Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JUNI 1981 17 Heimsókn forseta íslands í Dalasýslu Pétur Þorsteinsson sýslumaður Dalasýslu afhendir forseta Islands, Vigdísi Finnbogadóttur. fyrsta fullgerða Ijósprentaða eintak Jónsbókar, sem kennt er við Skarð á Skarðsströnd. Afhendingin fór fram i hinni aldagömiu kirkju að Skarði. Á bak við forsetann og sýslumanninn situr elzti ibúinn á Skarði, Elinborg Magnúsdóttir, en hún er 86 ára að aldri. Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson. „Hér andar allt af sögu“ - sagði forseti ísland, Vigdís Finnbogadóttir, er hún tók við Skarðsbók í kirkjunni að Skarði Frá Ilildi II. SÍKurðardóttur, blaóa manni Mbl. á Hólmavik. FORSETI íslands, Vigdis Finn- bogadóttir, veitti á sunnudag viðtöku fyrsta fullgerða ljós- prentaða eintaki Jónsbókar, sem kennt er við Skarð á Skarðsströnd. Forseti tók við gjöfinni úr hendi Péturs Þor- steinssonar sýslumanns Dala- sýslu í hinni aldagömlu höfuð- kirkju á Skarði, ritunarstað Skarðsbókar. Dalasýsla var, eins og kunnugt er, fyrsti áfangastaður forseta i fyrstu opinberu heimsókn hennar inn- anlands og er þetta Ijósprentaða eintak gjöf Dalamanna til for- seta. Hafa varð hraðann á við að fullgera bókina og var það gert sama sólarhring og Vigdís kom í Dali. Skarðsbók þykir ein feg- ursta perla íslenzkra fornbók- mennta. Hefur verið unnið að útgáfu þessari um nokkurt skeið og mjög til hennar vandað. Um Skarð á Skarðsströnd gild- ir það sem forseti íslands sagði, er hún þakkaði Dalamönnum gjöfina: „Hér andar allt af sögu.“ Þar hefur hver höfðinginn af öðrum setið og ætíð sama ættin, eða frá því um ellefuhundruð og byggja nú staðinn fjórar kyn- slóðir Skarðverja. Forseti sagði við þetta tækifæri: „Á þessari stundu eru mér efst í huga þrjár óskir. Sú fyrsta er þessi að þessi bók verði ávallt varðveitt. Önnur, að menn verði ávallt læsir á hana, því þannig varðveitist tungan, og sú þriðja að niðjar okkar megi búa við frið og farsæld um alla framtíð.“ Þess má geta, að þetta fyrsta eintak af ljósprentun Skarðsbók- ar var fullgert sérstaklega fyrir Dalamenn til að færa forseta Islands að gjöf, en bókin er væntanleg á markaðinn á næstu vikum. Forsetanum var afhent Skarðsbók í kirkjunni að Skarði. Hér gengur hún frá kirkju ásamt fylgdarliði. Lengst til vinstri er séra Ingibergur Hannesson, en hann lýsti því sem markvert er í kirkjunni. Vigdís gengur við hlið Elinborgar Magnússen, en hún er elzti ibúinn að Skarði, 86 ára, og tók á móti forsetanum, er hún kom á staðinn, ásamt öðrum Skarðverjum. nýta megi leirinn sem orkugjafa og vinna í stórum stíl. Er hann hafði lokið máli sínu færði Kristinn Vigdísi að gjöf frá viðstöddum fimm arma kertastjaka, veglegan mjög. Er stjakinn smíði hjónanna Guðmundar Einarssonar leirkerasmiðs og Signýjar Jörunds- dóttur. Nefndi Auði djúpúðgu og Vigdísi í sömu andrá Þá flutti Þrúður Kristjánsdóttir kennari við Grunnskóla Búðardals Vigdísi kveðju Dalamanna og vott- aði forsetanum virðingu og hlýju þeirra. Nefndi Þrúður Auði djúp- úðgu og Vigdísi Finnbogadóttur í sömu andránni sem tvær stórhuga konur er ferðuðust um og vitjuðu landseta sinna. Þá skýrði Magnús Gestsson safn- vörður Byggðasafns Dalasýslu stuttlega frá innihaldi þeirrar merku bókar Skarðsbókar. Er þetta fyrsta nýja ljósprentaða eintak Skarðsbókar, en það var fullgert sólarhringinn, sem forsetinn kom í Dali vestur. Var það um kvöldið til sýnis í anddyri Dalabúðar en skyldi síðan formlega afhent forseta dag- inn eftir á Skarði á Skarðsströnd, þeim stað er bókin var rituð á um miðja 14. öld. Að lokum tók forseti íslands til máls og þakkaði Dalamönnum góð- an viðurgjörning en sagði síðan: „Góðar þykja mér gjafir ykkar, en meira þó verð vinátta ykkar. Ég á ekkert á móti nema vináttu mína.“ Forseti vék síðan að Skarðsbók og kvaðst lengi hafa vitað að sú bók væri konungsgersemi, enda hygðist hún færa Ólafi Noregskonungi hana að gjöf í haust. Vigdís sagðist færa börnum Dalasýslu þrjú tré að gjöf og myndi hún gróðursetja þau daginn eftir. „Ég tel mig skylda þessari sýslu“ sagði Vigdís m.a., en amma hennar, Magdalena Jónsdótt- ir, fæddist að Melum árið 1859 „og það kom aldrei annað til greina en að Dalirnir yrðu fyrstir. Dalirnir eru kvensterkasta sýslan í okkar sögu og ég tel mig til þeirra kvenna er gerðu garðinn frægan. Hér hef ég upplifað Ijúfari stundir en ég hef átt lengi og þetta að vera með fólkinu í landinu, það er það sem ég vil gera.