Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.06.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981 Minningarorð: Páll Einarsson frá Þórisholti Fæddur 9. september 1900. Dáinn 14. júní 1981. Enn er skarð höggvið í hóp bræðranna frá Þórisholti; þeirrar kynslóðar er óx úr grasi á árunum kring um aldamótin síðustu. Svo skjótt hefur ástkær félagi og frændi verið burtu hrifinn af þessum heimi. Hann naut þó þeirrar sérstöku forréttinda að fá að fara í friði í þessa orðs bókstaflegu merkingu og er hann fjórði sinna bræðra að hljóta þann dauðdaga, er flestir myndu kjósa sér til handa ættu þeir þess yfirleitt nokkra völ. Páll Einarsson var fæddur að Þórisholti aldamótaárið, foreldrar hans voru Einar Finnbogason, hreppstjóri og Vilborg Andrés- dóttir kona hans. Hann var því afkomandi Einars hreppstjóra Jó- hannessonar í beinan karllegg, en ætt hans hefur búið í Þórisholti óslitið allt frá 1836. Hann hóf búskap á föðurleifð sinni í sambýli við bræður sína 1935 með Margréti Jóhannsdóttur frá Hólmum í Landeyjum, sem var hans lífsförunautur um áratugs skeið. Þau brugðu búi og réðust til bústarfa að Nýjabæ á Seltjarn- arnesi, hann starfaði á Vífils- staðabúi og síðar Bessastaðabúi allt til sjötugsaldurs, en þá var starfsdegi hans lokið á ríkisstofn- unum og þurfti hann nú að sjá sér farborða með lausavinnu í nokkur ár, eða þar til hann flutti á dvalarheimilið Ás í Hveragerði. Þar hefur hann gengið til allra verka jafnt utan heimilis sem innan þar til hann hneig niður örendur er hann var að draga niður íslenska fánann utan við As að kvöldi sunnudags 14. júní. Það er erfitt fyrir okkur syst- kinin að tjá hug okkar til Páls; hér blandast saman tilfinningar virð- ingar, þakklætis og saknaðar. Honum varð ekki barna auðið, en natni hans og umhyggju gagn- vart okkur verður ekki lýst með orðum. Hann fylgdist með vexti okkar og viðgangi, við tókum þátt í störfum með honum eftir því sem kraftar leyfðu, hann var félagi okkar og hjálparhella í daglegu starfi, gleði og mótlæti og hefur það samband haldizt gegn- um árin. Við hin eldri minnumst hans í annríki sumarsins og þó ekki síður á kyrrum kvöldum, er vetur lagðist yfir sveitina, við snigluðumst þá gjarnan eftir hon- um í fjósgjafir. Hann hafði frá mörgu að segja og hafði lag á að halda athyglinni vakandi er hann leysti hey úr stáli við frásagnir um ætt og uppruna, munnmæli eða mergjaðar draugasögur. Á haustdögum 1945 urðum við þess vör að einhver ókyrrð lá í loftinu, óvenju margir stórgripir féllu þetta haust, og bláköld stað- reyndin blasti brátt við, Páll og Magga voru að fara Suður. Sá, er þetta ritar minnist þess gerla, er gamli Fordinn ók úr hlaði með búslóðina innanborðs, og þó ekki sízt fyrir þann kjörgrip og notadrjúga nestismal er gefinn var að skilnaði í líki spánnýrrar skólatösku. Enda þótt við söknuðum þeirrar fjölskyldu, er nú hafði kvatt, hafði heimiíi okkar öðlazt áfangastað og mikilvægan snertipunkt við höf- uðborgina, sem heimili þeirra í Nýjabæ nú varð, enda nutum við gestrisni þar um árabil. Páll var einstakur maður, sjálf- stæður, ósérhlífinn, samvizkusam- ur og ötull verkmaður að hverju sem hann gekk. En hann kaus að eiga sínar næðisstundir og ráða ferðum sínum og gerðum án íhlut- unar annarra. Þrátt fyrir hlýhug og tillitssemi, er hann auðsýndi sínu samferðafólki og skylduliði var hann þó einfari síðustu árin. Hann var sífellt á verði, og stundum um of að okkar áliti, að troða engum um tær, né heldur lét hann nokkurn ráðskast um sinn hag. Enda þótt bústörf yrðu hans starfsvettvangur hafði hann hlot- ið í vöggugjöf náðargáfu tónlistar, sem margur þættist af fullsæmd- ur. Hann nam ungur grundvallar- atriði orgelleiks, sem hann með sjálfsnámi og