Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 25
24 MOROUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ1981 25 Meistaraheppni með Víkingum Skagamenn hafa ekki skoraö í 450 mínútur VÍKINGAR IIÖFÐU moistarahoppnina með sér upp á Skipaskaga er þeir léku við AkurnesinKa ok si«ruðu þá 1—0 í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu. Skagamenn réðu loKum ok lofum á vellinum í fyrri hálfleik ok fjórum sinnum small knötturinn i stengur ok slá VíkinKsmarksins án þess að mark yrði, auk þess sem Guðbirni TryKKvasyni tókst að misnota vítaspyrnu í lok fyrri hálfleiksins. Seinni hálfleikur var jafnari ok þá tókst bórði Marelssyni að tryKKja Víkinsum bæði stÍKÍn með eina marki leiksins. Þar með hafa Víkingar náð 2 stiga forskoti í 1. deild en Skanamenn hafa nú ekki skorað mark í 450 mínútur eða í fimm leikjum. Skagamenn tóku leikinn strax í sínar hendur og voru Víkingar nánast eins og statistar á vellin- um. Skagamennirnir voru fljótari á boltann og unnu nær hvert einasta návígi, léku laglega upp kantana og sköpuðu sér hvert færið á eftir öðru. Á 7. mínútu á Guðbjörn skot rétt framhjá Vík- ingsmarkinu og 6 mínútum síðar mistekst Jóni Alfreðssyni skalli í góðu færi eftir laglegan samleik Kristjáns og Árna. Á 17. mínútu á Júlíus hörkuskot í stöng eftir sendingu frá Jóni Alfreðssyni knötturinn hrökk út i teiginn og þar náði einn Skagamanna að skjóta að marki en knötturinn hrökk af Víkingi í þverslána og yfir. Úr hornspyrnunni ná Skaga- menn enn að skalla að Víkings- markinu, en Diðrik varði. Á 21. mínútu komst Gunnar Jónsson í gott færi, en Diðrik varði hörku- skot hans í stöng og út á völlinn. Á 23. mínútu komst Guðbjörn á auðan sjó inn fyrir Víkingsvörn- ina og fram hjá Diðrik, eftir góða stungusendingu frá Júlíusi, en hann skaut í stöng og afturfyrir úr þröngu færi. Á 27. mínútu skallar Sigurður Halldórsson rétt framhjá eftir aukaspyrnu Jóns Alfreðssonar. Sókn Skagamanna buldi áfram á Víkingsvörninni sem tókst þó að verjast skakka- föllum þar til á 40. mínútu að Ragnar Gíslason hrindir einum Skagamanna inni í vítateig og Óli Ólsen dómari dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. En það kom fyrir ekki, Guðbirni Tryggvasyni tókst að skjóta framhjá og þar með virtust Skagamenn vissir um að þeir gætu alls ekki skorað. Víkingar fóru hins vegar að eygja möguleika og mínútu síðar braust Lárus í gegn- um vinstri vænt IA-varnarinnar, en Bjarni markvörður kom vel út á móti honum og tókst að verja í horn. Ekki tókst Víkingum að nýta sér hornspyrnuna og síðasta færi hálfleiksins féll Gunnari Jónssyni í skaut, en hann sendi knöttinn himinhátt yfir Vík- ingsmarkið. Skagamenn voru einnig að- gangsharðari í byrjun seinni hálf- leiks og strax á 47. mínútu skallaði Sigurður Lárusson naumlega framhjá Víkingsmarkinu og mín- útu síðar varði Diðrik hörkuskot Jóns Alfreðssonar í horn. Á 50. mínútu skallaði Gunnar Jónsson framhjá eftir sendingu Guðbjarn- ar. En þá fóru Víkingar að sækja meira og verða skeinuhættari við mark Skagamanna og á 62. mín- útu kom svo reiðarslag Akurnes- inga er Þóröur