Morgunblaðið - 13.04.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1978
21
Sigþór Sigurðsson:
Að varðveita
sál í lifandi bæ
Að varðveita sál
í lifandi bæ
Innan fárra vikna fara fram
kosningar til sveitarstjórna á
íslandi. Menn greinir talsvert á
um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga. Þróunin hefur
víða verið sú, að þrátt fyrir
valddreifingarboðskap núver-
andi ríkisstjórnar, hefur ríkis-
valdið seilzt um of í málefni
sveitarfélaga. Heilbrigðis-
félags- og skólamál bera þess
gleggst vitni. Fjárfestingar-
stefna ríkisvaldsins hefur og
gert sveitarfélögunum erfitt
fyrir. Óeðlileg samkeppni um
vinnuafl hefur kynnt undir
verðbólgunni, en hún hefur
mjög rýrt allt fé til fram-
kvæmda og er erkióvinur
sveitarfélaga sem og allra
einstakiinga.
Farsæl stjórn
bæjarmála í Hafnarfirði
Almenn ánægja hefur ríkt
með stjórn Hafnarfjarðar síð-
asta kjörtímabil. Hitaveita og
slitlag á götur bæjarins hafa
haft forgang, og er það vel.
íbúum bæjarins hefur fjölgað
jafnt og þétt. Þetta hlýtur að
leiða af sér nokkurn vanda.
Uppbygging þjónustustofnana
ýmiskonar verður æ stærri
þáttur í útgjöldum bæjarsjóðs,
eins og í öðrum nútíma
bæjarsamfélögum.
Uppbygging við
höfnina — olíuhöfn
Hafnarfjörður á eina bestu
höfn landsins, enda á hún sér
langa og merka sögu.
Samkeppni hefur verið vaxandi
miili hafna á landinu. Feikilegar
tekjur geta runnið í bæjarsjóð
af höfninni. Það er ánægjulegt,
að t.d. hið nýja bílaferjuskip,
Bifröst, skuli hafa bækistöð í
Hafnarfirði. Margs konar þjón-
ustu þarf að efla í tengslum við
höfnina og ef til vill þyrfti að
kanna betur hvort ekki megi
koma upp í Hafnarfirði stórri
olíuhöfn, eða álíta menn það
eitthvert náttúrulögmál, að hún
tilheyri Reykjavík?
Tengja þarf nýja
og gamla bæinn
Umhverfis og skipulagsmál
eru nú víða rædd. Það þarf ekki
að horfa lengra en til Reykja-
víkur, þar sem allt logar í
deilum í þessu efni. Þeim hefur
ekki tekist að halda lífi í gamla
miðbænum og eru nú að reyna
að endurlífga það sem dautt er,
en eins og menn vita hefur það
aldrei gefið góða raun.
Hafnfirðingar eiga fagran og
sögulega merkilegan miðbæ. Við
megum ekki gera sömu mistök
og Reykvíkingar, heldur þurfum
við að tengja hann nýrri
hverfunum og gera hann að
vaxandi sameiningartákni okk-
ar Hafnfirðinga.
Auka þarf
atvinnutækifæri
Hafnfirðingar vilja lifa og
starfa í Hafnarfirði. Til þess að
svo megi verða, þarf að laða til
bæjarins ýmiss konar atvinnu-
rekstur einkum á sviði iðnaðar
og þjónustu. Þetta hefur verið
gert í nokkrum mæli, en halda
verður því áfram til að sporna
gegn því að Hafnarfjörður verði
svefnbær frá Reykjavík.
Félagsmiðstöðvar
og frjáls félög
Ungt fólk þarf að eiga aðstöðu
til að stunda heilbrigt tóm-
stundalíf. Sjoppumenning hefur
eins og víða annars staðar
skotið rótum í Hafnarfirði,
þrátt fyrir öflugt starf frjálsra
félaga. Það er ætíð viss hópur
æskufólks sem hvergi festir
rætur. Reykjavík hefur gert
átak til að mæta þörfum þessa
hóps, svo og til að útvega
frjálsum félögum húsnæði til
sinnar starfsemi. Þar á ég við
uppbyggingu svokallaðra félags-
miðstöðva. Tímabært er að
kanna, hvort grundvöllur sé
fyrir slíka þjónustu i Hafnar-
firði. Frjáls félög eiga sífellt í
fjárhagsörðugleikum. Þau þurfa
að eyða miklum dýrmætum
tima í fjáröflun. Það er skylda
bæjarfélags og ríkis að létta
undir fjárhagsbagga þeirra,
þannig að tími þeirra manna er
við þessi mál starfa geti farið í
aukið starf. Með styttri vinnu-
viku fólks, verður þetta æ
brýnna.
