Morgunblaðið - 17.06.1980, Page 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980
'r*
• Hansi Muller, einn skæðasti sóknarmaður þýska liðsins, hann
leikur með VFB Stuttgart i þýsku deildinni.
Grikkir áttu
enga möguleika
- Tékkar unnu átakalítið 3-1
TÉKKAR. núverandi Evrópu-
meistarar. áttu ekki í erfiðleik-
um með að leKKja Grikki að velli
í A-riðii Evrópukeppni landsliða
i knattspyrnu um helKÍna. Loka-
tölur leiksins voru 3—1, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 2—1.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
oft á tíðum vel leikinn. Anatoli
Panenka kom Tékkum á bragðið
þegar á 5. mínútu. Skoraði hann
þá beint úr aukaspyrnu af 20
metra færi. Nokkru síðar átti
Zednek Nehoda þrumuskot í stöng
gríska marksins. Grikkir jöfnuðu
óvænt nokkuð á 13. mínútu. Þá
einlék Thomas Mavros upp að
endamörkum og sendi knöttinn
laglega á kollinn á Anastopoulus,
sem skoraði gott mark.
En Tékkar voru mun sterkari
aðilinn og það kom ekki á óvart er
liðið náði forystu. Þar var að verki
Ladislav Vizek með skoti af 8
metra færi, eftir að Nehoda hafði
splundrað vörn Grikkja. Á 62.
mínútu skoraði Nehoda sjálfur af
stuttu færi og gerði út um leikinn.
Hann meiddi sig illa í leiðinni og
varð að hverfa af leikvelli. Mark
Nehoda var eini ljósi punkturinn í
síðari hálfleik, sem var leikinn á
gönguhraða og bauð upp á lítil
tilþrif.
Liðin:
Tékkóslóvakía: Stanislav Sem-
an, Jozef Barmos, Ladislav Jurk-
emic, Anton Ondrus, Kaloman
Goegh, Jan Kozac, Antonin Pan-
enka, Marian Masny, Zednek Ne-
hoda, Ladiskav Vizec, Jan Berger.
Varamenn: Verner Licka og Miro-
slav Gadjusek.
Grikkland: Konstantinou, Kir-
astas, Iosifidis, Kapsis, Piros, Liv-
athinos, Terzanis, Kouis, Anastap-
oulos, Kostikos, Mavros. Vara-
menn: Haralambos, Galakos.
Spanverjar
lögðu Rússa!
RÚMENAR sigruðu í geysi-
sterkri 5 landa keppni sem fram
hefur farið á Spáni síðustu dægr-
in. Rúmenar skildu jafnir, 20—
20 við Júgóslava i siðasta leik
sínum og var það eini tapleikur
liðsins.
Annars voru það heima-
menn sem stálu senunni í síðustu
umferðinni, en Spánverjar gerðu
sér lítið fyrir og lögðu Sovétmenn
að velli, lokatölur urðu 15—13.
Sem fyrr segir sigruðu Rúmen-
ar í keppninni, þeir hlutu 7 stig
af 8 mögulegum. í öðru sæti urðu
Júgóslavar með 5 stig. Spánverj-
ar fengu 4 stig og Rússar og
Svisslendingar 2 stig hvor þjóð.
Þrenna Klaus Allofs
sökkti Hollendingum
VESTUR-Þjóðverjar sýndu
snilldartilþrif er þeir sigruðu
Holland 3—2 i lokakeppni
Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu um helgina. Klaus
Allofs, miðherji Fortuna Dusseld-
orf, var stjarna dagsins, hann
skoraði öll mörk þýska liðsins.
En þrátt fyrir stórleik Allofs, var
það hin geysisterka liðsheild
Þjóðverja sem var að baki sigrin-
um. Uollendingar náðu sér ekki á
strik fyrr en á siðustu 15. minút-
unum, en þá var allt um seinan.
„Þeir áttu sigurinn skilið, þeir
léku miklu betur en við“ sagði
Jan Zwartkruis einvaldur hol-
lenska liðsins.
