Morgunblaðið - 17.06.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1980
Skólafólki sagt upp
þar sem fastráðnir
fresta sumarleyfum
FORYSTUMENN margra
frystihúsa sátu á fundum
um helgina og ræddu stöð-
una. Margir hugleiða nú
að senda starfsfólk í
sumarleyfi og aðrir hafa
orðið að grípa til upp-
sagna sumarfólks eins og
t.d. Bæjarútgerðirnar í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins munu
frystihúsin í Vestmanna-
eyjum grípa til lokunar
upp úr miðjum júlí og
senda starfsfólk í sumar-
frí í a.m.k. einn mánuð.
Starfsfóik í frystihúsum hefur
margt dregið að fara í sumarleyfi
vegna óvissunnar í þessari at-
vinnugrein. Hefur það víða skapað
erfiðleika, þar sem sumarfólk
hafði verið ráðið. Sömu sögu mun
vera að segja af fiskveiðiflotanum,
en margir skólapiltar höfðu fengið
Hlaut 2. stigs
brunasár
MORGUNBLAÐIÐ spurðist fyrir
um líðan mannsins sem lenti í
bruna í Hafnarfirði aðfaranótt sl.
laugardags. Hann hlaut 2. stigs
brunasár aðallega á herðum og
baki og leið eftir atvikum á
gjörgæzludeild Landspítalans í
gær, en hann er ekki í lífshættu.
Maðurinn heitir Frímann Jó-
hannsson, 30 ára gamall.
loforð um sumarpláss, sem enn
hafa ekki losnað. Eins og áður
hefur verið greint frá var starfs-
fólki sagt upp hjá ísafold í Siglu-
firði fyrir helgi og þá var einnig
um 60 manns sagt upp hjá BÚR. I
gær var síðan 50 unglingum sagt
upp hjá BÚH.
Fulltrúi íslands:
Utan til þátttöku
í Miss Universe
Guðbjörg Sigurðardóttir fulltrúi íslands í keppn-
inni Ungfrú Alheimur hélt utan í gær til þátttöku í
keppninni sem fram fer í Suður-Kóreu 8. júlí.
Þátttakendur eru frá 80—90 þjóðlöndum.
Guðbjörg er tuttugu og tveggja ára gömul Reykja-
víkurmær.
Steingrímur Hermannsson um stöðu frystihúsanna:
Fiskverðshækkun kaU-
ar á gengisbreytingu
ÞAÐ ER alveg Ijóst að staða frystihúsanna er erfið og að mínu mati þarf það
ekki að koma neinum á úvart. sagði Steingrímur Ilermannsson sjávarútvegs-
ráðherra i samtaii við Morgunhlaðið í gær. en hann er nýkominn heim úr ferð
til Bandaríkjanna. Steingrímur sagði, að fiskverðs- og launaha'kkun 1. júní
síðastliðinn kaliaði á gengishreytingu og menn yrðu að gera sér grein fyrir
því. Það læknaði þó ekki alian vandann, sem væri margþættur.
Frystihúsin voru að mati Þjóð- hagslífi. Hins vegar hafa gæði okkar
hagsstofnunar rekin á núlli fyrir
síðustu hækkun og það var því ekki
svigrúm fyrir fiskverðshækkun, sagði
sjávarútvegsráðherra. — Hins vegar
var tekið tillit til þess, að sjómenn
höfðu ekki fengið sambærilegar
hækkanir og landverkafólk í þrjú
skipti, og því var ekki talið fært annað
en að samþykkja sömu hækkun til
þeirra og annarra nú. Ofan á þetta
bætast svo mörg önnur vandamál,
sem hafa verið að hrannast upp, og er
vonandi að mönnum fari að verða þau
ljós.
— I fyrsta lagi eru það markaðs-
málin, en markaðurinn í Bandaríkjun-
um er nú mjög erfiður, einkum vegna
harðnandi samkeppni frá Kanada-
mönnum, sem aukið hafa gæði sinnar
framleiðslu verulega, og vegna al-
menns samdráttar í bandarísku efna-
Engir sameiginlegir
frambjóðendafundir
MORGUNBLAÐIÐ innti óskar
Friðriksson á kosningaskrifstofu
Péturs Thorsteinssonar eftir því í
gær. hvað liði hugmyndinni um
sameiginlega framboðsfundi
frambjóðenda. Óskar sagði að
ljóst va*ri að ekki yrði af sameig-
inlegum fundum, því aðeins eitt
bréf hefði borizt. frá stuðnings-
fólki Vigdísar Finnbogadóttur.
