Morgunblaðið - 21.10.1978, Side 46

Morgunblaðið - 21.10.1978, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Evrópukeppnin í knattspyrnu Mala Eyjamenn Slask á mölinni? VESTMANNAEYINGAR mæta pólska liðinu Slask frá Wroclaw á Melavellinum í dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. Leikurinn er liður í UEFA bikarkeppn- inni og er þetta í þriðja skiptið sem íslenzkt lið kemst í 2. umferð keppninnar. ÍBV hélt blaðamannafund á Hótel Esju í fyrradag og pólska liðið kynnt. Þjálfari liðsins Aleksander Papievski sat fyrir svörum blaðamanna, ásamt forráðamönnum ÍBV. Melavöllurinn Rétt einu sinni er Melavöllurinn vettvangur stórleiks í fótbolta. Auðvitað væri æskilegra að leikur sem þessi færi fram á grasi, en því er ekki að heilsa. Fram kom hjá Eyjamönnum, að allt of seint v’æri til þess að leika á Laugardals- vellinum. Þá var spurt um gras- völlinn í Kópavogi, sem er valla fullkomnastur hérlendis. Eyja- menn fengu synjun frá Kópavogi á þeirri forsendu, að beiðni þeirra hefði komið of seint. Ef Eyjamenn hefðu ákveðið sig fyrr, hefði verið sjálfsagt að lána völlinn. Það reyndist Eyjamönnum ókleift, sökum þess að framan af stóð til að leika báða leikina í Póllandi. Þá vildu Eyjamenn lýsa yfir gremju sinni yfir því banni sem UEFA setti á völlinn í Eyjum. Var bannið lagt á vegna þess að öryggi leikmanna þótti ekki nægilega tryggt, girðingar umhverfis völl- inn væru lélegar. Síðan viscu allir framhaldið, öryggi Eyjamanna var ekki betur tryggt en svo á írlandi, að fjöldi áhorfenda réðist inn á völlinn og Friðfinni Finnbogasyni var greitt rothögg. Að þessari upptalningu lokinni, er ljóst, að annað hvort varð Melavöllurinn fyrir valinu, eða ekkert. Hitt er AC Milan áfram? Einnleikur fór fram í 2. umferð UEFA-bikarkeppninnar í fyrra- kvöld. Þá léku í Búlgaríu, Levski Spartak og ítalska liðið AC Milan. Jafntefli varð, 1—1, eftir að bæði liðin höfðu skorað á fyrstu mínútu leiksins. ítalirnir náðu forystunni með marki Ki- odi, en búlgarska liðið jafnaði samstundis með marki Milkov. Fleiri mörk voru ekki skoruð þó að 89 mínútur væru til leiksloka. Möguleikar ítalska liðsins á áframhaldandi þátttöku ættu nú að vera miklir. svo apnað mál, að mölin mun vafalaust koma Eyjamönnum til góða, því að fram kom að leikmenn Slask hafa aldrei á malarvöll stigið. Ef menn rekur minni til, léku Skagamenn fyrir nokkrum árum gegn sovézka stórliðinu Dynamó Kiev á Melavellinum og gáfu rússneska birninum ekkert eftir. Kænugarðsliðið var feiki- sterkt um þær mundir, miklu sterkara heldur en Slask er nú eða hefur nokkru sinni verið. Slask sló í síðustu umferð liðið Larnaca frá Kýpur út úr keppninni. Knatt- spyrna er ekki hátt skrifuð á Kýpur og þar er leikið á hörðum leirvöllum. Svo fór, að Slask náði aðeins jafntefli á útivelli, en komst áfram á góðum heimasigri, það er ekki sannfærandi og gefur vonir um góða framgöngu Eyjamanna. Slask Slask frá Wroclaw er lið pólska hersins og á þessu keppnistímabili hefur því ekki vegnað sem skildi. Er liðið aðeins um miðja deild í Póllandi. Þetta er í fimmta skipti sem liðið tekur þátt í Evrópu- keppni og tvívegis hefur félagið komist í 8 