Morgunblaðið - 17.05.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1980 5
Nú er það
Kolbeinsey
Sögufélag
Vestmanna-
eyja nýlega
stofnað
STOFNAÐ hefur verið Sögufélag
Vestmannaeyja og á stofnfundin-
um voru samþykkt félagslög þar
sem kemur fram að tilgangur
félagsins er söfnun. varðveizla,
skráning og útgáfa á heimildum
um sögu Vestmannaeyja, að gefa
út ársrit, efla rannsóknir á sögu
Vestmannaeyja og styðja söfn er
lúta að sögu Vestmannaeyja.
Þá var á stofnfundinum kosin
stjórn og skipa hana: Helgi Bern-
ódusson formaður, Ragnar Ósk-
arsson varaform., Hermann Ein-
arsson ritari, Agúst Karlsson
gjaldkeri, Haraldur Guðnason og
Ingólfur Guðjónsson meðstjórn-
endur. Á fyrsta fundinum var
Haraldur Guðnason ráðinn rit-
stjóri ársrits, sem mun fyrst koma
út á næsta ári. I ráði er að birta
greinar um byggðasögu Vest-
mannaeyja, alþýðlegan fróðleik,
myndir, kveðskap o.fl. Meginverk-
efni fyrstu stjórnarinnar verður
að kanna ýmsar heimildir og ná
sambandi við fróðleiksmenn er
kynnu að eiga óbirt efni um
Vestmannaeyjar. Þorsteinn Þ.
Víglundsson var kjörinn heiðurs-
félagi Sögufélags Vestmannaeyja í
virðingar- og þakklætisskyni fyrir
framlag hans til byggðasögu Vest-
mannaeyja.
Hótel Bjarkar-
lundur opnar um
hvítasunnuna
Midhúsum, Reykhólasveit 16. maí.
NÚ UM hvítasunnuna verður
Hótel Bjarkarlundur opnaður, en
hann er rekinn í ár eins og i
fyrra sem Edduhótel. Hótelstjóri
er Vilborg Eggertsdóttir frá Búð-
ardal.
Hótel Bjarkarlundur hefur um
þriggja áratuga skeið verið þjón-
ustustaður fyrir Vestfjarðaum-
ferðina, en með tilkomu Stein-
grímsheiðarleiðarinnar verður
umferðin um Hótel Bjarkarlund
það lítil að vafasamt verður að
teljast að hægt verði að reka þar
hótel áfram. Því að á undanförn-
um árum hefur reksturinn gengið
erfiðlega og á síðasta ári varð
Gestur hf., sem er eigandi hótels
Bjarkarlundar að selja annað hót-
el sitt, Flókalund, en með þeirri
sölu tryggði félagið rekstur Hótels
Bjarkarlundar um óákveðinn
tíma. Núverandi eigandi Flóka-
lundar er Alþýðusamband íslands
og mun hann notaður sem hvíldar-
staður fyrir félaga í ASI.
Sveinn
Helgi Hálfdanarson:
Leiðrétting
FYRIR vangá um eitt atriði í
orðsendingu minni til dr. Þor-
steins Sæmundssonar í Morgun-
blaðinu í gær vil ég að þetta komi
fram: Á Islandi fengu konur og
hjú kosningarrétt til alþingis árið
1915; en til ársins 1903 var kosið í
heyranda hljóði bæði til alþingis
og sveitarstjórna. Með þökk fyrir
birtingu.
16.5.1980.
Þakkarávarp
Vinum mínum og sveitung-
um, sem heiöruöu mig með
kveðjum, heimsóknum og
gjöfum á 75 ára afmæli
mínu þann 11. maí sl.,
þakka ég af heilum hug og
bið þeim allrar blessunar.
Guðmundur P. Valgeirsson,
Bæ.
ÞAU mistök urðu á
baksíðu á fimmtudags-
blaði Mbl., að þar var birt
mynd og sagt, að hún
sýndi Kolbeinsey. Myndin
var hins vegar af Geir-
fugladrangi, tekin í júlí-
mánuði 1979. Mbl. biðst
afsökunar á þessum mis-
tökum.
Ingólfur Kristmunds-
son, Vesturbergi 10, hefur
sent Mbl. mynd af Kol-
beinsey, sem hann tók frá
varðskipinu Ægi sumarið
1978, og Tómas Helgason,
flugmaður, mynd af Kol-
beinsey, sem hann tók frá
flugvél Landhelgisgæzl-
unnar í aprílmánuði sl.
Þessar myndir birtast hér
með og má nú ljóst vera,
hvernig Kolbeinsey lítur
út.
Sala ársmiða
Miðar á alia heimaleiki
KR í deildinni seldir
við innganginn
KR-inqar
Fyllum völlinn — Takið
vini og kunningja
með
EG ER
H3C
adiads
FELAGS
TRYGGínGAKISSM f PRFNTSMIDJAN VÉLAR & TÆKI
SKJOLAKJÖR A. KARLSSON GODDISF