Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1980
Danir sýna ekki
„prinsessuna46
Kaupmannahofn. AP.
DANSKA sjónvarpið ákvað í dag
að sýna ekki hina umdeildu
brezku sjónvarpskvikmynd
„Dauða prinsessu“ sem olii milli-
ríkjadeilu milli Breta og Saudi-
Araba.
Dagskrárdeildarstjórinn Hans
Jörgen Jensen sagði að ákvörðun-
in hefði eingöngu verið tekin með
hliðsjón af gæðum kvikmyndar-
innar.
Hann minnti á að danska iðnað-
arráðið hefði sagt að sýning
myndarinnar myndi skaða efna-
hagslega hagsmuni Dana, einkum
í olíumálum, en einnig hefði verið
gerð grein fyrir þeirri afstöðu að
ef myndin yrði ekki sýnd mundi
það brjóta í bága við skoðana-
frelsi.
En hann sagði að þótt hliðsjón
hefði verið höfð af báðum þessum
sjónarmiðum áður en endanleg
ákvörðun var tekin hefði eingöngu
verið dæmt um það hvort myndin
væri nógu góð til sýningar eða
ekki.
Niðurstaðan var sú, að myndin
væri ekki nógu góð þar sem hún
væri of mikið í æsingastíl og
upplýsingagildi hennar of lítið.
Yfirmaður víkingasveitanna í tran
Mælti meö brott-
för frá íran
— eftir að þyrlurnar þrjár biluðu
Washinvfton. — AP.
YFIRMAÐUR víkingasveitanna.
sem gerðu tilraun til þess að ná
bandarísku gíslunum úr sendiráð-
inu í Teheran, sagði á blaða-
mannafundi í Washington, að
hann hefði án nokkurs hiks mælt
með því, að víkingasveitirnar
yrðu á brott úr íran eftir að þrjár
þyrlur sveitanna biiuðu. Charles
Beckwith ofursti sagði, að eftir að
þyrlurnar hefðu bilað hefði verið
Ijóst, að ekki væru nægilega marg-
ar þyrlur til að framfylgja áætlun-
inni. „Það hafði verið gert ráð
fyrir því að ef færri en sex þyrlur
væru til taks til að komast út úr
landinu, ætti að hætta við leiðang-
urinn,“ sagði hann.
Hann sagði, að það hefði verið
heimska að ætla að halda áfram
ferðinni. Eftir að til eyðimerkur-
innar kom, var áætlun víkinga-
sveitanna sú, að fara til felustaðar
í fjöllunum skammt fyrir utan
Teheran og síðan á vörubílum inn í
borgina og ná gíslunum. í eyði-
mörkinni rakst þyrla á C-130 flutn-
ingavél og átta manns fórust.
Beekwith sagði að 39 hermenn
hefðu bjargast út úr brennandi
flutningavélinni um einar dyr.
Hann var spurður hvort hann
myndi fara öðru vísi að ef önnur
tilraun yrði gerð og svaraði hann
því neitandi. Beckwith ræddi við
fréttamenn um atburðina í eyði-
mörkinni, en honum var óheimilt
að ræða um undirbúning ferðar-
innar og þá áætlun, sem fylgja átti
eftir að komið var til felustaðarins
skammt frá Teheran.
Þrálátur orðrómur var í Wash-
ington um að Carter forseti hefði
ákveðið að hætta við leiðangurinn
þrátt fyrir mótmæli Beckwith.
„Það er tóm vitleysa,“ sagði Beck-
with. Bandarískar þingnefndir,
bæði í fulltrúadeildinni og öld-
ungadeildinni, hafá farið fram á að
ræða við Beckwith til að fá botn í
það, af hverju hætt var við leiðang-
urinn.
Rússar óttast um
Ólympíuleikana
bað verður ekki fyrr en eftir
að póstburðarmaðurinn hefur
kvatt dyra í Gorkystræti númer
22a í Moskvu, laugardaginn 24.
maí næstkomandi að Sovétmenn
komast að raun um hvort eitt-
hvað verður úr ólympíuleikunum
i sumar.
Samkvæmt frásögnum fulltrúa
Sovétríkjanna á fundi Alþjóða-
ólympíunefndarinnar (IOC) í
Lausanna í Sviss fyrir skömmu
hafa fulltrúar a.m.k. 105 ríkja lýst
S-Afríka
Pink Floyd
bannaðir
HnfAahorK. Suður Afríku.