liða úrslit. Það var í UEFA bikarnum árið 1975—76, þegar þeir féllu loks úr fyrir Liverpool og síðan i keppni bikar- hafa árið eftir, þegar Napólí sló liðið út. Með Slask leikur einn núverandi landsliðsmaður, en það er miðvörðurinn sterki Wladislaw Zmuda. Zmuda var sagður einn sterkasti varnarmaðurinn í Argentínu í sumar leið, fá Sigurlás og félagar þar erfiðan mótherja. Sagði Papiwski, að þrátt fyrir að hann vissi ekkert um íslenzka knattspyrnu og að lið hans hefur aldrei fyrr leikið á möl, væri hann eftir atvikum bjartsýnn á sigur sinna manna og þeir myndu leika opinn sóknarleik og reyna að skora sem mest af mörkum. Eyjamenn tilbúnir Það kom fram, að nokkrir Eyjamanna hafa átt við flensu að • Örn óskarsson kom ÍBV áfram í aðra umferð með því að skora á útivelli á móti Glentoran. Von- andi tekst honum að skora f dag á Melavellinum. stríða undanfarna daga, en líklegt er þó að allir verði frískir þegar í slaginn verður komið í dag. Þjálfari Eyjamanna í sumar, George Skinner hefur ekki sést siðan að liðið lék síðari leikinn við Glentoran og vita Eyjamenn nákvæmlega ekkert um afdrif hans, þrátt fyrir að hann hafi ætlað að sjá um liðið allt þar til að keppnistímabilinu væri lokið. í forföllum Skinner hefur Sigmar Pálmason séð um þjálfun liðsins og hefur verið sgft stíft að undanförnu. Verður tap? Það kom fram á fundinum, að ÍBV varð fyrir miklu fjárhagstapi í leikjunum gegn Glentoran, mjög fáir áhorfendur mættu í Kópa- voginn og kostnaður var allur gífurlegur. Vestmannaeyingar gera sér hins vegar þær vonir, að þetta standi allt til bóta, enda allt annað og sterkara lið sem boðið er upp á. Telja Eyjamenn, að það verði a.m.k. 2500—3000 manns að sýna sig ef endar eiga að ná • Sigurlás Þorleifsson hinn marksækni og leikni framherji ÍBV. saman. Það er óhætt að taka undir þá von Eyjamanna að sem flestir sjái sér fært að sjá leikinn, því að það er ekki á hverjum degi sem íslenzkt lið leikur í 2. umferð Evrópukeppninnar. Þó að dálítið af glansinum fari af við það að leikið er á möl, ber að líta á það að þá eru sigurlíkur landans aðeins meiri og það er heldur ekki á hverjum degi að íslenzk lið vinna leiki í Evrópukeppnunum. - gg. Fékk mann til að sjá um afliend- inguna sagði formaður HKRR ÞAÐ vakti verðskuldaða athygli eftir leik Vals og Víkings í Reykjavikurmótinu í handbolta, að ekki virtist vera nokkur mættur til þess að afhenda sigurvegurunum verðlaunin, en með tveggja marka sigri sínum tryggðu Valsmenn sér Reykjavíkurbikarinn. Mbl. hafði samband við Úlfar Steindórsson, formann HKRR og spurði hann hvað ylli slíkum vinnubrögðum. — Það sem gerðist er auðvitað óafsakanlegt og á mína ábyrgð sem formanns HKRR, en sannleikurinn er sá að ég hafði fengið mann til þess að sjá um verðlaunaaf- hendinguna. Hann hafði síðan fengið annan mann til liðs við sig. Annar gat ekki mætt, en hinn var þess albúinn að færa sigurvegurun- um verðlaun sín. Við hjá HKRR höfðum rætt það mjög ýtarlega á fundi kvöldið áður, að markahlut- fall skyldi ráða. Þarna voru fulltrúar frá báðum liðum, m.a. Rósmundur Jónsson frá Víkingi. Það var sem sagt báðum aðilum fullljóst að Val nægði tveggja marka