Marelsson skoraði af stuttu færi. Hann skaut föstu skoti að markinu, sem rataði í netið með viðkpmu í einum af varnarmönnum ÍA og fékk Bjarni ekki rönd við reist enda hafði hann kastað sér í öfugt horn. Næstu færi voru svo Víkinga, Bjarni varði skot Óskars á 65. mínútu og rétt á eftir skaut Hörður Sigurðsson í hliðarnet ÍA-marksins úr þröngu færi. En Skagamenn voru ekki á því að gefast upp og Guðbjörn komst í gegn um Víkingsvörnina er um stundarfjórðungur var eftir af leiknum en skaut á markið úr nær vonlausu færi í stað þess að gefa knöttinn á samherja sína sem voru í mun betra færi og er 10 mínútur voru til leiksloka skaut Kristján framhjá Víkingsmarkinu úr fremur þröngu færi. Það sem eftir lifði leiksins tókst hvorugu liðinu að skapa sér afgerandi marktækifæri og því voru það Víkingar sem fögnuðu enn einum sigrinum í leikslok. ÍAi n 4 Víkingur (1:1 Leikurinn var nokkuð vel leik- inn, einkum af hálfu Skagamanna í fyrri hálfleik. Þá léku þeir vel saman, brutust upp kantana og sköpuðu sér mýmörg færi, sem ekki tókst að nýta og er það greinilega höfuðverkur þeirra um þessar mundir hve illa gengur að skora mörk. Það er engu líkara en þeir séu sannfærðir um að þeir hreinlega geti það ekki og það kann ekki góðri lukku að stýra. Víkingsliðið lék hreinlega illa í fyrri hálfleik, barátta var lítil og samleikur ónákvæmur og leikkerf- ið virtist hafa gleymzt heima, þegar þeir áttuðu sig hins vegar á því að þeir áttu möguleika í leiknum náðu þeir að rífa sig upp ög léku þá þokkalega á köflum, en ekki er hægt að segja að sigurinn hafi verið sanngjarn. Hefði Skagamönnum tekist að skora úr einu eða fleirum af hinum mý- mörgu færum sínum í fyrri hálf- leik er ekki gott að segja hvernig farið hefði. Hjá Skagamönnum bar mest á Sigurði Halldórssyni, Árna Sveinssyni og Jóni Alfreðssyni, en hjá Víkingi báru þeir Diðrik og Þórður höfuð og herðar yfir félaga sína. Leikinn dæmdi Óli Ólsen og fórst honum það hlutverk vel úr hendi. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild ÍA — Vík- ingur 0—1 (0—0). Mark Víkings: Þórður Marelsson (62. mín.) Áminning: Ragnar Gíslason Vík- mgi. Dómari: Óli Ólsen. HG. tARE VrlLL Diðrik átti stórleik. Einkunnagjðfln FH Hreggviður Ágústsson 7 f A Bjarni Sigurðsson 7 Valur Sigurður Haraldsson Guðmundur Hilmarsson 6 Jón Áskelsson fi Óttar Sveinsson Helgi Ragnarsson fi Guðjón Þórðarson 6 Grímur Sæmundscn Guðmundur Kjartansson 7 Sigurður Lárusson 7 Dýri Guðmundsson Gunnar Bjarnason 7 Sigurður Halldórsson 8 Sævar Jónsson Magnús Teitsson fi Jón Alfreðsson 7 Þorvaldur Þorvaldsson Ingi Björn Albertsson 8 Árni Sveinsson 7 Jón G. Bergs Ólafur Danivalsson 7 Júlíus Ingólfsson 6 Magni Pétursson Tómas Pálsson 7 Gunnar Jónsson 6 Hilmar Harðarson Pálmi Jónsson 6 Guðbjörn Tryggvason 5 Þorsteinn Sigurðsson Viðar Halldórsson 8 Kristján Olgeirsson G Hilmar Sighvatsson Ásgeir Arnbjörnsson (vm) 5 Smári Guðjónsson var of stutt Valur Valsson (vm) Sigurþór Þórólfsson (vm) 5 inná til að fá einkunn. Njáll Eiðsson (vm) lék ekki nóg. Fram Guðmundur Baldursson 4 Víkingur Diðrik Ólafsson 8 UBK Guðmundur