinn af
félögum sínum, konu sinni og
dóttur fyrir bragðið.
ir Serbar á borða sem á stóð:
„Carter er vinur okkar, Tito er
morðingi". Hinum megin við
götuna var stór hópur Króata og
Albana, sem hrópaði vígorð og
hélt á spjöldum þar sem fjallað
var um „hina blóðugu harðstjórn
Serba í Króatíu".
Tito mun eiga viðræður við
Carter Bandaríkjaforseta um
samskipti austurs og vesturs og
önnur mál sem nú eru í brenni-
depli.
fyrir að senda andófsmenn á
geðsjúkrahús. Þrátt fyrir það
hafa 14 manns verið sendir á
þessar stofnanir síðan, að sögn
AI. Mannréttindasamtökin
byggja tölur sínar á upplýsingum
sem þau hafa fengið frá hinum
óopinberu Samtökum frjálsra
verkalýðsfélaga og samstarfs-
nefnd sem hópur
mannréttindabaráttumanna kom
á laggirnar í byrjun árs 1977.
Endanleg úrslit prófkjörsins
verða birt í heild í Morgunblað-
inu á morgun. í prófkjöri vegna
borgarstjórnarkosninga 1974
tóku þát 8.470. Þá hlutu fimm
efstu menn bindandi kosningu.
Birgir Isl. Gunnarsson, borgar-
stjóri, hlaut þá 7.776 atkv. eða
91,8%. í öðru sæti var þá Albert
Guðmundsson með 6.580 atkv.
eða 77,7%. í þriðja sæti var þá
Ólafur B. Thors með 6509 atkv. og
76,8%, í fjórða sæti Markús Örn
Antonsson með 4771 atkv. og
56,3% og í fimmta sæti Elín
Pálmadóttir með 4420 atkv. og
52,2%.
Magnús L. Sveinsson var þá
sjötti, Ragnar Júlíusson sjöundi,
Úlfar Þórðarson áttundi, Páll
Gíslason níundi og Davíð Odds-
son tíundi.
— Carter
Framhald af bls. 1.
verða raunin ef Taft-Hartley
löggjöfin virkar ekki eins og
ætlazt er til.
Löggjöfin gerir ráð fyrir því að
sérstakri nefnd verði komið á fót
til að brjóta deilumálin til
mergjar og mun sú nefnd síðan
gera forsetanum grein fyrir
niðurstöðum sínum. Hefur Carter
þegar skipað þessa nefnd, en í
henni eru þrír lögfræðingar og
dómarar, og er gert ráð fyrir að
þeir ljúki störfum mjög bráðlega.
Samningsdrögin, sem náma-
menn höfnuðu í gær, gerðu ráð
fyrir 37% launahækkun á næstu
þremur árum. Carter kveðst vera
mótfallinn ríflegri launahækkun-
um, en hins vegar segir hann
styðja verulegar launahækkanir
fyrsta samningsárið. Margir
námamenn hafa lýst því yfir að
það hafi ekki verið láunaliðir
samkomulagsins, sem hafi gert
það að verkum að þeir hafi
hafnað því, heldur hafi það verið
þau atriði, sem kveði á um
eftirlaun, sjúkrabætur og fram-
kvæmd verkfalla einstakra fé-
laga. _______t ________
— Hua
Framhald af bls. 1.
síðan gengdi Chou En-lai for-
sætisráðherra embættinu um
tveggja ára skeið.
Húa Kuo-feng lýsti því yfir á
þjóðþinginu, að Bandaríkin yrðu
að kalla allt herlið sitt frá
Formósu og slíta sambandi við
stjórnina þar ef stjórnin í
Washington vildi koma á eðlileg-
um samskiptum við stjórnina í
Peking. Um leið lýsti Hua því
yfiiyáð Sovétríkin yrðu að flytja
herlið sitt frá Mogólíu og frá
þeim héruðum Sovétríkjanna
sem lægju að kínversku landa-
mærunum, ef ætlun þeirra væri
að bæta sambúðina við nágrann-
ann i suðri. Það er Tanjug, sem
flytur þessar fregnir af kínverska
þjóðþinginu, og er haft eftir Hua
að milli Kínverja og Bandaríkja-
manna ríki enn grundvallarmis-
skilningur að mörgu leyti, en þó
eigi þessar þjóðir margt sam-
eiginlegt.
— Lömb ...
Framhald af bls. 1.
dálítið skringilega fyrir sjónir
og ærnar hafa orðið nokkuð
hissa á þessu, en eru búnar að
jafna sig á þessu," segir Silby.
— Minni
ágreiningur
Framhald af bls. 1.
ágreiningi, en allt sæti við sama
hvað snerti afstöðu samnings-
aðila til Palestinumálsins.
Ekki er búizt við því að skriður
komizt á samriingatilraunir fyrr
en Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels fer til Washington
í næstu viku, í fyrsta lagi, en
Begin ræðir þar við Carter
forseta. Einn fylgdarmanna
Athertons lýsti því yfir í dag, að
ferð Begins yrði afar mikilvæg
fyrir áframhald sáttatilraun-
anna, en lét þó í ljós efasemdir
um að árangur af þeirri för
mundi skipta sköpum fyrir gang
mála. Egypzkur embættismaður
sagði að í Kaíró gerðu menn sér
vonir um að Carter mundi leggja
að Begin að slaka á kröfum sínum
og skilyrðum, þótt ekki væru
menn bjartsýnir um að það
mundi takast.