“ Að loknum ræðuhöldum blandaði forsetinn geði við samkomugesti og var margt skrafað, en tala við- staddra mun hafa numið öllum íbúum Búðardals og vel betur. Á sunnudagsmorgun var haldið úr Búðardal með föruneyti og för- inni heitið að höfuðbólinu Skarði þarsem afhending Skarðsbókar skyldi fara fram. En fyrir brottför úr Búðardal gróðursetti forsetinn birkihríslurnar þrjár með ósk um að þær mættu vaxa og dafna og verða börnum Búðardals til gleði og ánægju og skoðaði því næst grunnskólann. Var síðan ekið fyrir Hvammsfjörð áleiðis á Strandir. Börn með fána hjá brúsapöllum í Árseii bættist Ásgeir Bjarnason í förina og var hann leiðsögumaður fyrir Strandir, enda frá mörgu að segja frá þeim stöðum og ekki komið að tómum kofunum þar sem Ásgeir er. Veðrið lék sama leikinn og daginn áður, rigningarsuddi um morguninn en birti fljótlega til er á daginn leið. Víðast hvar þar sem bílalest forsetans fór um voru fánar dregnir að húni og víða voru börn með fána hjá brúsapöllum og veif- uðu ákaft, þannig að greinilega voru fáir jafnóviðbúnir heimsókn þjóð- höfðingjans og ökumaðurinn óheppni. Stuttur stanz var gerður að Stað- arfelli þar sem áður var húsmæðra- skóli en er nú eftirmeðferðarheimili á vegum SÁÁ. Dvelja þar nú um 30 manns, að sögn forstöðumanns Grettis Pálssonar, en hann tók á móti Vigdísi ásamt Halldóri Þórðar- syni hreppstjóra í Fells- strandarhreppi. Á Skarði á Skarðsströnd hefur sama ættin búið allt frá tíð Hún- boga Þorgilssonar á 12. öld og mun það lengsta ættarseta á sama býli hér á landi. Nú búa á Skarði Kristinn Jónsson og kona hans, Þórunn Hilmarsdóttir, ásamt börn- um, Ingibjörg Kristinsdóttir og Jón Jónsson, foreldrar Kristins, og Elín- borg Magnússen, móðir Ingibjargar. Elínborg er 86 ára, elzti ættliður af fjórum á Skarði, og tók á móti forseta og fylgdarliði ásamt öðrum Skarðverjum. En á Skarði II búa hjónin Eggert Kristjánsson og Boga Kristinsdóttir ásamt syni sínum, Ólafi. „Þakka Dala- mönnum fyrir að vera til“ Að Skarði komst forsetinn svo að orði, að hér bergmálaði allt af sögu og lýsti gleði sinni yfir að vera „Sagt er nú að sólir tvær séu hér í Dölum “ Ilér fer á eftir drápa Skjaldar Stefánssonar hankastjóra Búnaðar- banka íslands í Búðardal. sem hann flutti forseta íslands í Dalabúð: Enn er landið ægi girt, eins og það var forðum. en ekki lengur lítilsvirt, þó laust sé margt í skorðum. Þjóðin sýnir dáð og dug. djörf á vegi stendur, ber sterkan vilja og vor í hug. ver hún byggð og strendur. Af vetrardvala er vakin jörð. vor á tindum glóði. Blessuð sólin Breiðaf jörð haðar geislaflóði. Fuglar kvaka. grasið grær. glóir rós á bólum. Sagt er nú að sólir tvær, séu hér í Dölum. Söngsins gleði í sálu manns saman hér við stillum. Forseta vors fagra lands fögnum öll og hyllum. Víst mun gleymast vetrarþraut er vorsins geislar skína. Kuldahreggin hurfu á braut við hingaðkomu þína. Innan tíðar aftur fer okkar kæri gestur. Dalabyggðin þakkar þér þessa heimsókn vestur. Þegar lánið þykir valt þá er bezta vömin, að vinna ættjörð vorri allt og vera góðu börnin. komin á eitt mesta menningarhöf- uðból landsins. Kirkjan á Skarði er aldagömul og ein örfárra bænda- kirkna á landinu. Hún hefur verið á sama stað frá tíð Ólafar ríku. í Skarðskirkju lýsti séra Ingiberg Hannesson því er markvert var fyrir forseta og var af nægu að taka. Síðan afhenti Pétur Þorsteinsson sýslumaður forsetanum hina nýút- komnu Skarðsbók, fegursta ís- lenzkra skinnbóka. Tók forseti við gjöfinni og flutti stutt ávarp og sagði að endingu: „Ég þakka Dala- mönnum fyrir að vera til.“ Við- staddir kváðu það þakklæti vera gagnkvæmt og var heldur ekki annað að sjá af þeim viðtökum sem Vigdís Finnbogadóttir fékk í Dala- sýslu. Vigdís færði börnum Dalasýslu þrjú tré að gjöf. sem hún gróðursetti sjálf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.