Morgunblaðið - 17.06.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ1980
Isleifur Sveinsson
Hvolsvelli — 80 ára
Nú þegar þú afi minn ert 80 ára,
ræð ég ekki við þá löngun, að
senda þér kveðju á prenti, sem
smá þakklætisvott til þín fyrir
allt, sem þú hefur verið mér og
mínum í gegnum árin.
Þú ert hið dæmigerða aldamóta-
barn. Þér hefur þrátt fyrir örar
breytingar, tekist að vera í takt
við tímann og verið hetja hins
hversdagslega lífs.
Það lýsir vel þinum jákvæða
hugsunargangi sem þú sagðir við
mig, þá litla telpu: „Ég hef aldrei
sofnað svo að kveldi að ég hlakk-
aði ekki til að vakna að morgni."
Gera aðrir betur, þegar litið er til
þess, að ekki voru kjör þín af
veraldlegum gæðum neitt til að
öfundast yfir hér áður fyrr, þegar
þú á þinni litlu jörð, Miðkoti í
Fljótshlíð, komst upp sjö börnum
ykkar ömmu. í Miðkoti skorti
engan neitt, á þess tíma mæli-
kvarða, þar voru allir vel mettir
og höfðu gott atlæti. Enginn vafi
er að ykkur sívinnandi, högu
hendur, þínar og ömmu, gerðu það
að verkum að fátæktin þurfti
aldrei að smækka ykkur.
Skaparinn hefur nú oft sýnt þér
jákvæðar hliðar og sent þér hitt
og þetta, en aldrei var hann samt
jafn örlátur við þig og þegar hann
gaf þér ömmu, Ingibjörgu Krist-
jánsdóttur, þvílíkt sem þú varst
nú alltaf ástfanginn af henni. Þar
var nú eitthvað á ferðinni, sem
hollt var að fylgjast með, kossar
fyrir og eftir matinn. Það þurfti
enga rauðsokku til að segja þér að
hræra í pottunum og elda graut-
inn, þetta var allt jafn sjálfsagt og
eðlilegt, að engin orð fóru þar um.
Mér er minisstætt sem krakka
þegar þú komst heim úr vinnu á
kvöldin, það var alltaf eins og þú
værir að koma úr löngu ferðalagi,
svo innilegar voru móttökur
ömmu, og alltaf reyndi hún að
vera innandyra, svo að þú kæmir
ekki að tómum bænum, eða
„ömmubæ" eins og við krakkarnir
kölluðum hann. Ur ömmubænum
þínum eigum við krakkarnir þínir
ómetanlegan minningasjóð. Þegar
ég var barn, áttu heima þar hún
langamma, Margrét móðir þín, og
Stína gamla. Ég minnist þeirra
beggja rúmfastra, en þótt þær
væru líkamlega farnar að kröft-
um, var svo notalegt í þeim
hjartalagið að barnabörnin þín
kepptust við að sitja inni hjá þeim
og lærðu vers og vísur. Ég viður-
kenni að kandíssykurinn þeirra
hafði gífurlegt aðdráttarafl, en
hann bráðnaði fljótt. En eftir
situr minningin um lítið, tandur-
hreint herbergi, tvær hjartahlýjar
konur, sem elskuðu allt sem and-
ann dró. Þegar ég læt hugann
reika til himnaríkis, finnst mér
alltaf að það sé í líkingu við
herbergið þitt. Þær voru svo
innilega trúaðar á hið góða og
göfuga, að mér fannst alltaf að
Jesús Kristur gæti varla verið
annarsstaðar en í þeirra herbergi.
Þegar amma Ingibjörg féll svo
frá fyrir nær tíu árum, var fráfall
hennar í samræmi við allt ykkar
líf. Hún fékk að sofna þér við hlið
á ykkar heimili, þar sem þú hafðir
hjúkrað henni í veikindum hennar
og borið hana á örmum þér í
gegnum lífið. Ég veit að hún
sofnaði svefninum langa full af
þakklæti til þín.
Það getur verið stórhættulegt
að hella sér út í minningaflóð og
tilfinningarugl, getur verið afar
þreytandi fyrir lesendur, en þar
sem menn verða bara áttræðir
einu sinni og lifið er hlátur og
grátur, veit ég að þú fyrirgefur
slíka smámuni. Þótt þú hafir
aldrei haft tíma og tækifæri til að
ferðast um önnur lönd, ertu marg-
sigldur maður í Iífsins ólgusjó. Af
víðsýni þinni, þekkingu og reynslu
gæti margur maðurinn verið stolt-
ur. Þú hefur svo mikla trú á
möguleikum þíns lands og hefur
sýnt og sannað með ræktunargleði
þinni, að heima á Hvolsvellinum
er nú ýmislegt hægt að rækta
fleira en kartöflur Við niðjar
þínir, sem erum eitthvað töluvert
33
yfir fimmtíu, getum stælt okkur
af stórkostlegum -3míðagripum
þínum úr efnivið, sem þú hefur
ræktað í garðinum þínum. Þú ert
vorsins barn, lundarfar þitt í takt
við gróandann.
Ég segi bara að lokum: Til
hamingju með daginn, afi minn,
og megi vorið fylgja þér alla þína
ævidaga.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Aukasýning á
„Beðið eftir Godot“
LEIKFÉLAG Akureyrar hefur að undanförnu sýnt á vegum
Listahátíðar sjónleikinn „Beðið eftir Godot" eftir Samuel Beckett
við mjög góðar undirtektir og hefur verið uppselt á allar sýningar.