Ásgeirsson Helgi Helgason Gústaf Björnsson 4 Ragnar Gíslason 5 Tómas Tómasson Trausti Haraldsson fi Magnús Þorvaldsson 6 Valdemar Valdemarsson Þorsteinn Þorsteinsson 6 Helgi Helgason 6 Ólafur Björnsson Marteinn Geirsson fi Jóhannes Bárðarson 5 Björn Egilsson Ársæll Kristjánsson fi Þórður Marelsson 8 Vignir Baldursson Ágúst Ilauksson 5 Ómar Torfason G Jóhann Grétarsson Albert Jónsson 5 Gunnlaugur Kristfinnsson fi Sigurjón Kristjánsson Guðmundur Torfas<»n fi Heimir Karlsson 5 Helgi Bentsson Pétur Ormslev 4 Jóhann Þorvarðarson 5 Jón Einarsson Guðmundur Steinsson 4 Lárus Guðmundsson 7 Hákon Gunnarsson (vm) lék í Halldór Arason (vm) 4 óskar Tómasson (vm) 5 mín. Wmmmmmm mmmmm wammm Viðar Halldórsson lætur skot riða af að marki Fram. Viðar átti stórleik fyrir FH. þAÐ ER greinilegt. að jafnteflið gegn UBK fyrir nokkru og þar með fyrsta stig FH á þessu Islandsmóti. hefur haft gifurleg áhrif til hins betra á leikmenn liðsins, miklu fargi af þeim létt. „Þetta er það sem við viljum fá fyrir peningana,“ og fleira í slíkum dúr mátti heyra áhorfendur tuldra í barminn er þeir gengu himinlifandi frá Kaplakrikavellinum á laugardaginn. en FH hafði þá nýlokið við að tryggja sér fyrsta sigur sinn á mótinu. Það voru Framarar sem komu í heimsókn og hefðu betur heima setið, því FH-ingar tóku þá i bakaríið og má mikið vera ef þetta var ekki einn besti leikur FH í mörg ár. Lokatölurnar næstum ótrúlegar, 5—1 fyrir FH, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 2—0. Ef undan er skilinn sigur Þórs gegn Fram á dögunum. þá voru þetta einhver óvæntustu úrslit mótsins. Er það vafasamur heiður Framara. að vera jafnan á óæðri enda umræddra úrslita. FH: Fram 5:1 Annars var þetta hörkuleikur og þegar boðið er upp á slíkt á Kaplakrika, dettur manni fyrst í hug hversu slæmt er hvað fá- mennt jafnan er á áhorf- endastæðunum, aðeins rúmir 200 á laugardaginn. Þrátt fyrir að fjögur af sex mörkum leiksins kæmu í síðari hálfleik, þá var sá fyrri betur leikinn, einkum af hálfu Fram. Undirbúningsvinna liðsins, samleikurinn úti á vellin- um, var oft stórgóð, eða þar til að vítateig FH kom. Þar var fyrir gerbreytt vörn, Guðmundur Kjartansson í góðu formi og Gunnar Bjarnason lék sinn besta leik í sumar. Aðgerðir Framara runnu undantekningarlaust út er mest á reið að halda þeim við og því kom góð knattspyrna liðsins úti á vellinum að litium notum þegar upp var staðið, nema að því leyti að þær gerðu leikinn þeim mun skemmtilegri á að horfa. En FH-ingar voru beittari, þeir voru að vísu ívið minna með knöttinn, en notuðu hann þeim mun betur er færi gáfust. Þannig var Ólafur Danivalsson, sem lék sinn fyrsta leik með FH eftir talsvert hlé, nálægt því að skora með skalla strax á 8. mínútu leiksins. En á 29. mínútu kom síðan fyrsta markið. Hreggviður spyrnti þá frá marki og skoppaði knötturinn niður ná- lægt miðjum vallarhelmingi Fram, yfir Inga Björn og Ársæl sem báðir stukku upp. Komu atvik öll vörn Fram í opna skjöldu, en Ólafur Danivalsson var glaðvak- andi, hirti knöttinn og renndi honum fyrir markið frá vinstri. Guðmundur markvörður