Morgunblaðið - 31.05.1980, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 31.05.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980 7 r Hver er metn- aður Alþýðu- bandalagsins? í sjónvarpinu á dögun- | um kom glöggt fram í ■ máli Lúövíks Jósepsson- ' ar formanns Alþýðu- | bandalagsins, að hann og flokkur hans væru and- I vígir hækkun vaxta um | næstu mánaðamót. Nú hefur það hins vegar | gerst, að ríkisstjórnin • hefur samþykkt tillögu I Seðlabankans um vaxta- | hækkun og þess má um leið geta, aö formaður I bankaráðs Seðlabankans ■ er Ingi R. Helgason full- ' trúi Alþýðubandalagsins | og trúnaðarmaður þess í . mörgum greinum. Þegar frá samningun- I um um Jan Mayen var gengið í andstöðu við vilja Alþýöubandalagsins sagði Hjörleifur Gutt- ormsson iðnaðarráð- herra, að það mál væri ekki á valdsviði ríkis- stjórnarinnar heldur Al- þingis. Þess vegna kæmi það ekkert því við, hvort Alþýöubandalagið sæti í ríkisstjórn eða ekki. Þessi röksemd Hjörleifs verður ekki notuð um vaxtamálið. Alþingi kem- ur þeírri ákvörðun hvergi nærri, hún er alfarið í höndum Seðlabanka og ríkisstjórnar og 1. mars sl. mæltist ríkisstjórnin til þess að þá yrði vaxta- hækkun slegiö á frest. Lúðvík Jósepsson virt- ist í fyrri hluta umrædds sjónvarpsþáttar aö minnsta kosti í andstöðu við stefnu núverandi ríkisstjórnar. Og nú hafa mál gengið fram á þann veg, að ríkisstjórnin hefur brotið algjörlega í bága við þau sjónarmið, sem Lúövík setti fram. Þá er þess og aö minnast, að Alþýðubandalagið hefur lýst sig andvígt lækkun á gengi krónunnar, en eins og tölur sanna, hefur með heimild ríkisstjórnarinnar veriö staðið þannig að gengismálum, að verð- gildi krónunnar minnkar stöðugt. Þess vegna er engin furða, að menn velti því nú fyrir sér, hver sé metnaður Alþýðubanda- lagsins. Niðurstaða slíkra vangaveltna verður helst á þann veg, aö Ólafur Ragnar Grímsson hafi flutt með sér inn í Al- þýðubandalagið henti- stefnuna, sem hann læröi í Framsóknarflokknum á sinni tíð. Og horfir þá ógæfulega fyrir íslensku þjóðinni, ef hún á eftir að sítja uppi með tvo Fram- sóknarflokka eftir allt samanl Þjóöviljinn og ritskoöun Eins og ævinlega er, þegar menn vilja fá að skoða forsendur frétta- flutnings í ríkisfjölmiðl- unum um einhver þau málefni, sem Þjóðviljan- um eru kær, rýkur blaðið út fyrir öll skynsamleg mörk í kvörtunum sínum yfir ritskoðun. Þetta hefur gerst í kjölfar þess að Markús Örn Antonsson, sem sæti á í útvarpsráði, óskaði eftir því að fá allt það, sem birst heföi í útvarpsfréttum um ný- legar aðgerðir herstöðva- andstæðinga og „kjarn- orkuupphlaupið" mikla í síðustu viku. Viöbrögð Þjóðviljans benda óneit- anlega til þess, að það telji hér um viðkvæmt mái fyrir sig að ræöa. Oneitanlega blandast Þjóðviljinn inn í þetta mál, því aö hann tók sig til eftir VÍDSJA hljóö- varpsins og sló upp á forsíöu sinni með stríðs- letri „frétt“, sem blaðið hafði þó tvisvar sinnum birt áður, fyrst fyrir jótin 1975 og síöan í janúar 1976. En í síöustu viku voru henni gerð best skil, þar sem fréttastofa hljóð- varpsins var nú orðin heimildin. Fyrir þá menn, sem mestan áhuga þykj- ast hafa á fjölmiðlun, væri ekki úr vegi, aö þeir tækju sér fyrir hendur og skrifuðu fræðilega rit- gerð um þessar starfsað- gerðir og sögur þeirrar „fréttar", sem hér um ræðir og hvernig hún hefur skolast frá einum miðlinum til annars og úr einu landinu í annað og skýtur alltaf upp kollin- um, þegar best hentar í baráttu sérsinna minni- hlutahóps hér á landi, sem fyrst og síöast geng- ur þeirra erinda aö gæta hernaðarhagsmuna Sov- étríkjanna. Og svo gerist það, þeg- ar menn reyna að grafast fyrir um upptökin, að þá eru þeir sakaöir um „rit- skoöun". Allt þetta mál er þannig vaxið, að Þjóðvilj- inn vill alls ekki hafa það sem sannara reynist. höf um opiö um laugardag sunnudag 10-18 ■ ICI 13-18 Innréttingahúsið býður fjölbreytt úrval eldhús- og baðinnréttinga. Nokkrar gerðir innréttinganna eru uppsettar í 200 fermetra sýningarsal okkar, og bjóðum við þér að líta á þær, auk mynda sem við höfum af þeim innréttingum, sem ekki eru enn uppsettar. Norema innréttingar eru norsk framleiðsla, semerþekktvíðaum Evrópu, og þykja með betri stöðluðum innréttingum sem fáanlegar eru. Hringið eða skrifið eftir litmyndabæklingi okkar. KNOREMA Innilegar þakkir fyrir sýnda vináttu og viröingu á 85 ára afmæli mínu. Árni G. Eyiands. NÝTT SÍMANÚMER FRÁ 1. JÚNÍ 83222 GUÐMUNDUR JÓNASSON H/F. Feröaskrifstofa Sérleyfis-og hópferöir Borgartúni 34 — Reykjavík. Aðaiskrifstofa Brautarholti 2, (áöur Hús- gagnaverslun Reykjavíkur). Símar: 39830,39831 og 22900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.