þar sem hugmyndinni var vel
tekið, að þvi tilskildu. að allir
frambjciðendurnir yrðu ma*ttir
til leiks.
framleiðslu fallið að sumu leyti í
miklum aflahrotum og það þurfum við
að iaga, bæði þurfum við að hreinsa
bein betur úr fiskinum og nota minna
af þunnildum í blokkina. Ég vil þó
jafnframt segja það, að í för minni
vestur, varð ég mjög hrifinn af því,
sem okkar menn eru að gera þarna og
tel okkar fyrirtæki í Bandaríkjunum
vera til fyrirmyndar.
— Þá er sú fiskveiðistefna vitlaus,
eins og ég er margbúinn að segja, sem
gerir ráð fyrir að veiða meginhlutann
af þorskinum á 3—4 mánuðum. Svo
þurfum við að geyma fiskinn svo
mánuðum skiptir með miklum vaxta-
og geymslukostnaði. Þetta er ekki rétt
stefna, og ég held að við þurfum að
stokka mjög upp spilin og tengja
miklu betur saman veiðar, vinnslu og
markaðsmál. Þá verðum við að auka
stórlega viðleitni okkar til sölu á
öðrum mörkuðum og kanna nýjar
leiðir í því sambandi, eins og t.d. að
flytja ísaðan fisk með flugi á dýra
markaði.
— Gengisfelling er náttúrulega
ekkert ráð, en ef við höldum áfram að
hækka allt verðlag og kaup ársfjórð-
ungslega, þá held ég að bezt sé, að
menn skilji, að það hlýtur að koma
niður á okkar útflutningsafurðum,
hverjar sem þær eru. Við erum ekki
einir í heiminum. Verðbólgan stoppar
ekki við fiskverðið, hún heldur áfram
hringinn og aðalatriðið er að sjálf-
sögðu að hægja á verðbólgunni.
Staða frystihúsanna er ákaflega
breytileg. Sumar vinnslustöðvar hafa
unnið mikið í skreið og saltfisk og
koma vel út. Það er enn ein spurning í
þessu hvort við eigum ekki að leggja
meiri áherzlu á það, sem selst bezt.
Skreiðin er t.d. núna mjög góð sölu-
vara. Hins vegar eru það húsin, sem
eru eingöngu með frystingu og þurfa
núna að senda skipin á skrap, sem eru
í mjög erfiðri aðstöðu og engin
gengisfelling bjargar þeim á þessari
stundu. Ég vara við því, að það eigi að
hlaupa með gengið eftir árstíðabundn-
um erfiðleikum. Hins vegar verður
vitanlega að skoða stöðuna eins og
hún er í dag, og það er alveg Ijóst að
fiskverðshækkunin 1. júní kallar á
gengisbreytingu, sagði Steingrímur
Hermannsson að lokum.
Grásleppuvertíðin mjög misjöfn eftir stöðum:
Verðið 10% hærra í
dollurum en í fyrra
GRÁSLEPPUVERTÍÐIN hefur verið
i slöku meðallagi í ár að sögn
Guðmundar Lýðssonar hjá Samtök-
um grásleppuhrognaframleiðenda.
Vertið er nú um það bil að ljúka á
Norðausturlandi. en stendur hins
vegar til 18. júlí á Suðvesturlandi.
Fyrir tunnuna af grásleppuhrognum
fást nú 330 dollarar eða sem nemur
um 150 þúsund krónum fyrir tunn-
una. Er um 10% verðhækkun í
dollurum að ræða síðan í fyrra.
Guðmundur Lýðsson sagði það vekja
athygli manna, hversu breytilegur afli
væri frá einum stað til annars innan
sama svæðis. Þannig hefði t.d. verið
góð vertíð frá Raufarhöfn, en hins
vegar hefði vertíðin á Kópaskeri að-
eins gefið um fjórðung þess, sem
fékkst í fyrra. Vertíðin hefði verið
frekar léleg frá Þórshöfn, en ailgóð frá
Bakkafirði. Kenndu menn veðurfari og
ríkjandi vindáttum í vor um, hversu
afli hefði verið misjafn í þessum
landshluta. Suðvestanlands sagði Guð-
Fjölbreytt dagskrá á 17. júní
AÐ VENJU verður fjölbreytt
hátíöar- og skemmtidagskrá
víða um land í dag 17. júní.