Að horfa fram á við
Þegar litið er til framtíðar-
innar, virðast verkefnin óþrjót-
andi. Þannig verður það sjálf-
sagt ætíð í lifandi samfélagi.
Hugmyndir manna og gildismat
er síbreytilegt. Aðalsmerki okk-
ar sjálfstæðismanna er að verð-
veita einstaklingsframtak
bæjarbúa, virkja það og efla,
hvort sem um er að ræba á sviði
aukinnar þjónuStu við almenn-
ing í rekstri almenningsvagna,
frjálsa félagastarfsemi eða
einkareksturs í atvinnulífinu.
Skúli Einarsson, matsveinn:
Hver er rétt-
ur sjómanna?
Ungmennafélag
Biskupstungna
70 ára
Ungmennafélag Biskups-
tungna er um þessar mundir 70
ára, en félagið var stofnað á
sumardaginn fyrsta árið 1908.
Var stofnfundurinn haldinn að
Vatnsleysu og sóttu hann 30
manns.
í starfsskýrslu frá árinu 1909
kemur m.a. fram að félagar eru
um 35 og voru haldnir 10 fundir
það ár. Eru á þeim fundum auk
venjulegra fundarstarfa iðkaðar
ýmsar íþróttir og af öðrum
störfum félagsins má nefna að
girtur var skógarrcitur, haldnir
fyrirlestrar og skcmmtanir og
síðar er hafin kartöflurækt við
jarðhita og bókasafn er stofnað
árið 1911.
Leiklist hefur verið sinnt og
verið settir á svið nokkrir tugir
leikrita segir í frétt fram Ung-
mennafélaginu, bæði stuttir leik-
þættir og stærri verk svo sem
Skugga^Sveinn og Lénharður
fógeti. I vetur var sjónleikurinn
Gísl eftir Brendan Behan settur á
svið og sýndur 9 sinnum og var
þetta fyrsti liðurinn af hátíða-
höldum í tilefni 70 ára afmælisins.
Á sumardaginn fyrsta hinn 20.
apríl n.k. verður hátíðarveizla í
Aratungu sem hefst kl. 14 og
verður um kvöldið vaka með
ýmsum dagskráratriðum og dansi.
Býður Ungmennafélagið öllum
núverandi og fyrrverandi félögum
og öllu Biskupstungnafólki að taka
þátt í þessum hátíðarhöldum.
Síðar í vor er svo ráðgert að halda
íþróttamót í tilefni afmælisins.
Skelfir íslenskra sjómanna væri
réttnefni örfárra ofurhuga innan
íslensku tollgæslunnar sem setja
metnað sinn í að eltast við sjómann
sem kemur heim eftir langa útivist
og hefur orðið á að versla fyrir sinn
lögmæta gjaldeyri. Ekki trúi ég þó
að öfund ráði gerðum þessara
manna sem jaðrar allt að því við
satisma yfir 1—2 kössum af bjór
e$a tveimur fiöskum af víni. Því
fara þessir herrar þá ekki tii sjós?
En að vísu er betra að vera heima
hjá sínum nánustu. Ríkið borgar
líka vel þá yfirvinnutíma við mikla
og góða leit, þó ekkert finnist því
nógir eru aurarnir í þjóðarbúinu í
dag.