Bald- ursson missti knöttinn klaufalega frá sér og eftirleikurinn var Tóm- asi Pálssyni auðveldur, 1—0. Eftir markið gengu sóknarlot- urnar markana á milli og var sem fyrr mikið bitleysi hjá Fram þrátt fyrir góðan samleik. Pálmi Jóns- son átti hins vegar eftir að koma við sögu áður en blásið var til leikhlés. Á 38. mínútu var hann hársbreidd frá því að reka höfuðið í góða fyrirgjöf Viðars Halldórs- sonar og hefði ekki þurft að spyrja að endalokunum ef hann hefði hæft knöttinn, slíkt var dauðafær- ið. En á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks brölti Pálmi síðan í gegn um nokkur samstuð, hafði knött- inn með sér og er hann var kominn að vinstra vítateigshorni Fram, renndi hann knettinum út á Inga Björn Albertsson. Ingi Björn var ekkert að tvínóna við hlutina, heldur lét rosalegt þrumuskot ríða af, og fór knötturinn í netið með viðkomu í vinklinum hægra meg- in! Eitthvert glæsilegasta mark sem undirritaður hefur augum litið og má mikið vera ef einhver skorar glæsilegra mark á þessu íslandsmóti eða næstu mótum. Sem sagt 2—0 og varla tími fyrir Fram að hefja leikinn. Síðari hálfleikurinn var mun þófkenndari framan af, Framarar ætluðu greinilega að reyna að sækja meira, Marteinn fór æ oftar fram og dvaldist lengur hverju sinni. Þá lék Viðar greinilega mun aftar á vellinum hjá FH heldur en í fyrri hálfleiknum. Sókn Fram gerðist þung, en það voru samt FH-ingar sem áttu betri færin, er þeir náðu góðum skyndisóknum. Þannig varði Guðmundur Bald- ursson mjög vel fast langskot Ásgeirs Árnbjörnssonar á 62. mínútu og skömmu síðar var Ingi Björn í góðu skallafæri við fjær- stöngina, eftir aukaspyrnu Helga Ragnarssonar, en hitti knöttinn illa. Á 76. og 77. mínútum leiksins má segja FH-inga hafa greitt Fram náðarstuðið. Á fyrri minút- unni sendi Helgi Ragnarsson langa sendingu fram á völlinn og hóf Pálmi Jónsson þegar eftirför. Guðmundur Baldursson mark- vörður virtist hins vegar í fljótu bragði hafa alla möguleika á því að verða fyrri til knattarins, en hikaði með þeim afleiðingum, að sprettur Pálma borgaði sig, hann náði knettinum, lék rólega á Guð- mund og skoraði síðan örugglega, enda markið tómt. Á síðari mínút- unni var það Ólafur Danivalsson sem opnaði vörn Fram með miklu harðfylgi. Guðmundur markvörð- ur varði vel fast skot Ólafs, hélt knettinum hins vegar ekki og Ingi Björn var ekki lengi að notfæra sér það og skoraði af stuttu færi. FH-ingar hófu nú að taka leik- inn með ró, og leikmönnum Fram til hróss, gáfust þeir ekki upp og settu nýjan og aukinn kraft í sóknina með þeim afleiðingum, að skyndilega fóru þeir að skapa sér tækifæri. Guðmundur Steinsson klúðraði einu dauðafæri á hræði- legan hátt og Hreggviður Ágústs- son varði meistaraiega lúmskt skot Halldórs Arasonar. Hinu megin á vellinum opnaðist vörn Fram enn meira við hinar auknu sóknaraðgerðir og Ingi Björn fékk ákjósanlegt færi til þess að full- komna þrennu, en Guðmundur varði vel skot hans. Fram skoraði mark sitt loks á síðustu mínútu leiksins, há sending kom að víta- teigslinu FH frá hægri, Marteinn bjó sig undir að taka