Morgunblaðið - 23.06.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1981
47
Húsmæðrum í Skaga-
firði kynnt starf-
semi kaupfélagsins
Bæ. Höfðaströnd. 22. júni.
KAUPFÉLAG SkaKÍirðinna mun
liklega vera fyrst á landinu til að
bjt'iða húsmæðrum i héraðinu til
kynningar- og fræðslufunda á
Sauðárkróki. Fyrsta boðið var
gert 24. febrúar og hafa nú
húsmæður i öllum deildum félags-
ins í héraðinu notið þessara boða.
Nú síðast húsmæður á Sauðár-
króki 18. júni.
Deildarstjórar voru látnir
kynna sér vilja húsmæðra og
síðan var bíll sendur til að sækja
þær og flytja ákveðna daga. Á
Sauðárkróki var húsmæðrum
kynntur rekstur fyrirtækja kaup-
félagsins, svo sem mjólkursam-
lags, saumastofunnar Ylrúnar,
kjötvinnslu og sláturhúss. Rausn-
arlegar veitingar voru veittar, þar
sem að mestu voru bornar fram
þær matvörur, sem fyrirtæki fé-
lagsins framleiða. Undir borðum
kynntu framkvæmdastjórar
deilda þær vörur, sem unnar eru
og kaupfélagsstjórinn Helgi Rafn
Traustason, skýrði rekstur félags-
ins og framtíðaráætlanir.
Rúmlega 300 konur í héraðinu
nutu þessara kynningar- og
fræðslufunda og láta á allan hátt
ánægju í ljós með þetta skemmti-
lega framtak kaupfélagsins. Eins
og vænta mátti af Skagfirðingum
krydduðu konurnar samsæti þessi
með mörgum lausavísum, sem
juku á stemmningu viðstaddra
gesta.
— Björn.
Vetrarlegt um að lit-
ast við Isafjarðardjúp
Bæjum. SúAavikurhreppi. 22. júní.
ÓVENJULEGA kalt hefur verið
hér að undanförnu og er nú
vægast sagt vetrarlegt um að
litast við ísafjarðardjúp. Margar
nætur í vor voru frostanætur og
er þvi mikið kal i túnum og
gróðurleysi.
Heimamenn telja það krafta-
verk ef tekst að ná í þann heyfeng
sem þeir eiga að venjast og duga
myndi fyrir fé hér á staðnum.
Útlit er fyrir að sláttur geti ekki
hafist fyrr en upp úr miðjum
ágúst, en nú er verið að bera áburð
á tún, sem mörg hver eru stein-
dauð.
Sauðburður gekk þokkalega, en
var erilsamur og vinnufrekur og
er nú nýlega búið að sleppa fé úr
húsum.
Sökum ótíðar hefur verið nokk-
uð dauft yfir félagslífi hér á
staðnum og til dæmis féllu niður
venjubundin hátiðahöld á 17. júní.
Veður er nú örlítið farið að hlýna
og eru menn farnir að vonast eftir
batnandi ástandi.
Vegir hér eru nú fremur slæmir
og er stutt síðan Þorskafjarðar-
heiðin var opnuð, en hún var lengi
ófær vegna bleytu og snjóa. Við-
gerðir eru hafnar á bryggjum í
Djúpinu, en margar fóru illa í
óveðrum í vetur.
Jens i Kaldalóni.
Góð byrjun
í Grímsá
Grímsá opnaði þann 20. júní
og eftir tvo fyrstu dagana voru
komnir yfir 30 laxar á land,
samkvæmt upplýsingum Frið-
riks Stefánssonar framkvæmda-
stjóra Stangarveiðifélags
Reykjavíkur. „Þetta er mjög gott
start,“ sagði Friðrik, „og voru 13
laxar yfir 10 pund að þyngd."
