Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981 Sex brautskráðir frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík Tónlistarskólanum i Reykjavik var sant upp föstu- daginn 22. maí i IIáteij{s- kirkju. Við athöfnina léku Camilla Söderherg ok Helj;a InKÓlfsdóttir á blokkflautu <>g semhal <>k kór Tónlistar- skólans sönK undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Skólastjórinn, Jón Nordal, flutti skólaslitaræðu og sagði frá vetrarstarfinu sem hefur verið óvenju fjölbreytt og blómlegt, en á þessu ári hefur hálfrar aldar afmælis skólans verið minnst á ýmsan hátt, m.a. með tónleikum, nám- skeiðahaldi og á annan hátt. Sex nemendur brautskráðust í vor, tveir blásarakennarar: Oddur Björnsson og Skarphéð- inn H. Einarsson og fjórir píanókennarar: Hjálmur Sighvatsson, Sigurður Mart- einsson, Þórunn H. Guð- mundsdóttir og Dagný Björg- vinsdóttir. Sú síðastnefnda lauk einnig burtfararprófi í píanóleik. Leiðrétting í frétt um 17. júni-hátiðahöldin á Þorlákshöfn var mishermt að lúðrasveit úr Kópavogi heíði leik- ið þar. Hið rétta er að það var lúðra- sveit úr Laugarnesskóla í Reykja- vík, sem lék í Þorlákshöfn. Eru meðlimir og aðstandendur sveit- arinnar beðnir velvirðingar á þessu. Leiðrétting Þau mistök urðu i blaðinu á sunnudag að i fyrirsögn i frétt frá aðalfundi Sambands sunn- lenskra kvenna var Sigurhanna Gunnarsdóttir sögð vera formað- ur. Hið rétta er, eins og fram kemur í fréttinni, að Sigurhanna lét af formennsku og við tók Halla Aðalsteinsdóttir. Eru viðkomandi hér með beðnir velvirðingar á þessum leiðu mis- tökum. Magnús K. Indriðason l>að er skoðun vor. að trú á guð veiti láfinu tilgang og takmark. að bræðralag manna sé þjóðarstolti æðra. Þannig er upphaf einkunnar- orða JC-hreyfingarinnar, og sam- kvæmt þeim lifðu og störfuðu þeir fjórir félagar okkar, sem við nú kveðjum hinzta sinni. Allir áttu þeir það sammerkt, að vera traustir félagar og dyggir, trúir þeim málstað og þeirri hreyfingu, Það voru hörmuleg tíðindi em bárust snemma að morgni upp- stigningardags þann 28. maí sl. Litla flugvélin sem Magnús mágur minn hafði farið á kvöldið áður var týnd, en hann og þrír aðrir félagar hans höfðu ætlað norður á Akureyri á landsþing JC sem halda átti þá um helgina. Flestum er víst enn í fersku minni sú umfangsmikla leit sem fór fram dagana á eftir, jafnt úr lofti sem á landi. Það var þó ekki fyrr en hálfum mánuði síðar að kvöldi hins 10. júní sl. að flak litlu flugvélarinnar TF-ROM fannst. Hinni löngu og þrúgandi bið var lokið en eftir stóð sú nöturlega staðreynd að fjórir ungir menn í blóma lífsins voru látnir. Það stoðar víst lítið að spyrja hvað valdi slíkum firnum. Rétt er það að mörg eru slysin og þau gera sjaldnast boð á undan sér. Við vitum það einnig að dauðinn er orðinn okkur svo fjarlægur að við erum hætt að gera ráð fyrir Jóhann Kr. Briem sem þeir kusu að starfa í, jafnt í hlutverki óbreyttra félaga, sem í forystu. Þær stundir sem við áttum saman í starfi og leik, verða ekki rifjaðar upp í einu vetfangi, enda slíkt ekki ætlunin hér. Ánægju- og gleðistundir koma eðlilega fyrst í hugann, en af þeim var jafnan gnægð í þeirra félagsskap. Ræðu- námskeið, ræðugerð og keppnir honum og samt stendur „eitt sinn skal hver deyja“. Þrátt fyrir þessa vitneskju er ákaf'.ega erfitt að sætta sig við það þegar ungt fólk fellur svo skyndilega í valinn eins og hér hefur orðið. Við sem eftir lifum stöndum