Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980
Kax.
Frá kcppni í 3000 m hindrunarhlaupi. Hl-ingurinn Ma«nús Ilaraldsson hefur forystuna en félagi hans
Sijíurður Sijjmundsson FII fylgir fast á cftir. A milli þeirra má sjá i Gunnar Snorrason.
Ml í frjélsum íþróttum:
Oddur tapaði í 100 m
ÓVÆNT ÚRSLIT ok talsverð
tilþrif einkcnndu annan keppnis-
dag Meistaramóts íslands í
frjálsiþróttum. sem haldið var f
Reykjavík um helKÍna. Mest kom
á óvart sijiur Sigurðar SÍKurðs-
sonar, Ármanni, í 100 metra
hlaupinu. en þar bar Sigurður
m.a. sigurorð af Oddi Sigurðs-
syni KA. Mest spennandi var
keppnin i 1500 metra hlaupi
karla. þar sem fjórir hlauparar
voru í hnapp á síðustu beygjunni.
og mestu tilþrifin voru í kringlu-
kasti þar sem Erlendur Valdi-
marsson ÍR sigraði Óskar Jak-
obsson ÍR, og jók þar með
moguleika sína á að hljóta sæti í
íslenzka ólympíuliðinu. Annars
náðist hinn ágætasti árangur í
morgum greinum, þrátt fyrir að
fáir keppendur væru í sumum
þeirra.
„Þessi úrslit koma sjálfum mér
sennilega mest á óvart," sagði
Sigurður Sigurðsson í spjalli við
Mbl. eftir 100 metra hlaupið.
Sigurður náði góðu starti í hlaup-
inu og var vel á undan keppinaut-
um sínum um miðbik hlaupsins.
Oddur Sigurðsson dró nokkuð á
Sigurð á síðustu metrunum, en
engu að síður var sigur Sigurðar
öruggur. Sigurður hefur um árabil
verið í fremstu röð, en Oddur
hafði fyrir hlaupið verið ósigraður
á hlaupabrautinni hér heima.
Gaman var að sjá Vilmund Vil-
hjálmsson KR aftur í keppni.
Vilmundur hefur átt við þrálát
meiðsl að stríða í vetur og vor, og
kom það því á óvart að hann
skyldi hreppa bronsverðlaunin á
mótinu. Arangurinn í hlaupinu
var lögmætur, þar sem meðvindur
var innan leyfilegra marka.
Hörkukeppni var í 1500 metra
hlaupi karla, eins og áður segir.
Ólafsfirðingurinn Guðmundur
Sigurðsson UMSE var sterkastur
á endasprettinum, en mikil spenna
ríkti meðan á hlaupinu stóð og allt
fram á lokametrana. Guðmundur
hefur komið á óvart í sumar með
ágætum árangri, og í þessu hlaupi
bætti hann sinn fyrri árangur á
vegalengdinni um heilar 10 sek-
úndur. Þar sem Guðmundur er
aðeins tvítugur á hann eflaust
eftir að láta að sér kveða í
framtíðinni. Magnús Haraldsson
FH hefur einnig verið í mikilli
framför. Sýndi hann af sér
keppnishörku í hlaupinu og stór-
bætti sig einnig. í kvennagreinun-
um bar mest á Helgu Halldórs-
dóttur KR, en hún sigraði örugg-
lega í 100 metra hlaupi og lang-
stökki. Hún hefði einnig getað
sigrað í 400 metra hlaupi, en
uppsetning tímaseðilsins kom í
veg fyrir að hún gæti þreytt
keppni í þeirri grein. Mikið er af
efnilegum frjálsíþróttakonum hér
á landi, en árangur í kvennagrein-
unum var þó frekar í daufara lagi
á öðrum keppnisdegi mótsins.
Vera má að kuldinn og vætan hafi
átt sinn þátt í því. Konurnar settu
þó tvö meistaramótsmet, Guðrún
Ingólfsdóttir í kringlukastinu og
sveit ÍR í 4x400 m boðhlaupi.
