Morgunblaðið - 13.04.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.04.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978 Sem stendur eru tvær sýning- ar í Norræna húsinu, Textíl- félagið í kjallara og svenskur grafík-maður í bókasafni og á göngum. Það er því líflegt að líta þar við þessa stundina. Það er ekki langt síðan farið var að sýna á göngum og í bókasafninu og ég sé ekki annað en að það gangi bara bærilega. Þetta eykur auðvitað starfsemi hússins, og er það sannarlega vel. Við skulum fyrst aðeins staldra við og líta á sýningu Sextcn Ilaage, sem er á göngum og í bókasafninu Hann er eins og áður segir Svíi og sýnir 24 grafíkmyndir, þurrhál og akvatinta. Þetta eru gríðarlega vel gerðar myndir og tæknilega alveg óaðfinnanlegar, að ég held. Tólf þessara verka eru í myndröð, er listamaðurinn nefnir Europa Sviten og saman- stendur aðallega af húsamynd- um, en götur koma þar einnig við sögu. Það er eins og lista- maðurinn hafi sérlegan áhuga á arkitektúr frá vissu tímabili, en þrátt fyrir fullkomna tækni finnst mér sumt af þessum verkum vera nokkuð þungt í tóni og það svarta hefur yfirhöndina ef svo mætti komast að orði. Eg held, að sum þeirra verka, sem ekki eru í Europa Sviten, séu það besta á þessari sýningu, en í heild er hún heldur líflaus, en snotur. Textílfélagið Textílfélagið mun vera ungt að árum og hefur nú efnt til Eitt af verkum Sixten Haage. „Vor“ eftir Sigrúnu Sverrisdóttur. Sýningar í Norræna húsinu sinnar fyrstu einkasýningar á textíl, ef ég veit rétt. Stefnt mun vera að því, að slíkar sýningar verði haldnar annað hvert ár hér, og vonandi tekst þessum ágætu kvinnum að gera það. Það eru allt kvinnur, sem sýna á þessari sýningu, og eru þær hvorki meira né minna en 17 talsins. Þarna getur því að líta ýmislegt, sem er forvitnilegt, og ég veit ekki, hvört menn hafa gert sér grein fyrir, að jafn mikið væri á ferð hjá okkur og þessi sýning gefur til kynna. Þarna eru ofin teppi, þrykkt textíl, hannaðar flíkur og fínir púðar, svo að nokkuð sé nefnt, fyrir utan það, að hér ægir saman ýmsum efnum, er þessir starfskraftar nota til tjáningar sinnar, og má til gamans nefna Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON þang, lopa, hrosshár, bómull og ull. Ég verð að játa, að ég er ekki það vel að mér í fræðunum, að ég geti talað um þessa sýningu af nokkurri verulegri þekkingu. Ég kann til dæmis ekkert til handverksins og þekki ekki mikið til efnisins heldur. Jæja, hvað með það, hér kemur smá rolla um hlutina samt: Anna Halla Björgvinsdóttir á þarna mjög lagleg sjöl, Anna bóra Karlsdóttir notar ull og bómull til að gera skemmtilegt ver, sem hún nefnir Myndir. Asgerður Búadóttir er áberandi mest sjóuð í sínu fagi og á þarna merkileg teppi, sem gerð eru úr hrosshári og ull. Hún virðist vera í sérflokki á þessari sýningu, enda hefur hún miklu lengri starfsferil að baki en aðrar stöllur hennar á þessari sýningu. Ásrún Kristjánsdóttir hannar textíl og sýnir lík verk og hún átti á sýningu í Gallerí Sólon sáluga íslandus. Eva Vilhelmsdóttir hannar flíkur og sýnir meðal annars anorak og pils prjónað, sem ég tók eftir. Fríður Ólafsdóttir sýnir tvö verk, sem ég gluggaði sérdeilis í, nr. 25 og 26. Guðrún Gunnarsdóttir hannar fyrir Álafoss og gerir mjög snotra hluti. Guðrún Jónsdóttir sýnir handofin húsgagnaáklæði, sem mér féllu vel í geð. Hanna G. Eínisskrái