magnþrota og finnst við lítils megnug því litli heimurinn okkar hefur hrunið að einhverju eða öllu leyti og birtan á erfitt með að brjótast í gegnum myrkrið sem umlykur. Það er aftur á móti öllum fullljóst að því verður ekki breytt sem orðið er og því verður að herða upp hugann og horfast í augu við raunveruleikann þótt mörgum finnist það sárt. Magnús Kristján Indriðason fæddist í Reykjavík 1. október 1948, sonur hjónanna Selmu Frið- geirsdóttur og Indriða Guðjóns- sonar Átján ára gamall gerðist Magnús verslunarstjóri hjá Silla og Valda í Ásgarði og nokkrum árum síðar keypti hann svo versl- unina og rak hana allt til dánar- Hjörleifur Einarsson eru ríkur þáttur í starfi okkar í JC, sem þeir tóku virkan þátt í, sem aðrir. En það er með ræðurn- ar eins og lífið, að upphaf og endi er jafnan erfiðast að gera þannig úr garði, að fyllilega sé hægt að sætta sig við það. Þeir eignuðust fjölmarga vini í gegnum störf sín, og voru í miklum metum í félagi okkar og innan hreyfingarinnar. Nú er rof- ið stórt skarð í okkar fámenna og samheldna hóp. Þetta skarð er þó ekki eins tilfinnanlegt og þau dægurs. Árið 1972 kvæntist Magn- ús eftirlifandi konu sinni Erlu Lóu Jónsdóttur og eignuðust þau tvo syni, Pál Inga, 9 ára, og Magnús Braga, 5 ára. Magnús hafði áður eignast dóttur, önnu Björk, sem nú er á 13. ári. Ég kynntist Magnúsi fyrst árið 1965. Hann var þá á 17. ári og bjó í foreldrahúsum ásamt fjórum systkinum sínum. Það sem vakti hvað mesta athygli mína var sú mikla samheldni sem var með fjölskyldunni í Langagerði 80. Hefur þessi samheldni alla tið einkennt systkinin þótt breytingar hafi orðið á högum þeirra og þau stofnað eigin heimili. Á þessum árum brosti lífið við þessum unga pilti sem var til- búinn að takast á við heiminn fullur af eldmóði og ákafa æsku- mannsins. Magnús starfaði þá í versluninni Borgarkjör enda beindist áhugi hans mjög í þá átt. Rúmlega 18 ára gerðist hann svo verslunarstjóri hjá Silla og Valda í Ásgarði og leisti hann það starf af hendi með mikilli prýði. Mér og mörgum öðrum er kynntust Magnúsi vel varð það fljótlega ljóst að þar fór valmenni. Rafn Ilaraldsson skörð, sem höggvin hafa verið í fjölskyldur þeirra. Við í JC-Borg erum þakklátir og hreyknir af að hafa kynnst og starfað með þessum drengjum. Þau kynni verða geymd en ekki gleymd. Blessuð sé minning þeirra. Við og fjölskyldur okkar biðjum guð að styrkja ástvini þeirra á þessari raunastund, og sendum þeim okkar dýpstu samúðarkveðj- Þótt svo að sumum sem minna þekktu til hans þætti hann stund- um snöggur upp á lagið vissum við er nær honum stóðu að hann var hreinskiptin og drengur góður sem alltaf var tilbúinn að rétta fram höndina þegar á bjátaði. Allt sem Magnús tók sér fyrir hendur vann hann af krafti og ósérplægni og vart hefur félögum hans í JC-Borg dulist það að hann var dugandi og áhugassamur félagi. Alla vega fór það ekki fram hjá okkur er fyrir utan stóðum að sá félagsskapur átti hug hans allan og hann hafði sérstaka ánægju af að vinna fyrir félagið að hinum margvíslegu verkefnum sem þar þurfti að vinna. Er Magnús keypti verslunina i Ásgarði dreif hann hana áfram með dugnaði og krafti sem var svo einkennandi fyrir hann. Um sama leyti byggði hann sér íbúð í Marklandi 8.1 félagi um byggingu stigahússins voru tvö systkina hans, Ingibjörg og Friðgeir, en þeir bræður voru ákaflega sam- rýndir alla tíð enda ekki nema rúmt ár á milli þeirra. Árið 1977 flutti