Morgunblaðið - 17.06.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.06.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980 11 afloknu klappi og hefðbundnum hneygingum leikara, í þann mund er hlaupið var fram í anddyri með númerið að kápu konunnar í hendinni eins og vera ber þá gellur móti manni lúð- rablástur. Og er búið var að færa konu í kápu eins og vera ber, og bíllyklar komnir upp úr vasa og komið var út á leikhúströppur þá eru þar trúðar sunnan frá Spáni í leik. Reyndi þetta glaðværa fólk að laða virðulega leikhús- gesti í trúðleikinn en því miður bíllyklarnir komnir í lófann og þá tekur vaninn við og svo var líka .. ansi kalt úti“. Vafalaust hafa forráðamenn Listahátiðar 80 séð margan borgarann bregð- ast þannig við er draga áttánn inní hringiðuna. En þannig er með allar tilraunir eitthvað hlýtur að mistakast. Hið dá- samlega við þetta allt saman er að tilraunin fór fram alls óheft. Er ég hræddur um að ýmislegt hefði verið bæði klippt og skor- ið, þar sem fyrirmyndarskipu- lagið ríkir yfir öllu og öllum og hin endanlegi lífselexír er fund- inn. En nóg um það í leikriti Beckett Beðið eftir Godot sem er hluti þeirra norðanmanna í lis- tahátíðarpakka 80 er ekki að finna neinn lífselexír. í inínu minni er þetta verk ákveðin tilfinningaspenna sem varir í ákveðinn tíma. Spenna sem er rofin við og við af gálgahúmor. Svona líkt og kransæðastífla af nítrógyserínpillu. Fleiri orð ber ekki að hafa um þetta verk, aðeins að tímleysi þess er ekki algert það er í rauninni ritað sem andsvar við þeirri opnu gröf, sem Evrópa var eftir síðari heimsstyrjöld. Má ætla að sú LISTAHÁTÍÐ 1980 tilfinning sem ríkti í hjörtum fólks á þeim tíma sé ekki jafn hvöss í dag og þar með áhrif verksins veikari. Hitt er svo alveg ljóst að enn deyr fólk úr hjartveiki í eiginlegum og óeig- inlegum skilningi. Um upp- færslu Leikfélags Akureyrar á verkinu hefir þegar verið fjallað hér í blaðinu og væri dónaskapur að bæta þar við. Ég get þó ekki stillt mig um að segja: Takk fyrir — gamalkunnur texti log- aði sannarlega hjá ykkur. álykta að í „svörtu málverkun- um“, sem Goya málaði á árunum eftir 1820, svo og myndröðunum er hann útfærði í grafískri tækni á útlegðarárum sínum í Borde- aux í suður Frakklandi, gæti áhrifa bernskuminninganna frá aragónísku hásléttunni, — flétt- ist óhugnaði stríðsáranna og örvæntingu hins aldna er baráttuglaða manns. Vinnu- brögðin í málmgrafíkinni geta stundum minnt á síðustu ár Rembrandts. Víst er, að margt var skylt með þeim og allt frá dögum Rembrandts gat engan myndlistarmann, er vann í jafn ríkum mæli að sjálfstæðum verkefnum og af svo djúpri innri þörf. Goya var 76 ára er hann hóf að vinna á þennan hátt, skírskota til blakkra drauma, martraða og óhuganlegra sýna, — jafnframt sviði stríðsins, inn- rás hermanna Napoleons og grimmilegu atferli þeirra. Goya átti þá 7 ár eftir ólifað ... „Ævi Goya og listferli má í tvennum skilningi og með merkilegri nákvæmni skipta í tvo afmarkaða hluta. — Annars vegar lifir hann á tiltölulega rólegum tímum fyrri hluta starfsferils síns, en síðar tekur við ófriður innan lands og utan og verður hann vegna frjáls- lyndra skoðana eitt af fórnar- lömbum þessara átaka, fer fyrst huldu höfði, en dvelur síðustu ár ævinnar í hálfgerðri útlegð í Bordeaux. — Hins vegar lifir Goya fyrri hluta ævi sinnar við góða heilsu, gerir litríkar og fagrar myndir, en