RÍKISSTJÓRN Suður-Afríku
hefur bannað fjórar hljómplöt-
ur, þar á meðal plötu Pink
Floyds „Another Brick in the
Wall“ en söngva af henni sungu
skólanemendur hástöfum er
þeír voru að mótmæla ójöfnuði í
menntunaraðstöðu hvítra barna
og ungmenna annars vegar og
kynblendinga og svertingja hins
vegar. Engin forsenda var birt
fyrir banni þessu. Auk hljóm-
platnanna var birtur listi yfir
óæskilegar útgáfur og plögg
ýmiss konar. Hinar plöturnar
þrjár sem voru bannaðar voru
„Broken English" með Marianne
Faithful, „Zappa in New York“
með Frank Zappa og „The Wall“
sem einnig er flutt af Pink
Floyd.
því að viðkomandi ríki muni
tilkynna formlega þátttöku fyrir
24. maí, en þá rennur út frestur til
að tilkynna þátttöku.
Fulltrúar Bandaríkjanna sögðu
hins vegar að um 70 þjóðir ætluðu
að fara að fordæmi Bandaríkja-
manna og taka ekki þátt í leikun-
um, en þar sem aðeins 143 þjóðir
hafa rétt til þátttöku í leikunum,
er ljóst að það verða hvorki
Bandaríkjamenn né Sovétmenn
sem hljóta gullverðlaun fyrir
stærðfræði.
En hvað sem því líður er ljóst að
Sovétmenn hafa þegar þungar
áhyggjur vegna leikanna, og ótt-
ast jafnvel að mótið verði bara ein
Spartakíaðan í viðbót. Það tekur
þá sérstaklega sárt að Bandaríkja-
menn og Vestur-Þjóðverjar verða
fjarverandi. Við það verða Aust-
ur-Þjóðverjar handhafar flestra
verðlauna og þar af leiðandi hinir
eiginlegu sigurvegarar leikanna.
Sovétmenn viðurkenna loks nú
að leikarnir eru í hættu. Þeim
hefur verið það ljóst að Willi
Daume forseti ólympíunefndar
V-Þýzkalands hefur áhuga á að
verða arftaki Killanins lávarðar
sem forseti IOC, og hafa því gert
hosur sínar grænar fyrir honum.
Þeir hafa lofað honum stuðningi
Austantjaldslandanna í þeirri von
að Vestur-Þjóðverjar tækju þátt í
leikunum, því verði þeir fjarver-
andi hefur Daume enga möguleika
á að hljóta embættið. Nú hefur
stjórn V-Þýzkalands lagt að
vestur-þýzku ólympíunefndinni að
senda ekki íþróttamersn til
Moskvu, en nefndin hefur enn ekki
tekið formlega afstöðu.
Símamynd AP.
Hua Kuo-Feng kom til Belgrad á þriðjudag og lagði þá blómsveig að kistu Títós. Hann var fyrsti
þjóðarleiðtoginn sem kom til Belgrad til að vera viðstaddur útför hins látna þjóðarleiðtoga Júgóslavíu.
Símamynd AP.
Heiðursvörður úr Þjóðvarðliði Júgóslavíu við kistu Titos forseta. Myndin er tekin í þinghúsinu í Ljúblíana
áður en lík Titos var síðan flutt til Belgrad.
KGB-maður fékk
hæli í Bretlandi
BRETAR hafa veitt póli-
tískt hæli sovézkum
KGB-manni sem vann að
nafninu til fyrir TASS-
fréttastofuna í WIIO í
Genf, að því er heimildir
brezku ríkisstjórnarinnar
greindu frá í dag. Þarna
er um að ræða Ilya
Dzhirkvelov sem er 53 ára
gamall og tókst honum að
leita hælis í Bretlandi
ásamt konu sinni og dótt-
ur fyrir um það bil mán-
uði.
Ekki er Ijóst hvenær hann flýði,
en haft er fyrir satt að Dzhirkv-
elov hafi gefið brezku leyniþjón-
ustunni ómetanlegar upplýsingar
um njósnanet Rússa síðan hann
flýði.
Lundúnablaðið Daily Mail segir
að Dzhirkvelov hafi skipulagt
flótta sinn svo vendilega að Sovét-
menn hafi ekki einu sinni haft
hugboð um það þegar hann komst
frá Sviss. Hann hafði verið í Genf
frá 1977, vann hjá WHO og var
eins og fyrr segir að nafninu til
fréttaritari TASS. Sögusagnir eru
um að Sovétríkin hafi marga
KGB-menn í slíkum störfum vítt
um heim.