Morgunblaðið - 13.04.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
Leikkonan myrt
í „leikritinu”
JAMES Thomas, „sjállmenntaður
leikritahöfundur“, hélt í dag
fram sakleysi sínu í máli ungrar
leikkonu sem myrt var með
hamri. Leikkonan. Patricia
Cowan, hélt að verið væri að
reyna hana í hlutverki í „leikriti"
eftir Thomas, sem hann nefnir
„Ilamar"1.
Lögregluyfirvöld telja að eina
ástæðan fyrir morðinu sé að
Thomas hafi langað að vita
hvernig tilfinning væri að myrða
mann.
Thomas sagðist einnig vera
saklaus af að hafa nær barið
fjögurra ára gamlan son Patriciu
til bana með hamri.
Yfirvöld segja að vinkona
Patriciu, Gwendolyn Chenauit,
hafi verið vitni að morðinu. Hún
er nú í gæzluvarðhaldi ásamt
annarri konu, Lyneil Garlington,
sem á að hafa reynt að fela
morðvopnið. Garlington á einnig
að hafa látið Thomas hafa lista
með nöfnum fjögurra leikkvenna,
sem hugsanlega gætu „leikið" í
„Hamri“. Á listanum var nafn
Patriciu Cowans, og hafði verið
merkt við það.
Vinur Patriciu Cowans, Aljean
Cheatham, samdi fyrir nokkru
leikrit, sem hún lék í. I leikritinu
er atriði svipað morðatriðinu í
„Hamri“, og er talið iíklegt, að
Thomas hafi fengið hugmyndina
að sínu „leikriti" þaðan.
12 millj. dalir
til flóttafólks
(;< nl 12. aprfl. AI>
POtJL Hartling. formaður flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, skoraði í dag á þjóðir heims
að leggja fram 12 milljónir
Veður
víða tím heim
Amsterdam 6 sólskin
Apena 21 bjart
Berlín 7 skýjað _
Briissel 6 bjart
Chicago 14 bjart
Frankturt 7 rigning
Genl 5 skýjað
Helsinki 8 skýjaö
Jóh.b. 18 sólskin
Kaupm.h. 9 skýjað
Lissabon 15 sólskin
London 8 rigning
Los Angeles 21 skýjað
Madrid 11 sólskín
Malaga 13 súld
Miami 26 bjart
Moskva 9 bjart
New York 11 bjart
Ósló 7 snjókoma
París 7 léttskýjað
Róm 22 skýjað
Stokkh. 7 skýjað
Tel Aviv 22 skýjað
Tokýó 12 rigning
Vancouver 12 sólskin
Vín 20 sólskín
Poul Ilartling.
Bandarikjadala (um 3 milljarða
króna) til hjálpar um 300.000
flóttamiinnum frá Ogaden.
Flóttamennirnir flýðu
Ogaden-svæðið í nýafstöðnu stríði
Sómalíumanna og Eþfópíumanna.
Flóttamennirnir eru nú flestir í
Djibouti í Sómalíu og í Eþíópíu.
Peningana á aö nota til aö faeða
flóttafólkiö og reisa því hús. Þá á
einnig að sjá flóttafólkinu fyrir
lyfjum og menntun.
ERLENT
Féllu tólf í
sprengingu?
Damaskus. 12. aprfl. AP.
SÝRLENDINGAR ásökuðu íra-
elsmenn í dag um að hafa komið
fyrir sprengju-gildru inni í Sýr-
landi er varð 12 manns að bana.
Sögðu sýrlenskar heimildir að
sprengjan hefði sprungið 1. apríl,
og stafaði nokkur hætta af
geislavirkum efnum sem í henni
voru.
Sprengjan var þó ekki
kjarnorkusprengja, heldur sögðu
Sýrlendingar að sprengjunni hefði
verið komið fyir í útvarpi. Þegar
hún sprakk losnuðu rafeindir, sem
fregnir hermdu að gætu verið
hættulegar mönnum..
Á sunnudag hrundi tveggja alda gömul bogabrú yfir ána
Loire í bænum Tours í Frakklandi. Enginn slasaðist, en mikið
tjón hlaust af því allar síma- og rafmagnslínur til
lunilTI limmrlí borgarinnar, sem og vatnslagnir lágu um brúna. Brúin var
UX IXXXI XIX IXXIIXI 35 metrar á lengd og var stolt borgarbúa.
Mikið tjón er
100 fðngum sleppt
úr haldi í Rhódesíu
Salishury. Rhf>desíu.
12. apríí. AP.
RHODESÍUSTJÓRN sagði í dag
að á morgun, fimmtudag, yrði um
100 pólitískum föngum sleppt úr
haldi í landinu. Hafa stjórnvöld
boðið yfir 50 hlaðamönnum hvað-
anæva að. að vera viðstaddir, en
jafnframt sagt að blaðamönnun-
um sé óheimilt að skrifa nokkuð
um aðbúnað fanganna og fangelsi
Rhódesíu yfirleitt.
Fangarnir 100 eru þeir fyrstu af
461, sem lofað hefur verið að láta
lausa. Hinum verður sleppt á
næstu dögum.
Ekki er enn vitað í hvaða
fangelsi fangarnir 100 eru, en
yfirvöld fangelsismála í Rhódesíu
hafa sagt að blaðamönnunum
verði ekki tilkynnt það fyrr en á
leiðinni þangað.