1 Reykjavík hefst dagskráin
með hefðbundnu sniði. Hátíðina
setur Þorsteinn Eggertsson
formaður Þjóðhátíðarnefndar, á
Austurvelli, um kl. 10.40. Forseti
Islands dr. Kristján Eldjárn
mun síðan leggja blómsveig að
mir.nisvarða Jóns Sigurðssonar
við Austurvöll. Um morguninn
leika Skólahljómsveit Árbæjar
og Breiðholts og Skólahljómsveit
Lar?arnesskóla við elliheimili
og sjúkrahús víðs vegar um
borgina. Ýmislegt verður til
skemmtunar, fyrir jafnt unga
sem aldna. í Nauthólsvík verður
fólki gefinn kostur á að kynna
sér siglingaíþróttina. Við Kjar-
valsstaði verður „Trúðaleikur"
þar sem koma fram ýmsir
skemmtikraftar. „Hopp og hí“
verður á Melavelli kl. 14 en þar
verða bæði glímu- og hestasýn-
ingar. Á Lækjartorgi verður
fjölskylduskemmtun kl. 16 undir
stjórn Stefáns Baldurssonar, þar
sem margir kunnir skemmti-
kraftar koma fram. Að loknum
skemmtunum á Melavelli og við
Kjarvalsstaði verður skrúð-
gan a frá báðum þessum stöðum
að útiskemmtuninni að Lækjar-
torgi.
Loks er þess að geta að félagar
í Fornbílaklúbbi íslands aka
bifreiðum sínum umhverfis
Tjörnina og að Melavelli um kl.
17, þar sem háð verður aksturs-
keppni.
Kópavogur
Að venju á 17. júní leikur
Hornaflokkur Kópavogs við
Kópavogshælið kl. 10.00, en að
þ'ú loknu hefst víðavangshlaup
Breiðabliks.
Um kl. 13.30 hefst hátíðar-
dagskrá á Rútstúni. Um kvöldið
verður dansleikur í porti Kópa-
vogsskóla, þar sem ýmsar
hljómsveitir úr Hornaflokki
Kópavogs leika til að mynda
rBig Band“ Gunnars i Ormslevs.
Dansleiknum lýkur um kl. 23.00.
Carðabær
TJm morguninn verður
siglingakeppni á Arnarvogi, auk
þess verður íþróttakeppni á
íþróttavellinum. Einnig verður
fénahylling við Garðakirkju
fyrir guðsþjónustu sem hefst kl.
11.00. Um tvöleytið hefst skrúð-
ganga sem endar við Garðaskóla
bar sem útihátíðin verður sett og
flutt verða ávörp, auk þess sem
Léðrasveitin Svanur leikur á
niilli atriða. Að því loknu verður
fjölbreytt skemmtidagskrá í
íþróttahúsinu. Hátíðarhöldun-
um í Ásgarði lýkur um kl. 20.30.
Hafnarfjörður
Á Kaplakrikavellinum verður
frjálsíþróttakeppni um morgun-
inn fyrir börn á aldrinum 7—14
ára. Einnig verður skemmtun
um morguninn við Lækjarskóla.
Þar verður bátaleiga við Tjörn-
ina, reiðhestar teymdir undir
börnum og Tívoli.
Að lokinni skrúðgöngu verður
guðsþjónusta í Hellisgerði. Að
lokinni guðsþjónustunni verður
gengið sem leið liggur um mið-
bæinn ao Lækjarskóla þar sem
hátíðardagskrá verður. Að því
búnu verður leikur í handknatt-
leik á milli FH og Hauka.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
á milli atriða undir stjórn Hans
Ploters. Um kvöldið verður
kvöldskemmtun við Lækjarskóla
með fjölbreyttri dagskrá.
Akureyri
Hátíðarhöldin á Akureyri
hefjast kl. 8 með því að fánar
verða dregnir að húni. Um kl.
