Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980 Byrjað að bora við Kröflu eftir tveggja BORANIR hófu.st að nýju við Kröflu síðasttiðinn fimmtudag, en þar hefur ekki verið borað fyrir gufuvirkjunina síðan 1978. Starfsmenn Jarðhorana ríkisins byrjuðu að vinna fyrir RARIK og Kröfluvirkjun 19. þessa mánaðar við flutning borsins og uppsetn- ingu. Boraðar verða 2 holur við Kröflu í sumar og er áætlað að 45 daga taki að bora hvora holu. Síðan er ára hlé mögulegt að Jötunn bori eina holu fyrir Jarðvarmaveitur ríkisins í Námafjalli eftir gufu fyrir Kísiliðj- una. Ef fjárveiting fæst ekki til þessa verkefnis verður Jötni Iagt að loknu verkefninu við Kröflu. Borinn Narfi er þessa dagana að Ijúka borun á holu 4 við Ytri- Tjarnir fyrir Hitaveitu Akureyrar, en verður síðan fluttur að Kröflu, þar sem hann á m.a. að hreinsa holu 9 þar. Spariskírteini ríkissjóðs: Fráfarandi formaður borgarstjórnarflokksins, Birgir ísl. Gunnarsson, óskar nýkjörnum formanni, Davíð Oddssyni, til hamingju. Ljósm. Mbi. ói.K. M. Búið að selja fyrir 4 milljarða af 5 „I>AÐ er búið að selja spariskír- tcini ríkissjóðs fyrir tæplega fjóra milljarða króna af 5 millj- arða útboði alls.“ sagði Sighvatur Jónasson sölustjóri hjá Seðla- bankanum í samtali við Mbl. í 12% hækkun á saltfiski HEIMILUÐ hefur verið 12% hækkun á saltfiski til neytenda og kostar kg af ósundurskornum saltfiski nú 1180 kr. í stað 1050 og kg af skornum saltfiski hækkar úr 1180 kr í 1325. gær en sala á þessum spariskír- teinum hófst fyrir liðlega einum mánuði. Frá og með 1. júní hækkar söluverð spariskírtein- anna um 5% þannig að 100 þús. kr. bréf hækkar í 104.980 kr. sem er vísitölu- og vaxtahækkun. Sala þessa útboðs spariskírteina hefur ekki selst eins ört og oft áður, er svipuð útboð hafa átt sér stað. Hugsanleg ástæða þess er, að ríkisstjórnin hefur nú ákveðið í samráði við Seðlabankann að taka upp verðtryggða sparireikninga, sem opnaðir verða eigi síðar en 1. júlí. Er stofnun þeirra í undirbún- ingi, en verðtrygging þeirra verð- ur samkvæmt lánskjaravísitölu. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins: Davíð Oddsson kjörinn formaöur Birgir ísl. Gunnarsson lætur af því starfi DAVÍÐ Oddsson, borgarfulltrúi, var kosinn formaður borgar- stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks- ins á fundi hans í gær, en fráfarandi formaður, Birgir ísl. Gunnarsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. I viðtali við Morgunblaðið, sem Söluerfiðleikarnir á Bandarikjamarkaði: Breyting í framleiðslu óhagstæð frystihúsunum VEGNA þeirrar sölutregðu, sem gætt hefur í sívaxandi mæli á frystum sjávarafurðum í Banda- ríkjunum, er útlit fyrir að draga verði verulega úr framleiðslu á dýrum flakapakkningum. Hins vegar yrði framleiðsla á ódýrari fiskblokkum aukin, en þetta hefði í för með sér mikla erfið- leika hjá frystihúsum hér heima. Þetta kemur m.a. fram í viðtali Morgunblaðsins við Þorstein Gíslason, forstjóra Coldwater Seafood Corporation í Banda- rikjunum, sölufyrirtækis SH, en viðtalið er birt á blaðsíðu 22 í blaðinu í dag. Að sögn Þorsteins er markaðs- ástandið á fiskmörkuðum okkar í Bandaríkjunum það versta, sem verið hefur í mörg ár og salan hefur ekki verið tregari í áratugi. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs varð salan 13% minni en á sama tímabili í fyrra miðað við magn og 7% minni í verðmætum. Sagði Þorsteinn að sölutregðan hefði farið vaxandi og væri nú með alversta móti. Aðspurður hvort lækkanir á afurðum væru yfirvofandi, sagði Þorsteinn, að þess væri ekki að vænta á þorskflökum. Hins vegar kynni að verða nauðsynlegt að lækka verð í öðrum tilfellum. Aðspurður um birgðir sagði Þorsteinn, að í Bandaríkjunum væru birgðir með meira móti og sömuleiðis hjá frystihúsum SH hér á landi. í viðtalinu kemur fram hversu gífurleg aukning hefur orðið á sölu Coldwater í Bandaríkjunum síðan árið 1974. Það ár nam sala fyrirtækisins 78 milljónum doll- ara en 224 milljónum dollara á síðasta ári. — Sjá bls. 22. birt er á bls. 3 í dag, segir Birgir Isl. Gunnarsson, að ekki fari saman seta á Alþingi og forysta fyrir borgarstjórnarflokknum og þess vegna hafi hann tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á sér á ný. Birgir ísleifur bar upp tillögu þess efnis að Davíð Oddsson yrði kjörinn formaður borgarstjórnar- flokksins, Magnús L. Sveinsson varaformaður og Markús Örn Antonsson ritari. Þessi tillaga Birgis var samþykkt einróma. Þá voru þeir Birgir og Albert Guð- mundsson kosnir aðalmenn flokksins í borgarráði, fyrsti vara- maður var kosinn Davíð Oddsson og Magnús L. Sveinsson annar varamaður. Ólafur B. Thors sem verið hefur varaformaður borgarstjórnar- flokksins og varamaður í borgar- ráði gaf ekki kost á sér til endurkjörs í þessi embætti. Einhugur var á fundi borgar- stjórnarflokksins og voru menn sammála um að áðurnefndir menn væru mjög hæfir til að gegna þessum trúnaðarstörfum, enda hlutu þeir kosningu með öllum greiddum atkvæðum. SH-menn ræða við ráðherra FORRÁÐAMENN Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna hafa óskað eftir viðræðum við forsætisráð- herra, Gunnar Thoroddsen, um þá alvarlegu stöðu, sem nú snýr að hraðfrystiiðnaðinum í landinu vegna mikillar sölutregðu á Bandaríkjamarkaði. Fundurinn verður á mánudag klukkan 15. Samþykktir Fiskveiðasjóðs: Nýsmíði á 3 togurum í Stálvík og á Akureyri Á FUNDUM Fiskveiðasjóðs i vikunni var samþykkt að veita lán til nýsmíði innanlands á skuttogurum fyrir Ilúsavík. Skagaströnd og Ilólmavík. Þá var nýlega staðfest samþykkt frá árinu 1978 um lán til nýsmíði á togara i Noregi fyrir eigendur Guðbjargar á Isafirði. Hins vegar var synjað um lán til nýsmíði á skuttogara fyrir Þing- eyringa og um lán til Eskifirð- inga vegna skipta á 5 ára frönskum togara og Hólmatindi, sem er 13 ára gamalt skip. Togarar þeir, sem smíðaðir Eskfirðingum synjað um lán vegna togaraskipta verða hér á landi fyrir aðila á Húsavík, Skagaströnd og Hólmavík, eru allir skuttogarar af minni gerðinni. Tveir þeirra verða smíðaðir hjá Slippstöðinni á Akureyri, en togari Hólmvík- inga hjá Stálvík í Arnarvogi. Þá var á fundi Fiskveiðasjóðs á fimmtudag samþykkt lán til smíði á tveimur bátum hjá Báta- lóni í Hafnarfirði og verða þeir um 20 tonn að stærð. Á fundi Fiskveiðasjóðs fyrir nokkru var synjað um lán til nýsmíði á skuttogara fyrir Fáfni hf. á Þingeyri, en það fyrirtæki gerir út skuttogarann Framnes. Hugðust Þingeyringar láta smíða nýja togarann á Akureyri. Að sögn Svavars Ármannssonar að- stoðarforstjóra Fiskveiðasjóðs var fyrir nokkru staðfest sam- þykkt sjóðsstjórnar frá 1978 um lán til smíði „nýrrar Guðbjargar“ í Noregi. Sömuleiðis hefðu verið samþykktar á sínum tíma ián- veitingar til kaupa á togurum frá Portúgal, en um önnur lán til smíði fiskveiðiskipa erlendis hefði ekki verið að ræða síðan 1978. Um syíijun á beiðni Aðalsteins Jónssonar á Eskifirði um lán vegna togaraskipta sagði Svavar, að lánsfjáráætlun gerði ekki ráð fyrir frekari skipakaupum er- lendis frá en þegar hefði verið tekin ákvörðun um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.