Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAI 1980
vtee
MORödKf-
KflFP/NO
PW)|. '•
Við skulum fylgjast með hon-
um, þessum!
Mér sýnist sem við munum eiga
mikinn uppgröft fyrir höndum
við að rannsaka þennan pyra-
mida.
Búbót bænda
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Trompin létu ekki að sér hæða
þegar suður varð sagnhafi í tveim
sagnstigum hærri samningi en
hann hafði sjálfur ætlað sér.
Vestur gaf spilið og eftir pass
opnaði norður á þrem gröndum.
Vestur og allir á.
Norður
S. Á973
H. ÁK3
T. ÁK
L. ÁK74
Vestur
S. KG82
H. -
T. D1053
L. DG1098
Austur
S. D104
H. D1095
T. G8
L. 6532
COSPER
PIB
COPINNHCIN
Suður
S. 65
H. G87642
T. 97642
L. -
Ekki leist suðri á, að láta félaga
sinn sitja í þrem gröndum og vildi
sjálfur fremur reyna fjögur
hjörtu. En þá stökk norður alla
leið í sex hjörtu og þrjú pöss
fylgdu.
Vestur spilaði út laufdrottningu
og suður ákvað að geyma ás og
kóng í blindum og trompaði því
heima. En útlitið var gott og lægi
spilið vel voru þrettán slagir alls
ekki útilokaðir. En þegar vestur
fylgdi ekki í fyrsta trompi voru
góð ráð dýr. í tvö hæstu laufin lét
suður þá spaða og tígul, trompaði
lauf, spilaði spaða á ásinn og
trompaði spaða. Síðan tígull og
aftur spaði á tromp. Því næst
spilaði hann tígli á kónginn og
aðeins þrjú spil voru á hendi.
Norður
S. 9
H. Á3
Vestur
S. K
T. D10
Austur
H. D109
Suður
H. G
T. 97
Og þegar spaðaníunni var spilað
gat austur ekki komið í veg fyrir,
að hjartagosinn yrði slagur og
spilið þar með unnið.
Það sprakk þín megin?!
Herra Velvakandi. Þótt viðmæl-
endur þínir segi alloft eitt og
annað miður gáfulegt, að mínu
mati, þá hefur mér virzt að þú
ljáir þeim yfirleitt hendi og leið-
réttir í eigin nafni augljósar firrur
um viðurkenndar staðreyndir. En
því miður er þessi mannbóta-
stefna í hálfgerðu skötulíki hjá
sumum starfsbræðrum þínum á
öðrum blöðum borgarinnar. Nú
nýlega (líklega í sl. marzmánuði)
mun einna frægast að haft var
eftir presti einum vestur í Breiða-
firði, að fyrsta prentverk íslend-
inga hefði verið stofnsett í
Hrappsey og Guðbrandsbiblía
prentuð þar. Þessi nýstárlega
sagnfræði var svo eigi borin til
baka fyrr en eftir dúk og disk af
presti sjálfum, sem væntanlega
hefur aldrei látið hana sér um
munn fara.
Um líkt leyti var í „þvísa“ blaði
þéttbýliskona nokkur að býsnast
yfir þeirri „búbþt“ bænda að geta
tekið mjólk og kjöt heima hjá sér
á eigin búi. Eins og fyrri daginn
Nýja Ránin kom til heimahafnar, Hafnarfjarðar. á sunnudaginn. Eins og fram kom í Mbl. á sunnudaginn er togarinn gamall kunningi
okkar úr tveimur síðustu þorskastriðunum við Breta, en það hét áður C.S. Forester. Talsverðar breytingar þarf að gera á togaranum
áður en hann heldur til veiða. Ljósm. Mbi. Krístján.