við knettin- um, en Guðmundur Torfason sem var að baki Marteins hrópaði til hans að láta knöttinn fara. Mart- einn varð góðfúslega við beiðninni og Guðmundur sveik ekki með næst glæsilegasta marki leiksins, þrumuskoti efst í markhornið fjær. En FH-ingar höfðu ekki sagt sitt síðasta orð, tæpri mínútu síðar labbaði Ingi Björn í gegn um vörn Fram, sendi knöttinn síðan á Viðar Halldórsson, sem hafði fylgt honum upp völlinn. Og Viðar læddi knettinum með lausu skoti fram hjá markverði Fram, sem gerði ekki tilraun til þess að verja, 5—1. Hefðu liðin vafalaust haldið áfram að hrúga niður mörkum ef tími hefði gefist. FH-ingar léku þarna sinn lang besta leik á sumrinu og örugglega þó mun lengra væri krufið aftur í tímann. Enginn leikmanna liðsins verður sakaður um að gefa eftir sinn hlut og nokkrir áttu stórleik. Viðar og Ingi Björn báru nokkuð af hjá FH, en þeir Pálmi Jónsson, Tómas Pálsson, Gunnar Bjarna- son og Guðmundur Kjartansson stóðu sig allir mjög vel. Og ekki má gleyma Ólafi Danivalssyni, sem gerði oft mikinn usla í vörn Fram, lagði m.a. upp tvö mörk. Frammistaða Fram var dálítið einkennileg, þ.e.a.s. þrátt fyrir 1—5 tap og stórgóðan leik FH, þá var Fram-liðið ekki fjórum mörk- um slakara. En mikilvægir þættir brugðust hjá Fram, framlínan var bitlaus og náði ekki að vinna úr góðum samleik miðvallarleik- mannanna og varnarmannanna. Vissulega er ekki hægt að neita því, að vörn Fram opnaðist illa á köflum, en séð úr blaðamanna- hreysinu hefði Guðmundur m.irk- vörður Baldursson átt að geta komið í veg fyrir 2—3 af mörkum FH, eða mark númer eitt, þrjú og fimm. Marteinn og Trausti voru þokkalegir í þessum leik og aðrir gerðu laglega hluti, ekki síst miðvörðurinn ungi Þorsteinn Þorsteinsson, sem er geysilegt efni. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild: FH— Fram 5-1 (2-0). Mörk FH: Tómas Pálsson (29.), Ingi Björn Albertsson (45. og 77.), Pálmi Jónsson (76.) og Viðar Halldórsson (91.). Mark Fram: Guðmundur Torfa- son (90.). Áminning: Gunnar Bjarnason FH. Áhorfendur: 210. Dómari: Róbert Jónsson. — gg. Blikarnir voru nær sigri — en dómgæslan svipti Val marki Ingi Björn skoraði mark sumarsins — er FH-ingar tóku Fram í kennslustund í markaskorun UBK OG Valur deildu með sér stigum i 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu. er liðin skildu jöfn í markalausum leik á Laugardals- vellinum á sunnudagskvöldið. Þetta var slakur. þófkenndur ug harður leikur. en samt sem áður sem leikur þar sem UBK hefði átt að vera búið að gera út um leikinn áður en dómgæsla Þor- varðar Björnssonar klekkti á Val. Er hálf leiðinlegt að horfa upp á tvö af betri liðum deildar- innar leika slaka knattspyrnu eins og reyndin var að þessu sinni. þau geta bæði leikið ágæt- lega. en allt slíkt vék fyrir kýlingum og baráttuþófi. Fyrri hálfleikurinn var með eindæmum tíðindalítill og var meira að segja minnisbókinni orð- ið kalt á hangsinu. Aðeins tvívegis sperrtu menn sig upp og pírðu í spennu út á völlinn. I báðum tilvikum sóttu Blikarnir og Jón Einarsson, fyrrum Valsmaður, á ferðinni. Fyrra atvikið var á áttundu