Elías Sveinsson FH hljóp ágæt-
lega í 110 metra grindahlaupinu
og sigraði Valbjörn Þorláksson
KR óvænt. Árangur Elíasar jafn-
gildir 14,7 sekúndum við tímatöku
á skeiðklukku, en meðvindur
reyndist aðeins of mikill. Elías
varð einnig íslandsmeistari í
fimmtarþraut, eftir harða keppni
framan af við Óskar Thorarensen
KR. Þeir Elías og Valbjörn urðu af
keppni í stangarstökkinu, þar sem
ekki var hinkrað meðan þeir hlupu
grindahlaupið, en að það skyldi
ekki gert verður að teljast nokkuð
einkennilegt. Einnig sætti tíma-
setning sleggjukastsins furðu, og
virðast mótshaldarar ekki ætla að
læra af reynslunni í þeim efnum.
Enginn mætti til leiks af þessum
sökum og féll keppni í sleggjukasti
niður.
Það er raunar orðið athugunar-
efni hvort ekki sé kominn tími til
að festa röð keppnisgreina á
Meistaramótinu og jafnvel setja á
það fastan tímaseðil. Að þessu
sinni mættu t.d. sumir sterkustu
400 metra hlaupararnir ekki til
leiks, þar sem úrslit 100 metra
hlaupsins voru látin fara fram að
loknum 400 metrunum, en það
hlýtur að vera keppikefli að sterk-
ustu menn í hverri grein séu
jafnan meðal keppenda í viðkom-
andi greinum á Islandsmeistara-
móti.
Einnig er þörf á að vanda betur
til framkvæmdar mótanna, t.d.
með því að upplýsa viðstadda
betur um lögmæti afreka, hver
metin séu í viðkomandi greinum,
svo að eitthvað sé nefnt, en það
skal tekið fram að þessi gagnrýni
beinist ekki gegn framkvæmdar-
aðilum Meistaramótsins sérstak-
lega, heldur á hún við framkvæmd
flestra móta. En lítum annars á
úrslitin:
100 m hlaup karla: l.SixurAur SÍKurAsaon Á,
10,72, 2. Oddur SigurAsson KA, 10,82, 3.
Vilmundur Vilhjálmsson KR. 11.31.
100 m hlaup kvrnna: 1. IlrÍKa Halldórsdóttir
KR. 12.34. 2. Oddný Árnadóttir lR. 12,53, 3.
Geirlaug GeirlauKsd. Á, 12,84.
400 m hlaup karla: 1. AAalstrinn Brrn-
harAsson KA. 49,03. 2. Einar P. GuAmunds-
son FH. 51,17.
400 m hlaup kvrnna: 1. llrönn GuAmunds-
dóttir UBK. 59.85. 2. RaKnhriAur Jónsd.
UMFS, 60,85.
1500 m hlaup karla: 1. GuAmundur SÍKurAs-
son UMSE. 4:04.9. 2. ÁKÚst Þorsteinsson
UMSB, 4:07.1. 3. Maxnús Haraldsson FH.
44)7.8.
1500 m hlaup kvrnna: 1. SÍKurhjörK Karlsd.
UMSE, 5.-02.7. 2. GuArún Karlsdóttir UBK.
5:03,6,3. Linda Ólafsdúttir FH, 5:51.0.
110 m Krindahlaup: 1. Elias Svrinsson FH.
14.93. 2. Valbjörn Þorlúksson KR. 15.39, 3.
Stefán Þ. Stefánsson ÍR, 16.04.
4x400 m karla: 1. Sveit IR, 3:46.14.
4x400 m kvrnna: 1. Svrit ÍR. 4:07.25. 2. Sveit
UMSB 4:25.42.
StanKarstökk: 1. Kristján Gissurarson Á,
4.00.
Þristökk: 1. FriArik Þ.Óskarsson IR. 14,40.
2. GuAmundur Nikulásson UMFB. 13,65, 3.
Kári Jónsson UMFS, 13,63.
KrinKÍukast karla: 1. Erlendur Valdimars-
son IR, 57,32, 2. Óskar Jakohxson ÍR, 56,76,
3. Vósteinn Hafstrinsson. KA 51.29. LanK-
stökk kvrnna: 1. HrÍKa Halldórsdóttir KR,
5,57, 2. Svava Grönfeldt UMSB. 5.30, 3. Jóna
B. Grétarsd. Á, 5,26.
KrinKlukaxt kvrnna: 1. GuArún InKÓlfsdótt-
ir Á, 46,55. 2. Elin Gunnarsdóttir UMFS,
34,36. 3. Iris Grönfeldt UMSB, 33,17.