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefur aukasýning verið ákveðin
miðvikudaginn 18. júní kl. 20.30. Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó
sama dag frá kl. 14.00.
Árni Tryggvason og Bjarni Steingrimsson i hlutverkum
umrenninganna Estragons og Vladimirs.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hilmar Foss
Lögg. skjalaþýö. dóml. Hafnar-
stræti 11, sími 14824, Freyju-
götu 37, sími 12105.
Bólstrun, klæóningar
KlæOum eldri húsg., ákl. eöa
leöur. Framl. hvíldarstóla og
Chesterfieldsett.
Bólstr. Laugarnesvegi 52. Sími
32023.
Múrvlögeröir sfmi 84736.
Keflavík
3ja herb. neðri hæö í tvíbýli í
mjög góöu ástandi. Sér inn-
gangur. íbúöin er á góöum staö
í bænum. Bílskúr Úrvalið er hjá
okkur.
Eignamiölun Suöurnesja,
Hafnargötu 57, sími 3868.
Kristniboóssambandiö
Bænasamvera veröur i Kristni-
boöshúsinu Betaníu. Laufásvegi
13, miövikudaginn 18. júní kl.
20.30.
Alllr velkomnir.
Hjálpræðisherinn
í dag 17. júní kl. 16.00 Þjóöhá-
tiöarfagnaöarfundur. Helgi Hró-
bjartsson. syngur og talar Kapt.
Óskarsson stjórnar.
Góöar veitingar.
Velkomin.
Krossinn
Almenn samkoma í dag kl. 4.30
að Auöbrekku, Kópavogi.
Frjálsir vitnisburöir.
Allir hjartanlega velkomnir.
„Old Boys“
Æfingar á Valsvelli eru á fimmtu-
dögum kl. 17.30—19.00.
Nefndin.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferöir:
Þriðjudaginn 17. júni: Kl. 13
Dauöadalahellar — Kaldársel.
Létt ganga.
Miðvikudagmn 18. júni: kl. 20
Straumsel — Óttarstaöasel.
Kvöldganga við allra hæfi
Helgarferóir:
20.—22. júní
1. Kl. 20 föstudag: Þórsmörk —
gist í skála.
2. Kl. 8 laugardag: Þjórsárdalur
— Hekla. Gist í húsi.
Ath. breyttan brottfarartíma í
ferö nr. 2 Þjórsárdalur — Hekla.
Laugardaginn 21. júni nætur-
ganga á Esju um sólstööur
Brottför kl. 20 frá Umferöa-
miöstööinni.
Ffladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30.
Einar J. Gíslason talar.
UTIVISTARFERÐIR
17. júni kl. 13.
Búrfellsgjá, upptök Hafnarfjarö-
arhrauna, létt ganga. Verö 3000
kr.
18. júní kl. 20
Heiðmerkurganga, létt kvöld-
ganga, verö 3000 kr.
Fariö frá B.S.Í. benzínsölu.
Bláfall-Hagavatn meö Jóni I.
Bjarnasyni um næstu helgi.
Hakla meö Kristjáni M. Bald-
urssyni um næstu helgi.
Noragur noröurslóöir á föstu-
dagskvöld.
Útivist, s. 14606.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Útboð
Málning utanhúss aö Suöurlandsbraut 4.
Sameigendur húseignarinnar Suöurlands-
braut 4, Reykjavík óska eftir tilboöum í aö
mála húseignina Suöurlandsbraut 4, aö utan.
Útboösgögn veröa afhent á Verkfræðistof-
unni Ferli h.f., Suöurlandsbraut 4 og veröa
tilboö opnuð þar á sama staö, þriðjudaginn
24. júní n.k. kl. 11.00.
Verkinu skal aö fullu lokið fyrir 1. sept. n.k.
Útboö
Tilboð óskast í lagningu 1. áfanga aðveitu-
lagnar fyrir hitaveitu Hjaltadals. Lögnin er
150 mm stálpípa. Lengd ca. 6.400 m.
Útboösgögn fást afhent á Verkfræðistofnun-
inni Fjölhönnun h.f., Skipholti 1, Reykjavík og
hjá Gísla Pálssyni, Hofi í Vatnsdal, A-Hún.,
gegn 50 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboöum skal skila á sömu staöi fyrir kl. 11
þann 30. júní1980.
Hitaveita Hjaltadals.
Útboð
Eyrarbakkahreppur.
Tilboð óskast í innréttingar viöbyggingar
barnaskóla Eyrabakka. Útboösgögn fást hjá
skrifstofu Eyrabakkahrepps og Teiknun sf.t
Fellsmúla 26, Reykjavík. Skilatrygging kr. 50
þús.
Tilboðum skal skilaö á skrifstofu Eyrabakka-
hrepps, merkt: „Barnaskóli". Tilboð veröa
opnuö fimmtudaginn 26. júní 1980 kl. 17.00.
Itkynningar
Til hellu- og skraut-
steinaframleiöenda
Höfum tekiö aö okkur sölu á litarefnum í
steinsteypu frá danska fyrirtækinu HYGAEA.
Höfum ávallt ýmsa liti á lager.
steinprýði
v/Stórhöföa sími 83340.
VU
'í'
SÖRLI
Hestamannafélagið Sörli
Hafnarfiröi.
Dregiö hefur verið
í happdrætti Sörla
Hafnarfiröi, upp komu þessi númer.
1. — 1503
2. — 1379
3. — 1407
4. — 1882
5. — 1804
6. — 1779
7. — 2219
8. — 1354
9. — 1752
10. — 1436
Upplýsingar í símum 51990 — 54563 —
53046.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
aiglysinga-
SIMINN KR:
22480