Mozarti Forleikur að Töfra- flautunni Nordali Bjarkamál Brahmsi Píanókonsert nr. 1 Einieikarii Hans Richter-IIaaser Stjórnandii Karsten Ander- sen Forleikurinn að töfraflaut- unni er ævintýri, sem þarf að flytja með nærfærni, ævintýri sem flytjandinn þarf að trúa á og þora að upplifa með hlust- endum sínum, anna.rs verður það aðeins saga af akrítnum og ótrúlegum fyrirbærum, skrök- saga. Varðandi Mozart á efnis- skrá Sinfóníuhljómsveitarinnar er það eftirtektarvert að hann ér orðinn þar eins konar „start- ari“. Á fernum tónleikum sem eitthvað er leikiö eftir Mozart hefjast þrennir á upphitunar- forleikjum, en einum var „start- að“ með sinfóníu og flautukons- ert. Að undanteknum forleiknum að Töfraflautunni er rétt eins „prógrammnefndin" þekki ekki beztu verk Mozarts, eða treysti hljómsveitinni ekki fyrir erfið- ari verkum hans. Það er of eftirtektarvert að skipuleggj- endum tónleika hérlendis hefur tekist að búa svo um, að hljómleikagestir þekkja nær ekkert af íslenzkum tónverkum, með því m.a. að láta líða svo langt á milli uppfærslu þeirra, að bæði flytjendur og hlustend- ur standa í sömu sporum og að um frumflutning væri að ræða. Ef það er rétt, sem undirritaðan minnir, að Bjarkamál eftir Jón Nordal hafi ekki verið flutt á tónleikum í rúm 20 ár, eða síðan 1956, ætti þeim, sem eitthvað þekkja til náms og lærdóms,að #vera það ljóst, hversu vel tónleikagestir hljóta að þekkja Bjarkamál, þegar svo á móti . stendur ofboðsleg ítroðsla fjöl- miðlanna og svo sú staðreynd, að hlustun góðrar tónlistar Karsten Andersen Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON tekur langan tíma. Við flutning verksins kom það ekki ósjaldan fyrir að leikur hljómsveitarinn- ar var mjög slæmur og vaknar sú spurning hvort hlustandi miði gæðamat sitt á gerð verksins, við blæ og tóntaksmis- tök t.d. strengjasveitarinnar, sem minnti óþægilegá á „gamla daga“. Frá þeim dögum er til sú saga að tónverkið Ömmusögur eftir Sigurð Þórðarson tónskáld var flutt af útvarpshljómsveit á tónleikum í Þýzkalandi og fékk höfundurinn hljóðritun þessa senda og greindi svo frá, að hann hafi ekki þekkt verk sitt. Upphafstónar þess hafi komið sér svo ókunnuglega fyrir eyru, að honum hafi helst dottið í hug að um væri að ræða rugling á segulbandsspólum. Athugun leiddi í ljós að svo var ekki og tónverkið var leikið eins og tónskáldið hafði gengið frá því. Ilans Richter-Haaser Munurinn lá í því hve verkið var mun betur fluLL hjá þessari ónafngreindu þýzku útvarps- hljómsveit en Sinfóníuhijóm- sveit Islands. Þannig getur verið mikill munur á flutningi verks og hafi hlustendur ekki neitt til samanburðar, eru áhrifin, sem verkið skapar, reiknuð höfundi til tekna eða skuldar. Bjarkamál er góð tónsmíð og á skilið betri flutningen nú varð raunin á. Hér er ekki verið að sakast við Karsten Andersen. Hann getur ekki kennt okkur Islendingum að bera virðingu f.vrir eigin menningu og það er kominn tími til að íslendingar hætti þeim vanmeta- og heimsk- ingjahætti að snúa „brjóstmynd Jóns Sigurðssonar til veggjar“. Sá sem það gerir vanvirðir og lítillækkar ekki minnst sjálfan sig. Heima fyrir er Karsten Andersen leiðandi maður í norsku tónlistarlífi og hefur gert meira fyrir ísl. tónmennt en nokkur annar gestastjórn- andi, án þess að láta þess getið eða óska eftir þakklæti. Tónleik- unum lauk með flutningi á fyrsta