Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 4

Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 4
4 vandaðaóar vörur TT Málningar- sprautur Margargerðir. Hagstætt verð. Oliufélagið Skeljungur hf Heildsölubirgðir: Smávörudeifd Sími: 817221 o Shell handtalstöövar fyrir- liggjandi. Verð: 29.900.-. Benco Bolholti 4 S: 21945 4- SKIPAÚTGCRB RIKISINS m/s Baldur fer frá Reykjavík þriöjudaginn 16. þ.m. til Breiðafjaröarhafna. Vörumóttaka alla virka daga til 15. þ.m. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979 ÚTVARPSLEIKRITIÐ í KVÖLD: Fröken Júlía Strindbergs „ Fimmtudagsleikrit Útvarpsins að þessu sinni er Fröken Júlía, eftir August Strindberg. Flutningur leikritsins hefst klukkan 21.25. Þýð- inguna gerði Geir Kristjánsson, en Benedikt Árnason er leikstjóri. Með hlutverk- in fara þau Kristbjörg Kjeld, Þorsteinn Gunn- arsson og Guðrún Þ. Stephensen. Leikurinn gerist á Jónsmessunótt í húsi sænsks greifa. Dóttir hans fröken Júlía, hefur erft rótgróið hatur til karlmanna frá móður sinni, og það veldur árekstrum þegar hún þarf að taka afstöðu til Jeans. Þessi þjónn greifans lítur á það sem sitt' æðsta markmið að hefja sig yfir stétt sína, og Júlía verður honum tákn alls þess sem hann þráir. August Strindberg fæddist í Stokkhólmi árið 1949. Hann stundaði nám í læknisfræði um tíma, en fékkst síðan við kennslu og blaðamennsku og starfaði við Konunglega bókasafnið í Stokkhólmi 1874—82. Fyrsta leikrit hans „I Róm“ var frum- sýnt 1870, en samtals skrifaði hann um 60 leik- rit. Leikritun Strindbergs hefur oft verið skipt í þrjú höfuðtímabil, og heyrir „Fröken Júlía" til öðru tímabilinu (frum- sýnd 1888). Þá tekur hann einkum til meðferðar andstæðurnar í sálarlífi mannsins, enda eru þau bæði næsta flóknir persónuleikar, Júlía og Jean. Og einkalíf Strind- bergs sjálfs var reyndar mjög stormasamt. Hann var þrígiftur og skildi við allar konur sínar. Allmörg leikrita Strindbergs hafa verið sýnd hér á sviði og leikin í útvarpi. Af þeim má nefna „Föðurinn“, „dauðadansinn", „Páska“ og „Kröfuhafa“. Strindberg skrifaði fleira en leikrit. Þekkt- asta skáldsaga hans er „Rauða herbergið“ (1879), sem nú nýlega er komin út í íslenzkri þýðingu. Hann skrifaði einnig sjálfsævisögu og orti ljóð. Strindberg lézt í Stokk- hólmi árið 1912. Við upptöku á leikritinu Fröken Júlía: Talið írá vinstri: Þorsteinn Gunnarsson Vmotkin>.ir M inlrl iiu Ronnrlitt Árníiwnn Ipikstinri LjÓHm:Krlstján. Kristbjörg Kjeld og Benedikt Arnason leikstjóri Útvarp Reykjavík FIM41TUDKGUR 11. október MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Litla músin Píla Pína“ eftir Kristján frá Djúpalæk. Heiðdís Norðfjörð les (9). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Tónleikar. 11.00 Verzlun og viðskipti. Um- sjón: Ingvi Hrafn Jónsson. Rætt við kaupmennina Gísla Blöndal á Seyðisfirði og Benedikt Bjarnason í Bol- ungarvík um vanda verzlun- ar í strjálbýli. 11.15 Morguntónleikar Nicanor Zabaleta leikur á hörpu „Næturljóð“ eftir Carlos Salzado og tvö diverti- mento eftir André Caples/ Juilliardkvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 2 eftir Béla Bartók. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 14.30 Miðdegissagan: „Fiski- menn“ eftir Martin Joensen Hjálmar Árnason les þýð- ingu sína (4). 15.00 Miðdegistónleikar Leon Spierer, Ulrich Fritze og Jörg Baumann leika Tríó fyrir fiðlu, víólu og selló eftir Hans Holewa/ Sænska útvarpshljómsveitin leikur Sinfóníu nr. 10 eftir Allan Petterson; Antal Dorati stj./ Sama hljómsveit leikur „Symphony of the Modern Worlds“ eftir Karl Rydman; Herbert Blomstedt stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. FÖSTUDKGUR 12. októbcr 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Prúðu ieikararnir Gcstur leikbrúðanna í þess- um þa-tti er Danny Kaye, gamanleikarinn góðkunni. Þýðandi Þrándur Thorodd- scn. 21.05 Kastljós Þáttur um inniend málefni. Umsjónarmaður Helgi E. Heigason. 16.15 Veðurfregnir 16.20 Tónleikar 17.05 Atriði úr morgunpósti endurtekin 17.20 Lagið mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDID____________________ 19.35 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur þátt- inn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja 22.05 Horgarstrætin s/h (City Strects) Bandarisk biómynd frá ár- inu 1931, byggð á sögu eítir Dashiell Hammett. Aðalhlutvcrk Sylvia Sidney og Gary Cooper. Ungur Tcxasbúi kcmur til Ncw York í atvinnuleit. Hann verður ástfanginn af ungri stúlku, sem er i tengslum við glæpaflokk, og hann gengur til liðs við bófana til að bjarga stúlk- unni. Þýðandi Jón Thor Ilaralds- son. 23.25 Dagskráriok 20.00 „Mig langaði alltaf að komast sem lengst.. “ Anna Ólafsdóttir Björnsson talar við Margréti Árnadótt- ur, sem búsett hefur verið á Nýja-Sjálandi í 23 ár. 20.30 Útvarp frá Háskólabíói: Fyrstu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands á nýju starfsári Jón Múli Árnason kynnir fyrri hluta tónleikanna, þar sem gefur að heyra tónverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Gioacchino Ross- ini. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat frá Frakklandi Einsöngvari: Hermann Prey frá Þýzkalandi a. Forleikur að „Brúðkaupi Fígarós". b. Tvær aríur úr sömu óperu. c. „Lítið næturljóð" (Eine kleine Nachtmusik). d. Forleikur að „Rakaranum frá Sevilla“. e. Kvavatína úr sömu óperu. 21.25 Leikrit: „Fröken Júlía“ eftir August Strindberg Þýðandi: Geir Kristjánsson. Leikstjóri: Benedikt Árna- son. Persónur og leikendur: Fröken Júlía/ Kristbjörg Kjeld; Jean þjónn/ Þors- teinn Gunnarsson; Kristín eldabuska/ Guðrún Þ. Steph- ensen. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Áfangar 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. SKJÁNUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.