Morgunblaðið - 30.03.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982
11
„Tom
Tom
Club“
Tom Tom Club.
Tom Tom Club.
Island ILPS 9686.
Hljómsveitin Talking Heads á
sér allmarga aðdáendur hér á
landi. Allt frá því að fyrsta plata
þeirra kom út hefur hróður
hennar aukist og í dag er Talk-
ing Heads eitt af stærstu nöfnun
popptónlistarinnar. Eflaust
kannast færri við hljómsveitina
Tom Tom Club, og þó svo væri þá
er ekki víst að hann vissi að TTC
er hljómsveit innan Talking
Heads. Því er þannig farið að
Tina Weymouth, sem spilar á
bassa, og Chris Frants, tromm-
ur, eru bæði félagar í báðum
hljómsveitunum. Þau hafa feng-
ið til liðs við sig vini og vanda-
menn og samankomin kalla þau
sig Tom Tom Club. Þau spila
tónlist sem sver sig að miklu
leyti í ætt við Talking Heads.
Nýlega sendi þessi fríði flokk-
ur frá sér breiðskífu sem þau
kalla einfaldlega „Tom Tom
Club“. Hún hefur að geyma ein
átta lög sem öll hafa verið samin
af félögum TTC. Um fyrri hlið-
ina er það að segja að þau fjögur
lög sem þar eru líkjast öll hvert
öðru og þegar eftirtektin er ekki
100% gæti eins verið að eina og
sama lagið væri út alla hliðina.
Það sem bætir þetta að miklu
leyti upp er skemmtileg tónlist,
góð áheyrnar. Hún byggist að
miklu leyti upp eins og diskó-
tónlist, þ.e. taktföst og gripandi
með laglínu sem er spiluð á
hljómborð. Þess verður hinsveg-
ar að geta að ef þetta skal flokk-
ast undir diskó þá er þetta
glimrandi gott. Þessu til árétt-
ingar er fyrsta lagið á hlið eitt
hreint diskó-lag, og jafnframt
eitt skemmtilegasta sem ég hef
heyrt í langan tíma. Þetta lag
heitir „Wordy Rappinghood".
Önnur lög plötunnar gefa þessu
þó ekkert eftir og ef vel er hlust-
að má finna hinar skemmtileg-
ustu hugmyndir og flutning á
þeim
Platan er nokkuð góð, en samt
held ég að ef eitthvað annað
hefði verið nálægt plötuspilar-
anum sem er virkilega gott þá
hefði lítið orðið af því að hlusta
á Tom Tom Club. Það sem gerir
plötuna fyrst og fremst einhvers
virði er „Wordy Rappinghood".
FM/AM.
Reiknadu med
og dæmid gengur upp
Facit 2256 er enn ein kærkomin Facit-nýjung fyrir fullkomna skrif-
stofu. Einstaklega ódýrog falleg reiknivél meö skýrum glugga, eld-
fljótri prentun og valboröi sem á engan sinn líka hvaö þægindum og
vinnsluhraöa viökemur.
Facit 2256 erjafnvíg til flestra verka. Einföldustu og flóknustu dæmi
ganga fyrirhafnarlítið upp og ekki spillir þaö ánægjunni aö Facit
-reiknivél er ósvikið augnayndi.
Miðinn kostar 45 kr.
og íœst í síma‘^2399 og 33370
Landshappdrœtti SÁÁ