Einnig mætti segja mér að dýrt
væri fyrir skipafélögin að láta
skipin bíða úti á ytri höfninni eftir
duttlungum tollvarðanna eftir af-
greiðslu. Því ekki að láta íslenska
réttarvernd kanna hver réttur
borgarans er sem ég efa stórlega að
sé nægur (í sambandi við tollalög-
gjöfina). Nema þessir herrar séu
með æðri embætti í huga en því trúi
ég ekki, því kannski er ekki hægt að
nota þá nema til að gramsa í eigum
annarra hvort sem er, um borð eða
í bílum fólks, sem er að sækja sína
nánustu. (Skemmtilegt eða hitt þó
heldur). Mér dettur í hug þessi
setning: „Þakka góðgerðarnar góði
en komdu, ég ætla að taka þig fyrir
smygl.“ Hvað á sjómaður að gera
við sinn lögmæta gjaldeyri? Leggja
hann í banka erlendis? Það er
bannað. Leggja hann í banka
heima? Þið vitið hvernig það er.
Kaupa til heimilisins og borga toll
er heim er komið? Þá er gjaldeyrir-
inn orðinn nokkur dýr. Fá sér konur
og vín úti? Það er alveg bannað.
Hvað skal þá gera? Hætta til sjós
oggerast tollþjónn með samviskuna
að leiðarljósi. Einnig finnst mér
skylt að það komi fram, að þarna er
margur góður drengurinn innan
þessarar stéttar en þó finnst mér
vera farið að týra á tíkarskarinu ef
verra er að koma heim á Fróni en
austur fyrir tjaldið góða. Ef menn
innan einnar stéttar á okkar litla
landi eru hræddir hver við annan,
þá finnst mér illa farið á okkar
góða, fagra landi. Að endingu vil ég
óska þess, að þeir innan þessarar
stéttar, sem eru og hafa verið
mannlegir, haldi því áfram því'þá
mun þeim vel farnast og ekki trúi
ég öðru en að íslenska sjómanna-
stéttin verði fámenn áður en lýkur
ef þessum árásum á hana linnir
ekki, því ég veit að eyjan okkar
getur ekki án sjómanna verið og
einnig veit ég að í hugum manna er
mikil kergja út af þessum ófögnuði.
Trúi ég ekki öðru en hægt sé að
framfylgja lögum á mannúðlegri
hátt en gert er við sjómenn oft á
tíðum.
Með ósk um breytta tollalöggjöf
sjómönnum í hag, sem þeir eiga
réttilega skilið, og að þeir þurfi ekki
að koma heim til sín eins og
sakamenn, óska ég ykkur alls hins
besta á ókomnum .árum og velfarn-
aðar í starfi og leik.
Skúli Einarsson matsveinn.
Tunguseli 4.
CITROÉNA'
TÆKNILEG FULLKOMNUN
CITROÉN^CX
DRAUMABILL
FJÖLSKYLDUNNAR
ÞEGAR ÁKVEÐIN ERU BÍLAKAUP
ER NAUÐSYNLEGT AÐ VITA HVAÐ FÆST FYRIR PENINGANA
------HVAÐ BÝÐUR CITROÉN* YÐUR?--------
1. Báðir bílarnir hafa verið valdir bílar ársins.
2. Fullkomið straumlínulag gerir bílinn stöðugri
og minnkar bensíneyðslu.
3. Framhjóladrifið, sem CITROÉN byrjaði
fyrstur með skapar öryggi í akstri við allar að-
stæðui.
4. Vökvastýri, (CX) með þeim eiginleikum að
átakið þyngist, því hraðar sem er ekið.
5. Vökvafjöðrun (aðeins á CITROÉN) skaþar
eiginleika og öryggi sem enginn annar bíll get-
ur boðið upþ á. T.d. hvellspringi á miklum
hraða er það hættulaust, enda má keyra bílinn
á þrem hjólum.
6. Vökvahemlar sem vinna þannig að hemlunin
færist jafnt á hjólin eftir hleðslu.
7. Þrjár mismunandi hæðarstillingar, með einu
handtaki, gerir bílinn sérstaklega hentugan við
íslenskar aðstæður, t.d. í snjó og öðrum tor-
færum.
Samkvæmt sænskum skýrslum reyndist
CITROÉN einn af fjórum endingarbestu bilum
þar i landi.
9. CITROÉN er sérstaklega sparneytinn.
10. Miðað við allan tæknibúnað er verðið á
CITROÉN mjög hagkvæmt.
8.
L
SAMA HÆÐ ÓHAÐ HLEÐSLU -
SAMA STAÐA ÓHÁÐ ÓJÖFNUM
G/obus?
LÁGMUU 5. SÍMI81555
é