Fyrir fundinn með Sadat átti
Atherton tveggja stunda viðræð-
ur við Kamel utanríkisráðherra
Egyptalands, en til Kaíró kom
Atherton frá Amman í Jórdaníu.
Þótt ekkert hafi verið látið uppi
um árangur af Jórdaníu-förinni
opinberlega, er fullvíst talið að
Atherton hafi ekki orðið ágengt
í því að fá Hussein konung til að
fallast á þátttöku í friðarviðræð-
um.
Atherton afhenti egypzkum
ráðamönnum í dag svar Begins
við bréfi Sadats frá því í fyrri
viku, en ekkert hefur verið látið
uppi um efnisatriði þess sem
þeim hefur farið á milli.
— 2-3% jöfnunar-
gjald
Framhald af bls. 48
Davíð sagði ennfremur að í
tillögur FÍI væri lagt til að
þessum fjármunum yrði varið til
iðnþróunaraðgerða, þ.e.a.s. end-
urgreiddur yrði uppsafnaður
söluskattur útfluttra iðnaðarvara
fyrir árið 1977 og greiddur yrði
söluskattur af útfluttum iðnaðar-
vörum ársins 1978. Varið yrðí
Mótmæla komu Titos
til Bandaríkjanna
Washinxton -r». marz. Reuter
14 andófsmenn
á geds júkrahús
London. 6. marz. AP
60—80 milljónum króna til upp-
byggingar Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins, sem hefur orðið æ
afskiptari í fjárveitingum ríkis-
ins. 60—80 milljónum króna yrði
varið til þjálfunar iðnverkafólks
og að lokum yrði 50 milljónum
króna varið til almennra vöru-
þróunar.
„ Að okkar mati er nauðsynlegt
að þetta jöfnunargjald verði í
gildi þar til tekinn hefur verið
upp virðisaukaskattur hér á
landi," sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson formaður FII að
lokum.
í samtali við iðnaðarráðherra,
Gunnar Thoroddsen, sagði hann:
„Ríkisstjórnin og þingflokkar
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins hafa samþykkt
að leggja til við Alþingi, að lagt
verði jöfnunargjald að upphæð
2—3% á innfluttar sarnkeppnis-
vörur íslenzks iðnaðar og er nú
unnið að gerð frumvarps um
þetta efni, sem væntanlega verð-
ur lagt fyrir Alþingi innan
skamms."
— Ogaden
Framhald af bls. 1.
staðið í sjö mánuði.
í Mogadishu er því haldið fram
að í lok síðustu viku hafi yfir 70
sovézkir skriðdrekar á vegum
stjórnarhers Eþíópíu ráðizt á
stöðvar Sómala í grennd við
Jijiga. Samkvæmt þessum
heimildum voru skriðdrekarnir
fluttir til þorpsins Jinasani með
þyrlum, en þorpið er um það bil
30 kílómetra norður af Jijiga, og
góðan spöl innan víglínu Sómala,
eins og hún hefur verið að
undanförnu. Segja Sómalir að
þessum árásum hafi verið fylgt
eftir með yfir 100 loftárásum, og
sé hér um að ræða lið í stórsókn
þeirri, sem Eþíópíuher hafi byrj-
að með tilstyrk Kúbumanna og
Sovéta 19. febrúar s.l.
Óhlutdrægir aðilar eru ekki til
frásagnar um framvindu mála á
vígvellinum, og fréttamenn hafa
ekki verið á þessum slóðum síðan
Eþíópar hófu gagnsókn í síðasta
mánuði. Jijiga var lengi vel
skriðdreka- og radarstöð
Eþíópíuhers, en féll í hendur
Sómölum í septembermánuði.
Borgin er um það bil 80 kílómetra
vestur af landamærum Sómalíu,
rétt við Gara Marda, sem er
mikilvæg tengibraut milli
Ogaden og miðhálendis Eþíópíu.
Sían Jijiga féll í hendur Sómölum
hefur borgin verið ein helzta
birgðastöð þeirra og vígi gegn
árásartilraunum stjórnarhersins
í þeim tilgangi að hrekja innrás-
arliðið á brott.
— Rodesía
Framhald af bls. 1.
sér grein fyrir því, að Joshua
Nkomo, Robert Mugabe og fylgís-
menn þeirra hefðu vopnazt í þvl
skyni að frelsa land sitt, og hefðu
þeir ekki átt kost á hernaðarlegri
aðstoð frá vestrænum ríkjum-
Þessi staðreynd gerði það að
verkum að bráðnauðsynlegt væri
að hafa leiðtogana tvo með í
ráðum þegar um endanlegt sam-
komulag yrði að ræða. Owen
sagði þetta vera ástæðuna fyrir
því að hann væri hvorki reiðubú-
inn til að fordæma samkomulag
Ian Smiths forsætisráðherra
Rhódesíu við þrjá leiðtoga hóf-
samra blökkumann í síðustu viku
um meirihlutastjórn í Rhódesíu
fyrir næstu áramót né lýsa yfir
stuðningi við það.
Muzorewa biskup, einn blökku-
mannaleiðtoganna, sem eru aðil-
ar að samkomulaginu við Smith.
átti þriggja klukkustunda fund
með Owen fyrir þingfundinn 1
dag, og sagði biskupinn uU
samtalinu loknu að viðbrögð
brezku stjórnarinnar við sam-
komulaginu vektu bjartsýnn
Fyrstu viðbrögð Owens við sam-
komulaginu voru yfirlýsing urn
að það væri mikilvægt byrjunar-
skref, en brezka stjórnin hefur
gagnrýnt mörg atriði samkomu-
lagsins.