sigur. Valsmenn héldu meira að segja að þeir þyrftu að vinna með 4 mörkum. Síðan gerist það , að Valsmenn unnu með tilskildum tveimur mörkum og voru þar með orðnir Reykjavíkurmeistarar. Þá blandar sér í málið Sigurður Jónsson, formaður HSÍ, og tilkynnir að svona nokkuð sé ekki samkvæmt reglum HSÍ, þar gildi markamis- munur en ekki markahlutfall og þar sem hann var jafn hjá báðum liðunum bæri að leika annan leik. Maðurinn sem þarna var staddur til að afhenda verðlaunin er Valsari og er hann heyrði orð formannsins varð hann ragur við að afhenda Val bikarinn ef vera kynni að hann væri að gera einhverja vitleysu. Var þá hringt í mig og staðfesti ég þá að Valur væri Reykjavíkurmeistari. Víkingum var fullljóst að þeir höfðu tapað þessu, en þarna sáu þeir sér leik á borði og þeim tókst að hleypa afhendingunni upp. Valsmenn hafa því ekki verið formlega krýndir enn þá, en það verður gert á næstunni, það ætla ég sjálfur að sjá um og þá verða vonandi engir öskrandi og æpandi í kring — sagði Úlfar Steindórsson. — gg. KR gegn Njarð- víkum helgina ÞAÐ ER stórleikur í körfunni um þessa helgi, en á morgun leiða saman hesta sína KR-ingar og Njarðvíkingar. Fleiri ieikir eru þó einnig á dagskrá og fara þeir fram í dag. Stúdentar fara norður til Akur- eyrar og leika þar í dag klukkan 14.00 við Þór. Stúdentar eru e.t.v. að ná sér á strik eftir góðan sigur gegn Valsmönnum á dögunum, en Þórs- arar eru einnig til alls líklegir. í dag klukkan 14.00 leika síðan Valur og ÍR í íþróttahúsi Hagaskól- ans. Verður þar vafalaust um mikla baráttu að ræða og tvísýnt um úrslit. Á morgun klukkan 15.00 verður síðan leikur helgarinnar í Haga- skólanum, en þá eigast v%ð KR og UMFN eins og fyrr sagði. I síðustu 6 leikjum liðanna í opinberu móti hafa KR-ingar unnið 3 og Njarðvík- ingar 3. Sigrarnir hafa þó ætíð verið með litlum mun og verður svo einnig nú á hvorn veginn sem það verður. KR-ingar sigruðu stúdenta örugglega um síðustu helgi, en UMFN-menn sigruðu ÍR-inga með aðeins 3 stigum á sama tíma. • Þessi mynd er úr síóasta einvígi körfuknattleiksrisanna KR og Njarðvíkur. Það er Bjarni Jóhannesson, sem sýnir slík tilÞrif aó jafnvel Helgi Tómasson pætti góóur af. KR-ingar sigruðu í Þessum leik og tryggðu sór Þar með islandsmeistaratitilinn. Vafalaust láta Njarðvíkingar Þessa ekki óhefnt en á morgun er eins góður tími til Þessa og hver annar. Fyrstu leikir íslandsmóts- ins í handknattleik handknattleik hefst af fullum krafti ÍSLANDSMÓTIÐ um helgina. Hefst þá keppni í 1. deild karla og kvenna, 2. og 3. deild karla. Leikir helgarinnar eru þessir: LAUGARDAGUR. Varmá í Mosfellssveit HK — Víkingur 1. deild karla kl. 14.00. Hafnarfjörður 1. deild kvenna FH — UBK kl. 14.00. 1. deild karla FH — ÍR kl. 15.00. Laugardalshöll 1. deild kvenna Fram — Haukar kl. 16.00. 1. deild karla Fram — Haukar kl. 17.00. Akureyri 2. deild karla KA — Leiknir kl. 16.00. Akranes 3. deild karla ÍA — ÍBK kl. 15.00. SUNNUDAGUR. Akure.vri 2. deild karla Þór — Iæiknir kl. 14.00. Njarðvík 3. deild karla Njarðvík — Grótta kl. 14.00. 2. deild kvenna Grindavík — Njarðvík kl. 15.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.