pianókonsertinum eftir Brahms. Hans Richter-Haaser lék konsertinn af miklum krafti og var mótun hans á verkinu eins og formgreining. Þetta var þungur og sterkur Brahms. Það framhald á bls. 17 Sinfóníutónleikar Nútíma söngvar Listráð Kjarvalsstaða stóð fyrir tónleikum s.l. föstudag og komu þar fram sænska sópran- söngkonan Ilone Maros og Þor- kell Sigurbjörnsson. Flutt voru söngverk eftir Eskil Hemberg, Sven-Eric Báck, Daniel Börtz, sem allir eru sænskir, og tvo ungverja, Miklós Kocsár og Miklós Maros, en sá síðast- nefndi er búsettur í Svíþjóð. Það er fráleitt að bjóða upp á svona tónleika, án þess að textar séu prentaðir í efnisskrá, í stað þess að fylla hana með sífelldu þvaðri um að þessi eða hinn sé „eitt þekktasta“ tónskáld Svía ug gegni hinum og þessum embættum. Það má vera að erfitt sé að þýða t.d. ungverska textann, en þá skandinavísku hefðu ekki þurft að þýða og Harmljóð Garcia Lorca sungin á ungversku eru merkingalaus fyrir Islendinga. Tónleikarnir hófust á þremur söngvum eftir Hemberg, sem ekki voru frekar skýrðir en að þeir væru gjöf tónskáldsins til „konu hans á afmælisdegi hennar 1977.“ Lögin eru ekki óskemmtilegur fjölskylduglaðningur og voru vel sungin. Ánnað verkefnið var Lamenti eftir Kocsár, við kvæði eftir Gacia Lorca. Söngur er tónræn útfærsla á tilfinningum og blæbrigðum bundnum í orð- um og án skilnings á skáldlegri röðun þeirra í ljóð og tilfinnan- legu inntaki er lítil von til að hlustandinn geti notið söngsins, nema sem tónferli og blæbrigði eins og í hljóðfæratónlisl. Eina verkið á þessum tónleikum, sem undirritaður skildi að gagni, var Monologhi 5 eftir Daniel Börtz. Eintal 5 er næst siðasti kaflinn í sex kafla tónverki, þar sem hver kafli er sjálfstæð hljóð- könnun á einleikshljóðfæri. Kammersveit Rvíkur Tónleikar þessir voru að mestu byggðir upp á sænskri nútímatónlist og voru sópran- söngkonan Uona Maros og Mikl- os Maros, sem stjórnaði tónleik- unum, gestir Kammersveitar- innar. Þar sem undirritaður hefur í fyrri skrifum látið þess getið að, nauðsynlegt sé að textar ljóð- anna fylgi í efnisskrá, er því við að bæta, að ef tónlistin á eitthvert erindi við textann hlýtur túlkun og skynjun verks- ins að vera samtengd merkingu hans. Að bjóða tónleikagestum upp á textalausa söngtónleika eru vörusvik. Tónleikarnir hóf- ust á tveimur söngvum eftir Ingvar Lindholm og var fram- haldiö með söngverki eftir Miklos Maros. Þriðja verkið var Strengjakvartett í einum þætti eftir John Speight, en hann hefur starfað hér á landi, sem kennari viö Söngskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar, og hafa nokkur tónverk eftir hann verið flutt á tónleikum. Kvartettinn er ljós í gerð, þar sem skiptist á skýrt aðgreindar leikfléttur og eins og hægt er að dæma eftir fyrstu hlustun, væri ekki ólík- legt að verkiðr þyldi meiri andstæður í flutningi, sem að öðru leyti var þokkalega fram- settur. Eftir Sven-David Sand- stöm var flutt tónverkið Just a bit. Verkið er samið fyrir sópran (án texta), fiðlu, fagott og hörpu. Þar er leikið með hálf- tónsbil og var einkurn skemmti- legt að heyra nákvæmni söng- konunnar í tóntaki hálftónanna. Eftir Eskil Hemberg var svo sungin „En gammal saga" við kvæði eftir Paul Lindblom og lauk svo tónleikunum á Decet eftir Sven-Eric Báck. Decet er viðamesta verk tónleikanna og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.