Með sigri sínum hafa Þjóðverjar
svo gott sem tryggt sér sæti í
úrslitaleiknum, þeim nægir annað
stigið gegn Grikkjum í kvöld til
þess að gulltryggja það. í 70
mínútur var hollenska liðið ger-
samlega yfirspilað. Þó að Allofs
hafi stolið senunni vegna marka
sinna, var Bernd Schuster enn
betri. Hann var maðurinn að baki
allra markanna. Hann lagði upp
fyrsta markið strax á 9. mínútu,
en áður hafði Horst Hrubesch
tvívegis verði nærri því að skora.
Bermd Dietz lék upp völlinn og
sendi síðan knöttinn til Schuster.
Schuster snéri laglega af sér
varnarmann og skaut þrumuskoti
í stöng og út til Allofs sem potaði
knettinum yfir marklínuna.
Markið kom mjög á Hollend-
Jupp Derwall þjálfari V-Þýska
landsliðsins i knattspyrnu. Liðið
hefur leikið 16 ieiki undir hans
stjórn án þess að tapa.
ingana og skömmu síðar varði
hoilenski markvörðurinn snilldar-
lega frá Horst Hrubesch. Annað
markið var sannkallað þrumu-
mark. Schuster óð þá 30 metra
sprett með knöttinn áður en hann
sendi hann til Hans Muller, sem
lagði hann út aftur til Klaus
Allofs. Allofs kom á fleygiferð og
spyrnti viðstöðulaust þrumuskoti
frá vítateigslínunni og knötturinn
reif næstum gat á netamöskvann.
Aðeins 7 mínútum síðar gerðu
Þjóðverjarnir út um leikinn,
Schuster komst þá einn inn fyrir
vörn Hollendinga, renndi síðan
knettinum til Allofs sem þurfti
ekki annað en að ýta knettinum
yfir marklínuna.
Var um þetta leyti lítið lífsmark
með Hollendingum, en úr þessu
fóru Þjóðverjarnir að taka lífinu
með ró. Það varð til þess að þeir
sofnuðu á verðinum á 79. mínútu.
Bakvörðurinn Huub Wijnstekers
brunaði þá inn í vítateig Þjóð-
verja, en var felldur af varamann-
inum Lothar Matthaus. John Rep
skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni
sem hinn franski dómari dæmdi
réttilega. Hollendingar tóku nú á
honum stóra sínum og skoruðu
aftur 6 mínútum síðar. Var þar á
ferðinni Willy Van Der Kerkhof
með þrumuskoti af 30 metra færi.
En tíminn var of naumur og
Hollendingar fengu ekki tækifæri
til þess að jafna leikinn.
Liðin:
Vestur Þýskaland: Schumacher,
Briegel, Förster, Dietz, Schuster,
Rumenigge, Hrubesch, Muller,
Stielike, Kaltz. Varamenn: Magah
og Matthaus.
Holland: Schrievers, Wijnstek-
ers, Van De Korput, Krol, Hov-
enkamp, Haan, Stevens, Willy
Van Der Kerkhof, Rep, Kist, Rene
Van Der Kerkhof. Varamaður:
Naninga.
ítalir höfðu betur
• Allt bendir nú til að lið
V-Þjóðverja og ítala leiki til
úrslita um Evrópubikarinn sem
sést á myndinni.
BELGAR hafa komið mjög á
óvart í Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu og liðið bætti rós í
hnappagatið með þvi að sigra
Spánverja örugglega. Lokatölur
urðu 2—1 fyrir Belga, en sú tala
endurspegiar ekki yfirburðina
sem liðið hafði. Staðan í hálfleik
var 1 — 1.
Belgar byrjuðu leikinn með háv-
aða og látum og áttu mörg góð
marktækifæri á fyrstu 30 mínút-
um leiksins. Spánverjarnir kom-
ust hins vegar ekkert áleiðis gegn
belgísku vörninni, sem óspart
beitti rangstöðugildrunni. Belgar
skoruðu fyrra mark sitt á 16.
mínútu, bakvörðurinn Eric Gerets
hljóp þá upp í sóknina, fékk góða
sendingu frá Francois Van Der
Elst og skoraði með góðu skoti af
frekar stuttu færi. Gamli tengilið-
urinn Wilfrid Van Moer og félagi
hans Jan Ceulemans réðu lögum
og lof ím á miðjunni og virtist allt
stefna í stórsigur.