Ráðamenn Rhódesiu, Ian Smith,
Ebel Muzorewa, Ndabaningi Sit-
hole og Jeremiah Chirau ákváðu
fyrir skömmu að sleppa nokkur
hundruð föngum og hafa 254 þegar
verið látnir lausir.
Dómsmálaráðherra Rhódesíu,
Peter Claypole, bar í dag til baka
fregnir um að dragast mundi úr
hófi að láta fangana lausa. Sagði
Claypole að mikil pappírsvinna
væri fylgjandi náðununum og því
gætu þær dregist aðeins. Meðal
annars verða fangarnir að skrifa
undir skjal, þar sem þeir heita því
að haga sér friðsamlega og brjóta
ekki landslög.
Claypole sagði einnig að föngun-
um yrði séð fyrir flutningi heim til
sín.
Þá sagði hann að ekki hefði
unnizt tími til að kynna ættingjum
allra fanganna að þeir hefðu verið
náðaðir, og því verið ákveðið að
engir ættingjar skyldu taka á móti
þeim.
Aðspurður um það hvort sumir
hinna náðuðu væru fylgismenn
blökkumannaleiðtoganna Nkomo
og Mugabe, sem afneitað hafa
samkomulagi stjórnar Smiths og
blökkumanna um framtíðarskipan
mála í Rhódesíu, sagði Claypole:
„Ekki hefur verið tekið tillit til
þess hvaða stefnu hinir náðuðu
aðhyllast. Fangarnir eru einungis
valdir með tilliti til öryggis í
landinu. Við vitum jafnvel ekki
hvaða stjórnmálaskoðanir sumir
hinna náðuðu hafa.“
15 fallið 14 daga
bardögum í Beirút
Ucirút, 12. april. Reutor.
SYRLlENSKIR herir vopnaðir
skriðdrekum og eldílaugum
rcyndu í dag að stilla til friðar í
IJeirút, eftir fjögurra daga blóð-
uga bardaga í höfuðborginni
milli hægri- og vinstrimanna. Að
minnsta kosti 15 hafa fallið í
bardögunum og 75 særst.
Bardagarnir hófust þegar hægri
menn minntust þess að þrjú ár eru
síðan átök hófust í Ain
Rummaneh-hverfinu í Beirút.
Átökin breiddust fljótt út og urðu
upphafið á borgarastyrjöld í land-
Hægrimenn ásökuðu Palestínu-
skæruliða um að hafá hafið
bardagana fyrir fjórum dögum og
lýktu átökunum við atburðina
1975.
Yfirmenn Palestínuskæruliða
báru ásakanir hægrimanna til
baka, og vitni segjast ekki hafa séð
vinstrimenn taka þátt í átökunum
nú.
Leiðtogar hægrimanna, Bashir
Gemayel og Dany Chamoun, sögðu
í dag að stjórn Líbanons væri með
öllu ófær um að halda uppi friði
í landinu. Gemayel sagði á blaða-
mannafundi að „því miður getur
enginn haldið Palestínuskærulið-
um í skefjum".
Hann bætti við að hægrimenn
hefðu stungið upp á því að líbanski
herinn og hægrimenn, ásamt
friðargæzlusveitum Araba, tækju
að sér friðargæzlu í Líbanon.
"Skothvellir heryðust enn í dag í
hverfum hægri- og vinstrimanna,
en stórkostahríðin sem verið hafði
var fyrir löngu hætt.
Flestir skólar í.hverfum krist-
inna hægri manna voru lokaðir í
morgun, og margir óttast að til
nýrra átaka geti komið á næst-
unni.
Létt tekið á broti
Marks Phillips
Anna Bretaprinscssa og eiginmaður hennar Mark Phillips. Ilann
var tekinn um daginn fyrir of hraðan akstur, í annað sinn á einu
ári.
BímiíIp. Englandi. 12. apríl. AP
GAMALREYNDUR cnskur
dómari, Vera Brey, tilkynnti í
dag, að hún ætlaði að segja af
sér til að mótmæla því hve létt
va>ri tekið á umferðarlagabrot-
um meðlima brezku konungs-
fjölskyldunnar.
„Mér virðist sem það séu
sérstök lög fyrir hina ríku og
önnur fyrir fátæka,“ sagði Brey,
eftir að Mark Phillips, eigin-
maður Önnu prinsessu, var
aðeins gert að greiða 15 sterl-
ingspund (um 7.200 krónur)
fyrir of hraðan akstur.
Þetta var í annað sinn á einu
ári, sem Mark er sektaður fyrir
of hraðan akstur.
„Svo virðist sem dómararnir í
London hafi gert allt sem í
þeirra valdi stóð til að móðga
ekki konungsfjölskylduna,"
sagði Brey, en hún hefur verið
dómari í 21 ár og auk þess
borgarstjóri Bootles. Bootle er
smáborg í Norður-Englandi.
„Hefði ég átt að dæma í máli
hans, hefði ég sektað Mark um
100 til 150 pund,“ sagði Brey.
Mark Phillips viðurkenndi að
hafa ekið um götur Lundúna á
45 til 90 kólómetra hraða, en
leyfilegt er að aka þar á 45
kílómetra hraða á klukkustund.