Friðrik sagði að yfirleitt væri
Grímsárlaxinn frekar smár, en
þessi byrjun lofaði góðu um
framhaldið. Talsvert af laxi er
gengið i Grímsá og mun hann
vera kominn um alla ána. Fisk-
arnir sem veiddust fyrstu tvo
dagana tóku flestir maðk.
5 í Soginu
fyrsta daginn
Veiði í Soginu hófst þann 21.
júní og reið árnefndin á vaðið, en
Sogið er leigt Stangarveiðifélagi
Reykjavíkur. Veiðin fyrsta dag-
inn var þokkaleg, 5 laxar komu á
land og veiddust þeir fyrir landi
Ásgarðs og Bíldsfells. Eitthvað
munu árnefndarmenn hafa séð
af fiski, en þess ber að geta að
Sogið er mikið vatnsfall og erfitt
að átta sig á hvort eitthvað er af
fiski í ánni.
Veiðin í Elliðaánum er nú
miklu betri en verið hefur und-
anfarin tvö ár, en á laugardag
höfðu veiðst yfir 60 laxar í
ánum. Eru Elliðaárnar óvenju
fljótar til í ár og voru á laugar-
dag komnir um 220 fiskar upp
fyrir teljarann.
Egill Skúli Ingibergsson kastar
flugu i Elliðaánum.
235 upp úr Norðurá
Veiðin í Norðurá er ágæt og
töluvert af fiski í ánni. Veiðast
10—15 laxar þar á dag að
meðaltali, en veiðin á eftir að
batna þegar á líður sumarið, ef
að líkum lætur, því besti veiði-
tíminn er enn eftir þar eins og
annarsstaðar. í veiðihúsinu
fengust þær upplýsingar að á
mánudag hefðu 235 laxar verið
komnir á land. Þar á meðal var
einn 17 punda fiskur, og veiddist
hann á Eyrinni og tók maðk. Er
þetta stærsti laxinn úr Norðurá í
ár. Flestir laxarnir hafa veiðst á
maðk, en 50 fiskar hafa tekið
flugu. 20 laxar hafa tekið
„Túbu“, samkvæmt því sem
skráð er í veiðibók, 19 hafa
veiðst á Þingeying og nokkrir á
Francis.
Talsvert hefur rignt í Borgar-
firðinum að undanförnu og er
mikið vatn í Norðurá og er áin
skoluð.
Veiðimenn gæti
nylongirnisins
Hvanneyri 9. júní.
Eitt er það sem veldur bænd-
um erfiðleikum og á stundum
tjóni, en það er veiðigirni sem
veiðimenn skilja eftir við ár og
vötn, að loknum veiðidegi.
Á þessu vori hefur það vafist
um fætur a.m.k. tveggja áa hér á
Hvanneyri með ófyrirséðum af-
ieiðingum.
í fyrra duttu klaufir af einni á
af þessum sökum hér á Hvann-
eyri. Eru það eindregin tilmæli
til veiðimanna að gæta þessara
nylonþráða og tortíma þeim með
þeim hætti að skaðlaust verði
skynlausum skepnum á komandi
tímum. Ófeigur
- ÓJ.
Laxamaðkar á 3
krónur stykkið
100% hækkun frá í fyrra
GANGVERÐIÐ á laxamaðki er
nú um 3 krónur stykkið, sam-
kvæmt uppiýsingum sem Morg-
unhlaðiö hefur aflað sér, en
sumsstaðar mun þó verðið vera
hærra. Á sama tíma i fyrra
kostaði hvert stykki um 150
gkr., þannig að um 100% hækk-
un er að ræða á milli ára.
Verðið hækkaði nokkuð í fyrra-
sumar og voru maðkarnir
komnir 1 200 krónur í fyrra
haust.
TRÖÐfULL BÚE> AF N'rO’UM VÖRUM
KARNABÆR
* KUXUK- MARSAfc
■* SOLK í TUítAtA L i
*• BLAZHKJAtCtAg-- CfcMU Oét
* SKnmiK
OCr EÍN<AUMK0£>Síö6NN
US1 AUT UANC