Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981 13 Miklar gatnaframkvæmd- ir í Borgarnesi í sumar BorKarnesi. 22. júni. Gatnagerðarframkvæmdir verða með mesta móti í Borxarnesi í sumar. La)?t verður bundið slit- Uk á nokkrar «otur kauptúnsins auk þess sem unnið verður við frágang kantsteina ok Kan(?stétta. Á síðasta sumri var gert verulegt átak í lagningu bundins slitlags á götur í Borgarnesi. Áformað er að halda þessu verki áfram í sumar. Þær götur sem helst kemur til greina að leggja á í sumar eru Kjartansgata, Sæunnargata, Þór- ólfsgata, hluti Böðvarsgötu, Þór- unnargata, Þórðargata, Dílahæð og Borgarvík. Hreppsnefndin hefur sent íbúum þessara gatna dreifibréf til að kanna vilja íbúanna, þar sem þessar framkvæmdir hafa veruleg útgjöld í för með sér fyrir þá, þar sem framkvæmdirnar eru að veru- legu leyti fjármagnaðar með gatna- gerðagjöldum sem húseigendurnir þurfa að greiða. Gert er ráð fyrir að gatnagerð- argjald af 500 rúmmetra einbýlis- húsi sé um 18 þús. krónur miðað við núgildandi byggingarvísitölu. Gjald af raðhúsi og parhúsi einnar hæðar er um 67% af gjaldi einbýlishúss sömu stærðar og af raðhúsi og parhúsi tveggja hæða, 60%. 20% gjaldsins eru greidd sama ár og slitlagið er lagt, en eftirstöðvarnar með jöfnum afborgunum á næstu fjórum árum þar á eftir. Húseigendur sumra gatnanna hafa sent hreppsnefndinni ein- dregnar áskoranir um að leggja bundið slitlag á þeirra götur í sumar og er reiknað með að hrepps- nefndin taki sínar ákvarðanir um röðun framkvæmda með hliðsjón af slíkum áskorunum. Lagning bundins slitlags hefur haft forgang í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins undanfarin tvö ár auk gangstétta og fram- kvæmdum þeim tilheyrandi og verður nú eftir þetta sumar megnið af götum kauptúnsins lagðar bundnu slitlagi og ber nær öllum saman um að hér sé á ferðinni hið mesta nauðsynjamál. HBj. Frá Borgarnesi Það væsir ekki um mannskap- inn í garðhús- gögnum frá okkur. Komdu og kíktu á úrvalid, sem er geysilegt þessa dagana. í tilefni Jónsmessu verður opið til kl. 10 í kvöld. ■ Símar: 86080 og 86244 ar Húsgögn Ármúli 8 Jónsmessu Garðveizla á Á morgun miðvikudag 24. júní er Jónsmessa. Hvernig væri að bjóða vinum og vandamönnum í skemmtilega og eftirminnilega garðveizlu á Jónsmessu 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.