3000 m hindrunarhlaup: 1. SÍKUróur P.Sig-
munds. FH, 10:01.4, 2. Gunnar Snorrason
UBK. 10:26.0. 3. Magnús Haraldsson FH.
10:26,4, 4. SigurAur Haraldsson FH, 10:36.8.
Fimmtarþraut karla: 1. Elias Svrinsson FH.
3358 (6.1957.7223,443,604:40,1), 2.óskar
Thorarensen KR, 3061
(6.4460,6823,934,8254)9,4). 3. Stefán Þ. Stef
ánsson IR, 2902 (6.7047,8623.927 824:49,9),
4. Hermundur Sigmundsson Ir, 2191
(5,3235,6026,227,384:53,0).
Veitti arftakanum
viðurkenningu
„ÞEGAR ég bætti íslandsmet
Guðmundar Lárussonar á ólymp-
íuleikunum í Múnchen. sendi
Guðmundur mér heillaóskaskeyti
í tilefni þess. Þetta þótti mér
ákaflega vænt um, og ákvað þá
þegar, að þegar met mitt félli,
skyldi ég veita viðkomandi hlaup-
ara viðurkenningu.“ Þannig
mælti Bjarni Stefánsson, fyrrver-
andi spretthlaupari i spjalli við
Mbl. á Meistaramóti Islands i
frjálsíþróttum um helgina, en á
mótinu afhenti Bjarni Oddi Sig-
urðssyni viðurkenningu fyrir
nýsett íslandsmet í 400 metra
hlaupi.
Oddur bætti met Bjarna frá
Múnchen um 12 hundruðustu úr
sekúndu á frjálsíþróttamóti í
Vesterás í Svíþjóð í fyrri viku.
Bjarni var á sínum tíma sprett-
harðastur íslendinga og stóð sig
jafnan vel í keppni, jafnt heima
sem í útlöndum. Komst Bjarni í
milliriðla í 400 m hlaupi á Olymp-
íuleikunum í Múnchen 1972. Ekki
tókst Bjarna að slá íslandsmetin í
100 og 200 m hlaupum, þótt hann
hyggi stundum nærri þeim, eink-
um því siðarnefnda. Arftaki
Bjarna í 100 og 200 metra hlaup-
um var Vilmundur Vilhjálmsson
KR, og í fyrra var Oddur sprett-
harðasti Islendingurinn í 100 m,
200 m og 400 m hlaupum. — ágás.
Frjálsíþróttakonur
í Norðurlandabikar
LANDSLIÐ frjálsíþróttakvenna
er þátt tekur i Norðurlandabik-
arkeppni kvenna i Sviþjóð, næst-
komandi laugardag, hefur verið
valið. Það skipa eftirtaldar kon-
ur:
Helga Halldórsdóttir KR: 100 m
grind — 200 m og boðhlaup.
Oddný Árnadóttir ÍR: 100 m
hlaup og boðhlaup.
Þórdís Gísladóttir ÍR: hástökk —
langstökk og boðhlaup
Lilja Guðmundsdóttir ÍR: 3000 m
hlaup.
Guðrún Ingólfsdóttir Á: kúlu-
varp og kringlukast.
Dýrfinna Torfadóttir KA: spjót-
kast.
Hrönn Guðmundsdóttir UBK:
400 m og boðhlaup.
Rut Ólafsdóttir FH: 800 m og
boðhlaup.
Ragnheiður Ólafsdóttir FH: 1500
m hlaup.
Fararstjóri stúlknanna verður
Magnús Jakobsson stjórnarmað-
ur í Frjálsiþróttasambandi ís-
lands.
Hreinn Halldórsson sigraði Óskar i kúluvarpinu eftir spennandi
einvigi.
Guðni undir hnífinn
KÚLUVARPARINN ágæti,
Guðni Halldórsson KR, verður
ekki meira með i keppni í sumar,
þar sem hann gengst undir upp-
skurð nú i vikunni. Guðni hefur i
rúmt ár átt við meiðsli að striða i
lærvöðva vinstra læris, og kom
nýlega i ljós, eftir að hann hafði
gengið milli lækna og sérfræð-
inga, að vöðvinn var það skadd-
aður, að nauðsynlegt væri að
gera á honum aðgerð. Meiðslin
hafa háð Guðna verulega i keppn-
um, og nú er bara að vona að vel
til takist með aðgerðina og að við
fáum að sjá Guðna i keppni næsta
sumar.
— ágás.