9.30 mun blómabíll aka um
bæinn með Kötlu Maríu,
skrautsigling verður kl. 10.30 á
Pollinum í umsjón Nökkvafé-
laga. Kl. 13.30 leikur Lúðrasveit
Akureyrar á Ráðhústorgi undir
stjórn Stefáns Bergþórssonar.
Um kl. 14 verður skrúðganga að
íþróttasvæði og verður hátíðin
s"tt þar kl. 14.30 að undangeng-
inni fánahyllingu. Þar verður
m.a. helgistund, fimleikar, djass,
fallhlífarstökk, hestar fyrir börn
og hljómsveitin Þjóðþrif.
Barnaskemmtun verður á
Páðhústorgi kl. 16.15 og kl. 18
v jrður diskódansleikur á
íþróttavellinum. Um kvöldið
verður skemmtun á Ráðhústorgi
þar sem m.a. koma fram Karla-
kórinn Geysir, Þjóðþrif, Lúðra-
sveit Akureyrar, Birgir og Anna
María, Halli, Laddi og Jörundur
og síðan verður dansað til kl. 1.
mundur, að vel hefði gengið hjá
Akurnesingum, sæmilega í Reykjavík,
en vertíðin verið undir meðallagi hjá
Hafnarfjarðarbátum. Guðmundur tók
fram, að hann hefði ekki nákvæmar
fréttir um aflabrögð, en svona virtist
sér dæmið líta út í grófum dráttum.
— Verð á grásleppuhrognum hefur
hækkað um 10% frá því sem var í
fyrra og var ekki vanþörf á, því allur
tilkostnaður hefur aukizt veruiega,
sagði Guðmundur Lýðsson. — Við
höfum se!t tunnuna á 330 dollara í ár
og ég held ég megi segja að búið sé að
selja langmest af því, sem framleitt
hefur verið. Ég held að frekar verði um
vöntun að ræða á markaðnum heldur
en hitt og verðið gæti því hækkað
eitthvað örlítið frekar en það lækkaði,
en í vor var okkur legið á hálsi fyrir að
setja 330 dollara á tunnuna menn
héidu það vera of hátt verð.
— Norðmenn og Kanadamenn und-
irbjóða okkur eins og venjulega. Norð-
menn bjóða tunnuna á 310-320 dollara
og Kanadamenn selja sín hrogn á 330
Kanadadollara, en dollarinn þeirra er
skráður á rétt rúmar, 400 krónur,
meðan Bandaríkjadalur er kominn yfir
460 krónur. Veiðar Norðmanna hafa
ekki gengið eins vel í ár og í fyrra og
sömu segja er að segja um veiðar
Kanadamanna, þannig að horfurnar
eru góðar hjá okkur að mínu mati,
sagði Guðmundur Lýðsson.
Á síðasta ári voru flutt út 1381 tonn
af grásleppuhrognum og eru að meðal-
tali 105 kíló í tunnu. Meðalframleiðsla
áranna frá 1970 hefur veriö 1400 tonn.
Langmest af framleiðslunni fer til
Danmerkur og var t.d. í fyrra 803 tonn,
en grásleppuhrogn voru flutt út tii 8
landa og voru Bandaríkin næst í
röðinni með 113 tonn. Útflytjendur
grásleppuhrogna eru um 10 talsins og
er Sambandið trúlega þeirra stærst í
ár. Islendingar eru með 55—60% af
framleiðslu grásleppuhrogna.
*
I gæzluvarðhald
TÆPLEGA fimmtugur Reykvikingur
hefur verið úrskurðaður í 60 daga
gæzluvarðhald og gert að sæta geð-
rannsókn vegna kynferðisafbrots,
sem hann framdi gagnvart 10 ára
dreng sl. iaugardagskvöld.
Maðurinn tældi drenginn inn í íbúð
sína og hafði uppi kynferðislega til-
burði gagnvart honum. Þegar drengur-
inn slapp frá manninum, sagði hann
foreldrum sínum hvað gerzt hafði og
var maðurinn þá handtekinn.
Maður þessi, sem er fjölskyldumaður
hefur a.m.k. tvívegis áður gerzt sekur
um afbrot af svipuðu tagi gagnvart
ungum drengjum.