sjálfsögun þróaði svo undrum sætti. Hann var jafnvígur á nótnalestur og að leika eftir eyranu, enda var hann organ- isti við Reynistaðakirkju um ára- bil og hélt það starf með mikilli reisn allt þar til hann hvarf úr sveitinni. Hugstæð verður okkur alúð hans og umhyggja við fjölskyldu okkar, þau er leita þurftu lækn- inga á Vífilsstaðahæli á þessum árum. Hann gladdi þau með heim- sóknum og hyglaði sem bezt hann kunni. Síðustu æviárin í Ási urðu honum að mörgu leyti sælutími, enda hélt hann fullum starfsþrótti og naut þess að verða samferða- fólkinu að liði, allt til hinztu stundar. Dýrmæt voru honum kynni við það prýðisfólk, er tók honum opnum örmum í framandi umhverfi og erum við starfsfólki Áss og öðrum þeim Hvergerðing- um er urðu til að veita honum ________________________37_ ánægjulegt ævikvöld, innilega þakklát. Atvik höguðu því svo til að hann staðfestist ekki í sveitinni fögru, þar sem landið nær lengst til suðurs og brekkurnar grænka fyrst á vorin. Þar skartar Dyr- hólaey til útsuðurs, Reynisfjall í austri og Mýrdalsjökull í norðri. Hér sleit hann barnsskónum og naut sín í starfi fram yfir fertugt. Þangað sótti hann lífsþrótt, árlega og jafnvel oftar eftir að hann flutti Suður. Hann er nú horfinn aftur til átthaga eftir áralanga útivist. Skyldustörf kalla hann engin á braut, hann hverfur nú á vit þeirrar moldar er hann ól og í æsku tróð. Sigurgeir Kjartansson Kynntuþér betur r iffrp* ■ ■ Xw Kyrr-r hæg- og hraðmynd — 3 glimrandi nýjungar frá Grundig. Nú ræður þú sjálfur ferðinni og getur sýnt myndina 3svar sinnum hægar til að fylgjast betur með framvindunni og stöðvað hana (á punktinum, ekkert hopp) ef þú vilt skoða eitthvert atvik nákvæmlega. Einnig getur þú sýnt á 3svar sinnum meiri hraða ef þú vilt renna hratt yfir ákveðin myndskeið eða ná fram sérstökum áhrifum. 8 stunda kassetta — Tvöfalt lengri á helmingi lægra verði pr. klst. Video2x4 plus ermeð kassettu sem hægt er að snúa við og gefur þá 2x4 klst. alls. Ekki nóg með það, heldur er hún einnig mun ódýrari pr. klst. Munurinn nemur allt að helmingi. APF — Sjálfvirkur myndleitari og minnistölva. Þú finnur efnið á methraða. Hann stoppar alltaf sjálfvirkt, við leit, þar sem upptökuskil eru og bregður upp kyrrmynd á skjáinn af stöðunni. Þú getur einnig stillt ákveðinn stað á spólunni inn á minni (memory) og fundið hann aftur á augabragði. Video 2X4 plus hefur 2umspólunar- hraða. DNS- þéttir útilokar truflanir og eykur tónsvið og gæði. Á hærra stiginu er hægt að umspóla 2x4 stunda kassettu á aðeins J 105 sek. Bandið er alltaf þrætt í f stýringuna til að auðvelda alla leit. tækið okkar! Forriti fyrir 10 daga upptökutímabil. Þú ræður dagskránni sjálfur. Þú ert kannski víðs f jarri, í vinnu, sumarfríi eða lúrir bara á þínu græna á meðan GRUNDIG mynd- segulbandið þitt tekur sjálfvirkt upp 4 útsendingar á 10 dögum. Þú skoðar efnið þegar þér hentar. Fullkomin rafeindastýring — Tækið sér við mannlegum mistökum. Reimalaus fullkomin rafeindastýring tryggir eins einfalda notkun og værirðu að stjórna plötuspilara. Intermix Electronic rafrás útilokar að rangar stillingar og óvitaskapur geti skaðað tækið. Nokkrir aukapunktar um Grundig video 2X4 plus. Video2x4 plus erbúið skerpustillingu fyrir mynd. Það hefur alsjálfvirkan stöðvaveljara. Mynd og tóngæði eru eins og best verður á kosið. Síðast en ekki síst: Kjörin eru íyrir alla. Júnítilboðsverð á GRUNDIG 2x4 plus myndsegulbandi (ásamt einni átekinni kassettu) er: 21.900 kr. Skilmálar sem allir ráða við: 5.000 kr. út og eftirstöðvar á 7—10 mánuðum. VIDEO 2000 Laugavegi 10 Sími: 27788 Því betur sem þú kynnir þér myndsegulbönd því hrif nari verðurðu af Grundig 2x4 plus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.