veikist 1792 af illkynjuðum sjúkdómi 46 ára að aldri, sem leiðir til algjörs heyrnamissis, það sem eftir er ævinnar — eða 36 ár. jafnframt daprast sjónin og þrálátur höf- uðverkur verður fylginautur hans ásamt ókennilegu suði fyrir eyrunum. Hann missir mátt og er í nær tvö ár að ná líkamlegu og andlegu jafnvægi á ný. Ekki er vitað, hvaða sjúkdómur þetta var, en eftirköstin minna óneit- anlega um margt á svæsna heilahimnabólgu — meningitis. Sumir hafa gizkað á syfilis, en ólíklegt má þykja, að sárasótt- arsjúklingur hefði notið jafn- mikillar hylli fegurstu aðals- kvenna samtíma og fullyrt hefur verið. Þá hafa vísindamenn varpað fram þeirri tilgátu studda rökum, að um blýeitrun hafi verið að ræða. Goya mun hafa gert mikið af því að nota blýhvítu og nudda litnum á léreftið með fingrum og klútum. Hann hefur getað andað að sér blýgufu, sem hefur svo borist til heilans eða eitrið kann að hafa síast í gegnum fingurna og út í blóðið. Hið merkilega gerist, að Goya glatar á engan hátt sköpunar- eftir BRAGA ÁSGEIRSSON gáfu sinni við veikindin, þvert á móti virðist hún magnast upp úr öllu valdi og skynrænt næmi hans gagnvart umhverfinu aukast. Verk þau, er hann nú gerir, verða stöðugt kynngi- magnaðri og nær sú þróun há- marki í „svörtu málverkunum". A útlegðarárunum vinnur hann einungis í grafík, skapar bylt- ingu í þeim vinnubrögðum og hefur m.a. steinþrykkið upp í æðra veldi sem listmiðil. Goya var kvæntur Jósefu, systur lærimeistara síns, Franc- isco Bayeu. Hjónabandið mun ekki hafa fært honum mikla hamingju, þótt ekki kvarti Goya í bréfum sínu til náinna vina. Pépe, en svo var konan nefnd, hafði erfiða lund og þrjóska skapgerð. Hún yfirgaf hann árið 1811, vafalítið þreytt, vonsvikin og mædd af mótlæti. Þau eign- uðust 20 börn, en aðeins eitt þeirra náði fullorðinsárum og lifði foreldrana, sonurinn Xavier u — Goya lagði í rúst heims- mynd barrokkstefnunnar, er hafði verið ríkjandi á tímum hans. Hann var svo langt á undan samtíð sinni, að segja má að hann hafi skilið málaralistina og grafík- listina í einskis- mannslandi um nokkurt skeið og þess var því ekki að vænta, að menn fetuðu strax í fótspor hans. Er fram liðu stundir höfðu myndir hans djúp áhrif á málara eins og Courbert og Delacroix svo og teiknaran Daumier — síðar á Edouard Manet, sem telst upphafsmaður impressjón- ismans — þá Edvard Munch og James Ensor, frumkvöðla ex- pressjónismans, og þess má geta að súrrealistar aldarinnar voru djúpt snortnir af hinu magnaða og dulúðuga innsæi mynda hans.“ Grannt skoðað, þá er Goya enn þann dag í fullu giidi sem áhrifavaldur og sýningin í húsa- kynnum Listasafns alþýðu á því mikið erindi til okkar. Mjög er vandað til hennar í alla staði, sýningarskráin er til fyrirmynd- ar, formáli og myndatextar Guð- bergs Bergssonar eru með list- rænasta sniði og honum til mikils sóma. Að öðru leyti talar sýningin fyrir sig sjálf og ættu fæstir að láta þennann mikla listviðburð fram hjá sér fara. sP & þjöÖhátíÖ Rcykjavíkur DAGSKRÁ I. DAGSKRAlN HEFST: Kl. 09.55 Samhljómur kirKjuklukkna í Reykjavík. Kl. 10.00 Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, leggur blóm- sveig frá Reykvíkingum á leiöi Jóns Sigurðssonar í kirkjugarð- inum v/ Suðurgötu. Lúðra- sveitin Svanur leikur: Sjá roð- ann á hnjúkunum háu. Stjórn- andi Sæbjörn Jónsson. II. VIÐ AUSTURVÖLL: Lúðrasveitin Svanur leikur ætt- jarðarlög á