mínútu, er Jón komst inn fyrir vörn Vals og renndi út til Sigurjóns Kristjánssonar. En Sævar Jónsson, sem var besti maður Vals í leiknum, rak tána á milli á síðustu stundu og afstýrði þannig næstum öruggu marki. Skömmu síðar komst Jón á auðan sjó, í sannkallað dauðafæri, en hikaði um of að skjóta og aftur bjargaði Sævar liði sínu með sinni löngu tá. Síðari hálfleikur var ekki nema 8 mínútna gamall, er Jón komst enn einu sinni inn fyrir vörn Vals, bókstaflega spólaði fram hjá Grími Sæmundsen, en aftur beið Jón of lengi með skotið og Sigurði Haraldssyni tókst að verja með góðu úthlaupi. I sannleika sagt áttu Valsmenn ekki eitt einasta færi í leiknum þangað til á 84. mínútu leiksins, en þá greip dóm- arinn, Þorvarður Björnsson inn í. Loksins áttu Valsmenn efnilega sóknarlotu og Þorsteinn Sigurðs- son sendi fyrir markið frá hægri og Guðmundur markvörður Ás- geirs'son missti knöttinn furðu klaufalega út úr höndunum á sér með þeim afleiðingum að Hilmar Sighvatsson skoraði að því er virtist gott mark þó ódýrt hefði verið. En dómarinn dæmdi öllum á óvart aukaspyrnu á Hilmar og var mál manna að hann hefði dæmt hendi á Valsmanninn. Mín- útu síðar þótti mörgum Þorvarður þó gera enn ljótari skyssu, er hann dæmdi aukaspyrnu á UBK og Valur: n n ubk 0:0 stöðvaði um leið sóknarlotu Vals, þar sem Valur Valsson var kom- inn á auðan sjó og í dauðafæri við mark UBK. Hræðilegt að sjá brotlega liðið hagnast á þennan hátt, þó svo að sigur Vals hefði verið ósanngjarn. Það sem hér er rakið, er í stórum dráttum það eina sem gerðist í þessum leik, sem rifjandi er upp. Fimm punktar á 90 mínútum. Ekki beint vestur-þýska Búndeslígan það. Þóf, barátta, meira að segja gífurleg barátta og mikil leikgleði hjá UBK var á hinn bóginn einkennandi í leiknum. Þetta var leikur sterkra varna og miðvallarbrölts. Hjá Val var Sævar afar sterkur og bjargaði þrívegis á örlagaríkum augnablik- um. Dýri var einnig góður, svo og Óttar. Miðvallarleikmennirnir börðust vel, en framlínumennirnir voru slakir. Hjá UBK voru Valde- mar og Ólafur Björnsson sterkast- ir og Tómas Tómasson átti einn af sínum betri leikjum. Miðvallar- leikmennirnir náðu aldrei afger- andi tökum á sínu svæði frekar en “ tengiliðir mótherjanna og fram- línumenn UBK voru með daufara móti þrátt fyrir að leikgleðin og kappið hafi verið á sínum stað. Reyndar má ekki gleyma því, að Jón Einarsson átti nokkra mjög góða spretti í leiknum og fór þá illa með vörn Vals. En hann var klaufi að nýta ekki færin sem hann fékk. Það kostaði UBK annað stigið að þessu sinni. UBK er enn'ósigrað í 1. deiid, en liðið verður aldrei meistari með sama áframhaldi. Liðið verður að skora mörk. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild: Valur:UBK 0-0. Áminningar: Ólafur Björnsson UBK. Áhorfendur: 1953. Dómari: Þorvarður Björnsson. — KK , mm • Jón Einarsson (t.v.) var vörn Vals stundum hættulegur. Hér er hann í baráttu við Valsmanninn óttar Sveinsson. Valsmenn sækja að marki UBK, en Guðmundur Ásgeirsson gripur vel inn I. Ljósm. Guój<>n.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.