Magnús svo með fjölskyldu sína í nýtt hús sem hann byggði að Lundahólum 6. Magnús vann alla tíð langan vinnudag, en gaf sér þó alltaf tíma til að vera með fjöl- skyldu sinni sem hann lét sér mjög annt um. En við hið skyndi- lega fráfall Magnúsar hefur nú myndast tóm, ekki síst hjá þeim sem hann var svo mikils virði. Því þó að hann væri ungur að árum hafði hann unnið sér trausts og virðingar svo margra. Erlu Lóu, drengjunum hans, foreldrum, systkinum og öðru venslafólki votta ég mína dýpstu hryggð því þau hafa misst góðan dreng. Það skulu verða mín síðustu kveðjuorð til hans að setja á blað lítið kvæði eftir Tómas Guð- mundsson. Megi svo allir góðir vættir fylgja honum yfir landa- mærin: 1 dimmum skuKKa af IrinKU MAnum votrl mitt Ijóð til þín var árum saman Krafió. Svo unKur varstu. or hvarfstu út á hafið, huKljúfur. Klæstur. öllum drenKjum betri. Or því varð allt svo hljótt viö hclfrcKn þina sem hefói klökkur KÍKjustrenKur brostiA. Ok enn ók veit marKt hjarta harmi lostió. sem huKsar til þin alla da«a sina. En meóan árin þreyta hjörtu hinna. sem horfóu á eftir þér í sárum trexa. þá hlómKast enn ok hlómKast ævinleKa þitt hjarta vor i huKum vina þinna. Ok skin ein Ijúfast ævi þeirra yfir, sem unK á morvfni lifsins staóar nemur. ok eilífleKa. óháó þvi scm kemur. í æsku sinnar Kullnu fe^urÓ lifir. Sem sjálfur Drottin mildum lófa lyki um lifsins perlu i Kullnu auKnahliki.— t Konan mín, HERMÍNA INGVARSDÓTTIR fré Gillastööum, Reykhólasveit, Hverfisgötu 102, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 19. júnf. Eyjólfur Sveinsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, JÓN EGGERT BACHMANN LÁRUSSON, loftskeytamaöur, Ljósheimum 16B, lést í Borgarspítalanum 20. júní sl. Helga Guöjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUORÚN VERNHARÐSDÓTTIR frá Stóru-Drageyri, Grettisgötu 27, verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaglnn 25. júní kl. 3 e.h. Þuríður Guðmundsdóttir, Stefán Gíslason, Halldóra Guömundsdóttir, Jón G.K. Jónsson, Guóbjörg Guðmundsdóttir, Vernharóur Guömundsson, Camilla Lydia Thejll. Guöbrandur Guðmundsson, Elín S. Aöalsteinsdóttir, Kristófer Guömundsson, Hlíf Traustadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, ÓLAFUR INGIBERG HALLDÓRSSON, rennismiður, Grettisgötu 22, verður jarösettur frá Fossvogskirkju miövikudaginn 24. júní kl. 13.30. Eygló Jónsdóttir, Steinunn Ólafsdóftir, Valgarður Zophaníasson og afabörn. + Þökkum innileg auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐNÝJARJÓNATANSDÓTTUR, Holtsgötu 34. Þórey Þóröardóttir, Gunnar Hjálmarsson, Auóur Stella Þórðardóttir, Daníel Gestsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum viö öllum fyrlr auösýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu mlnnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, MAGNEU G. JÓNSDÓTTUR. Sérstakar alúöarþakkir færum viö læknum og hjúkrunarliöi á Borgarspítalanum, Landakotsspítalanum og heimilislæknl okkar, svo og öörum í lækna- og hjúkrunarstétt fyrlr auösýnda umönnun og hjálpsemi fyrr og síöar. Baldur Guömundsson, Hafliði Baldursson, Hildur Þorláksdóttir, Brynja Baldursdóttir, Guömundur Jónsson, Guðmundur Ó. Baldursson, Helga K. Stefánsdóttir, Halldóra Baldursdóttir, Hilmar Sigurjónsson, Jón Baldursson og barnabörn. Minning JC-félaga JC-Borg Magnús Kristján Indriðason — Minning Bjórn Þorstcinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.