En Spánverjarnir jöfnuðu mjög
óvænt á 35. mínútu, Quini skallaði
þá í netið úr mjög erfiðu færi,
eftir aukaspyrnu Juanito. Dofnaði
TUGÞÚSUNDIR dönsuðu á göt-
um allra helstu borga Ítalíu á
sunnudaginn, eftir að Ítalía hafði
lagt England að velli í Evrópu-
keppni landsliða i knattspyrnu.
Leikurinn, sem fram fór í Torino,
endaði 1—0 og skoraði varnar-
maðurinn Marco Tardelli sigur-
markið á 79. minútu leiksins.
ítalir, sem hafa tapað aðeins einu
sinni á heimavelli i rúmlega 10
ár, voru eftir atvikum vel að
sigrinum komnir.
Leikurinn var í járnum og
örsjaldan gáfust möguleikar á því
að skora mörk. Liðin þreifuðu
fyrir sér, greinilega þrúguð tauga-
spennu. Italir sóttu þó heldur
meira. Fyrsta marktækifærið
mjög yfir Belgum um stund eftir
mark Spánverja, en smám saman
náðu þeir öllum völdum á vellin-
um á nýjan leik. Spánverjar fóru
reyndar illa með tvö úrvalsfæri á
fyrstu mínútum síðari hálfleiks,
en gott mark Julien Cools innsigl-
aði sigurinn áður en yfir lauk.
Liðin:
Spánn: Arconada, Tendillo,
Migueli, Ramon, Goirdillo, Zam-
ora, Saura, Asensi, Satrustegui,
Quini og Juanito.
Belgía: Pfaff, Gerets, Mille-
camps, Meuuws, Renquin, Cool,
Van Der Eycken, Van Moer, Van
Der Elst, Van Der Bergh, Ceule-
mans. Varamenn: Mommens og
Verheren.
skaut þó upp kollinum strax á
fystu mínútu leiksins, Gabriel
Oriali sendi þá vel fyrir enska
markið og Roberto Bettega skall-
aði naumlega fram hjá markinu.
Það var mikil harka strax í
upphafi leiksins og þeir Romeo
Benetti og Marco Tardelli, sem elti
Kevin Keegan eins og skuggi, voru
báðir bókaðir fyrir gróf brot. Ray
Wilkins fékk það hlutverk að vera
kjölfestan á miðvallarspili Eng-
lendinga og stóð sig vel í því
hlutverki, en vörn Itala var geysi-
lega sterk og gaf ekki á sér færi.
Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks
opnaðist hins vegar enska vörnin
mjög skyndilega og Roberto Bett-
ega slapp einn inn fyrir vörnina.
Peter Shilton varði hins vegar
snilldarlega með djörfu úthlaupi.
Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks
varð Shilton enn að taka á honum
stóra sínum til þess að verja gott
skot Grancesco Grazianni.
Englendingar léttu af sér farg-
inu augnablik og komst Ray
Kennedy þá mjög nærri því að
skora, spyrnti þá föstu skoti í
þverslá eftir fyrirgjöf frá Dave
Watson. Italir voru ekki lengi að
svara, Antognioni sendi þá snilld-
arsendingu til Gaetano Scirea, en
enn varði Shilton af snilld.
Tveimur mínútum áður en að
Italir skoruðu sigurmarkið, mun-
aði mjóu að Englendingar yrðu
fyrri til, Keegan og Kennedy léku
þá laglega í gegn, en skot Keegans
fór utan á stöngina ojg síðan fram
hjá. Síðan skoruðu Italir, Grazi-
anni braust þá upp völlinn og
sendi vel fyrir markið þar sem
Tardelli var fyrir og skallaði
laglega í netið. Drógu Italir alla í
vörn síðustu mínúturnar og áttu
ekki í vandræðum með að halda
fengnum hlut.
Liðin:
Ítalía: Zoff, Genile, Orieli, Ben-
etti, Collovatti, Scirea, Causio,
Tardelli, Grazianni, Antognioni og
Bettega. Varamaður: Beresi.
England: Shilton, Neal, Sanson,
Thompson, Watson, Wilkins,
Coppell, Keegan, Kennedy, Birtles,
Woodcock. Varamaður: Mariner.
Belgar koma á óvart