Austurvelli. Kl. 10.40 Hátíðin sett: Þorsteinn Egg- ertsson, formaður þjóðhátíðar- nefndar. Karlakórinn Fóstbræður syngur: Yfir voru ættarlandi Söngstjóri Ragnar Björnsson. Forseti Islands. dr. Kristján Eldjárn. leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnis- varða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Karlakórinn Fóstbræður syngur Þjóðsönginn. Ávarp forsætisráðherra, dr. Gunnars Thoroddsens. Karlakórinn Fóstbræður syngur: Island ögrum skorið. Ávarp Fjallkonunnar. Lúðrasveitin Svanur leikur: Ég vil elska mitt land. Kynnir Helgi H. Jónsson. Kl. 11.15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Halldór Gröndal. Dómkórinn sungur. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel. Einsöngvari: Guðmundur Jónsson. III. LEIKUR LÚÐRASVEITA: Kl. 09.30 Við Hrafnistu. Kl. 10.30 Við Hátún Kl. 11.30 Við Borgarspítalann. Kl. 09.30 Við Elliheimilið Grund Kl. 10.30 Við Landspítalann. Kl. 11.30 Við Landakotsspítala Skólahljómsveit Árbæjar og Breiöholts og skólahljómsveit Laugarnesskóla leika. Stjórn- endur: Ólafur L. Kristjánsson óg Stefán Þ. Stephensen. IV. TJARNARFLÖT (VESTAN BJARKARGÖTU): Kl. 13.00 —17.00 Félagar úr skátahreyfingunni sýna tjaldbúðar- og útistörf. V. NAUTHÓLSVlK: Kl 13.00 — 16.00 Siglingaklúbbur Æskulýðsráðs Reykjavíkur verður opinn og ungum sem öldnum gefinn kostur á að kynna sér siglinga- íþróttina VI. TRÚÐALEIKUR: Kl. 14 15— 15.00 Við Kjarvalsstaði: Tóti trúður (Ketill Larsen). Galdraland: Randver Þorláksson Aðalsteinn Bergdal Þórir Steingrímsson Leikstjóri: Erlingur Gíslason VII. HOPP OG Hi: Kl. 14.15 — 15.00 á Melavelli: Glímusýning: Stjórnandi Jón Unndórsson. Hestasýning: Stærsti og minnsti hestur is- lands, Grettir og Polli. Eigandi: Kristján S. Jósefsson. Hestaíþróttir: Féla'gar úr unglingadeild Fáks sýna hestaíþróttir. Stjórnendur: Kolbrún Kristjáns- dóttir og Ragnar Tómasson VIII. SKRÚÐGÖNGUR: Kl. 15.15 Gengið frá Kjarvalsstöðum og Melavelli. Frá Kjarvalsstöðum verður gengið um Rauðarárstíg á Hlemmtorg, um Laugaveg og Bankastræti á Lækjartorg. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir Stjórn Eyjólfs Melsted Frá Melavelli verður gengið um Suðurgötu, Skothúsveg á Tjarnargötu um Aðalstræti og Hafnarstræti á Lækjartorg. Lúðrasveit verkalýðsins leikur undir stjórn Ellerts Karlssonar Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöngunum og stjórna þeim. IX. FJÖLSKYLDUSKEMMTUN A LÆKJARTORGI: Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur. Stjórnandi Ólafur L. Kristjáns- son. Kl. 16.oo Samfelld skemmtidagskrá: Leikstjóri: Stefán Baldursson Undirleikari: Sigurður Rúnar Jónsson. Þátttakendur: Edda Björgvinsdóttir Gísli Rúnar Jónsson. Bessi Bjárnason. Sigríður Þorvaldsdóttir. o.fl. X. BIFREIÐAAKSTUR: Kl. 17 00 Akstur gamalla bifreiða. Félag- ar úr Fornbílaklúbbi íslands aka bifreiðum sínum umhverfis tjörnina og síðan að Melavelli. Kl. 17.30 Akstursþrautakeppni á Mela- velli í samvinnu við Bindindis- félag ökumanna. XI. VIÐ BREIÐFIRÐINGA- BÚÐ: Kl. 14 00— 18 00 Umhverfi '80. Sýning myndlistarmanna og rithöfunda á verkum sem tengjast borgarumhverfi. Myndverkstæði fyrir börn. Fiðluleikur, Harmonikkuleikur, Kvæðamenn, Karlinn á kass- anum og fl. XII. LAUGARDALSVÖLLUR: Kl. 14.00 17. júní mótið i frjálsum iþrótt- um XIII. LAUGARDALS- SUNDLAUG: Kl. 14 00 Reykjavíkurmeistaramót i sundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.